Þjóðviljinn - 24.11.1988, Side 1
Fimmtudagur 24. nóvember 1988 254. tölublað 53. árgangur
Tœkniskóli íslands
Sex miljónir í ekkert
Hefurleigtl400fermetra kennsluhúsnœðifrájúlíl987, sem skortir allarinnréttingar.
Sex miljónum kastað áglœ meðan kerfið er að komastað niðurstöðu. Skúli Guðmundsson: Hefekkert um málið að segja.
Hákon Torfason: Vil ekkert rœða um málið í bili
Tækniskóli íslands hefur frá
miðsumri 1987 leigt 1400 fer-
metra viðbótarkennsluhúsnæði
af íslenskum aðalverktökum.
Skólinn hefur hins vegar ekki get-
að nýtt sér þetta húsnæði til
kennslu nema að örlitlu leyti,
sökum þess að enn hafa engar
innréttingar fengist settar upp.
Þó hefur verið til á fjárlögum
lánsheimild til „innréttingar við-
bótarhúsnæðis á Höfðabakka."
Af þessum sökum hefur Tækni-
skólinn þurft að leigja kennslu-
húsnæði af nærliggjandi fyrir-
tækjum og greitt þeim u.þ.b. eina
miljón í leigu fyrir vikið. Auk
þess hefur skólinn greitt tæpar
fimm miljónir í leigu til íslenskra
aðalverktaka fyrir þá 12 hundruð
fermetra sem ekki hafa nýst til
kennslu sl. 16 mánuði.
Innréttingakostnaður hefur verið
áætlaður u.m.b. 30 miljónir
þannig að Tækniskólinn hefur
þegar greitt um fimmta hluta
þeirrar upphæðar í leigu á ónot-
hæfu kennsluhúsnæði og húsnæði
sem ekki hefði þurft að taka á
leigu að öðrum kosti. Málið hefur
velkst í kerfinu án ákvörðunar
með þessum afleiðingum.
„Ég hef ekkert um málið að
segja, ef þig vantar upplýsingar
um það hvar málið er statt þá
skalt þú tala við menntamála-
ráðuneytið," sagði Skúli Guð-
mundsson hjá Innkaupastofnun
ríkisins, en sú stofnun á að sjá um
að útboð fari fram og framkvæmd
þeirra á verkefnum sem þessum,
-eftir að málið hefur hlotið bless-
un annarra viðkomandi stofnana
í kerfinu. „Það hefur ekki komið
beiðni til okkar um að setja málið
í gang, en það á að koma frá
menntamálaráðuneytinu. Málið
er ekki í okkar höndum og ég er
ekki tilbúinn að ræða þetta við
blaðamenn. Við höfum fylgst
með því hversu seint þetta hefur
gengið, ég er alveg klár á því, en
ég vísa þér á Hákon Torfason,"
sagði Skúli Guðmundsson.
„Það er ekki satt að málið sé á
okkar vegum og ég vil ekkert
ræða það í bili,“ sagði Hákon
Torfason, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu þegar Þjóðvilj-
inn ræddi við hann í gær. Þrátt
fyrir að málið hafi verið í pípu-
lögnunum í tæpt eitt og háift ár
sagðist Hákon ekki hafa upplýs-
ingar um þaðð. „Erum við skyld-
ugir til að útvarpa málum, þegar
þau eru hálfunnin? Ég vil ekki
ræða málið og hvað gerir þú þá? “
spurði Hákon. Sagði Hákon þó
að það væru engar fjárveitingar
til í þetta. „Það var ekki fyrr en í
júlí sl. sem að fjármálaráðherra
veitti leyfi til að nýta þá heimild
sem til er í fjárlögum til þessa
máls. Það eru engir peningar til
fyrr en þá. Málið er þó miklu
flóknara en svo, að það strandi
bara á fjármálaráðuneytinu,"
sagði Hákon.
Aðspurður á hverju strandaði
þegar Tækniskólinn hefði haft
þetta húsnæði í leigu frá júlí 1987
án þess að geta notað það, sagði
Hákon að það væri ekki búið að
taka neina leigu fyrir húsnæðið
enn. Aðspurður um hvað hann
ætti við, neitaði Hákon að skýra
það frekar, en vísaði á fjárlaga-
og hagsýsludeild fjármálaráðu-
neytisins. Aðspurður hvað hafi
tafið framkvæmdir í málinu eftir
að fyrrum fjármálaráðherra gaf
grænt ljós á notkun lántökuhei-
mildar í júlí sl. sagðist Hákon
ekki vilja ræða málið frekar og
þar við sat.
Ekki náðist samband við fjár-
laga- og hagsýsludeild í gær.
Ný forystusveit Alþýðusambandsins sem kjörin var í gær til næstu fjögurraára. Fráv.ÁsmundurStefánssonforseti, RagnaBergmann 1.
varaforseti og Örn Friðriksson 2. varaforseti. Mynd-Róbert.
Alþýðusambandið
phh
LÍN
Ný vinsbi forysta kjörin
RagnaBergmann og Örn Friðriksson nýir varaforsetar. Kvennabylting rann útísandinn.
Rúgbrauðsförum refsað ímiðstjórnarkjöri. Birna á þröskuldinum. GrétarÞorsteinsson langefstur
Þjóðstjórnarmunstur í ASÍ-
forystunni er liðið undir lok og ný
vinstri forysta tekin við, eftir að
þau Ragna Bergmann formaður
Framsóknar og Örn Friðriksson
formaður Málm- og skipasmiða-
sambandsins voru kjörin varafor-
setar sambandsins og Ásmundur
Stefánsson endurkjörinn forseti.
Þau Ásmundur og Ragna voru
sjálfkjörin en kosið var á milli
Árnar og Vilborgar Þor-
steinsdóttur Snót, Vestmanna-
eyjum um sæti 2. varaforseta.
Örn hlaut 73% atkvæða og Vil-
borg 23%. Boðuð kvennabylting
rann út í sandinn ekki síst við
miðstjórnarkjör þar sem aðeins 6
konur náðu kjöri en 12 karlar, öll
samkvæmt tilnefningu kjörst-
jórnar.
Grétar Þorsteinsson form.
Trésmíðafélags Reykjavíkur
hlaut besta kosningu í miðstjórn
en athygli vakti hve lélega kosn-
ingu þeir Karvel Páimason 4.
varaformaður Verkamapnasam-
bandsins og Þórður Ólafsson,
Boðanum Þorlákshöfn hlutu, en
þeir lentu í neðstu þremur sætun-
um ásamt Sigurði Óskarssyni
Hellu. Á hæla þeim kom Birna
Þórðardóttir, en margir áttu von
á því að hún næði kjöri í mið-
stjórnina. Hún var eina konan
sem var í kjöri til miðstjórnar
fyrir utan uppstillingu kjörnefn-
dar en þrjár aðrar forystukonur í
verkalýðshreyfingunni neituðu
að vera í framboði.
Slök útkoma þeirra Karvels og
Þórðar er útskýrð með þátttöku
þeirra í fundinum umtalaða í
Rúgbrauðsgerðinni við myndun
núverandi stjórnar.
Tillaga um Örn Friðriksson
sem 2. varaforseta sambandsins
kom á óvart en vakti almenna
ánægju, en Örn hefur verið í far-
arbroddi fyrir samningum í Ál-
verinu í Straumsvík undanfarin
ár. Nafn hans kom ekki af alvöru
til umræðu fyrr en seint í fyrra-
kvöld, eftir að Þórður Ólafsson
hafnaði beiðni kjörnefndar um
að fara í framboð.
Ásmundur Stefánsson sagði
eftir endurkjör sitt í gær að hann
hefði ákveðið að gefa kost á sér
áfram í trausti þess, „að við gæt-
um öll unnið saman.“ ASÍ væri
ekki fáir forystumenn heldur allir
félagsmenn verkalýðshreyfingar-
innar.
Ragna Bergmann þakkaði sýnt
traust og skoraði á konur að
standa á bak við sig næstu fjögur
árin. Örn Friðriksson þaickaði
víðtækt traust og einnig að þing-
fulltrúar hefðu verið reiðubúnir
að kjósa um sína forystumenn.
________________________
Sjánánarum
miðstjórn og nýja
forystu á síðu 5
Uthlutun
endurskoðuð
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra hefur skipað sérstakan
vinnuhóp til að fjalla um Lána-
sjóð íslenskra námsmanna. Full-
trúar allra námsmannahreyfinga
eiga sæti í vinnuhópnum ásamt 4
fulltrúum skipuðum af mennta-
málaráðherra.
Vinnuhópurinn á að fjalla sér-
staklega um stöðu fyrsta árs
nema gagnvart sjóðnum. Fram-
færsluviðmiðun námslána skal at-
huguð og því svarað hvort
nauðsynlegt er að fram fari fram-
færslukönnun á meðal náms-
manna hérlendis og erlendis. En
Stúdentaráð Háskóla íslands hef-
ur oftsinnis lagt áherslu á að
könnun sem þessi fari fram.
Tillögur um breytingar á lánar-
eglum þessa skólaárs eiga að
iiggja fyrir áður en fjárlög verða
endanlega afgreidd frá Alþingi.
-hmp