Þjóðviljinn - 19.10.1988, Page 1
í
y Alþingi
A flótta undan fortíðinni
Viðskilnaðurfyrri ríkisstjórnar verri en œtlað var. Þorsteinn Pálsson: Kannast ekki við meira en 700 miljóna halla
á ríkissjóði. ÓlafurRagnar Grímsson segir sjálfstœðisráðherrana vera aðþvo hendur sínar af fortíðinni
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði á Al-
þingi í gær að hann kannaðist
ekki við nýrri upplýsingar um
halla ríkissjóðs í ár en þær sem
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, hefði
gefið ríkisstjórninni í september.
Þá hefði Jón sagt hallann verða
700 miljónir. Ólafur Ragnar
Grímsson sagði Þorstein og sam-
ráðherra hans úr Sjálfstæðis-
flokknum vera að hvítþvo sig af
fortíðinni.
Þorsteinn fór fram á utandag-
skrárumræðu í neðri deild í gær
vegna ummæla Ólafs Ragnars á
fundi í Garðabæ á laugardag um
viðskilnað stjórnar Þorsteins. Á
Garðabæjarfundinum hafði
Ólafur Ragnar sagt frá því að nú
væri unnið að uppgjöri á stöðu
ríkissjóðs og að ljóst væri að nið-
urstöður þess uppgjörs myndu
sýna allt aðrar tölur en gert hefði
verið ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi. Fjárlagaráðherra hefur
ekki viljað tóta hafa ákveðnar
tölur eftir sér en í ýmsum fjöl-
miðlum hefur því verið haldið
fram að hallinn verði milli 5 og 6
miljarðar.
Utandagskrárumræða á sér yf-
irleitt stað í sameinuðu þingi þó
fordæmi séu fyrir því að hún fari
fram í deildum. Olafur Ragnar
sagði ljóst á umræðunum að til
þeirra hefði verið stofnað til að
koma höggi á fyrrverandi fjár-
málaráðherra Jón Baldvin.'Hann
ætlaði ekki að fara að skýra út
stöðu ríkissjóðs á örfáum mínút-
um í hálftíma utandagskrár um-
ræðum í deild. Það yrði gert á
réttum vettvangi þegar þar að
kæmi.
í umræðunum spurði Þor-
steinn hvort Jón Baldvin hefði
ekki vitað betur um stöðu ríkis-
sjóðs eða hvort hann hefði lagt
rangar upplýsingar fyrir ríkis-
stjórnina þegar hann sagði hall-
ann verða 700 miljónir króna.
Ólafur sagði slæma stöðu ríkis-
sjóðs nú stafa af breyttum stærð-
um í þjóðfélaginu vegna aðgerða
ríkisstjómar Þorsteins, hann
myndi gera grein fyrir þeim við
kynningu fjárlaga. Þorsteinn ætti
að spyrja Einar Guðfinnsson í
Bolungarvík hvaða áhrif stjórn-
arstefna hans hefði haft á hans
fyrirtæki. Ólafur sagði Sjálfstæð-
isflokkinn vera á flótta undan
ábyrgð með.því að þykjast ekkert
vita um stöðu ríkissjóðs. Flokk-
urinn væri á flótta undan fortíð-
inni og formaðurinn Þorsteinn
Pálsson stýrði flóttanum.
-hmp
Hugbúnaður
Tölvuvírus
Tölvuvírus eyðilagðiforrit. Tölvuvírusarfjölga
sér. Víða vandamál
„Við fengum erlendis frá við-
bótarútgáfu við forrit sem við
höfum verið með. í þessari við-
bótarútgáfu leyndist svokallaður
tölvuvírus. Þessi vírus fór inn á
allt kerfið hjá okkur og einnig
höfum við sent frá okkur forrit
sem innihéldu þennan vírus,“
sagði eigandi hugbúnaðarfyrir-
tækis sem blaðið ræddi við í gær.
„Sem betur fer var þessi vírus
tiltölulega meinlaus. Okkur tókst
að losna við hann áður en stór
skaði hlytist af“, sagði hann, en
bætti við að þessi vírus hefði þó
eyðilagt fyrir þeim eitt forrit.
Tölvuvírusar eru víða orðnir
vandamál erlendis. Þegar talað er
um tölvuvírus er átt við að inni á
forritum, sem keyrð eru inn á
tölvu, leynist skipanir sem geti
eyðilagt það sem er geymt á hörð-
um diski tölvunnar. Tölvuvírus
hefur þá eiginleika að fjölga sér;
sé einu sinni búið að keyra inn
sýkt forrit verður vírusinn eftir í
tölvunni og færir sig yfir í næsta
forrit sem keyrt er í sömu tölvu.
Sumir vírusar eru alveg skað-
lausir, en aðrir hafa valdið mikl-
um usla.
-«g
Hvalveiðar
Andstaðan eykst
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins fór fram á hálftíma utandagskrárumræðu í neðri deild í
gær. Hún átti að snúast um ummæli Ólafs Ragnars um viðskilnað síðustu stjórnar, en snerist að mestu um
fyrrverandi fjármálaráðherra. Mynd: Jim Smart.
Sölustofnun lagmetis vill tafarlausa stöðvun
veiða. Sigurður Markússon framkvœmdastjóri
SIS: Stöðugar hrœringará markaðnum vegna
þrýstingsfráfriðunarsinnum
Aukins ótta gætir nú hjá
hagsmunaaðilum í útflutningi
sjávarafurða vegna síðustu at-
burðaíhvalamálinu. Sölustofnun
lagmetis hefur sent ríkisstjórn-
inni ályktun þar sem þess er kraf-
ist að hvalveiðum verði hætt.
Framkvæmdastjóri sjávarafurða-
deildar SÍS segir málið komið á
það stig að stjórnvöld verði að
taka mið af breyttum aðstæðum.
Sjá síður 3 og 4
Heimsbikarmótið
Fjör og fjörleysi
Enginn hefurnáð afgerandiforystu
Jóhann Hjartarson er í þeim helmingi þátttakenda á Heimsbikar-
móti Stórmeistarasambandsins sem keppir um efstu sæti. Hann hefur
nú hreppt 7 vinninga úr 13 skákum eftir að hafa gert jafntefli við
Ungverjann Gyula Sax í gærkvöldi.
Viðureign Garríjs Kasparovs og Alexanders Beljavskíjs fór í bið og
hyggst heimsmeistarinn svíða fjanda sinn í endatafli. í dag skýrir Helgi
Ólafsson þessar tvær viðureignir. gj^ g
\