Þjóðviljinn - 10.12.1988, Blaðsíða 13
Enn er óvíst hve margir fórust í
jarðskjálftanum mikla í Arm-
eníu á miðvikudag. í fréttasend-
ingum Moskvuútvarpsins í gær
var giskað á að tugþúsundir
manna hefðu farist og að sögn
talsmanns armensku fréttastof-
unnar Armenpress er líklegt að
yfir 100.000 manns hafi beðið
bana. Mikill fjöldi björgunarliðs,
þar á meðal um 12.000 hermenn,
leitar nú að fólki, sem enn kann
að vera lifandi undir rústum
hruninna borga og þorpa.
Talsmaður Armenpress sagði
að í borginni Spitak og nágrenni,
Bokaklubbur
áskrifenda
Þjóðviljans
Tilboð vikuna
6.-12. desember
Tilboð okkar að þessu
sinni er bókin Sjómenn og
sauðabœndur eftir Tryggva
Emilsson, sem nýlega er
komin út hjó Móli og menn-
ingu.
Tryggvi Emilsson er fæddur árið
1902. Hann er einn þeirra manna
sem hafa með miklum ágætum sýnt
og sannað hve mikils megnugur sá
arfur er og hefur verið sem kenndur
er við (slenska alþýðumenningu.
Tryggvi vann um langan aldur að
reisn síns fólks með virkri þátttöku í
verkalýðshreyfingu og baráttu ís-
lenskra sósíalista. En hann hafði jafn-
framt hugann við þá fýsn til fróðleiks
og skrifta sem hefúr orðið svo mörg-
um „langra kvelda jólaeldur". Hann
orti kvæði af góðum hagleik og gaf út
á bækur. En sinn góða sigur sem rit-
höfundur vann hann með æviminn-
ingum sínum, þriggja binda verki sem
hófst með „Fátækt fólk“ og sameinar
eftirminnilega þroskasögu merkilegri
vitneskju um það samfólag sem hefur
verið í mótun á okkar öld.
Bókinni „Sjómenn og sauðabænd-
ur" er lýst á þessa leið í kynningu
forlagsins:
„Bók þessi er í senn ættarskrá og
aldarsþegill. Höfundur rekur þær
ættir sem að honum standa og segir
sögu forfeðra sinna allt að þrjár aldir
aftur í tímann. Flestir voru þeir sjó-
menn og sauðabændur og fær les-
andinn hér merka innsýn í lífshætti
alþýðufólks fyrr á tímum... Ættarskrá-
in er þannig skrifuð að jafnframt
mannanöfnum og ártölum er sagt frá
landsháttum og öðru því er snertir
daglegt líf fólksins, svo sem ýmsum
fyrirbærum af völdum náttúrunnar og
ráðstöfunum valdsmanna."
Bókin er 432 bls.
Okkar verð
kr. 2.500-
Venjulegt verð
kr. 2.875
ERLENDAR FRETTIR
Jarðskjálftinn í Armeníu:
100.000 taldir láftnir
Önnur stœrsta borg landsins að mestu í rústum
þar sem íbúar voru um 55.000,
hefðu sárafáir fundist á lífi eftir
náttúruhamfarirnar. Að sögn
sovéskra embættismanna eru þrír
fjórðu hlutar Lenínakan, annarr-
ar stærstu borgar landsins, í rúst-
um, en þar voru íbúar um
200.000. I borginni Kírovakan
nokkru austar mun tjónið einnig
vera gífurlegt.
Með yfirstjórn allra björgunar-
og neyðarráðstafana fer nefnd
háttsettra embættismanná undir
forustu Níkolajs Ryzhkov, for-
sætisráðherra. Hann sagði í sjón-
varp á fimmtudaginn að skortur
væri á björgunarútbúnaði. Að
sögn Tassfréttastofunnar hafa
um 3000 manns, sem slösuðust í
jarðskjálftanum, verið lagðir inn
á sjúkrahús í Érivan, höfuðborg
Armeníu, og margir slasaðir hafa
verið fluttir með flugvélum og
þyrlum til sjúkrahúsa í Georgíu.
Sovésk blöð halda því fram, að
ein helsta ástæðan til hins gífur-
lega manntjóns sé að mörg hús á
jarðskjálftasvæðinu hafi verið illa
byggð og alls ekki hönnuð með
það fyrir augum að standast slík-
ar náttúruhamfarir. Komsomol-
skaja Pravda, dagblað æskulýðs-
samtaka sovéska kommúnista-
flokksins, spurði: „Hverskonar
menn voru jarðskjálftafræðingar
þeir, arkitektar og byggingar-
verkamenn, sem stóðu að
hönnun og byggingu þessara
húsa, sem hrundu saman eins og
spilaborgir?"
Fjölmargir erlendir aðilar hafa
boðið fram hjálp og er aðstoð frá
þeim þegar farin að berast til hins
hart leikna svæðis. Reagan
Bandaríkjaforseti bauð Míkhaíl
Gorbatsjov, forseta Sovétríkj-
anna, hjálp áður en sá síðarnefn-
di sneri heim til að hafa yfirum-
sjón með hjálparstarfinu. Frakk-
land sendir á vettvang verka-
menn, lækna og hunda sérhæfða
til að þefa uppi fólk undir rústum
og ruðningi og Bretland hefur
lofað að senda til Armeníu sama
slökkviliðsflokk og hjálpaði til í
Mexíkóborg eftir jarðskjálftann
þar 1985.
Sovéskar hereiningar, sem
kvaddar höfðu verið til Aserbæ-
dsjans til að stilla til friðar milli
Asera og Arrnena, voru í snatri
fluttar til Armeníu til björgunar-
starfa þar. í Bakú notaði þá aser-
skur óaldarlýður tækifærið og
lagði eld að nokkrum húsum
Armena. Fjöldaflótti Armena frá
Aserbædsjan og Asera frá Arm-
eníu heldur áfram. Að sögn as-
ersks talsmanns eru asersku
flóttamennirnir nú orðnir um
120 000 frá því að óeirðir brutust
út í s.l. mánuði og þeir armensku
um 90.000. Reuter/-dþ.
Líbanon:
Israelsk skyndiaras
á PFLP-GC
Gerð á ársafmœli uppreisnar Palestínumanna á hersetnu svœðunum
Israelskar hereiningar, sem
komu loft- og sjóleiðis, réðust
eldsnemma í gærmorgun á aðal-
bækistöðvar palestínskra sam-
taka, sem þekkt eru undir
skammstöfuninni PFLP-GC, í
fjöllum uppi suðaustur af Beirút,
höfuðborg Líbanons. Segjast ís-
raelar hafa fellt í árásinni yfir 20
PFLP-GC-Iiða en ekki látið sjálf-
ir nema einn mann fallinn og þrjá
særða.
Þetta er að sögn ein mesta árás-
in af þessu tagi, sem ísraelar hafa
gert svo langt inn í Líbanon frá
því að þeir kölluðu her sinn það-
an 1985. Sumir árásarmanna
voru settir á land á ströndinni
neðan við stöðvar PFLP-GC en
aðrir fluttir þangað í þyrlum. Að
eigin sögn komu þeir andstæðing-
unum gersamlega á óvart og
sprengdu í loft upp fyrir þeim
sprengiefnageymslu, eyðilögðu
Mannskœtt lágflug Nató-véla
Vestur-Þjóðverjar
þreyttir á hersetu
Fimm látnir eftir flugslysið í Remscheid
Embættismenn í vesturþýska um að hætta öllu lágflugi yfir
fylkinu Nordrhein-Westfalen
hafa sakað Bandaríkjaher um
seinlæti og tregðu á samvinnu
viðvíkjandi björgunaraðgerðum
eftir að bandarísk árásarflugvél
af gerðinni Thunderbolt hrapaði í
fyrradag niður á íbúðarhús í
Remscheid þar í fylki. Að
minnsta kosti fimm menn eru
látnir af völdum slyssins og níu
eru á sjúkrahúsi vegna bruna-
sára. Fimm þeirra eru í lífshættu.
Þoka var er slysið átti sér stað
og var flugmaðurinn að æfa lág-
flug. Er þetta 22. Nató-
herflugvélin, sem hrapar í
Vestur-Þýskalandi á árinu, og
hafa þau slys valdið dauða 80
manna. Hið langamesta þessara
slysa varð í ágúst við Ramstein-
flugvöll, en þá fórust 70 manns.
Eftir það slys gagnrýndi vestur-
þýska stjórnarandstaðan ríkis-
stjórnina fyrir að hafa ekki látið
draga úr æfingum Nató-flugvéla
yfir landinu. Fyrirskipaði stjórn-
in þá flugher sínum að láta af öllu
lágflugi til ársloka. Slysið í
Remscheid hefur á ný vakið
gagnrýni á lágflug herflugvéla
yfir svo þéttbýlu landi sem
Vestur-Þýskaland er. Ramstein-
slysið og sáttastefna Gorbatsjovs
hafa þegar leitt til þess, að víð-
tækrar óánægju gætir með hina
miklu erlendu hersetu í landinu
og stöðugar heræfingar. Um hálf
miljón erlendra hermanna er í
bækistöðvum í landinu.
Bandaríkjamenn og Belgar
fyrirskipuðu í gær flugherjum sín-
Vestur-Þýskalandi fram að ára-
mótum.
Reuter/-dþ.
aðalstöðvar þeirra og fleiri
mannvirki. Var hart barist um
hríð á svæðinu og mun vopnað lið
Drúsa hafa tekið þátt í bardagan-
um með Palestínumönnum.
Fregnum ber ekki saman um
hvort sýrlenskar hersveitir hafi
einnig lent í slagnum við ísraela.
Samkvæmt fréttum frá Líbanon
voru 18 ísraelskir hermenn teknir
til fanga af Palestínumönnum eða
Sýrlendingpm, en ísraelar segja
það ósatt. í birtingu var ísraelska
liðið flutt á brott í þyrlum.
PFLP-GC eru hlynnt Sýrlend-
ingum og miður vinveitt Arafat.
25. nóv. s.l. ár flaug einn liðs-
manna samtaka þessara inn yfir
landamæri ísraels á svifflugu og
felldi sex ísraelska hermenn áður
en hann var veginn sjálfur. ísrael-
ar halda því fram, að þessi at-
burður hafi átt drjúgan þátt í að
hleypa af stað uppreisn Palest-
ínumanna í Gaza og Vesturbakk-
ahéruðum. Virðist árásin í gær-
morgun öðrum þræði hafa verið
gerð af þessu tilefni, en í gær var
ár liðið frá því að uppreisnin
hófst. Reuter/-dþ.
Walesa
heimsækir
Frakka
Lech Walesa, leiðtogi pólsku
verkalýðssamtakanna Samstöðu,
flaug í gær til Frakklands í boði
Francois Mitterrand, forsetaþess
iands. Mun hann verða viðstadd-
ur hátíðahöld þarlendis í tilefni
40 ára afmælis samþykktar
mannréttindasáttmála Samein-
uðu þjóðanna. Er þetta í fyrsta
sinn frá því að pólsk stjórnvöld
bönnuðu Samstöðu fyrir sjö
árum, sem þau leyfa Walesa að
fara úr landi.
Andrej Sakharov, hinn kunni
sovéski vísindamaður og fyrrum
andófsmaður, verður einnig við-
staddur hátíðahöldin í boði Mitt-
errands. Báðir hafa þeir Sakhar-
ov og Walesa fengið friðarverð-
laun Nóbels.
Reuter/-dþ.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
VERÐBREYTINGAR-
STUÐULL
FYRIRÁRÐ 1988
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 7514. september 1981 um
tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknaö
verðbreytingarstuðul fyrir árið 1988
og nemur hann 1,1848 miðað við 1,0000 á árinu 1987.
Reykjavík 1. desember 1988
RÍKISSKATTSTJÓRI