Þjóðviljinn - 10.12.1988, Page 16
YDDA ÝS.4/SIA
MN HJÁLP BAR
ÁRANGUR
Með þinni hjálp reisum við nú
heimili fyrir 150 munaðarlaus börn í
Eþíópíu. Nokkur þeirra eru þegar
flutt inn. Áður skorti þau næringu og
umönnun. Nú njóta þau hlýju, örygg-
is, næringar og fræðslu.
Og eiga von um góða framtíð.
VIÐ GERÐUM FLEIRA
Góður árangur í söfnuninni „Brauð
handa hungruðum heimi" fyrir síðustu
jól gerði okkur kleift að hjálpa á fleiri
stöðum.
í Mósambík tókum við þátt í að
kaupa 1600 tonn af matvælum fyrir
einangraða flóttamenn í norðurhluta
landsins, þar sem hungursneyð ríkir.
Þeirri hjálp verður haldið áfram.
í Víetnam greiddum við efnis-
kostnað við stíflugerð sem tvöfaldar
hrísgrjónauppskeru í þremur þorpum.
Aukin uppskera bindur enda á matar-
skort 15.000 manna, gerir þá sjálf-
bjarga og gefur þeim von um bjartari
framtíð.
Við kostuðum nokkur smærri
þróunarverkefni á Indlandi og í
Eþíópíu. Verkefni sem kosta lítið en
hjálpa mörgum til sjálfshjálpar. í 75.000
manna bæ á Indlandi borguðum við t.d.
tæki og laun kennara við smíðanám
ungra atvinnulausra manna. Námið
opnar þessum mönnum leið til sjálfs-
bjargar.
ÁN MNNAR HJÁIPAR ERUM VW
HJÁLPARLAUS
Við leitum enn til þín, almennur
stuðningur er sá grunnur sem við
byggjum starf okkar á.
Leggjumst öll á eitt og gefum eftir
efnum og ástæðum. Þannig getum
við áfram unnið öflugt og árangurs-
ríkt starf til hjálpar þeim sem minnst
mega sín í heiminum, landflótta og
hungruðum börnum, konum og
körlum.
LANDSSðlNUNIN
BRAUÐ HANDA
HUNGRUÐUM HEIMI
Gír
KEJ
HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
HAGKAUP
wrevfill ISJDVÁ | Rolf Johansen #á Ls!ainSank'
landsmanna
FLUGLEIÐIR