Þjóðviljinn - 22.10.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 22.10.1988, Qupperneq 1
Formannskjör BSRB ¥f irburðasigur Ögmundar Ogmundur Jónasson: Aukin valddreifing og virknifélaga leiðin að sterkarisamtökum. GuðrúnÁrnadóttir:Á ekki von á að sitja sem framkvœmdarstjóri BSRB áfram. Kristján Thorlacius: Úrslitin ekki til styrktarBSRB „í>að sem ég tel mestu máli skipta, er að fylgja eftir hug- myndum um valddreifingu, sem ég tel vera í takt við vilja okkar félagsmanna og verði til að styr- kja samtök okkar og baráttu," sagði Ögmundur Jónasson, ný- kjörinn formaður BSRB í viðtali við Þjóðviljann í gær. Formannskosningarinnar hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda áttu flestir í miklum erfiðleikum með að spá um úrslit hennar fyrirfram. Spenna fundarmanna var því orðin mikil þegar að kosningunni kom og átti eftir að aukast enn, því eftir að kjörseðlum hafði ver- ið dreift og fulltrúar kosið, kom upp að fjölda fulltrúa og at- kvæðaseðla bar ekki saman. Eftir að mistökin höfðu verið leiðrétt, var gengið til kosninga á nýjan leik og hlaut Ögmundur yfirburð- akosningu í fyrstu umferð. Hann hlaut 108 atkvæði, Guðrún Árna- dóttir, framkvæmdastjóri BSRB fékk 54 atkvæði og Örlygur Geirsson, annar varaformaður samtakanna 46 atkvæði. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar úr- slit lágu fyrir. Varaformenn voru síðan kosnir Haraldur Hannes- son, Starfsmannafélagi Reykja- víkur sem fyrsti varamaður og Ragnhildur Guðmundsdóttir, Félagi íslenskra símamanna, sem annar varaformaður. Guðrún Árnadóttir sagði eftir úrslitin að bæði hefði kynferði hennar og stuðningur Kristjáns Thorlacius- ar við hana, orðið henni til trafala í kosningabaráttunni. Þá taldi hún mjög vafasamt að hún starfaði áfram sem fram- kvæmdastjóri BSRB. Örlygur Geirsson sagði að úrslitin hefðu komið sér á óvart, munur milli frambjóðanda hafi verið meiri en hann átti von á. Kristján Thorlac- ius sagðist hafa orðið fyrir von- brigðum með úrslitin og taldi þau ekki líkleg til að styrkja stöðu BSRB- -T Sja siðu 2 „Ég er formaður samtakanna allra og nú er kominn tími til að sameinast eftir að við höfum í nokkra daga skipst í fylkingar," sagði nýr formaður BSRB. Utanríkismálanefnd Stjómarflokkar í einni sæng JóhannEinvarðsson kjörinnformaður, Kjartan Jóhannsson varaformaðurogHjörleifur Guttormsson ritari. Þjónusta við kröfurhandan hafs VINBUO ÁTVfí Stjórnarflokkarnir stóðu sam- an í kjöri formanns, varafor- manns og ritara utanríkisnefndar í gær. Sjálfstæðismenn greiddu Eyjólfi Konráð Jónssyni sín at- kvæði og Kvennalisti sat hjá. Hjörleifur Guttormsson Alþýðu- bandalagi segir, að af undirtekt- um samstarfsflokkanna við ósk- um Alþýðubandalgsins um eðli- legan hlut í meðferð utanríkis- mála í þingi og ríkisstjórn, megi ætla að forustumenn samstarfs- flokkanna telji sér henta áróðurs- lega að viðhalda kalda stríðs- ástandi í umræðunni um utanríkis- mál. Eftir fyrsta fund utanríkisnefndar í gær sagði Hjörleifur að Alþýðubandalagið mælti fyrir sjónarmiðum sem ættu ríkan stuðning hjá almenn- ingi. Hann benti á kannanir Fél- agsvísindastofnunar frá 1983 og 1987 sem sýndu að andstaðan við herinn hefði aukist frekar en hitt og yfirgnæfandi stuðningur væri við hugmyndina um kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd. Taugveiklun margra vegna hugs- anlegrar forustu Alþýðubanda- lagsins í utanríkisnefnd væri fár- ánleg þar sem flokkurinn kæmist auðvitað ekki lengra með sín mál innan þingsins en stuðningur væri fyrir og hann sem formaður utan- ríkisnefndar hefði auðvitað þurft að lúta meirihluta nefndarinnar. „Maður kemst ekki hjá því að ætla að hér sé verið að þjóna undir sjónarmið og kröfur sem komnar eru handan um höf. Hjörleifur sagði að sér hefði komið á óvart að formannskjörið yrði fjölmiðlamál þar sem öllum hefði átt að vera ljós afstaða þing- Samkvæmt almanakinu er fyrsti vetrardagur í dag og gor- mánuður byrjar. Framundan er því kuldi og snjór og sífellt minni dagsbirta allt fram að vetrarsól- stöðum þegar sól byrjar að hækka á lofti á nýjan leik. Að sögn Öddu Báru Sigfús- dóttur veðurfræðings á Veður- flokks Alþýðubandalagsins. Mál- ið hefði verið rætt á vettvangi ríkisstjórnarinnar og á milli ein- staklinga á listum samstarfsflokk- anna þar sem meðal annars var rætt um vinnubrögð í nefndinni. Niðurstaðan hefði síðan orðið það samkomulag sem réði kjöri nefndarformannsins. Alþýðu- bandalagið hefði um margt sér- stöðu í þessum málaflokki og við- horf Kvennalista til hernaðar- bandalaga og veru hersins í Arstíðir stofu íslands var sumarið hér sunnan heiða lítið eitt undir meðallagi og munar þar mestu hvað júní var fádæma leiðin- legur, lítið um sól, hvassviðri og rigning. í heildina séð var sumar- ið í Reykjavík fremur þurrt og úrkoman aðeins 3/4 af meðalúr- komu og 96 færri sólskinsstundir. landinu væru nær sjónarmiðum Alþýðubandalagsins en viðhorf hinna flokkanna. Hann hefði því vel getað hugsað sér samvinnu við Kvennalistann. Það hefði hins vegar legið fyrir að það hefði ekki skilað árangri. Niðurstaðan væri ásættanleg. Engin mótframboð komu í varaformanns- og ritarakjöri og voru Kjartan Jóhannsson og Hjörleifur því sjálfkjörnir. -hmp Að meðaltali var hlýjast í Reykjavík í júlí eða 11,1 stiga hiti en kaldast í september 6,9 stig. Á Akureyri var hinsvegar hlýj- ast í júní eða 11,3 stig að meðal- tali en kaldast í september, að- eins 6,5 stig. -grh Samdráttur á milli ára Minna drukkið og reykt en áður Samdráttur hefur orðið í sölu áfengis og tóbaks fyrstu níu mán- uði ársins hjá ÁTVR samanborið við sama tímabil á síðasta ári. í lítrum talið nemur samdrátturinn I, 64% en 0,19% í alkóhóllítrum. Við samanburð á helstu vöru- flokkum þe. rauðvíni, hvítvíni, vodka og vískí kemur í ljós að aukning hefur orðið í sölu á rauðvíni um 5,1% en samdráttur í hinum þrem flokkunum en þó mest í hvítvíni um 13,11%. At- hygli vekur þó vinsældir íslenska brennivínsins en sala á því hefur aukist um 33,61%. í sölu tóbaks er samdráttur á öllum vöruflokkum en þó mest f sölu á reyktóbaki eða um II, 83%. Sala á vindlingum hefur minnkað um 1,37%, vindlar 3,33% og á neftóbaki um 2,43%. -grh Veturinn er kominn Veðurstofan: Sumarið lítið eitt undir meðaltali. JúnímánuðurkalduríReykjavík en hlýr á Akureyri

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.