Þjóðviljinn - 23.11.1988, Page 1
Miovikudagur 23. nóvember 1988 253. tölublað 53. árgangur
ASÍ-kosningar
Aðalheiður vill
kvennabyltingu
Mikill kosningaskjálfti íþingfulltrúum. Ásmundur œtlar að halda
áfram. Hugmyndir kjörnefndar um varaforseta mœta mikilli andstöðu.
AðalheiðurBjarnfreðsdóttirskorará Vilborgu ogÞóru íframboð
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir í ræðustól á ASÍ-þinginu í gær. Ræða hennar jók á óvissuna á þinginu, -
þarsem flestir vita hvað þeir vilja ekki, en færri hvað þeir vilja. (Mynd:ÞÓM).
Ríkissjóður
Staðan
versnar
Ólafur Ragnar: 4,5-5
miljarða halli.
Tillögur um auknar
tekjur á árinu. Ætti
kannski að hœtta að
halda rœðurl
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra mælti fyrir frum-
varpi til lánsfjárlaga í efri deild
Alþingis f gær. í ræðu Ólafs kom
fram að staða ríkissjóðs á þessu
ári er enn verri en talið var fyrir
nokkrum vikum þegar fjárlaga-
frumvarpið var lagt fram.
Við nánari greiningu á stöð-
unni í október hefur komið í ljós
að rekstrarhalli ríkissjóðs verður
4,5-5 miljarðar króna á þessu ári
en ekki 3 miljarðar eins gert var
ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.
Fjármálaráðherra lagði fram til-
lögur í ríkisstjórninni í gær um
aukningu á tekjum ríkissjóðs á
þessu ári og segir niðurstöðu fást
innan tíðar.
f ræðu sinni sagði Ólafur að
það hefði verið reynsla undan-
farinna ára að síðustu 3 mánuðir
ársins skiluðu ríkissjóði meiri
tekjum en fyrstu 9 mánuðirnir.
Þetta væri ekki upp á teningnum
nú sem endurspeglaði þann sam-
drátt sem ætti sér stað í þjóðfé-
laginu. f grófum dráttum mætti
segja að samdrátturinn í sölu-
skattstekjum væri um 1,3 milj-
arðar, tekjur af aðflutningsgjöld-
um væru 640 miljónum minni en
áætlað var og að vaxtagreiðslur
ríkissjóðs hefðu verið um 700
miljónum hærri en gert hefði ver-
ið ráð fyrir. Samanlagður sam-
dráttur á tekjuhlið væri um 2,2
miljarðar.
„Gamansamir menn hafa sagt
að ég ætti ekki að halda fleiri
ræður um halla ríkissjóðs á þessu
ári,“ sagði Ólafur, - hallinn ykist
um 1 miljarð í hvert skipti sem
hann talaði um hallann. Orsaka
aukins halla væri hinsvegar að
leita annarsstaðar en í ræðu-
mennsku sinni.
-hmp
- Petta hefur oft verið erfitt, en
aldrei sem nú, sagði Benedikt Da-
víðsson formaður kjörnefndar í
gærkvöldi, eftir að ljóst var að
þær hugmyndir kjörnefndar, að
mæla með framboði þeirra
Rögnu Bergmans, formanns
Framsóknar og Þórðar Ólafs-
sonar Boðanum í Þorlákshöfn til
varaforseta, mættu almennri
andstöðu þingfulltrúa. Einkum
bar á andúð í garð Þórðar, sem
ásamt þremur öðrum forystu-
mönnum í verkalýðshreyfingunni
óskaði eindregið eftir frestun á
gildistöku samningsréttar við
myndun núverandi ríkisstjórnar.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
alþingismaður og fyrrum formað-
ur Sóknar hvatti þingkonur til
samstöðu í sameiginlegum há-
degisverði þeirra í Rúg-
brauðsgerðinni í gær o'g skoraði
jafnframt á þær Vilborgu Þor-
steinsdóttur Vestmannaeyjum og
Þóru Hjaltadóttur Akureyri að
bjóða sig fram til varaforseta.
Aðalheiður endurtók áskorun
sína á þinginu síðar um daginn og
sagði þá m.a. að konur yrðu að
taka til sinna ráða til að bæta kjör
þeirra lægstlaunuðu. Vilborg er
tilbúin í framboð en Þóra hefur
ekki viljað Ijá máls á framboði
ennþá.
Forseti, varaforsetar og mið-
stjórn Alþýðusambandsins verð-
ur kjörin nú árdegis og er talið
fullvíst að Ásmundur Stefánsson,
forseti sambandins verði einn í
kjöri til forseta, en Benedikt Da-
víðsson tilkynnti þingheimi í gær
að Ásmundur væri fús í framboð.
Óvissan er fyrst og fremst um
kjör varaforseta og miðstjórnar
en kjörnefnd leggur engar form-
legar tillögur fram fyrr en nú
árdegis. Ólíklegt er að kjörnefnd
haldi í hugmyndir sínar um þau
Rögnu og Þórð en á þingfulltrú-
um var að heyra að sama væri
hvaða tillögur kæmu fram, það
yrði kosið um þessi embætti.
Einn þingfulltrúi orðaði það
svo að menn vissu hvað þeir vildu
ekki, en þeir vissu síður hvað þeir
vildu. Eitt vildu þó flestir, rót-
tækar breytingar á forystu-
sveitinni.
Það eykur einnig á óvissuna að
stjórnmálaflokkarnir hafa nú
mun minni tök á þingfulltrúum
en jafnan áður. Talið er að allt að
helmingur þingfulltrúa líti á sig
lausan við öll flokksbönd. Þrátt
fyrir það boðuðu flokkarnir flest-
ir til fylkingarfunda í gærkvöld
þar sem meta átti stöðu mála fyrir
kosninguna í dag.
-•g-
Herœfing
Ekkert leyfi fengiö
*
Aœtlun um mestu liðsflutninga hingað nokkru sinni til herœfinga.
Þúsund manna sveit komifráBandaríkjunum. Ekkert leyfi enn
Bandaríski herinn á Keflavík-
urflugvelli hefur farið fram á að
fá að halda stóra heræfingu hér-
lendis næsta sumar og stendur til
að flytja hingað þúsund manna
herdeild frá Massachusettes-
fylki. Ekkert leyfi héðan hefur
enn verið gefið fyrir æfingunni.
Hjá svokallaðri varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
fengust þær upplýsingar að her-
inn hefði sótt um leyfi fyrir æfing-
unni í haust. Þetta leyfi hefði hins
vegar ekki enn verið gefið eins og
skilja mætti á grein í tímaritinu
„Aviation Weekend" þarsem
sagt er frá fyrirhugaðri æfingu
hersins sem þegar fullákveðinni.
Umsóknin er enn til meðferðar
hjá ráðuneytinu og er á frumstigi,
en utanríkisráðherra tekur end-
anlega ákvörðun.
Fordæmi eru fyrir heræfingum
af þessu tagi hér á landi sam-
kvæmt talsmanni varnarmála-
skrifstofu, og hafa þær allar farið
fram við stöðvar hersins og á
varnarsvæðum. Hersveitir hafa
aldrei komið frá Bandaríkjunum
áður eins fjölmennar og fyrirhug-
að er nú og ef að verður hafa
aldrei eins margir hermenn utan
Keflavíkurflugvallar tekið þátt í
heræfingu á íslandi.
Ekki er kunnugt hvað á að æfa
en staðsetning er sögð benda til
að æfa eigi varnir herstöðvarinn-
ar.
-hmp
Lánskjör
0,09%
hækkun
Verðstöðvunin gengur vel
samkvæmt síðustu útreikningum
Seðlabanka.
Lánskjaravísitala fyrir des-
ember er 2274 stig, sem er 0,09%
hækkun frá nóvembertölunni.
Þessi hækkun væri á einu ári
1,1 %, en síðustu tólf mánuði hef-
ur hækkun vísitölunnar og þar-
með verðbólga á lánamarkaði
verið 20,6%.