Þjóðviljinn - 10.12.1988, Page 1

Þjóðviljinn - 10.12.1988, Page 1
Laugardagur 10. desember 266. tölublað 53. órgangur Sett Ríkisstjórnin á þingi fulla ferð Forustumenn ríkisstjórnarinnar hlusta ekki áfrestunartal. Ætla að láta reyna á stuðninginn áþingi, þráttfyrir óvissuna. Framsókn og kratar formannslausir Frá þinginu í gær. Halldór Blöndal fer mikinn í ræðustól efri deildar en Skúli Alexandersson tekur hann mátulega hátíðlega. (Mynd: þóm) Flest bendir til þess að ríkis- stjórnin ætli að keyra öll tekju- öflunarfrumvörpin í gegn í næstu viku, og láta reyna á það hvort Kvennalistinn og Borgaraflokk- urinn séu tilbúnir til að fella ríkis- stjórnina á þessum málum. Eftir ummæli Alberts Guð- mundssonar formanns Borgara- flokksins á þingi á fimmtudag, voru margir með tilgátur um að flokkurinn væri á leið inn í stjórn- ina. En Albert sagði að enginn gerði Borgaraflokkinn að stjórn- arandstöðuflokki þó hann hefði ekki ráðherrastól; flokkurinn tæki efnislega afstöðu til mála. Þetta segir Júlíus Sólnes þing- flokksformaður að sé mistúlkun á orðum Alberts. Tónninn í for- ustuliði stjórnarflokkanna er þannig að reyna eigi á stjórnar- Samtök launafolks Samningsréttinn aftur Baráttufundur samtaka launafólks íHáskóla- bíói ídag klukkanþrjú. FormaðurBSRB: Sýn- ið samstöðu í verki ogfjölmennið áfundinn. ForsetiASÍ: Kjaraskerðingarstefnan gjald- þrota, ekki þjóðin Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Ögmundur Jónasson for- maður BSRB hvetja allt launa- fólk til að fjölmenna á baráttu- fundinn í Háskólabíói í dag klukkan 15 sem öll stærstu verka- lýðssamtök landsins standa fyrir undir yfirskriftinni: Verjum heimilin - Með samningsrétti - Gegn atvinnuleysi. „Þegar kreppir að eins og í dag er brýnt að launafólk sýni sam- stöðu í verki til að endurheimta samningsréttinn aftur. Samtök launafólks er fólkið sjálft en ekki öfugt. Þessvegna skora ég á launamenn að sitja ekki heima heldur fjölmenna á fundinn og sýna baráttuvilja sinn ótvírætt," sagði Ögmundur. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ mótmælir því harðlega að hár launakostnaður útflutnings- atvinnuveganna sé orsök tap- rekstursins heldur fyrst og fremst mikill fjármagnskostnaður, sem sé orðinn álíka hár og launa- kostnaðurinn. Ásmundur sagði að það væri ekki þjóðin sem væri orðin gjaldþrota, heldur kjarask- erðingarstefnan. í skýrslu Þjóð- hagsstofnunar kæmi fram að raungengi hefði alls ekki verið of hátt á undanförnum árum ef mið- að er við laun, þannig að það væri ekki kaupið sem hefði hækkað úr samræmi við það sem gerst hefur í helstu viðskiptalöndum okkur. „Kaupmáttur fiskvinnslutaxta hefur lækkað um 10% frá því í apríl eftir samningana. Við það bætist að vinnutími er að meðal- tali tveimur tímum styttri en á síðasta ári sém þýðir eitt sér um 6% samdrátt í tekjum. Ef það á að bregðast við vandanum nú með kjaraskerðingu er rétt að minna á reynsluna frá 1983 sem sýndi að kjaraskerðing eykur á ójöfnuð í þjóðfélaginu. Afram- haldandi kjaraskerðing kemur fram í minnkandi vinnu og minni tekjum fólks sem þegar er komin fram með samdrætti í verslun og þjónustu. Það vill nefnilega oft gleymast að fyrirtækin lifa á kaupgetu fólksins í landinu,“ sagði Ásmundur. -grh andstöðuna og einstaka stjórnar- þingmenn við afgreiðslu fjárlaga og fjáröflunarfrumvarpa, og kanna hvort þessir aðilar vilji bera ábyrgð á falli stjórnarinnar. Nú eru aðeins tvær starfsvikur eftir á Alþingi fyrir jólaleyfi og ekkert af tekjuöflunarfrumvörp- um ríkisstjórnarinnar hefur verið afgreitt og tvö þeirra eru ekki enn komin fram. Fjárveitinganefnd hefur verið óstarfhæf alla þessa viku og ekki getað skilað af sér fjárlagafrumvarpinu, vegna þess að tillögur ríkisstjórnarinnar um rekstrarhlið fjárlaga hafa ekki borist nefndinni. Varla bætir það ástandið að formenn Framsókn- arflokksins og Alþýðuflokksins eru í útlöndum og hefur það hleypt taugatitringi í einstaka þingmenn þessara flokka. Fatlaöir heiðra Hauk Haukur Gunnarsson var í gær útnefndur íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra árið 1988. Þetta er þriðja árið í röð sem (Haukur fær þessa viðurkenningu og er hann vel að henni kominn. |Hann hlaut þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul í haust en í sumar setti hann m.a. heimsmet í 400 m hlaupi. Lilju M. Snorradóttur var einnig veitt sérstök viðurkenning en hún kom einnig með þrenn gull frá Seoul. Mynd: ÞÓM. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra segir að frumvarp um tekju og eignaskatt verði lagt fram á mánudag. Þar með verða öll tekjuöflunarfrumvörpin kom- in fram, nema frumvarpið um happdrættisskattinn. Ólafur hef- ur ekki enn útilokað að þetta frumvarp verði lagt fram, þó and- staða sé mikil við frumvarpið í þingflokki Framsóknarflokks. Ekkert samkomulag hefur verið gert á milli stjórnar og stjórnar- andstöðu um framgang mála fyrir jólaleyfi. En Ólafur hefur vísað þeim hugmyndum á bug að til greina komi að fresta afgreiðslu fjárlaga fram yfir áramót, þó sú skoðun njóti fylgis nokkurra stjórnarþingmanna. -hmp Stekkjastaur á mánudag Á mánudag er von á fyrsta jóla- sveininum til byggða. Að venju er það Stekkjastaur sem kemur fyrstur og því birtum við í dag þessa mynd af sveininum sem hún Kristín Eiríksdóttir 7 ára, Álftahólum 2 í Reykjavík teiknaði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.