Þjóðviljinn - 05.11.1988, Side 1
Laugardagur 5. nóvember 241. tölublað 53. órgangur
Ferðaskrifstofumálið:
Eimskip skipar fyrir
Eimskip sendiFerðaskrifstofunni telefax-skeyti með leiðbeiningum um hverjuferðaskrifstofumenn
œttuaðsvara fjölmiðlum. „Forðastskal átökífjölmiðlum viðJónasHallgrímsson.“Eimskip og
Ferðaskrifstofa Islands eru ennþá óskyld fyrirtœki
Svo sem kunnugt er af fréttum
Þjóðviljans hefur sala Ferðaskrif-
stofu ríkisins til starfsmanna
hennar verið til rannsóknar hjá
samgönguráðuneytinu. Það upp-
lýstist með skrifum Þjóðviljans
að starfsmenn höfðu gert sam-
komulag við Eimskipafélag ís-
lands um að Eimskip keypti allt
að þriðjungi hlutabréfa í Ferða-
skrifstofu íslands, áður en starfs-
menn ákváðu að taka tilboði
ríkisins um kaup á fyrirtækinu,
sem var forsenda þess að lög frá
Alþingi tóku gildi. Eitthvað hef-
ur Eimskipafélagsmönnum þótt
fréttaflutningurinn óþægiiegur,
því í síðustú viku sendu þeir forr-
áðamönnum Ferðaskrifstofu ís-
lands telefax-skeyti, þar sem
þeim eru lagðar línurnar um það
hverju þeir eigi að svara fjölmiðl-
um um málefni Ferðaskrifstofu
íslands. —
Sérstaklega eru þeir varaðir
við að lenda í opinberum deilum
eða skrifum við Jónas Hallgríms-
son, forstjóra hinnar nýstofnuðu
Norrænu ferðaskrifstofu, en sú
ferðaskrifstofa fékk einmitt
samning þann sem Ferðaskrif-
stofa íslands hafði við Smyril
Line.
Þeim sem til þekkja þykja
þetta furðuleg vinnubrögð af
hálfu Eimskipafélags íslands,
sérstaklega þegar tekið er tillit til
þess að Eimskipafélagið er enn
ekki orðið eigandi að Ferðaskrif-
stofu íslands. „Alltaf má fá ann-
að skip og annað föruneyti. Eng-
in ástæða er til að ræða neitt sér-
staklega um Norrænu, nema
spurt sé hvort Ferðaskrifstofan
hafi misst umboðið fyrir Norr-
ænu. í því sambandi skal forðast
átök við Jónas Hallgrímsson í
fjölmiðlum", segir í niðurlagi
skeytisins, sem sent er nteð blað-
haus Eimskipafélagsins.
Jónas Hallgrímsson hefursl. 15
ár séð um samninga við Smyril
Line, sem rekur ferjuna Nor-
rænu. Hafði hann forgöngu um
það á sínum tíma að Ferðaskrif-
stofa ríkisins fékk samning við
Smyril Line, en samningar þess-
ara aðila runnu út 1. október sl.
Sennilega hafa Austfirðingar haft
veður af hugsanlegum kaupum
Eimskips í Ferðaskrifstofu ís-
lands og gert Færeyingum við-
vart, því Jónas Hallgrímsson náði
samningunum til Austfars hf.
semhannerforstjórifyrir. Smyril
Line hafði engan áhuga á að fara í
samvinnu við Eimskipafélagið í
gegnum Ferðaskrifstofu íslands,
þar sem þeir telja Eimskip vera
sinn samkeppnisaðila. Enda er
látið að því liggja í telefax-skeyti
Eimskips að félagið fyrirhugi að
„fá annað skip“ sem yrði þá vænt-
anlega í samkeppni við Smyril.
Austfar hf. á nú 51% hlutafjár í
Norrænu ferðaskrifstofunni, sem
hefur samning við Smyril Line.
Smyril Line á hins vegar 49% í
Norrænu ferðaskrifstofunni. Það
er ætlan manna að það hafi ekki
síst verið áhugaefni Eimskipafé-
lagsmanna að ná í gegnum Ferða-
skrifstofu íslands samningunum
við Smyril Line, sem þeir hefðu
oggert, hefði Jónas Hallgrímsson
ekki orðið fyrri til. Það eru um-
ræður um þessi mál m.a. sem
Eimskipafélagsmenn skipa nú
Ferðaskrifstofumönnum að hafa
hljótt um og það jafnvel þótt for-
mlega séu engin tengsl á milli
fyrirtækjanna. Má telja þessi
samskipti fyrirtækjanna einstök í
sinni röð.
Þjóðviljinn hafði samband við
Steingrím J. Sigfússon sam-
gönguráðherra, en hann vildi
hvorki játa né neita tilvist þessa
skeytis, né tjá sig um málið að
öðru leyti en því að rannsókn
ríkislögmanns væri lokið og hann
myndi svara fyrirspurn Guð-
mundar Ágústssonar á Alþingi
nk. fimmtudag.
-phh
Hárskurður
327% verðmunur
Þeir sem hafa í hyggju að láta
snyrta á sér kollinn ættu að vanda
val sitt á hárgreiðslu- og rakara-
stofum. í verðlagskönnun sem
Verðlagsstofnun gerði í septemb-
er og október kemur í Ijós að
verðmunur þessarar þjónustu er
allt að 327%.
Könnunin náði til 126 stofa á
höfuðborgarsvæðinu. Lægsta
verð á herraklippingu var 650
krónur á hárgreiðslustofunni
Ellu við Dunhaga, Þemu við
Reykjavíkurveg og rakarastofu
Sigurðar við Laugarnesveg. Hjá
Dúdda á Suðurlandsbraut kost-
aði klipping 1.100 krónur eða
69% meira en hjá fyrrgreindum
stofum. Herraklipping kostaði
1.095 krónur hjá Aristókratanum
og Hári og snyrtingu.
Dömuklipping kostar það
sama á flestum stofum og herra-
klipping. Dúddi tekur þó meira
fyrir dömuklippingu en herra,
þar sem hún kostar 1.530 krónur
sem er 136% hærra verð en þar
sem hún er ódýrust. Hjá Salon
VEH í Húsi verslunarinnar kost-
ar dömuklipping með blæstri
1.815 krónur sem er 179% hærra
verð en hjá þeim ódýrustu. Mun-
urinn á milli stofa verður síðan
enn meiri þegar ýmis aukaþjón-
usta eins og hárþvottur er tekin
með, eða allt að 327% munur.
-hmp
Ýmir skaltu heita. Það var Hulda Daníelsdóttir sem gaf hinum nýja bor Jarðborana nafn. Hún er eiginkoné
Guðmundar Sigurðssonar yfirverkstjóra hjá fyrirtækinu, en hann er oftast kallaður bormaður íslands nr. 1
Mynd:Þóm.
Jarðbor
Ýmir skaltu heita
f gær bættist sjöundi jarðbor-
inn í eigu Jarðborana. Honum
var gefið nafnið Ýmir sem sótt er
til goðsagna eins og önnur nöfn á
jarðborum fyrirtækisins.
Að sögn Karls Ragnars fram-
kvæmdastjóra Jarðborana hafa
orðið miklar framfarir í bortækni
og nauðsynlegt fyrir fyrirtækið að
hanga í tískunni, eins og hann
orðaði það, en tólf ár eru liðin
síðan síðast var fenginn nýr bor til
landsins. Nýi borinn kostaði rúm-
ar 25 miljónir kr. og getur hann
borað 500 metra djúpar holur.
Karl sagði að næg verkefni
væru framundan, og þótt nokk-
urs samdráttar hefði gætt í starf-
semi fyrirtækisins að undanförnu
sagðist hann bjartsýnn á að næg
verkefni væru fyrir nýja borinn.
-sg