Þjóðviljinn - 10.12.1988, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 10.12.1988, Qupperneq 16
YDDA ÝS.4/SIA MN HJÁLP BAR ÁRANGUR Með þinni hjálp reisum við nú heimili fyrir 150 munaðarlaus börn í Eþíópíu. Nokkur þeirra eru þegar flutt inn. Áður skorti þau næringu og umönnun. Nú njóta þau hlýju, örygg- is, næringar og fræðslu. Og eiga von um góða framtíð. VIÐ GERÐUM FLEIRA Góður árangur í söfnuninni „Brauð handa hungruðum heimi" fyrir síðustu jól gerði okkur kleift að hjálpa á fleiri stöðum. í Mósambík tókum við þátt í að kaupa 1600 tonn af matvælum fyrir einangraða flóttamenn í norðurhluta landsins, þar sem hungursneyð ríkir. Þeirri hjálp verður haldið áfram. í Víetnam greiddum við efnis- kostnað við stíflugerð sem tvöfaldar hrísgrjónauppskeru í þremur þorpum. Aukin uppskera bindur enda á matar- skort 15.000 manna, gerir þá sjálf- bjarga og gefur þeim von um bjartari framtíð. Við kostuðum nokkur smærri þróunarverkefni á Indlandi og í Eþíópíu. Verkefni sem kosta lítið en hjálpa mörgum til sjálfshjálpar. í 75.000 manna bæ á Indlandi borguðum við t.d. tæki og laun kennara við smíðanám ungra atvinnulausra manna. Námið opnar þessum mönnum leið til sjálfs- bjargar. ÁN MNNAR HJÁIPAR ERUM VW HJÁLPARLAUS Við leitum enn til þín, almennur stuðningur er sá grunnur sem við byggjum starf okkar á. Leggjumst öll á eitt og gefum eftir efnum og ástæðum. Þannig getum við áfram unnið öflugt og árangurs- ríkt starf til hjálpar þeim sem minnst mega sín í heiminum, landflótta og hungruðum börnum, konum og körlum. LANDSSðlNUNIN BRAUÐ HANDA HUNGRUÐUM HEIMI Gír KEJ HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR HAGKAUP wrevfill ISJDVÁ | Rolf Johansen #á Ls!ainSank' landsmanna FLUGLEIÐIR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.