Þjóðviljinn - 20.10.1988, Page 1
>'V, i
Borgarstjórnarmeirihlutinn œtlar að skera stórlega niðurframlög til dagvistarheimila
semforeldrar og stofnanir reka. Kristín Á. Ólafsdóttir: Leikskólastefna íhaldsins þvert á vilja og óskirforeldra.
Viljum hœrri styrki til bœði leikskóla og dagheimila
- Á borgarstjórnarfundi í dag
verður harkalega tekist á um
framtíð dagvistarstofnana í höf-
uðborginni, sem foreldrar eða
aðrir aðilar reka fyrir eigin
reikning með rekstrarstyrk frá
borgaryfirvöldum. Meirihluti
Sjálfstæðismanna í borgarstjórn
hefur lagt fram tillögu fyrir fund-
inn í dag, sem felur í sér veru-
legan niðurskurð á styrkjum til
þessara dagvistarheimila. Hins
vegar vilja Sjálfstæðismenn
hækka rekstrarstyrki til leikskóla
sem reknir eru af einkaaðilum.
- Ég lít á þetta sem sorglegt
skemmdarverk, ef samþykkt
verður, bæði gagnvart þeim for-
eldrum og öðrum aðilum sem
hafa lagt mikið á sig til að leysa úr
brýnum dagvistarvanda í borg-
inni með stofnun heimila utan
borgarkerfisins, og ekki síður
gagnvart þeim sem hafa verið að
undirbúa stofnun slíkra dagvist-
arheimila, segir Kristín Á. Olafs-
dóttir, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins.
Allir borgarfulltrúar stjórnar-
andstöðunnar hafa sameinast um
tillögu sem lögð verður fram á
borgarstjórnarfundinum í dag,
þar sem lagt er til að rekstrar-
styrkir verði verulega hækkaðir,
bæði til dagvistar og leikskóla
foreldra og einkaaðila.
- Tillögur Sjálfstæðismanna
eru alger tímaskekkja. Miðað við
þær styrktarreglur sem gilda í
dag, þýða þessar tillögur að
styrkir til foreldrarekinna dag-
vistarheimila verða skornir niður
um rúmlega 2/3 og til fyrirtækja-
og stofnanarekinna dagvistarhei-
mila um rúmlega 1/3. Ég efast
stórlega um að foreldrar ráði við
að halda heimiiunum áfram
gangandi ef þessar tiilögur verða
samþykktar, sagði Kristín.
Hún segir að með þessum til-
lögum sé vegið að þeim foreldr-
um sem hafa Jagt ómælda vinnu á
sig og fyrirhöfn til að leysa brýn-
an vanda í dagvistarmálum með
eigin frumkvæði. - Sú leikskóla- innleiða hér í höfuðborginni, er í vilja og þarfir borgarbúa sem vöru úrlausn í dagvistarmálum,
stefna sem íhaldið er að reyna að hróplegu ósamræmi við bæði bíða hundruðum saman eftir al- sagði Kristín Á. Ólafsdóttir. -ig.
Sjávarútvegur
'\a r
Þjoðin a
hlutaskipti
Óskar Vigfússon:
Hlutaskipti ráði í
góðœri og hallœri
Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands íslands segir
að sjómennskan eigi undir högg
að sækja í dag og að sjómanns-
starfið sé ekki lengur jafn vinsælt
meðal ungra manna og það var
hér á árum áður. Hann segir
einnig að setja eigi þjóðina á
hlutaskipti þannig að þegar vel
gangi sé góðærinu skipt og þegar
illa ári verði allir að taka sinn
skerf af versnandi þjóðarhag en
ekki bara sjómenn eins og nú.
Smábátaeigendur á Bakkafirði
geta stundum ekki farið á sjóinn
vegna hálku og sumir eru hætt
komnir í okurfaðmi kaupleigu-
fyrirtækja vegna slæmrar afkomu
í ár.
Þetta og margt fleira í 16
síðna sjávarútvegsblaði sem
fylgir Þjóðviljanum í dag.
Guðmundur „Stalín“ Sigurjóns-
son, tækjamaður í Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað, með tvær
feitar og fallegar síldar, en síldar-
vertíö eystra er nú komin í fullan
gang og er saltað og fryst daga
og nætur í öllum fjörðum. Mynd:
-H.B./Neskaupstað.
Sjónvarpið
Ásvölum
Scala
Óperusýningar í íslenska
sjónvarpinu
Óperuunnendur geta fagnað,
því innkaupa- og markaðsdeild
Sjónvarpsins hefur gert sam-
komulag við söludeild ítalska
sjónvarpsins, RAI, um kaup á
þremur nýjum upptökum árlega í
fimm ár frá hinni heimsfrægu La
Scala óperu í Mflanó.
Fyrstu verkin eru: Don Gio-
vanni eftir Mozart, I‘due Toscani
eftir Verdi og TEiisér d‘amor
eftir Donizetti, öll flutt á leikár-
inu 1987-1988, en hver upptaka
er af uppfærslu yfirstandandi árs
eða nýliðins leikárs. Fyrsta sýn-
ingin sem fyrirhuguð er í íslenska
Sjónvarpinu, Don Giovanni,
verður á nýársdag 1989. -mhg.
Fasteignir
íbúðaverð fer lækkandi
Guðmundur Gylfi Guðmundsson: Mér sýnistfasteignaverð hafa lœkkað
um 5 % fráþvíívor. Gunnar Gunnarsson: Við höfum ákveðið aðfresta
2. áfanga uppbyggingarinnar á Völundarlóðinni
„Mér sýnist að raunverð fast-
eigna hafi lækkað um allt að 5%
frá því í vor. Það er ljóst að sam-
dráttur hefur orðið síðan í fyrra í
sölu íbúðarhúsnæðis en þá var
líka algert metár,“ sagði Guð-
mundur Gylfi Guðmundsson hjá
Fasteignamati nkisins. Ekki vildi
hann nefna neinar tölur í þessu
sambandi og benti á að þótt fast-
eignarsalar væru skyldugir til að
skila mánaðarlega inn
kaupsamningum, væri mikill mis-
brestur á því.
Fasteignasalar sem Þjóðviljinn
ræddi við í gær voru á einu máli
um að meira framboð væri af
íbúðarhúsnæði nú en oft áður og
ástand í þjóðfélaginu almennt
hefði dregið úr sölu fasteigna. Að
sögn Davíðs Sigurðssonar hjá
Fasteignaþjónustunni hefur að-
eins lifnað yfir markaðnum síð-
ustu dagana.
„Við höfum ákveðið að bíða
með að setja í gang vinnu við ann-
an áfanga á Völundarlóðinni,
þótt sala á íbúðum í fyrsta áfanga
verksins hafi gengið þokkalega,
miðað við ástandið á markaðn-
um, teljum við rétt að doka við og
sjá hvað setur,“ sagði Gunnar
Gunnarsson hjá Steintaki. En
Steintak hafði áætlað að reisa um
100 íbúðir á Völundarhúsalóð-
inni við Skúlagötu.
„Við höfum þegar selt þriðj-
ung af þeim 49 íbúðum sem til-
búnar verða í byrjun árs árið
1990. Það er ekki því að neita að
við höfðum vonast til að það
gengi betur. Við hefðum þurft að
vera þremur mánuðum fyrr á
ferðinni með að koma þessu í
sölu,“ sagði Gunnar.
Hagvirki auglýsir nú til sölu
lóðir undir raöhús á Seltjarnar-
nesi. Að sögn Þorleifs Guð-
mundssonar hjá Eignamiðlun-
inni, sem er með þessar lóðir til
sölu, hefur salan gengið þokka-
lega. Hann sagði að þeir hefðu
einnig til sölu nýjar íbúðir vestur í
bæ sem Hagvirki væri að byggja
og hefði sala á þeim gengið sæmi-
lega. „En allt tekur þetta sinn
tíma,“ eins og hann orðaði það.
Miðað við hljóðið í mönnum
sem blaðið ræddi við í gær er ljóst
að sá tími sem þarf til að selja
íbúðir lengist orðið stöðugt.
-sg