Þjóðviljinn - 14.12.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 14.12.1988, Blaðsíða 14
I DAG Póstur af Ströndum Allmikið er um svonefnd átt- hagafélög í Reykjavík. Það eru samtök fólks, sem upprunnið er úrsömu héruðum, jafnvel kaup- stöðum. Einhverntíma heyrði ég meira að segja talað um átthag- afélag Reykvíkinga í Reykjavík, en sjaldan er það nefnt í seinni tíð. Líklega er aðal verkefni þess- ara félaga fólgið í því að efna til árshátíðaog annars skemmtanahalds. Sum halda uppi söngstarfsemi og/eða gefa út héraðsrit. Og kannski fer at- hafnasemi félaganna ekki alltaf eftirfjölmenni þeirra. Það mætti t.d. segja mér að Átthagafélag Strandamanna væri ekki mjög , fjölmennt samanborið við ýmis önnur, ef tekið er mið af íbúatölu sýslunnar. Það mun þó starfa af miklum móði og gefur m.a. út ársritið Strandapóstinn, yfirlætis- lítið rit en skemmtilegt og fróðlegt í senn og hefur nú komið út í 21 ár. Þarhafamargirgóðirog gegnir menn lagt hönd að verki og þótt frumherjunum færi eðli- lega fækkandi gerast jafnan nóg- ir aðrir til að fylla í skörðin. f síðasta Strandapóstinum eru hvorki meira né minna en 28 þættirog Ijóðog höfundarmunu vera einir 18. Ekki er hér rúm til að rekja allt efni ritsins en bent skal á stórfróðlega grein Játvarð- ar Jökuls Júlíussonar „ Um versl- unarmál við Húnaflóa fyrir 90- 100 árum.“ Þótt Borðeyri við Hrútafjörð láti ekki mikið yfirsér geymir þó saga hennar minning- ar um merkilega tilraun íslend- inga til að ná versluninni í eigin hendur á öldinni sem leið. Dala- maðurinn, Torfi í Ólafsdal, kom þar við sögu sem víðar og eru þarna birtir kaflar úr bréfum frá honum til Kristjáns Gíslasonar, afhendingarstjóra á Borðeyri. Skúli heitinn á Ljótunnarstöðum var afkastamikill á ritvellinum þótt blindurværi veruleganhluta ævinnar. Hann ánafnaði Strand- apóstinum það sem hann átti óbirt ífórum sínum. Eru þarna tveir spaugilegir þættir eftir hann „Hundarog Hundamálið". Ingólf- ur Jónsson frá Prestabakka hef- ur allt frá byrjun lagt Strandapóst- inum drjúgt lið, bæði í bundnu máli og lausu. Hann hefur undan- farin ár birt þarna þætti úr Hrúta- firðinum og lýkur nú þeirri þáttar- öð. Ingvar Agnarsson, góðkunn- ingi úrfyrri „póstum" á þarna bæði Ijóð og lausmálsþætti. Aðrir höfundar eru Sigurbjörn Finn- bogason, Stefán Gíslason, Þor- steinn Matthíasson, Sveinbjörn Valgeirsson, SveinsínaÁgústs- dóttir, Gísli Jónatansson, Gunnar Grímsson, Jóhannes frá Aspar- vík, Agnar Jónsson, Hermann Búason, Jóhannes Pétursson, Guðmundur Guðni Guðmunds- son, Jóna Vigfúsdóttir, Ásgeir J. Líndal og Þórir Daníelsson. Að öllu samanlögðu er Strand- apósturinn hið ágætasta rit nú sem áður og þjónar vel þeim til- gangi, sem honum er ætlað. - mhg. í DAG er 14. desember, miðvikudagur í áttundu viku vetrar, tuttugasti og fjórði dagurýlis, 349. dagurárs- ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 11.15 en sest kl. 15.30. Tungl vaxandi á fyrsta kvartili. VIÐBURÐIR Imbrudagar. Vísir hefur göngu sína1910. ÞJÓÐVILJINN FYRIR 50ÁRUM Bólstruð húsgögn er bezt að kaupa hjá okkur. Konráð Gísla- son & Erlingur Jónsson. UM UTVARP & SJONVARP Mýsla í Glaumbæ Sjónvarp kl. 18.00. Og hún er svo sem söm við sig. Ekkert lát á því að hún leggi gildrur sínar fyrir vesalings jóla- sveinana okkar, sem nú eru auðvitað á ferli um öll foldarból, eins og jafnan áður á þessum árs- tíma og mörgum aufúsusgestir. En Mýsla gerir meira en að hrekkja jólasveinana, hún hefur einnig á boðstólum nokkrar teiknimyndir, Rubbi leiðbeinir lj óni, sem hefur lent á villigötum. Sammi brunavörður er sama hjálparhellan og ætíð áður. Og svo er það hún frú Paddington sem fer á stúfana til jóla- innkaupanna. Tuskudúkkurnar verða sér úti um nýjan vin en verða jafnframt vitni að ótrú- legum sóðaskap ferðafólks. Og svo er það Töfraglugginn með teikningunum sínum. - mhg. Dagbók Önnu Frank Stöð tvö, kl. 15.35. Ástæða er til að hvetja þá sem aðstöðu hafa til, að fylgjast með sýningunni á myndinni unt Önnu Frank á Stöð tvö kl. 15.35 í dag. Því miður fer sýningin fram á þeim tíma dags að hætt er við að hún fari fram hjá mörgum. - Anna Frank var af gyðingaættum og bjó, ásamt fjölskyldu sinni, í -Hollandi. Gyðingaofsóknir þýsku nasistanna voru alþekktar og alræmdar og þegar þeir her- námu Holland, flúði Ánna og fólk hennar í felur, svo sem allir aðrir gyðingar á umráðasvæði nasista, sem fengu því við komið. Á meðan þessir ógnartímar stóðu yfir hélt Ánna Frank dagbók þar sem greint er frá hörmungum þessarar hollensku gyðingafjöl- skyldu. Að styrjöldinni lokinni Land og synir Sjónvarp kl. 22.10. Mér hefur ávallt fundist Land og synir einhver besta saga Ind- riða G. Þorsteinssonar. Höfund- ur fj allar þar af nærfærni og skiln- ingi um mikinn örlagaþátt í ís- lensku þjóðlífi, flutning fólks af mold á möl, orsakir hans og af- leiðingar og það tilfinningaum- rót, sem hann olli - og veldur. Sagan var kvikmynduð 1979 og frumsýningin fór fram í febrú- armánuði árið eftir. Myndinni var mætavel tekið og mun hálf íslenska þjóðin hafa sótt sýningar á henni. Myndin var einnig sýnd á hinum Norðurlöndunum, í sjón- varpi í Bretlandi og Þýskalandi, og mun hvarvetna hafa fengið góða dóma. Reyndar er myndin enn á faraldsfæti og verður m.a. sýnd innan skamms í tyrkneska sjónvarpinu. Allt er þetta auðvit- að gott og blessað. Og nú fáum við að sjá þessa mynd í Sjónvarp- inu í kvöld. Leikstjóri er Ágúst Guðmundsson, en hann gerði kvikmyndarhandritið eftir sögu Indriða. Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Guðný Ragn- arsdóttir og Sigurður Sigurjóns- son. _ mhg. fannst dagbókin og ..varð heimsþekkt. Með hlutverk Önnu í myndinni fer Melissa Gilbert en við hana ættu þeir að kannast sem horfðu á „Húsið á sléttunni". Með stór hlutyerk fara þeir einn- ig Maximillian Schell og Joan Plowright. Kvikmyndahandbók- in gefur þessari mynd enga stjörnu en ekki veit ég hvaða mælikvarða sú bók notar. - mhg. GARPURINN FOLDA Asninn þinn. Heldurðu að þú eigir \ einhvern möguleika í þeirri samkeppni? Komdu strax með pennann minn! Annars tek ég hann af þér! Ha? Þykistu ætla að vera vondur? 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 14. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.