Þjóðviljinn - 17.12.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 17.12.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 17. desember 1988 271. tölublað 53. drgangur Fiskneysla Ekkert eftirlit með menguðum fiski Engin stofnunfylgist með þvíhvort mengun séaðfinna ífiski sem neytt erhérlendis. Rannsóknastofnunfiskiðnaðarinsrannsakareinungis þann fisk semflutturerút. Mengunarrannsóknir ífiski utan við verksvið Hollustuverndar Hvorki Hollustuvernd ríkisins né Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins fylgjast með þvi hvort sá fiskur sem íslendingar neyta er mengaður af kvikasilfri eða blýi. Ekki heldur hvort PCB og DDT eiturefni kunna að berast með hafstraumum hingað til lands og menga fiskinn sem veiddur er við landið. Fyrir skömmu henti það að nokkrum stórlúðum úr afla ís- lensks fiskiskips, sem seldi afla sinn á fiskmarkaði í Þýskalandi, var hent sökum mikillar mengun- ar sem greindist í lúðunni. Að sögn Geirs Arnesens yfir- verkfræðings hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins rannsaka vísindamenn stofnunarinnar að- eins fisk sem ætlaður er til út- flutnings, og þá aðeins vegna óska kaupenda, en ekki það sem fer til neyslu á innlendum mark- aði nema þess væri óskað sérstak- lega. Geir sagði að þeir hefðu fengið til rannsóknar stórlúðu fyrir 5 árum og hefði þungmálma- mengun í henni reynst yfir hættu- mörkum. , Geir sagði að menn þyrftu ekki að óttast neina eitrun við neyslu stórlúðu sem veidd væri hér við land, þó svo að einhver þung- málmamengun fyndist í henni. Hann sagði að hingað til hefði ekki greinst í fiskinum mengun, hvorki af völdum kvikasilfurs né blýs. Stofnunin hefur ekki yfir að ráða tækjum til að rannsaka hvort eiturefnin PCB eða DDT berast í fiskinn með hafstraumum frá meginlandi Evrópu og víðar. „Hinu er ekki að leyna að þær fisktegundir sem ná háum aldri, ss. stórlúða, geta safnað í sig mengun af völdum kvikasilfurs og blýs á löngum tíma og við efnagreiningu mætti jafnvel finna í þeim allt Lotukerfið," sagði Geir Arnesen. Birgir Þórðarson forstöðu- maður mengunarvarna hjá Holl- ustuvernd ríkisins sagði að eftirlit með mengun í fiski væri utan við verksvið Hollustuverndar. Halldór Runólfsson hjá sömu stofnun sagði að ef fram kæmu tilfelli sem krefðust mengunar- rannsókna yrði svo gert, en ekki væri hægt að framkvæma þær rannsóknir þar sökum tækja- skorts, því Hollustuverndin hefði ekki yfir að ráða eigin rannsókna- stofu til mengunarmælinga í fiski. Hann sagði að hingað til hefði ekkert það komið upp sem benti til þess að fiskurinn hér við land væri mengaður en sagði jafn- framt að engu að síður væri nauðsynlegt að fylgjast náið með þróun þessara mála. -grh Leikhús Vigdís heiðnið Formaður Norræna áhuga- leikhúsráðsins, EUa Röyseng, sæmdi frú Vigdísi Finnbogadótt- ur heiðursmerki ráðsins, gullnál með átta grímum, að Bessastöð- um í gær. Tilefnið var tuttugu ár afmæli NAR (Nordisk Amatörteaterrá- ad), en Vigdís hefur oftsinnis komið við sögu í starfsemi þess. Sigurður Örn Brynjólfsson hannaði heiðursmerkið, og Stef- án B. Stefánsson gullsmiður smíðaði það. Eru grímurnar tákn fyrir þau lönd sem aðild eiga að NAR, en þau eru Álandseyjar, Danmörk, Finnland, Færeyjar, Grænland, ísland, Noregur og Svíþjóð. LG Ella Röyseng heiðrar Vigdísi á Bessastöðum í gær. Mynd - Jim Smart. Viðskipti Stöð 2 í skattrannsókn Laun greidd ífríðu og þjónusta með auglýsingasamningum? Mörg fyrirtœki látin gefa skýrslu Ríkisskattstjóri hefur óskað eftir því við nokkur stórfyrirtæki að þau geri fulla grein fyrir við- skiptum sínum við íslenska sjón- varpsfélagið, Stöð 2. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans snýr rann- sóknin að meintum skattsvikum Stöðvar 2, sem eiga að hafa farið fram með þeim hætti að ákveðinn hluti launa starfsmanna hafi ver- ið borgaður f fríðindum af ýmsu tagi og því ekki verið talinn að fullu fram tU skatts. Einnig er tal- ið að brögð hafi verið að því að Stöð 2 hafi greitt viðskiptavinum sínum fyrir veitta þjónustu f for- mi auglýsingasamninga og þvf hafi söluskattsskyid þjónusta hugsanlega verið vantalin. Embætti ríkisskattstjóra sendi fyrirtækjunum bréf þann 8. des- ember sl. þar sem þess er krafist að þau sendi embættinu ljósrit af öllum viðskiptasamningum, nót- um, greiðslukvittunum og reikn- ingum varðandi viðskipti sín við Stöð 2 frá því sjónvarpsstöðin tók til starfa á árinu 1986. Þá eru fyr- irtækin beðin um að láta greinar- gerð fylgja til skýringar viðskipt- unum. Fríðindi þau sem starfsmenn Stöðvar 2 eru taldir hafa notið sem launauppbóta eru af ýmsum toga, svo sem utanlandsferðir, ókeypis máltíðir á veitingahúsum og fataúttektir hjá ákveðnum verslunum. phh 7 dagar til jóla Sá sjötti Askasleikir, var alveg dœmalaus. Svo segir í jólasveinavísu dags- ins, en þessa mynd af Askasleiki á unga aldri teiknaði hún Þórunn Gríma Pálsdóttir, 4 ára en hún á heima í Gautlandi 7 í Reykjavík. Að venju verður mikið um að vera í Þjóðminjasafninu í dag, því þangað kemur Askasleikir kl. 11 og fleira verður til skemmtunar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.