Þjóðviljinn - 08.12.1988, Síða 12
Þróunarsaga jólasveinsins
Jólasveinar Þórunnarog Helgu Egilson meðal
sýningargripa ó jólasýningu Þjóðminjasafnsins
ósamt heilögum Nikulósi fró Bór, Sónkti Klóusi og
skandinavískum jólanissum
Jólasveinar þeirra Þórunnar
og Helgu Egilson eru mjög eins
og maður ímyndar sér gömlu
jólasveinana, sagði Bryndís
Sverrisdóttir sem unnið hefur að
því undanfarna daga að setja
upp jólasýningu Þjóöminjas-
afnsins ásamt öðrum starfs-
mönnum þar á bæ; dálítið eins og
bændur í hátt, allir í sauðalitunum
og hver með sinn feng.
Á meðfylgjandi mynd má
þekkja þrjá jólasveina Helgu og
Þórunnar; Skyrgám, Bjúgna-
kræki og Gáttaþef. Tveir þeir
fyrrnefndu að sönnu með sinn
feng eins og sjá má, en áhöld um
hinn þriðja, og væri kannski nær
að tala um að atvinnutækið væri
til staðar. Alltént vantar ekki nef-
ið á Gáttaþef, og ekki annað að
sjá en að hann sé sáttur með sitt
þar sem hann hallar sér upp að
stórum steini.
Jólasveinar Helgu og Þórunnar
eru þrettán talsins eins og vera
ber, og að auki Grýla, Leppalúði
og Jólakötturinn. Þessir gripir
eru vel þekktir og víða til, enda
mjög vandlega og skemmtilega
gerðir.
Á sýningu Þjóðminjasafnsins
er að auki hægt að glöggva sig á
þróunarsögu jólasveinsins ef svo
mætti segja, allt frá heilögum
Nikulási frá Bár. Þá skipar Sánkti
Kláus þarna sinn sess, sem og
jójanissarnir frá Norðurlöndun-
um, en frá þeim þiggur „nútíma-
j,ólasveinninn“ rauða litinn.
í einu orði sagt skemmtileg
sýning, og fróðlegt að sjá hlið-
stæður við sína eigin jólasveina
héðan og þaðan að í veröldinni.
Til dæmis erum við ekki ein um
það Islendingar að eiga jólafíg-
úru sem hefur brugðið sér í líki
illskeytts kvikindis þar sem er
jólakötturinn; Norðmenn eiga
sína jólageit sem ekki er síður ill
viðskiptis en kötturinn hjá okk-
ur.
íslenski jólasveinaflokkurinn
er hálfgerður óaldarlýður að upp-
lagi, en annars staðar í veröldinni
hefur fólk einengin upphugsað
misjafna sauði í kringum jóla-
haldið. Þannig fylgdi ekki einasta
engill hinum barngóða Nikulási
ef marka má átrúnað í Mið-
Evrópu, heldur einnig púki, og
átti sá að flengja óþektarorma.
En þar með erum við kannski
komin í hring jólakattarins. HS
Skyrgámur, Bjúgrtakrækir, Gáttaþefur og fleiri jólasveinar í gerð þeirra Helgu og Þórunnar
Egilson, en gripir þessir eru meðal sýningargripa á jólasýningu Þjóðminjasafnsins. Mynd: Jim
Smart.
BORÐBÚNAÐUR FRÁ IKEA
1 ;
1
PORTAL 16 glös, 3 stœrðir kr. 1490.-
CHARAD hnífapör, 3 st. kr. 520.-
DIPLOM
MONDAN
TEST
könnur kr. 125.-
6 bjórglös kr. 440.-
Húsi verslunarlnnar, Kringlunnl 7,108 Reykjavík. Síml 686650.