Þjóðviljinn - 22.12.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 22.12.1988, Qupperneq 1
Fimmtudagur 22. desember 1988 274. tölublað 53. árgangur Ríkisstjórnin Borgaralegir huklumenn * AðalheiðurBjarnfreðsdóttirogOliÞ. Guðbjartsson tryggðuframgang bráðabirgðalagaríkisstjórnarinnar. BenediktBogason áleiðinniinn og styðurstjórnina. Tekjuöflunarfrumvörpígegn. Fjárlögafgreiddstrax eftir áramót Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Oli Þ Guðbjartsson þingmenn Borgaraflokksins, tryggðu af- greiðslu bráðabirgðalaganna í neðri deild Alþingis í gær. í gær- kvöld tryggði Aðalheiður síðan framgang frumvarpa um vöru- gjald og tekju- og eignarskatt. Þriðji „huldumaðurinn" er á leið inn á Alþingi. En Benedikt Bogason, sem kemur inn fyrir Al- bert Guðmundsson, sagði Þjóð- viljanum að hann hefði sennilega greitt atkvæði eins og Aðalheiður og Óli. Hann sæi enga ástæðu til að fella stjórnina. Það yrði að gefa stjórninni tækifæri til að rétta atvinnulífið við. „Ef hún slumpast í gegnum jól og áramót stendur hún alla vega fram á haustið," sagði Benedikt. Samkomulag var gert á milli flokknana í gær um að afgreiða tekjuöflunarfrumvörpin í dag og verður sennilega fundað fram á kvöld í efri deild. Fjárlagafrum- varpið verður síðan afgreitt fyrstu dagana í janúar. Borgaraflokkurinn er ekki heill í afstöðu sinni til stjórnar- innar og ágreiningur er um vara- formannsembætti flokksins. -hmp/phh Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Óli Þ Guðbjartsson tryggðu meirihluta ríkisstjórnarinnar í neðri deild í gær. Hér sést Aðal- heiður hin rólegasta á meðan sjálfstæðismenn krunka sig sam- an, og Óli sitja hjá á meðan full- trúar Kvennalista og Sjálfstæðis- flokks greiða atkvæði gegn stjórninni. - Mynd: Jim Félagsmálastofnun Reykjavíkur Yfirborganimar ekki til okkar Hördís Hjartardóttir: Það er alrangt hjáArna Sigfússyni að við séumyfirborguð. Mjög ólíklegtað takistað manna Breiðholtsútibúið ef ekkert verður að gert Við sem störfum á Félagsmála- stofnun Reykjavíkur könnumst ekki við neinar yflrborganir. Kannski formaður Félagsmála- ráðs eigi eftir að senda okkur þær. Við bíðum spennt eftir að fá þessa yfirborgun, það kemur sér vel nú þegar maður þarf að fata sig upp fyrir jólin, sagði Hjördís Hjartardóttir félagsráðgjafí. Árni Sigfússon formaður Fé- lagsmálráðs hélt því fram í Þjóð- viljanum í gær að Félagsmálaráð hefði gert ýmislegt til að bæta vinnuaðstöðu félagsráðgjafa og ma. væru þeir sem störfuðu hjá stofnuninni yfirborgaðir. Einnig lét hann þess getið að fjölgað hefði um 3 starfsmenn á þessu ári og von væri á einum til viðbótar. En Árni lét þess ógetið að mála- fjöldinn hefur vaxið mjög ört að undanförnu. Allt útlit er fyrir að starfsemi útibús Félagsmálastofnunar í Breiðholti lamist strax á næsta ári vegna manneklu. Ef ekkert verð- ur að gert verður aðeins einn fé- lagsráðgjafi þar við störf og það aðeins í hálfu starfi. Nú starfa fimm félagsráðgjafar þar. - Það liggur á borðinu að á meðan að þeir sem starfa á Fé- lagsmálastofnun eru lægst launaða fólkið í stéttinni, þá sæk- ir enginn um þau störf, sem losna, sagði Hjördís, og bæti við að í nóvember hefðu stöðurnar í Breiðholtsútibúi verið auglýstar en hún vissi ekki til að neinn hefði sótt um. Hvorki Árni né Sveinn Ragnarsson félagsmálastjóri voru þeirrar skoðunar að erfitt yrði að manna útibúið. Fari hins vegar svo að það gangi ekki að ráða fólk til starfa, má búasat við að mjög alvarlegt ástand skapist í félagsmálum þeirra sem þar búa og hafa þurft að leita til stofnunarinnar.- - Það er útilokað að aðrir starfsmenn geti bætt á sig þeim verkum sem unnin hafa verið uppi í Breiðholti og það er alvar- legt mál ef ekki verður hægt að sinna þeim fjölda mála sem þar koma upp og sérstaklega þeim barnaverndarmálum sem eru fjöimörg í svona barnmörgum hverfum eins og Breiðholtshverf- in eru, sagði Hjördís. -sg Grímsey Nær engin dagsbirta Á þcssum árstíma gætir dags- birtu norður við heimskautsbaug sáralítið eða í 2 -3 klukkustundir á degi hverjum sem er mun minna en á höfuðborgarsvæðinu og þyk- ir þó mörgum þar nóg vera af skammdeginu. Að sögn Huldu Víkingsdóttur í Grímsey verða heimamenn ekki svo mikið varir við þennan stutta sólargang þar sem snjór er á jörðu og því bjartara yfir en ef hann væri ekki. Allir bátar eyjar- skeggja eru hættir veiðum og verða nokkrir þeirra geymdir yfir hátíðarnar ýmist á Akureyri, Dalvík eða Húsavík þar sem ekki þykir á það treystandi að geyma þá í heimahöfn. -grh 2 dagar til jóla Ellefti var Gáttaþefur, aldrei fékk sá kvef. Þessi Gáttaþefur er skeggprúður mjög, en hann er ættaður norðan úr landi. Það er hann Kári Er- lingsson, 6 ára, Vanabyggð 10c á Akureyri sem teiknaði þennan myndarlega jólasvein. Gáttaþefur ætlar að koma við í Þjóðminjasafninu í dag kl. 11, og þar verða líka börn af skóladag- heimilinu á Seltjarnarnesi sem ætla að flytja leikþátt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.