Þjóðviljinn - 03.01.1989, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.01.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 3. janúar 1989 1. tölublað 54. árgangur Skipulagsmál Lögleg meðferð verði tryggð Fulltrúifélagsmálaráðherra í skipulagsstjórn leggur til að skipulagsstjóri ríkisins skipifulltrúa sem fylgist með að byggingar- og skipulagsnefndirfari eftir lögum og reglugerðum. Davíð snupraður Guðrún Jónsdóttir, arkitekt skipaður fulltrúi félagsmála- ráðherra hjá embætti skipulags- stjóra ríkisins, hefur borið fram tillögu um að embættið nýti sér heimild i lögum þess efnis að full- trúi Skipulagsstjóra sitji fundi skipulags- og byggingarnefnda í Reykjavík og hjá stærri bæjar og sveitarfélögum. Sagði Guðrún að nauðsyn bæri til að skipulags- stjóri hefði gleggri yfirsýn yfir hvernig lögum og reglugerðum væri framfylgt í þessum nefndum og hvaða afgreiðslu mál fengju. Það ætti að koma í veg fyrir óná- kvæmni og misskilning í af- greiðslu mála, eins og borið hefði á. „Það hefur verið talað um, t.d. á fundum borgarstjórnar Reykja- víkur í sambandi við fundi bygg- ingarnefndar að reglugerðir skiptu ekki máli og að þar sem þær stönguðust á við heilbrigða skynsemi ættu reglur að víkja. Mér finnst að með þessu sé verið að brjóta niður ákvæði byggingar- og skipulagslaga og er nær, séu einhver ákvæði úrelt að þeim sé breytt á formlegan hátt. Ég tel að það sé skylda okkar sem sitjum í skipulagsstjórn að stuðla að slíku. Fyrst þessi ákvæði eru í lögum hlýtur að vera meiningin að nota þau,“ sagði Guðrún. Hér á árum áður nýtti skipu- lagsstjóri ríkisins sér þessar heim- ildir og sat þá m.a. fundi bygging- anefnda og skipulagsnefnda. Sá siður var aflagður fyrir nokkrum árum og nýverið er fulltrúi Skipu- Alþingi Fjáilögá fimnrtudag Alþingi kemur saman á morgun og verða þá fundir í báðum deildum. Bráðabirgðalögin koma til þriðju og síðustu umræðu í neðri deild, og fara síðan til einn- ar umræðu í efri deild vegna þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á lögunum í meðferð þings- ins. Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðas Alþingis segir þriðju og síðustu umræðu fjárlaga fara fram á fimmtudag. Guðrún sagði Pjóðviljanum að hún vænti þess að atkvæða- greiðsla um fjárlög geti farið fram á föstudag. Alþingi kemur sér- staklega saman nú til að afgreiða þessi tvö mál samkvæmt sam- komulagi forseta þingsins og þingflokksformanna. Ekki er reiknað með því að þingað verði í næstu viku, heldur að þing fari heim að nýju á föstudag og komi aftur saman um mánaðamótin næstu. Á fimmtudagsmorgun verður fyrirspurnatími eins og venjulega á fimmtudögum, þar sem ráð- herrar svara fyrirspurnum frá þingmönnum. -hmp lagsstjóra ríkisins hættur að sitja fundi skipulagsnefndar Reykja- víkurborgar. Sagði Guðrún að skipulagsstjórn og skipulagsstjóri ríkisins væru félagsmálaráðu- neytinu til aðstoðar varðandi stjórn skipulagsmála. „Þessir að- ilar eiga að vera mótandi um skipulagsmál og því finnst mér mikilvægt að tengslin við sveitarstjórnir séu talsvert ákveð- in og það held ég að náist með því að koma á þessum beinu tengs- lum sem þessi lög gera ráð fyrir. Þetta er því m.a. hugsað til að auka samstarf ríkis og sveitarfé- laga í skipulagsmálum, “ sagði Guðrún Jónsdóttir. Tillaga Guðrúnar verður tekin fyrir á fundi skipulagsstjórnar ríkisins á miðvikudag eftir rúma viku. Sagðist Guðrún eiga von á að tillagan hljóti samþykki. phh Aramót Veisla fyrir 100 miljónir Lögreglan: Tiltölulega róleg áramót Ekki verður annað sagt en landsmenn hafi almennt fagnað nýju ári með friði og spekt. Nokkuð var um ölvun en ekki urðu nein stórslys eða óhöpp. Að sögn lögreglumanna sem Þjóðviljinn ræddi við í gær, er þetta með rólegri áramótum og höfðu sumir á orði að skýringarinnar væri kannski að leita í því að löng vinnuvika væri framundan. Þó menn séu almennt sammáia um að hátíðahöldin hafi gengið vel var þó nokkur ölvun og gat td. lögregl- an í Reykjavík ekki sinnt öllum útköllum er líða tók á nýjársnótt. Veður var mjög gott um allt land og gátu lands- menn notið þess að skjóta upp flugeldum hvar sem er. Flugeldasala var með mesta móti og er álit sölumanna að landsmenn hafi eytt um 90-100 miljónum kr. í þessa skemmtun. -«g Veðurguðirnir léku við landsmenn um áramótin og alls stað- ar viðraði vel fyrir hina skotglöðu. Mynd ÞÓM. Félagsvísindastofnun Launagjáin alltof breið Tveir af hverjum þrcmur Is- lendingum telja að launamun- ur í landinu sé „alltof mikill“ og aðeins tíundi hver segir launa- muninn hæfilegan cða of lítinn. Þessi óánægja hefur vaxið mjög samkvæmt könnunum Félagsvís- indastofnunar. Árið 1983 sögðu 49% að munurinn væri alltof mikill, en 65% bæði ‘86 og í fyrra. Niðurstöður könnunarinnar, sem birtar eru í grein Stefáns Ól- afssonar í nýkomnum BHMR- tíðindum, leiða í ljós að konur eru miklu óhressari með ástandið í launamálum en karlar. í fyrra svöruðu 58% karla með „alltof mikill“ en 74% kvenna. Áðeins 8% kvenna telja launamun hæfi- legan eða of lítinn, en 18% karla. Einnig er ljóst að óánægja með launamuninn vex með aldrinum. 56% af fólki undir þrítugu svör- uðu „alltof mikill" en 66% milli þrítugs og fertugs, og í elsta hópnum, 60-75 ára telur 81% „alltof mikinn“ launamun. Tiltölulega lítill ágreiningur virðist um þessi mál milli starfs- stétta þeirra sem tilteknar eru í könnuninni. í hópnum „sérfræð- ingar/atvinnurekendur“ virðist fjöldi ánægðra heldur meiri en annarstaðar í samfélaginu, en munar þó ekki miklu. í niður- stöðunum kemur ekki fram mun- ur á landshlutum í þessum efn- um. Kjósendur Alþýðubandalags- ins eru langflestir andvígir mikl- um launamun, en ekki munar miklu á þeim og Borgaraflokks- mönnum. Mikill meirihluti Kvennalistafólks og Framsókn- armanna er óhress með misrétt- ið, en kjósendur Alþýðuflokks og sérstaklega Sjálfstæðisflokks virðast fleiri sáttir við launamun- inn. 81% Alþýðubandalagskjós- enda telja muninn „alltof mik- inn“, aðeins 6% hæfilegan eða of lítinn. Samsvarandi Borgara- flokkstölur eru 80% og 4%, hjá Kvennalista 76 og 6, Framsókn 73 og 8, Alþýðuflokki 58 og 18, Sjálfstæðisflokki 50 og 22%. -m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.