Þjóðviljinn - 20.12.1988, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.12.1988, Síða 1
Þriðjudagur 20. desember 1988 272. tölublað 53. árgangur Borgaraflokkurinn Ekki kosið fyrr en í haust Júlíus Sólnes verðandiformaður: Kosningar nú vœru glaprœðifyrirþjóðina. Albert segir af sér formennsku á nœstu dögum. Ekki samstaða um lnga Björn sem varaformann „Ég held nú þrétt fyrír allt að hugmyndir margra flokkanna séu áþekkar okkar i því efni, að það sé ekki tímabært að fara i kosn- ingar a.m.k ekki í vor. Þeir flokk- ar sem tala af ábyrgð segja sem svo, að efnahagsástandið sé það erfitt og að það taki það langan tíma að fá þessar efnahagsað- gerðir til að virka, að ef rokið væri f kosningar t.d. núna f mars þá værí þetta allt unnið fyrir gýg. Þannig að ef hugsað er um hag þjóðarinnar, þá hugsa ég að flest- ir ef ekki allir flokkar séu sam- mála um að forðast beri kosning- ar þangað til að einhverju lagi er búið að koma á efnahagsmálin og ég held að það verði ekki búið að gera neina bragarbót á því fyrr en í fyrsta lagi um mitt sumar. Þann- ig að ég held að það væri mesta glapræði fyrir þjóðfélagið f heild að fá á sig kosningar strax,“ sagði Þau voru orðin óþreyjufull krakkamir á Dyngjuborg I gær, enda voru þau búin að syngja flest jólalögin tvisvar þegar að hinir langþráðu jólasveinar birtust loksins á leikvellinum. Þau sem spenntust voru þustu út í frostið á blankskónum til að lóðsa þá Hurðaskelli og Stúf inn í hús, þar sem hringdansinum um jólatréð var haldið áfram af krafti sem aldrei fyrr. Sem sönnum jólasveinum sæmir útdeildu þessir tveir síðan smágjöfum til bamanna, sem nú þurfa aðeins að þreyja þrjá dagana til fram að jólum. Mynd Jim Smart Alþingi Þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda uppi málþófl f báðum deildum þingsins þessa dagana, Halldór Blöndal narrí í efrí deíld og Þorsteinn Pálsson sér um þóflð í neðrí deild. Líkurnar á að stjórnin nái fjáröflunarfrum- vörpum sínum í gegnum þingið hafa hins vegar aukist síðustu daga, og virðist fátt standa í veg- inum annað en málþóf Sjálfstæð- isflokksins. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefur í viðræðum Bóksala Leifssaga á uppleið Bók Garðars Sverrissonar um Leif heitinn Muller, Býr íslend- ingur hér?, er í öðru sæti á bók- sölulista Þjóðviljans í dag og hef- ur skotið aftur fyrir sig tíu sölu- bókum miðað við lista Þjóðvilj- ans fyrir réttri viku. Bókin um Vigdísi forseta er greinilega söluhæsta bókin þetta haustið, í efsta sæti hjá öllum bóksölum. Bækur þeirra Andrésar Ind- riðasonar og Eðvarðs Ingólfs- sonar eru efstar á lista um bama- og unglingabækur. Sjá síðu 2 við stjómarandstöðuflokkana viðrað breytingatillögur á frum- vörpum stjómarinnar um vöra- gjald og tekju- og eignarskatt. Ljóst er að hugmynd hans um 0,3-0,5% hækkun tekjuskatts umfram 2% nær ekki fram að ganga vegna andstöðu Aiþýðu- flokksins. Þessi viðbótarhækkun er hugsuð til hækkunar persónu- frádráttar og bamabóta. Breytingarhugmyndir fjár- málaráðherrans á vöragjalds- framvarpinu falla sennilega í betri jarðveg hjá stjómarflokk- unum, en tekjuskattshugmynd- imar milda hugsanlega afstöðu Kvennalistans og Borgaraflokks- ins til framvarpsins. Tillögumar gera ráð fyir 10% vöragjaldi sem leggist á fleiri vöraflokka en fyrir- hugað var. Núverandi vöragjald er 14%. Ef þetta nær fram að ganga myndu heimiiistæki eins og frystikistur lækka í verði frá því sem nú er. Ólafur leggur einnig til að sérstakt 15% gjald verði lagt á gosdrykki, sælgæti og fleiri sætar vörar, ofan á 10% vöragjald. Bráðabirgðalögin eiga líklega eftir að taka enn frekari breyting- um en verið hefur. Framvarpið er nú í fyrstu umræðu í neðri deild en mun væntanlega koma í breyttum búningi til annarar um- ræðu úr fjárhags- og viðskipta- nefnd. Útlit var fyrir að annarri umræðu lyki í gærkveldi, og framvarpið komi til þriðju um- ræðu í dag. Forsendur fjárlagafrumvarps- ins hafa breyst mikið síðan fram- varpið var lagt fram og höggvið hefur verið í fjáröflunarfram- vörpin. Áform um 1,2 miljarða tekjuafgang era því að öllum lík- indum úr sögunni og tekjuaf- gangur fjárlaga í mesta lagi nokk- ur hundrað miljónir króna. -hmp Júlíus Sólnes, verðandi formaður Borgaraflokkins í samtali við Þjóðviljann í gær. „Það era engir tveir einstak- lingar eins, þannig að auðvitað hlýtur flokksstjómin að verða eitthvað öðravísi í mínum hönd- um en Alberts. En við sjáum enga ástæðu til að gera neinar veigamiklar breytingar á stefnu flokksins í stærstu atriðum og við munum, að ég held, leitast við að halda merki Alberts á lofti, en það hefur verið að hugsa um hag þeirra sem minna mega sín en jafnframt að stuðla að frjálsræði í verslun og viðskiptum,“ sagði Júlíus. Að sögn Júlíusar hefur Albert Guðmundsson lagt áherslu á að breytingin á forystu Borgara- flokksins gangi fyrir sig mjög fljótt. Væri hugmynd Alberts sú að aðalstjórn verði kölluð saman öðra hvora megin við jólin, þar sem Albert segði formlega af sér formennsku og Júlíus taki við. Óli Þ. Guðbjömsson verður for- maður þingfiokksins og síðan þyrfti að láta aðaistjórn og þing- flokk kjósa sameiginlega nýjan varaformann, en Albert Guð- mundsson mun hafa lagt til að Ingi Bjöm sonur hans fái það embætti. Af orðum Júlíusar er hins vegar ijóst að sú skipan mun ekki ganga sjálfkrafa fyrir sig, enda munu vera mjög deiidar meiningar innan flokksins um ágæti þeirrar hugmyndar. -phh SjáHstæðismenn með málþóf Ekkert samkomulag um þingstörf. Breytingatillögur fjármálaráðherra á tekjuskatts- frumvarpi mœta andstöðu Alþýðuflokks. Tekjuafgangurinn að hverfa 4 dagar til jóla Níundi var Bjúgnakrcekir, brögðóttur og snar. Svo segir í jólasveinavísu Jó- hannesar, en þessa mynd af honum Bjúgnakræki með pok- ann sinn, teiknaði hún Guðrún Dalía Salómonsdóttir, 7 ára, Rauðarárstíg 36 í Reykjavík. Bjúgnakrækir kemur ( heim- sókn í Þjóðminjasafnið kl. 11 í dag og þangað koma líka krakkar af leikskólanum í Álftaborg sem ætla að syngja nokkur jólalög.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.