Þjóðviljinn - 11.11.1988, Blaðsíða 26
T~~~ X 3— *■— 5 (p e JO 7 V S—
)0 cy 11 7T~ 3 /3 )V- V /</ )S (p (p
U> c/ ir IZ T~ n )c Zo ¥ )Ý )?
Z J<7 T 5 )T (o Z Y u S" )Z X U $
V w Y V /V' h )T /Y (s> 'lo 43 z h
y (o Z$r TT H T~ )T n u
Tb liT )T T /3 n V- 3 */• IT s (cr
* Y )? * T rt~ )(p ÍT )T )lo Y\
+ /Ý S Z3 T~ )T It )Z // )? 3 w
IT Zí 9 «3 )Z Z 43 S2 S2 ZD
V 6 IT l(p Zz T~ y 43 3d Z T~ 3 JT
7S )T )Z T s- 3 )T T1 X 1$ W
13 )•/■ S? IT JT z /Y )S L
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6
Reykjavík merkt: „Krossgáta nr. 17“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verð-
launin verða send til vinningshafa.
Verðlaunakrossgáta
Z) )¥■ n 3 T s 32 IZ 2(o )<1
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 17 er
bók Mikhaíl Gorbatsjov, leiðtoga
Lausnarorðiöfyrirverðlaunakrossgátu nr. 13varÞJÓFADALIR. Dreg- Sovétríkjanna, Perestrojka, Ný
ið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Gústafs D. Guðmunds- hugsun, ný von. Útgefandi er Ið-
sonar, Helgafellsbraut 29 í Vestmannaeyjum. Hann fær senda bókina unn-
Demantstorgið eftir Mercé Rodoreda.
MATUR
Hildur
Finnsdóttir
Matur er mannsins megin
Það er yfirleitt gaman að fást
við matseld og alltaf er tilhlökk-
unarefni að vera boðinn í mat.
Skemmtilegast af öllu finnst mér
þó að malla með öðrum, læra
eitthvað nýtt, þiggja og gefa góð
ráð; eiga góða stund yfir pottun-
um ekki síður en undir borðum.
Ég er t. d. ekki frá því að ríkis-
stjórnarfundir ættu að fara fram í
rúmgóðu og vel búnu eldhúsi þar
sem allir legðust á eitt um að mat-
reiða Ijúffengar efnahagssúpur
og skattajafninga. Þá yrði
áreiðanlega léttara að lifa hér á
skerinu.
Sumir minna bestu vina eru
ekki síst eldhúsvinir sem ég hef
fengið mikla matarást á, og í
þessum pistli langar mig að gefa
ykkur sýnishorn af því sem þetta
ágæta fólk hefur kennt mér.
Fiskisúpan hans Jóns
í þessa firnagóðu súpu er tilval-
ið að nota smálúðu sem grunn og
prjóna svo við eftir efnum og
ástæðum; skötuselur, rækjur og
hörpudiskur eru ekkert til að
fúlsa við, en eitthvað billegra
dugir vel. Við reiknum með að
þessi uppskrift sé fyrir a. m. k.
sex manns, en ekkert er auðveld-
ara en að fjölfalda hana. Þá er þó
vissara að fara rólega í kryddið.
1 kg fiskur
smjör
4 laukar
6 hvítlauksgeirar
1 lítill fennelhnúður eða 3 tsk fræ
3 gulrætur
6 vænar kartöflur
3 litlar dósir tómatþykkni
timjan
oregano eða marjoram
2 I vatn
2 appelsínur
steinselja
Grænmetið skorið fremur
smátt, mýkt í smjöri í stórum
potti og að því búnu kryddað að
smekk. Vatninu bætt út í og látið
malla við vægan hita í Vi - 3A klst.
Á meðan skerið þið fiskinn í
væna munnbita sem þið dembið
svo í pottinn. Látið suðuna koma
upp aftur og sjóðið í 2-5 mín.
Takið pottinn af hellunni,
kreistið appelsínusafann út í og
látið standa í 10 mín. Skreytið
með steinselju og berið fram með
grófu snittuþrauði sem hitað hef-
ur verið í ofni með hvítlauks-
smjöri.
Hænan hennar Dunnu
í þennan tiltölulega ódýra
veislumat er sjálfsagt að nota
unghænu. Þær geta auðvitað ver-
ið misþungar, en meðalpúta ætti
að duga handa fjórum mannes-
kjum því meðlætið er drjúgt.
1 unghæna
1 laukur
salt, pipar, smjör, hveiti, mango
chutney, rjómalögg
Meðlæti
kókosmjöl
paprika, gjarnan bæði rauð og græn
laukur
salthnetur
rúsínur
bananar
. Hænan soðin eftir þörfum
(gæti þurft uppundir 2 tíma) í
ekki alltof miklu saltvatni ásamt
gróft skornum lauknum. Kjötið
hreinsað af beinunum og skinn-
inu fleygt. Bakið upp sósu úr
smjöri, hveiti og soðinu af hæn-
unni. Bragðbætið með pipar,
(salti), talsverðu mango chutney
og rjóma. Ekki skemmir heldur
bragðið að nota dálítið af Chin-
ese five spice powder, sem er
blanda af fennel, kanil, engiferi,
stjörnuanís og negul. Brytjið
kjötið út í sósuna. Þá er það með-
lætið, sem borið er fram í litlum
skálum. Paprikan, laukurinn og
salthneturnar eru söxuð smátt og
bananarnir skornir í sneiðar. Svo
má auðvitað ekki gleyma soðnum
hrísgrjónum.
Unghænur geta semsagt verið
herramannsmatur ef þær eru
soðnar nógu lengi, og svo er alveg
tilvalið að búa til allt öðruvísi
sósu til tilbreytingar - t.d. karrý-
sósu.
Þeir dreymendur sem vilja fá drauma sína ráðna sendi
þá ásamt fullu nafni, heimilisfangi og dulnafni til
blaðsins merkt: Draumstafir, Nýtt helgarblað, Þjóð-
viljinn, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
Draumur
„barns“
Mig dreymdi að ég var að fæða
barn en sá þó fæðinguna eins og
áhorfandi. Fæðingin gekk frekar
fljótt en var erfið og sársaukafull,
en samt fannst mér ég ekki finna
allan sársaukann sem var. Svo
breyttist sjónarsviðið þannig að
ég horfði á sjálfa mig með ný-
fæddan son minn. Tók ég mest
eftir því að hann var í hvítum
prjónafötum og ég var að gefa
honum „Nan“ mjólk (þurr-
mjólk).
Ráðning
Barnsfæðingar í draumi eiga
sér ýmsar skýringar, m.a. getur
barnsfæðing verið fyrirboði fæð-
ingar hugmyndar sem viðkom-
andi hefur gengið með í magan-
um og ætti að hrinda í fram-
kvæmd þegar hún birtist, einnig
getur fæðing verið boðun um nýtt
starf sem gæti orðið að drauma-
starfinu, í þriðja lagi er líklegt að
dreymandinn eignist barn í raun
og veru, en allar túlkanir ráðast
þó af öðru fangi draumsins.
Draumur „barns“ hefur fólgna
í sér þá skýringu að hjá „barninu"
Draumur
virðast erfiðleikar hafa steðjað
að, ef til vill tengdir áfengi, en
brátt verði söguleg kaflaskipti í
lífi dreymandans. „Endurfæð-
ing“, ekki án sársauka en aðal-
lega með sterkum hríðum ann-
arra, afneitun á vissum lysti-
semdum en fyllra líferni og elsku-
legra.
Draumur
„Echo“
Ég var að tína bláber með ein-
hverjum öðrum (ég held karl-
manni), bláberin eru óvenjulega
stór, á stærð við litlar kartöflur.
Við tínum í eina fötu og ég sé að
það er ótrúlega mikið af berjum,
hrein ofgnótt. Næst reyni ég að
hafa samband við konu úti í Sví-
þjóð, sonur minn er á leið þangað
og ég vil að hann færi konunni
berin.
Ráðning
Ég hef fjallað áður um bláa
litinn í Draumstöfum og hér bæt-
ist við enn eitt afbrigði bláa litar-
ins. Berjabláminn og önnur tákn
draumsins benda til að þú hafir
dvalist í Svíþjóð og þú iðrist þess
nú þessa dagana að hafa snúið
heim á Frón í kartöflurnar frá
þroskuðum menningarávöxtum
Svíaríkis. Þar eð í hönd fer upp-
skeruhátíð íslenskrar andagiftar
og vindar breytinga blása létt um
kinn, getur þú óhrædd haldið þig
við kartöflurnar því fyrr en varir
verða þær að þrúgum gómsætum.
Ráðning
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. nóvember 1988