Þjóðviljinn - 18.10.1988, Blaðsíða 10
FLÓAMARKAÐURINN
Óska eftir bílskúr tll lelgu
og 4 felgum undir Lödu. Upplýsing-
ar í síma 12687.
Til sölu
Furusófasett 3+1 + 1 og borð til
sölu. Sími 689718.
Óska eftir
ódýrum og vel með förnum barna-
vagni. Upplýsingar í síma 42931.
Tll sölu
hilluborð og nokkrar hillur í
geymslu. Einnig stálvaskur og
handklæðastatív fyrir bað. Upplýs-
ingar eftir kl. 18.00 í síma 612430.
Þvottavél
Til sölu Candy þvottavél. Verð kr.
6.000. Upplýsingar í síma 14343.
Fataskápur tll sölu
furulíki. Upplýsingar í síma 28792.
Tölva
Til sölu Amstrad CPC 464 64k tölva
með litaskjá og innbyggðu segul-
bandi. Einnig fylgja 40 leikja forrit,
original, og stýripinni. Áætlað verð
kr. 30 þús. Upplýsingar ( síma
17369 eftir kl. 19.00.
Tapað - fundlö
Gleraugu
Dömugleraugu fundust á laugar-
dag við endastöð SVR í Skerjafirði.
Eigandi getur vitjað gleraugnanna í
afgreiðslu Skeljungs í Skerjafirði.
Fjarstýringu vantar
Á einhver gamla fjarstýringu með
þræði, fyrir gamalt Fisher vídeó-
tæki, teg. FVH P-520? Vinsam-
legast hringdu þá í síma 621309.
Atvlnna óskast
Kona vön afgreiðslu óskar eftir
starfi. Upplýsingar í síma 42835.
Tll sölu
tvöföld, þykk dýna með 3 púðum á
kr. 5.000 og lítið skrifborð á kr.
1.000. Upplýsingar í síma 28623.
Einstæða móður
með eitt bam bráðvantar íbúð, helst
2-3 herbergja, strax. Fyrirfram-
greiðsla og trygging ef óskað er.
Vinsamlegast hringið í síma 29196
eftir kl. 9 á kvöldin.
Tll sölu
hilluinnrótting á bað, 3 m á lengd,
barnavagga með áklæði og Tecnic
segulband M216. Upplýsingar í
síma 77636.
Eftirtaldir hlutlr eru til sölu:
Sjötíu lítra vatnsgeymir á 500 krón-
ur, 5 stk 13 tommu felgur þar af 2
með vetrardekkjum, forn skíði á
200 krónur, nýrri skíði með binding-
um og stöfum, hljómtæki með
hátölurum og innbyggðu kassettu-
tæki á 1500 krónur, hattahengi með
fataslá á 1000 krónur, hljómtækja-
skápur á 3000 krónur, borðstofu-
sett, 2 þvottabalar úr blikki. Enn-
fremur fáein smáborð sem fást fyrir
það sem viðkomandi vill greiða fyrir
það. Allar nánari upplýsingar er að
fá á Langholtsvegi 112A eða í síma
30672 eftir klukkan sjö.
Tll sölu
Trabant árg. '87, ekinn ca. 30.000
km. Verð kr. 60.000. Upplýsingar í
síma 29907 eftir hádegi.
Viljum kaupa
gamlan bókaskáp, stórt sófaborð,
hægindastól og breiðan dívan.
Hafðu samband í síma 38587 eftir
kl. 18.00.
Píanó til sölu
á 40.000 krónur. Ekki stofustáss en
gott byrjendapíanó. Nýlegur hljóm-
botn. Sími 17962.
Saxófónn
Góður Yamaha tenórsaxófónn til
sölu. Sími 96-41522 á kvöldin.
fbúð óskast - tll sölu
Okkur vantar 3 herberaja íbúð á ca.
35.000 kr. á mánuði. Á sama stað
er til sölu gamaldags furuhjónarúm
og 4 vetrardekk á Daihatsu Char-
ade.
Tll sölu
Scout '74 með Benz dieselvél og 5
gíra kassa. Upplýsingar í síma
32088.
Hrelngernlngar
Ung stúlka vill taka að sér
hreingerningar 1-2 klst. á kvöldin.
Upplýsingar í síma 19619 til kl.
17.00, Þorbjörg.
Hjónarúm
með náttborðum án dýna, til sölu.
Upplýsingar í síma 16557.
Vantar stóran svalavagn
og göngugrind. Upplýsingar í síma
34796.
Þvottavél
Til sölu 4 ára gömul þvottavél. Verð
kr. 12.000. Upplýsingar í síma
656825.
Svalavagn óskast
fyrir lítiö eða helst ekki neitt. Sími
17198.
Tll sölu
Brún, ónotuð leðurkápa, stærð
medium, til sölu. Einnig stórt, svart
og bleikt sófaborð. Gott verð. Upp-
lýsingar í síma 18259, eftir kl.
20.00.
Árbæjarhverfi
Óska eftir stúlku, 11-14 ára, til að
passa 2 bræður (2 og 6 ára) einu
sinni eða tvisvar í viku frá kl. 3. Upp-
lýsingar í síma 674047.
Tll sölu
vel með farið, kringlótt, hvítlakkað
eikarborð, 1,20 m í þvermál á kr.
3.000 og furuborð (Gráfeldar)
76,5smx1,53m á kr. 3.000. Sími
21903 eftir kl. 18.00.
Rafmagnssuðupottur
100 lítra til sölu. Upplýsingar í síma
51643.
fsskápur
Philco, ísskápur, 143x60, til sölu
ódýrt eða í skiptum fyrir minni ís-
skáp (55 cm á breidd). Upplýsingar
í síma 656332.
Atvinna óskast
Tvitugur maður óskar eftir atvinnu.
Margt kemur til greina. Er vanur út-
keyrslu. Upplýsingar í síma 670231
eftir kl. 20.00.
Húsnæði óskast
Við erum tvær ungar, reglusamar
konur og okkur bráðvantar 3 her-
bergja íbúð, helst í miðborginni.
Greiðslugeta 25.-30.000 kr. á mán-
uði. Upplýsingar í síma 11375, Mar-
grét eða vinnusími 691275, Helga
Björg.
Vil selja
2 notuð hedd á VW 1600 vél. Upp-
lýsingar í síma 44465.
Húsnæði óskast
Ung og reglusöm, snyrtileg og reyk-
laus hjón með tvö börn, 8 ára og 11
ára, óska eftir að taka á leigu 4-5
herbergja íbúð. Upplýsingar í síma
16249 á kvöldin og 11640 á daginn.
Gína óskast
Mig vantar kvengínu gefins eða
mjög ódýrt. Vinsamlegast hafið
samband við Sigrúnu í síma
675862 eftir kl. 17.00.
Til sölu Peugeot 205
árgerð 87, ekinn 15 þús. km. Góður
bíll í toppstandi.l Vetrardekk fylgja.
Upplýsingar í síma 29819.
Vilt þú læra spænsku eða
á katalónsku?
Kenni spænsku og katalónsku í ein-
katímum eða hópum. Hef tilo leigu
íbúð í Barcelona. Upplýsingar í
síma 24634, Jordi.
Flóamarkaður
Opið mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag frá kl. 14-18. Endalaust úr-
val af góðum og umfram allt ódýr-
um vörum. Gjöfum veitt móttaka á
sama stað og tíma. Flóamarkaðúr
SDI, Hafnarstræti 17, kjallara.
FRÉTTIR
Þjóðarflokkur
Ný
vinnu-
brögð
Ályktun aðalfundar í
Öífusborgum 14. -16.
október
Núverandi efnahagskreppa á
íslandi er enn ein sönnun þess að
sú efnahagslega og pólitíska mið-
stýring, sem við búum við er
gjörsamlega misheppnað og stór
hættulegt kerfi fyrir land og lýð.
í síðustu kosningum barðist
Þjóðarflokkurinn fyrir róttækum
þjóðfélagsbreytingum, með stór
aukinni valddreifíngu. Sjálfstæði
landshlutanna er eina leiðin til að
auka ábyrgð og skapa jafnvægi
milli eyðslu og verðmætasköp-
unar. Getuleysi gömlu stjórn-
málaflokkanna til að stjórna ís-
landi hefur komið skýrt í ljós síð-
astliðin misseri. Nú er svo komið,
- enn einu sinni, að grípa verður
til stórkostlegra millifærslna til
þess að fela gjaldþrot þjóðfélags-
ins. Þjóðarflokkurinn vekur at-
hygli á, að hér er eingöngu um að
ræða ómarkviss vinnubrögð, -
ósjálfráð viðbrögð ónýts kerfís,
til þess að viðhalda sjálfu sér.
Sennilegt er að margir munu
gleymast, og ekki ólíklegt að pól-
itísk spilling ráði því, hverjum
verður bjargað. Augljóst er, að
hrun heimilanna og fyrirtækja
heldur áfram. Barátta Þjóðar-
flokksins fyrir stöðugleika í efna-
hags- og búsetumálum hefur
aldrei verið brýnni. Efnahagslegt
hrun og búseturöskun á sér stað
jafnvel hraðar en framsýnustu
menn óttuðust.
Óstjórn á öllum þáttum efna-
hagslífsins er þvílík, að varla er
ástæða að draga fram einstök
dæmi. Þó verður að tilgreina fár-
ánlega stefnu í verðbóta, gengis-
og vaxtamálum, sem valdið hafa
gífurlegri tilfærslu eigna milli
landshluta, atvinnugreina og ein-
staklinga.
Við Islendingar búum í auðugu
landi. Gjöful náttúra landsins
þarfnast umhyggju, - skipulegrar
landnýtingar og öflugrar náttúru-
vemdar.
Gæfa okkar fer fyrst og fremst
eftir því hvernig okkur tekst að
vinna sameiginlega að nýskipan
þjóðfélagsins, til hagsbóta fyrir
alla. Þegar gamlar aðferðir hætta
að duga, verðum við að hafa
kjark til að taka upp ný vinnu-
brögð. Stefna Þjóðarflokksins er
valkostur sem þjóðin verður að
taka mark á, ef takast á að snúa
við óheillaþróuninni. Þjóðarf-
lokkurinn kallar á stuðning og
samvinnu allra þeirra afla sem á
ábyrgan hátt vilja vinna að
endurbótum á þjóðfélaginu í
anda hans svo þau geti sameinað
krafta sína í baráttunni fyrir betra
þjóðfélagi og sóst eftir umboði
þjóðarinnar til þess í öllum kjör-
dæmum við nætu alþingiskosn-
ingar.
Islendingar standa nú á tíma-
mótum. Mikilvægt er, að upp úr
rústum óráðsíunnar rísi þjóð með
nýtt gildismat. Stolt þjóð sem
virðir landið sitt allt og verð-
skuldar að búa í því.
íslenska þjóðin og Þjóðar-
flokkurinn eiga samleið.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Hafnarfirði
Aðalfundur ABH
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnar-
firði verður haldinn, miðvikudaginn 19. október
kl. 20.30 ( Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf.
Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
mætir áfundinn og ræðir um Nýja ríkisstjórn og
nýja stjórnarstefnu.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Ólafur Ragnar
Alþýðubandalagið í Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Keflavík og Njarðvík verður haldinn
laugardaginn 22. október kl. 15 í Iðnmeistarafélagshúsinu, Tjarnargötu 7.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) önnur mál.
Félagar og stuðningsmenn em hvattir til að mæta.
Stjórnln.
AB Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn laugar-
daginn 22. október kl. 14.00 í Rein.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Stjórnin
AB Ólafsvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélagins í Ólafsvík verður haldinn sunnu-
daginn 23. okt. í Mettubúð og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Almennar umræður.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Reykjavík
Félagsfundur ABR
Ný ríkisstjórn - baráttan framundan
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og formaður Alþýðubanda-
lagsins hefur framsögu og svarar fyrirspurnum á almennum félags-
fundi ABR fimmtudaginn 20. október kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Félagar fjölmennið
Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Æskulýðsfylkingin 50 ára
Hver man ekki eftir gömlu skálastemmningunni, Tjarnargöturómantíkinni,
Landnemanum, Heimsmótunum og öllu hinu? Nú er allavega tímabært að
rifja upp 50 ára sögu í góðum félagsskap.
Laugardaginn 5. nóvember nk. verður afmælið haldið hátíðlegt með borð-
haldi, upplestri, fjöldasöng og dansi að Hverfisgötu 105.
Borðhaldið hefst kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30.
Taktu strax frá kvöldið. (Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst v/matar í síma
17500).
Afmælisnefndin.
Hafírðu
smakkað vín
- láttu þér þá ALDREI
detta í hug
að keyra!
yUJJFEHOAR
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði