Þjóðviljinn - 01.12.1988, Blaðsíða 1
Iðnaðarmenn keppast við dag og nótt að opna nýju Kringlurnar í
Kringlumýrinni fyrir jólavertíðina. Á innfelldu myndinni sést Kring-
lan 4 sem opnuð verður í dag og næsta Kringla við hliðina verður
opnuð í byrjun næsta árs. Mynd Jim Smart.
Verslunarhúsnœði
Ný Kringluævintýri
í öllu krepputalinu
37.500fermetrar af verslunarhúsnœði við sömu götuna. Þrjárnýjar
verslunarmiðstöðvar teknar í notkun íReykjavík og sú fjórða á leiðinni
í dag er fyrirhugað að auka enn
á verslunarhúsnæði Reykvíkinga
með opnun nýrrar verslunar og
þjónustumiðstöðvar að Kringl-
unni 4. Hér er um að ræða 2500
fermetra verslunar- og þjónustu-
húsnæði og bætist það við 28 þús-
und fermetra hinnar upphaflegu
Kringlu Hagskaups.
Eftir áramót munu síðan
bætast við 7000 fermetrar af
verslunar-og þjónustuhúsnæði í
sömu götu eða Kringlunni 6.
Reykvíkingar geta þá gert
innkaup sín og sótt þjónustu á um
37.500 fermetrum við sömu götu-
na eða á svæði sem er nánast á við
6 fótboltavelli. Þá var í síðustu
viku opnuð ný verslunar- og
þjónustumiðstöð við Gerðuberg í
Breiðholti sem er 1700 fermetrar.
Önnur slík, á horni Laugavegs og
Frakkastígs, sem er 1500 fermetr-
ar verður tekin í gagnið á næstu
vikum. Því hafa bæst við verslun-
arhúsnæði Reykvíkinga á síðustu
dögum einir 4200 fermetrar og
stutt er í 8500 til viðbótar.
Þeir sem standa að byggingu
Kringlunnar nr.4 eru þeir Gunn-
ar Guðmundsson lögfræðingur
og Jónas Sveinsson. Þegar ljós-
myndari Þjóðviljans leit þar inn í
gær voru mörg handtökin eftir
eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd og iðnaðarmenn í hverju
horni. Jólatrén lágu á planinu
fyrir utan og ef að líkum lætur
verða þau skrýdd gervisnjó og
ljósaperum þegar opnað verður í
dag.
-phh
*
Afengismálið
Til forseta
ídag
VerðurMagnús sóttur
til saka samkvœmt
hegningarlögum ?
Ríkisendurskoðandi á
fundi meðforseta
sameinaðs þings og
forsœtisráðherra
Búist er við að forseti íslands
frú Vigdís Finnbogadóttir fái í dag
í hendur erindi Halldórs Ásgríms-
sonar dómsmálaráðhcrra, þar
sem þess er farið á leit að Magnúsi
Thoroddsen, fyrrum forseta
Hæstaréttar, verði vikið úr emb-
ætti dómara við Hæstarétt. Þar
sem Magnús neitaði að segja af
sér, verður honum vísað frá emb-
ætti um stundarsakir og síðan
mun dómsmálaráðherra hefja
mál á hendur honum.
Hefur verið vitnað til 61. gr.
stjórnarskrárinnar í því sambandi
en þar segir að dómendum, sem
ekki hafi að auki umboðsstörf á
hendi, verði ekki vikið úr emb-
ætti nema með dómi. Á hinn bóg-
inn hafa menn velt því fyrir-sér til
hvaða lagagreina verði skír-
skotað varðandi meintar ávirð-
ingar Magnúsar í starfi og hafa
lögfróðir menn jafnvel talið að
þar verði gripið til 139. greinar
hegningarlaga. Þar segir að „hafi
opinber starfsmaður,...misnotað
stöðu sína sér eða öðrum til
ávinnings eða til þess að gera
nokkuð það, sem hallar réttind-
um einstakra manna eða hins op-
inbera, þá varðar það sektum,
varðhaldi eða fangelsi allt að 2
árum.“
í gær átti Halldór V. Sigurðs-
son ríkisendurskoðandi fund með
þeim Guðrúnu Helgadóttur, for-
seta sameinaðs Alþingis, og
Steingrími Hermannssyni forsæt-
isráðherra. Sagði Guðrún Helga-
dóttir að meðal umræðuefna
hefði verið húsnæðismál emb-
ættisins, en vildi ekki tjá sig um
fundinn að öðru leyti. Sagði Guð-
rún að sér hefði enn ekki borist
listi Ríkisendurskoðunar um op-
inber áfengiskaup og hún vissi
ekki Iwenær hún fengi hann í
hendur. phh
Vaxtalœkkun
Komnir niður á jörðina
Umtalsverð vaxtalœkkun ímánuðinum. Raunvextir lœkka um alltað 1% og nafnvextirum 6%.
Sama vaxtastig nafnvaxta og í nágrannalöndum. ÓlafurRagnar: Viðunandi íþessari lotu
Stefnumótun
Heilbrigð
lífsstefna
Skattar á matvöru taki mið af
manneldissjónarmiðum og holl-
ustu, vinnutími verði styttur,
forvarnir efldar og tryggingakerf-
ið bætt, eru dæmi um nokkur
áhersluatriði í nýrri stefnumótun
Alþýðubandalagsins í heilbrigð-
ismálum, sem gerð er grein fyrir í
Þjóðviljanum í dag.
Gengið er út frá því að nýta
fjármuni betur í heilbrigðiskerf-
inu, m.a. með því að koma í veg
fyrir ofnotkun lyfja og ofvöxt í
rándýru sérfræðingaveldi.
Sjá síðu 8-9
Bankarnir hafa ákveðið að
lækka nafnvexti um 6% að jafn-
aði í þessum mánuði og raunvext-
ir lækka um allt að 1% og verða
lægstir í Landsbankanum 7.75%.
Með þessari vaxtalækkun í kjöl-
far hríðlækkandi verðbólgu síð-
ustu vikur, er vaxtastig í landinu
komið á sambærilegt stig og gerist
í öllum helstu nágrannalöndum.
Vcxtir hafa aldrei áður lækkað
eins mikið á jafnskömmum tíma,
en í sumar voru nafnvextir komn-
ir yfir 40%.
Vaxtalækkunin er nokkuð mis-
munandi eftir bönkum, en hlut-
fallslega mest hjá Lands-,
Búnaðar- og Útvegsbankanum.
Vextir lækka í dag og aftur 11.
desember. Nafnvextir lækka um
6 prósentustig að jafnaði, úr 18%
í 12%. Útlánsvextir víxla lækka
um 4 prósentustig, úr 16% í 12%
að jafnaði en allt niður í 11% í
Landsbankanum. Þá lækkar
ávöxtun skiptikjarareikninga úr
10% í 6,5-8%. Almennar spari-
sjóðsbækur verða með 4% vexti
sem er nokkuð yfir verðbólgu-
stiginu í dag. Útreikningar nýrrar
framfærsluvísitölu fyrir desemb-
er sýna nú innan við 1% verð-
bólgu í sl. mánuði.
Raunvaxtalækkunin er nokk-
uð mismunandi eftir innláns-
stofnunum en mest verður lækk-
unin hjá Landsbankanum, sem
lækkar raunvexti um 1 prósent-
ustig, úr 8,75% í 7,75% þann 11.
desember. Aðrir bankar lækka
raunvexti um 0,5-0,75 prósentu-
stig. Forráðamenn bankanna
segja þessa lækkun mögulega
m. a. vegna þeirrar ákvörðunar
Seðlabankans að greiða 2% vexti
af bindiskyldu frá 1. mars sl. til
n. k. áramóta.
- Ég met þetta sem viðunandi
árangur í þessari lotu, sagði
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra í gær. - Ríkis-
stjórnin hefur lagt ríka áherslu á
að koma vöxtunum niður samh-
liða lækkun verðbólgunnar og
þessi vaxtalækkun nú er spor í
rétta átt. Nafnvextir eru nú jafn-
háir og í nágrannalöndum okkar
og það styttist óðum í að raunvex-
tirnir fari niður í þau 6% sem þeir
eru í nágrannalöndunum. Það er
sérstaklega ánægjulegt að Lands-
bankinn skuli hafa tekið forystu í
þessari vaxtalækkun, sagði
Ólafur Ragnar. ’-Ig.