Þjóðviljinn - 07.10.1988, Blaðsíða 19
Öll íslensku
liðin úr leik
Fyrstu umferð Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu er
nú lokið og voru íslensk félag-
slið meðal þátttakenda eins
og venja er. Keppnin er þrísk-
ipt þannig að þrjú félög frá
Fróni geta verið með og voru
Valur, Fram og ÍA fulltrúar ís-
lands í eitt skiptið enn. Fóru
leikar þannig að öll liðin töpu-
ðu viðureignum sínum og féllu
út úr keppninni samkvæmt
gamalkunnu útsláttar-fyrir-
komulagi.
Þetta er í fjórða skiptið í röð
sem þessi þrjú lið keppa fyrir ís-
lands hönd og verður svo einnig
að ári þegar íslensk lið heyja eina
baráttuna enn fyrir því að komast
í aðra umferð keppninnar. Gengi
liðanna hefur verið mjög upp og
ofan og svo var einnig nú, enda
þótt litlu hafi munað að tvö lið-
anna næðu tilætluðum árangri.
Ágætur árangur
Vals og ÍA
Valsmenn kepptu í Evrópu-
keppni meistaraliða, þar sem þeir
voru íslandsmeistarar árið 1987.
Ekki var þeim spáð velgengni í
viðureign sinni þar sem besta lið
Frankaríkis varð andstæðingur
þeirra. Monaco heitir félagið,
eftir samnefndu furstadæmi um-
lukið Frakklandi og Miðjarðar-
hafinu, en að auki státar liðið af
tveimur af frambærilegustu
sparksnillingum Engilsaxa,
Glenn Hoddle og Mark Hateley.
Valur gerði sér lítið fyrir og
sigraði heimsstjörnurnar á
Laugardalsvelli 1-0 í liðnum mán-
uði en féll síðan úr keppni við 0-2
tap á velli furstadæmisins. Það
verður að teljast viðunandi ár-
angur, og gott betur, því Vals-
menn voru alls ekki langt frá því
að fella stórliðið-úr leik. Það má
því segja að skrautfjöðrin hafi
verið komin hálfa leið í hatt Vals-
manna áður en heilladísirnar
hrifu hana á brott.
Sömu sögu er að segja af
Skagamönnum. Þeir voru jafnvel
enn nær annarri umferðinni því
þeim tókst að skora á útivelli eftir
Lið okkar í Evrópu-
keppnum knatt-
spyrnunnar eru öll úr
leik eftir fyrstu um-
ferð. Urslitin engu að
síður vel viðunandi
markalaust jafntefli við ungver-
ska liðið Ujpesti Dosza. Þar sem
mark á útivelli vegur þyngra,
þurftu Ungverjarnir að skora tvö
mörk sem þeir og gerðu. Skaginn
var því úr leik á jafn dramatískan
hátt og liðið frá Hlíðarenda.
Fram lenti í þeirri erfiðu að-
stöðu að leika gegn einu af stór-
liðum stórliðanna. Barcelona er
eitt allra ríkasta og öflugasta fél-
agslið heimsins í dag og Framarar
áttu því við ramman reip að
draga. Menn gerðu sér engar
gyllivonir heldur voru Framarar
hreinlega afskrifaðir til afreka í
Evrópukeppninni í ár. Enda kom
það á daginn að Fram féll úr
keppni eftir 0-2 tap á heimavelli
og 0-5 tap á hinum fræga Nou
Camp leikvangi þeirra Börsunga.
Þátttaka þeirra verður varla
feitletruð á spjöldum knatt-
spyrnusögunnar, en engu að
síður skemmtileg og ógleymanleg
reynsla fyrir leikmenn og að-
standendur félagsins. Leikir
Framara minna því nokkuð á
viðureign Valsmanna við Juvent-
us frá Italíu fyrir réttum tveimur
árum, en þá fóru Valsmenn enn
verr út úr dæminu, 0-11 saman-
lagt tap.
Þátttakan
á rétt á sér
Árið 1986 var reyndar einstak-
lega svart í sögu íslenskra knatts-
pyrnuliða á Evrópugrundvelli.
Auk hins stóra ósigurs Vals-
manna töpuðu Skagamenn 0-15
samanlagt gegn Sporting Lissa-
bon og Framarar töpuðu 0-4 gegn
Katowice frá Póllandi.
Eftir þessar hræðilegu útreið
fslensku liðanna fóru menn eðli-
lega að spyrja sjálfa sig þeirrar
spurningar hvort það tæki því
nokkuð að standa í svona vit-
leysu. Þessar raddir voru kveðnar
í kútinn ári síðar þegar Valsmenn
féllu fyrir a-þýska liðinu Wismud
Aue vegna færri marka á útivelli
en viðureigninni lyktaði saman-
lagt með jafntefli, 1-1. Skaga-
menn töpuðu þá fyrir Kalmar frá
Svíþjóð, 0-1, en Framarar fóru
hins vegar illa fyrir Sparta Prag
skíttöpuðu" 0-10.
rangur íslensku liðanna í ár
hlýtur að teljast viðunandi þótt
ekkert félaganna hafi komist
áfram. Það er eins og einhvern
neista vanti í okkar bestu lið gegn
atvinnumönnum stórþjóðanna til
að knýja fram sigur. Þeir leikir
sem þykja jafnir enda nær undan-
tekningarlaust með sigri útlend-
inganna og virðist seigla þeirra og
reynsla fleyta þeim í gegnum erf-
iðleikana.
Meðan við stundum aðeins
áhugamensku (sumir segja
reyndar hálf-atvinnumennsku)
getum við einfaldlega ekki gert
V mk riR
Stjömum prýtt lið Monaco kom með stuðningsmenn sína á Laugardalsvöllinn
en það dugði ekki til því Vatsmenn sigruðu á sannfærandi hátt. Mynd: Jim
Smart.
ráð fyrir sigrum gegn þrautþjálf-
uðum atvinnumönnum. Einnig
er keppnistímabilið hér á Fróni
svo stutt að ekki er mögulegt að
byggja upp stórlið í knattspyrnu.
En þátttaka okkar í Evrópukepp-
num á fyllilega rétt á sér. Þótt við
komumst sjaldan í aðra umferð
og aldrei í þá þriðju þá er það
hvort eð er erfiðleikum bundið
að leika á þeim tíma þegar farið
er að fenna hér á íslandi. Við get-
um því sagt að land okkar bjóði
hreinlega ekki upp á afrek í Evr-
ópukeppnum félagsliða.
-þóm
FLOSKUSKEYTI
Framhjáhöld
Þjóöverja
Um helmingur allra giftra
kvenna í V-Þýskalandi hefur
haldið fram hjá eiginmönnum
sínum samkvæmt könnun sem
þýska Fjölskyldustofnunin hefur,
gert. Alls eru 15 miljónir giftra
kvenna í Þýskalandi og um 7,5
miljónir hafa haldið framhjá eigin-
manninum einusinni eða oftar.
Vinsælast er að halda fram hjá
körlunum síðdegis á laugar-
dögum, því þá eru eiginmennirnir
uppteknir við golf eða aðra lík-
amsræktariðju. Alls munu um 1,2
miljónir þýskra kvenna eiga fasta
elskhuga.
Listamanna-
laun
Sá listamaður sem þénar mest
um þessar mundir í heiminum er
poppstjarnan Michael Jackson.
Tekjur hans árin 1987 og 1988
voru rúmir 4,6 miljarðar króna.
Þessar upplýsingar er að finna á
lista yfir 40 tekjuhæstu lista-
mennina sem nýlega birtist í
Bandaríkjunum.
Sjónvarpspabbinn Bill Cosby
verður nú að láta sér nægja ann-
að sætið en síðast þegar svipað-
ur listi birtist var hann í fyrsta
sæti. Hann hafði rúma 4 miljarða
í tekjur þessi tvö ár. Kvikmynda-
leikstjórinn Steven Spielberg er í
þriðja sæti, RambóRokkí Stall-
one í fjórða og grínistinn Eddie
Murphy í fimmta.
Smurstöð Heklu hf. er í alfaraleið við Laugaveginn.
Hún er skammt frá miðbænum og því þægilegt að skilja bílinn
eftir og sinna erindum í bænum á meðan bíllinn er smurður.
Nýlega var tekin í notkun fullkomin veitingaaðstaða fyrir þá
viðskiptavini sem vilja staldra við á meðan bíllinn er smurður.
Fljót og góð þjónusta fagmanna tryggir fyrsta flokks smurningu.
Lítið við á Laugavegi 172 eða pantið tíma í símum
695670 og 695500.
Veriðvelkomin.
HEKIAHF
Laugavegi 170 - 172 Simi 695500
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19