Þjóðviljinn - 10.12.1988, Page 5

Þjóðviljinn - 10.12.1988, Page 5
Landssamband iðnaðarmanna: Vömgjaldið reiðarslag Viðbúið að 50 til óOfyrirtœkifari á hausinn strax efvörugjaldið verður hœkkað. Loðna Á sama tíma og samdráttur á sér stað í atvinnulífinu liggja lag- afrumvörp fyrir Alþingi um nýjar skattaálögur og munu, ef þau hljóta samþykki, leggjast með gífurlegum þunga á ýmsar grein- ar okkar, sagði Þórleifur Jóns- son, framkvæmdastjóri Lands- sambands iðnaðarmanna, á fundi með fréttamönnum í gær. Eru það einkum breytingar á Íögum um vörugjald sem eru samband- inu þyrnir í augum. Landssamband iðnaðarmanna er samtök atvinnurekenda í lög- giltum iðngreinum, og sagði for- seti þess, Haraidur Sumarliða- son, á fundinum að hann tryði því ekki fyrr en hann tæki á að hækk- un vörugjalds næði fram að ganga, þar sem ákveðnar greinar ættu þegar í svo miklum erfið- leikum að þær þyldu ekki við- bótarálögur á formi vörugjald- sins. Haraldur sagði að ef til kæmi færu tugir fyrirtækja á hau- sinn innan skamms tíma, jafnvel allt upp í 50 til 60. Sagði hann að fyrirtækjum í húsgagnagerð og innréttingum væri hættast. Haraldur sagði að vörugjald væri óviðunandi skattlagning á iðnað þar sem það væri ekki hlut- laus skattstofn heldur legðist á aðföng iðnfyrirtækja og annarra framleiðslufyrirtækja og skerti samkeppnisaðstöðu þeirra gagnvart erlendum keppinaut- um. Þá leiddi vörugjaldið einatt til mikillar mismununar milli vöruflokka og skekkti þar með samkeppnisgrundvöll innanlands. Þórleifur sagði að þetta væri í þriðja sinn á tveimur árum sem stjórnvöld gældu við þá hugmynd að leggja á víðtækara vörugjald en verið hefði. í fyrri skiptin tvö hefði meiningin verið að mæta tekjutapi vegna tollalækkana, en að þessu sinni væri hins vegar um að ræða hreina viðbótarskatt- heimtu. HS NÝ1T0GF0RVF hlegtB U MWERK Hvalafjöld ógnar veiðum Hnúfubakar rífa loðnunœtur og splundra loðnutorf- um. Hver nótkostar 20 miljónir Svo gæti farið að hætta verði loðnuveiðum um tima vegna á- gangs stórhvala á loðnumiðun- um. Það er álit 39 skipstjóra á loðnuskipunum sem hafa að und- anförnu orðið fyrir tugmiljón króna tjóni af völdum hvalanna. Ógnvænlegt ástand hefur skapast á loðnumiðunum út af Langanesi vegna ásöknar stór- hvala í loðnuna. Hér er aðallega um að ræða hnúfubak og að und- anförnu hefur það iðulega komið fyrir að allt að 4 hvalir hafi komið í loðnunætur skipanna og rifið þær. Hver nót kostar um 20 milj- ónir króna og tjónið fæst ekki bætt af tryggingafélögum. Að sögn Astráðar Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd var gott veður á loðnumiðunum í gær en svo til engin veiði vegna hval- anna. Þeir séu á miðunum í fjöldavís og splundri loðnutorf- unum sjómönnum til mikillar ar- mæðu. Þó veiddust um 30 þúsund tonn í vikunni og er heildarloðnuaflinn orðinn um 257 þúsund tonn.-grh Heimsókn Jón Baldvin í Póllandi Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og eiginkona hans, fara í opinbera heimsókn til Póllands á mánudag og verða þar fram á miðvikudag, í boði Tade- usz Olechowski, utanríkisráð- herra Póllands. Jón Baldvin mun eiga fund með Rakowski forsætisráðherra og Jastrzebski utanríkisviðskipt- aráðherra. Einnig mun hann hitta að máli forseta pólska þings- ins og Jaruzelski hershöfðingja. Bókband Slakur frágangur Neytendasamtökin hafa sent frá sér yfírlýsingu þar sem vakin er athygli á því að flestar stóru bóka- útgáfurnar láti binda inn bækur með hörðum kUi með límingu f stað þess að sauma kjölinn. Hætta er á aðblaðsíður losni í bókum sem eru þannig límdar, auk þess sem ekki er mögulegt að binda slíkar bækur inn síðar méir. ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 5 OT AUOlýSlNGAÞJÓNUSTAN / SÍA Þessi fyrsta skáldsaga Ólafs Jóhanns ólafssonar, Markaðstorg guðanna, er í senn forvitnileg og áhrifarík. Hér kveður við nýjan tón í íslenskum skáidsögum. Markaðstorg guðanna spannar vítt svið og gerist jöfnum höndum á íslandi, í Bandaríkjuniim og Japan. Efnið er margþætt: Fjölskyldulíf, alþjóðaviðskipti, mannleg samskipti og freistingar í firrtum, síminnkandi heimi. Hvað skiptir máli í lífinu? Hvers virði eru siðalögmál? Eru guðir nútímamannsins orðnir of margir? Söguhetjan, Friðrik Jónsson, reynir að fóta sig í fallvöltum heimi markaðshyggjunnar og skammt er á milli trúmennsku og svika, lygi og sannleika, sektar og sakleysis, Guðs ogMammons. Pessum andstæðum fléttar Ólafur Jóhann Ólafsson af einstöku listfengi inn í efni bókarinnar og ferst meistaralega úr hendi að skapa

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.