Þjóðviljinn - 13.12.1988, Page 1
Tekjuöflun ríkissjóðs
Kvartmiljarður utan gátta
Alþýðuflokkurinn á móti 3 % hœkkuntekjuskatts. Lœkkar tekjur ríkissjóðs um 500 miljónir. Kvóti á veislur og ferðalög
á fimmtudag. Önnur umræða ætti Kvennalistinn á sennilega erf- og eignaskattsfrumvarp sem lagt
því að geta farið fram fyrir helgi•. itt með að sætta sig við það tekju- verður fram í dag. Kvennalista-
Bækur, bækur, bækur... Bóksala er að komast í fullan gang þessa dagana, og Valdís Guðmundsdóttir í
MM-búðinni í Síðumúlanum býr sig undir átökin frammundan einsog aðrir verslunarmenn. (Mynd: þóm)
Bókalisti Þjóðviljans
Vigdís langefst
Bryndís, skáldsaga Ólafs Jóhanns yngri og Nasistar Jökulssonafylgja
eftir Vigdísi og Steinunni á bóksölulista Þjóðviljans. íslenskir
höfundar ogAnna í Grænuhlíð á barna- og unglingalista
Fjármálaráðherra hefur lagt til
við fjárveitinganefnd að risnu- og
ferðakostnaður opinberra stofn-
ana verði skorinn niður um 250
miljónir til viðbótar við fyrri til-
lögur um niðurskurð í þessum
efnum. Þetta er ma. lagt til vegna
andstöðu Alþýðuflokksins við
3% hækkun tekjuskatts. En í
tekjuskattsfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar, sem lagt verður fram í
dag, er gert ráð fyrir 2% hækkun
frá því í ár, sem hefur í för með
sér 500 miljónum króna lægri
tekjur en 3% hækkunin hefði gef-
ið af sér. Alls óvíst er hvernig
brúa á þennan tekjumun að fullu,
en fjármálaráðherra segir ýmsar
leiðir koma til greina, til dæmis
hækkun á áfengi og tóbaki.
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði Þjóðviljan-
um í gær, að í tillögum hans til
fjárveitinganefndar legði hann til
250 miljóna niðurskurð á fjár-
veitingu til ferðalaga innanlands
og utan og á veislu- og fundahöld-
um ráðuneyta. Hverju ráðuneyti
yrði úthlutaður kvóti til þessara
hluta og þegar hann tæmdist, yrði
einfaldlega ekki um frekari
veislur og ferðalög að ræða það
árið. í tillögunum er einnig að
finna 200 miljóna niðurskurð
vegna breytinga á sérstökum
launakostnaði, eins og yfirvinnu
og sumarráðningum. Sighvatur
Björgvinsson formaður fjárveit-
inganefndar á von á því að nefnd-
in skili af sér fjárlagafrumvarpinu
Steingrímur
Gott að vera
saknað
Forsœtisráðherra:
Afar gottað komast
stundum íburtu
- Mér þykir vænt um það ef
mín er saknað, það er ekki hægt
að segja það um alla aðra þegar
þeir ferðast,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
við Þjóðviljann í gær. En hann
var spurður um þá gagnrýni sem
hann varð fyrir í þingsölum vegna
fjarveru hans í útlöndum, á með-
an stjórnin er að flytja mikilvæg
mál í þinginu.
„Hitt er svo annað mál að aðal-
atriðið er að hafa trausta og góða
samstarfsmenn og það hef ég,“
sagði forsætisráðherra. Hann
sagðist hafa verið í góðu sam-
bandi við þá á meðan hann dvaldi
í útlöndum. Það væri einnig afar-
gott að komast stundum í burtu
og horfa á hlutina úr fjarska.
Steingrímur sagðist ekki hafa
gagnrýnt Þorstein Pálsson fyrr-
verandi forsætisráðherra fyrir
utanferðir. Það hefðu verið aðrir
sem tóku ummæli hans sem
gagnrýni. Hann hefði einfaldlega
bent á þá staðreynd að hann væri
í burtu.
-hmp
Bók Steinunnar Sigurðardóttur
um húsfreyjuna á Bessastöðum,
Ein á forsetavaktinni, er sú bók
sem selst hefur best hingaðtil í
haust, samkvæmt splunkunýjum
bóksölulista sem Þjóðviljinn setti
saman í gær eftir upplýsingum frá
sex bókaverslunum.
Næstar á listanum eru lífssaga
Bryndísar Schram, skáldsaga
Ólafs Jóhanns Ólafssonar, bók
Hrafns og Illuga Jökulssona um
íslenska nasista, sjónvarpsbók
Ingva Hrafns og saga Sigurbjörns
biskups eftir Sigurð A.
Á lista um þær barna- og ung-
lingabækur sem best hafa selst
hingaðtil eru efstar bækur eftir
Andrés Indriðason, Eðvarð Ing-
ólfsson og Kristínu Steinsdóttur,
en þar á eftir kemur Anna í
Grænuhlíð sem nú ætlar að
skoppa yfir kynslóðabilið.
Bóksala hófst ekki að marki
fyrren um helgina, bækur eru enn
að koma út og viðbúið að bóksala
taki ýmsar stefnur frammað jól-
um.
Bóksölulistar Þjóðviljans hafa
unnið sér traust undanfarin ár og
þykja gefa mjög góðar vísbend-
ingar. Við birtum lista um 15
söluhæstu almennar bækur og 10
hæstu barna- og unglingabækur í
blaðinu í dag, en eftir rétta viku
er von á næsta Þjóðviljalista.
-M/HS
Sjá síðu 2
þingmenn hefðu kosið sérstakt
nýtt skattþrep og jafnvel 2 ný
skattþrep, frekar en almenna
hækkun álagsprósentunnar.
Ríkisstjórnin virðist því horfa til
Borgaraflokksins um stuðning
eða hjásetu, þótt alls ekki sé víst -
að Kvennalistaþingmenn greiði
beinlínis atkvæði gegn frumvarp-
inu. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði Þjóðvilj-
anum, þegar hann var spurður
hvort stjórnin hefði tryggt sér
stuðning stjórnarandstöðunnar
við einstök mál, að það væri
auðvitað alltaf spurning hvað
væri tryggt og hvað ekki. „En ég
held að við höfum nokkra tilfinn-
ingu fyrir því hvað stjórnarand-
staðan sættir sig helst við,“ sagði
Steingrímur.
Hætt hefur verið við að leggja
frarn frumvarp um söluskatt á
happdrætti vegna andstöðu
Framsóknarflokksins. En áætl-
aðar tekjur af þessum skatti voru
50 miljónir króna. Ólafur sagði
að hafnar yrðu sérstakar við-
ræður við þau samtök sem hefðu
sérstök leyfi vegna happdrætta, í
því augnamiði að þau verji meiru
af sínum tekjum í rekstrarkostn-
að, sem annars félli á ríkið. Einn-
ig mætti hækka ýmislegt án þess
að það færi í gegnum þingið í
frumvarpsformi, til dæmis áfengi
og tóbak.
-hmp
11 dagar
til jóla
Giljagaur var annar,/ með gráan
hausinn sinn... segir í Jóla-
sveinavísum Jóhannesar úr
Kötlum. Þessa fínu mynd af Gilj-
agaur teiknaöi hann Guömundur
Hreiðarsson 5 ára, Sólheimum
34 í Reykjavík. Við þökkum
Guðmundi sendinguna og
minnum á að enn er hægt að
senda okkur jólasveinateikning-
ar.
í dag kl. 11 kemur Giljagaur í
heimsókn á Þjóðminjasafnið og
þar verður einnig sænsk Lúsía
ásamt fylgdarliði.