Þjóðviljinn - 03.01.1989, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 03.01.1989, Blaðsíða 9
Nýjársávarp forseta íslands Tökum okkur bjartsýnistak Góðir landsmenn allir, - gleðilegt nýtt ár. Á þessu nýja ári vil ég fyrst þakka löndum mínum vinarhug og það mikla traust sem mér var sýnt á ár- inu sem nú er liðið. Sem einatt fyrr við áramót hugs- um við til þeirra sem ekki eru lengur meðal okkar. Sameinuð stöndum við ávallt í samhryggð okkar með þeim sem verða að horf- ast í augu við það sem orðið er og enginn fær breytt. En við samein- umst einnig í þeirri huggun sem líf og starf góðra manna hefur verið okkur, þeim styrk sem þeir skilja okkur eftir eins og Ólafur Jóhann Sigurðsson sagði í kveðjuljóði sínu: Afflestu því hef ég fátt eitt gert sem fólki hér þykir mest um vert, en ef til vill sáð í einhvern barm orði sem mildar kvöl og harm. Um síðustu áramót veltum við um stund fyrir okkur bjartsýni og mikilvægi hennar í hugarfari þjóð- ar. Ekki þeirri bjartsýni sem fæst fyrir lítið á sölutorgum, heldur þeirri sem byggir á heilbrigðu sjálfstrausti, vilja til að finna það sem hjálpar manneskjunni af stað og er okkur nauðsynlegur orku- gjafi. Nú verður ekki betur séð en að um þessi áramót sé enn og aftur þörf á því að við tökum okkur bjartsýnistak. Því nú um skeið hef- ur vofa verið á sveimi meðal okkar og breitt úr sér freklega - og er kölluð kreppa. í fréttum er á því klifað að hún glotti framan í okkur í hverri gátt. Því er vitanlega ekki að neita að við eigum við nokkra örðugleika að stríða, samdrátt á ýmsum sviðum, rekstrarvanda af einu og öðru tagi. Sumir segja að þjóðartekjur muni minnka nokkuð. En er það samt ekki vanþakklæti að kalla þessa örðugleika kreppu? Við búum sem fyrr við einhverjar hæstu þjóðar- tekjur á nef eða samkvæmt áætlun fyrir 1988 rétt innan við miljón krónur á mann - og er þá talið með sérhvert mannsbarn í landinu. Á árunum 1986 og 1987 unnu ísiend- ingar í happdrætti ef svo mætti að orði kveða. Verð á aðalútflutnings- vöru okkar, sjávarafurðum, var hátt, olíuverð var lágt og ýmislegt fleira var okkur í hag. Það er kann- ske von, að eftir þennan stóra happdrættisvinning verði mönnum ekki um sel, þegar þeir þurfa að horfast í augu við hversdags- leikann. En hversdagsleikinn er ekki kreppa ( - og allra síst þegar litið er til þess að áðurnefndar þjóðartekj- ur hafa stóraukist frá því sem þær voru árið 1983 - og að þjóðin kaupir 15 af hundraði meira með tekjum sínum nú en hún gerði fyrir 5 árum). Þessu hættir okkur til að gleyma. Og enginn verður meiri af að leggjast í bölhyggju og bölrækt. Við höfum illa ráð á því að eyða orku okkar sjálfra, sem er orka þjóðarinnar, í krepputal og kvíða. Nær væri að skoða vandkvæðin al- gáðum augum og snúa bökum sam- an til að vinna okkur út úr þeim því „hvað má höndin ein og ein“ eins og Matthías kvað í íslendingaljóð- um sínum. Nær væri að hugsa um það sem má styrkja okkur sjálf til verka, í stað þess að berast ráðvillt með því kapphlaupi sem mikið er stundað í fjölmiðlum og ég vil kalla að við séum þar að vega að okkur sjálfum með bölsýni. Síst vil ég kasta rýrð á góða fréttaþjónustu við landsmenn við að skýra þeim skjótt frá því sem er að gerast í landinu og í heiminum öllum, frétt- aþyrstri þjóð. En má það ekki vera augljóst að erfitt er á stundum að öðlast heildarsýn yfir málefni lands og lýðs þegar setið er hverja stund um þá stjórnmálamenn sem þjóðin hefur kjörið og þeir fulltrúar eru krafðir sagna um hugsanir sínar frá andartaki til andartaks. Er svo komið að mörgum ofbýður atgang- urinn í harðri samkeppni um tíðindi sem helst þurfa að vera æsifréttir. Gæti ekki svo farið að við hættum að taka mark á þó hrópað væri: „Úlfur, úlfur...“ Hvenær sem við lítum í kringum okkur og skoðum þau efnislegu kjör sem þjóðum eru búin, þá hljótum við að sjá að við erum vel sett með þau lífsgæði sem starf okk- ar og forfeðra okkar hefur fært okkur. Við vorum fyrrum úrræða- lítil og bjargarlaus þjóð. - Nýlega var gefin út myndabók breska listmálarans og íslandsvinarins Collingwood með yndislegum og ómetanlegum vatnslitamyndum frá Islandi af þeim stöðum sem fræg- astir eru í forníslenskum bók- menntum - og nefnd „Fegurð ís- lands“. Collingwood var hér á ferð fyrir tæpri öld og lýsir þá lands- mönnum og höfuðstaðnum á þenn- an veg: „Allir eru fátæklega til fara og staðurinn sjálfur nakinn, aumur og eyðilegur. Undirokun og sinnu- leysi þeirra sem ættu að geta stuðl- að að bærilegri og uppörvandi til- veru og vaxandi velmegun þjóðar- innar, voru augljós, eða svo fannst mér að minnsta kosti. Hvarvetna er skítur og óreiða og allt virðist hál- fkarað...“. Nú er myndin önnur. Djörfung og hugur hafa reist íslendinga úr öskustó. Hvarvetna blasir við glæsilegur húsakostur velmennt- aðrar og framtakssamrar þjóðar sem, ef á það mætti minna, sigraði t.d. skelfilegan smitsjúkdóm eins og berkla á skemmri tíma en aðrar þjóðir af því að hún lærði svo vel að varast sýkilinn meðal annars með miklu líkamlegu hreinlæti, sem ís- lendingar hafa haft í hávegum æ síðan. En maðurinn lifir ekki á einu saman brauði. Þegar kreppa er nefnd verður mér það ofar í huga að við erum reyndar stödd í eins konar þjóðernislegri kreppu. Og við erum ekki ein um það. Hlið- stæður vandi steðjar að mörgum þjóðum, smærri og stærri. Við lifum þá tíma að sterk alþjóða- hyggja ríkir í heiminum. Hún birt- ist í mörgum myndum - í eflingu stórra viðskiptaheilda eins og Evr- ópubandalagsins, í hliðstæðri þró- un í Norður-Ameríku og Austur- blokkinni. Hún kemur fram í því að mat á því hvað telst eftirsóknarvert færist undir alþjóðlegan staðal. Hún sést í því að öll tækni er meira eða minna af alþjóðlegum toga, að ekki sé minnst á afdrifaríkt áhrifa- vald þeirrar fjölmiðlunar sem há- þróuð tækni breiðir yfir heiminn á enskri tungu. Lífsgæðakapphlaup- ið svonefnda ræður ríkjum í vestri og austri - þótt sitt sýnist hverjum um leiðir til að öðlast efnisleg gæði. Og ekki verður betur séð en þessi eftirsókn eftir tæknitryggðri vel- ferð leiði til þess að tilfinningin fyrir þeim gildum sem tengjast þjóðerni og þjóðmenningu sé á undanhaldi. Framfarir reistar á tækni og vísindum virðast eftirlæti stjórnmálaskörunga, en svo er sem menn ætli öðrum hliðum menning- ar að fylgja sjálfkrafa á eftir. Hugs- unin snýst um tæknilegar og hag- rænar framfarir meðan þrengist um þann grundvöll sem tilvera okkar sem sérstakrar þjóðar er reist á, þrengist um „land, þjóð og tungu“, þá þrenningu sanna og eina sem Snorri skáld Hjartarson hefur um kveðið fyrir okkur. Skáld eiga sín fögru svör við því hvað þjóð er. Orðabók Menningar- sjóðs gefur okkur líka ágæta skýr- ingu. Þjóð, stendur þar, er „stór hópur fólks sem á sér að jafnaði sameiginlegt tungumál og menn- ingu, stundar sameiginlega sögu- lega arfleifð og minningar og býr oftast á samfelldu landsvæði við gagnkvæm innri viðskiptatengsl". Eins og að líkum lætur leggur skil- greiningin þungar áherslur á það sem er sameiginlegt því fólki sem kallar sig þjóð: þjóð er samstaða um hvaðeina - um tungu, um minn- ingar, um siði og atvinnuhætti. Því er það með nokkrum hætti aðför að tilveru þjóðar, þegar umræða okk- ar um lífskjör og efnahagsmál þró- ast á síðari misserum í þá átt að þjóðinni er skipt í tvo flokka, - dreifbýlisfólk og þéttbýlisfólk. Það er augljóst að dreifbýlisfólki finnst það eiga á brattann að sækja, það sé að nokkru leyti afskipt, það sé t.d. ekki viðurkennt í verki að í dreifbýlinu er rekinn mestúr hluti þess sjávarútvegs sem tryggir lífs- kjör okkar. Dreifbýlismönnum finnst einatt að þjóðarauður sogist um of til höfuðstaðarins og týnist þar í hringrás viðskiptanna. Á móti koma ýmsar athugasemdir af höf- uðborgarsvæði. Það er ekki nýtt að einhver slík togstreita sé uppi. En það er á okkar valdi hvort við ölum á tortryggni eins og alltof oft er gert, tortryggninni milli höfuðstað- ar og dreifbýlis, sem geta ekki hvort án annars verið eða hvort við neytum allra bragða til að kveða hana niður. Og þá í þeim anda, að það er reyndar eitt lykilatriði í menningu okkar að halda uppi byggð í landinu öllu, - því fari stór byggðalög í eyði er hafinn upp- blástur í íslenskri menningu og ís- lensku þjóðlífi og hann verður að stöðva alveg eins og uppblástur landsins sjálfs. Við verðum einnig að forðast það, að þjóð okkar skiptist í tvo flokka eftir öðrum mælikvarða - í þá sem búa við örugga atvinnu og þá sem enga eða stopula atvinnu hafa. Við eigum okkur vonandi það markmið sameiginlegt að vilja verja í verki sem í hugsjón það jafnrétti, sem talið er vera eitt helsta einkenni íslensks mannlífs. Við viljum verja þá siðmenningu sem Sigurður Nordal ræðir um í frægum fyrirlestri, þegar hann segir meðal annars: „f vel siðuðu þjóðfé- lagi á vera séð fyrir því að enginn sé beittur ofbeldi eða rangsleitni fyrir að vera minnimáttar, allir hafi nóg fyrir sig að leggja og að enginn þurfi að kvíða komandi degi vegna skorts á brýnustu nauðsynjum“. Og þetta felur þá væntanlega í sér að við gerum þá kröfu til okkar sjálfra að við beitum öllum til- tækum ráðum til að bægja frá auðmýkingu atvinnuleysis. Réttur allra vinnufærra manna til verka er helgur réttur í augum íslendinga og hann hlýtur að halda áfram að vera helgur, eins þótt það geti kostað okkur að draga um skeið úr þeirri miklu neyslu á öllum sviðum sem við höfum leyft okkur um stund. Takist okkur að gera sjálfum okkur grein fyrir því hvað felst í því að vera þjóð, þá hljótum við því- næst að vilja átta okkur á því, hvert við viljum stefna, hvers konar þjóðfélag við viljum hafa hér í framtíðinni. Við þurfum að snúa okkur að því sem við látum alltof oft sitja á hakanum: að skilgreina markmið okkar. En hvemig sem okkur kann að miða í þeirri við- leitni er jafnan hollt að hafa í huga hvað við eigum, á hverju við getum staðið. Við eigum landið sem við göngum á, þetta land sem „var fengið sál vorri til fylgdar" eins og Hannes skáld Pétursson kvað: Ó dunandi eyja sem á dögum sköpunarinnar! ennþá í smiðju elds, kulda og vatns engan stað á jörðu eigum vér dýrari því þetta land var sál vorri fengið til fylgdar. Og enginn getur tekið þetta land frá okkur nema við sjálf glutrum niður þeim frumburðarrétti sem við eigum til þess. Við eigum land sem að sönnu hefur verið illa leikið í aldanna rás, en við eigum líka þekkingu og sterkan vilja til að stemma stigu við uppblæstri þess. Þetta land er laust við mengun. Við erum ein fárra þjóða sem andar að sér hreinu lofti. Við eigum hreint vatn og hvort tveggja eru forréttindi í heimi sem hefur þungar áhyggjur af afleiðing- um efnaiðnaðar og annarrar tækni- þróunar. Við eigum orkulindir sem enn eru ekki nýttar nema að litlu leyti. Við eigum fengsæl fiskimið og þá mikilvægu þekkingu í góðum mönnum sem þarf til að nýta þau skynsamlega. Það eru fríðindi hve fámenn þjóðin er, hve nálægt við stöndum hvert öðru; við getum komið skila- boðum hvert til annars hraðar en nokkur önnur þjóð. Við erum hraust og þokkalega af guði gerð. Við eigum með öðrum orðum mikið í sjóði. Við höfum nóg föng og þurfum ekki að koðna niður í erjum eða vanmetakennd. Það er meðvitund um siðmenningu okkar sjálfra sem fyrr og síðar er og verð- ur okkur uppspretta til frjórra framfara. Við skulum muna að menning er að gera hlutina vel, hvert sem verkefnið er. Menning er einnig að beita sér fyrir því að leggja gott til mála með staðfestu og hæfilegu umburðarlyndi, - og gæta þess ætíð að staðna ekki í fari hins neikvæða. Við sitjum í flokki menningarþjóða, - óskum þess sjálf að fá að sitja við sama borð og hámenningarþjóðir. Allar stundir höfum við verk að vinna í þessum anda. Við munum það vonandi vel að íslensk tunga er okkar besta sameign, okkar stærsta hnoss, ein helsta réttlæting tilveru okkar - sjálfur virðingarlykill okk- ar að heiminum. Og við vitum það vonandi að þessi eign okkar má ekki rýrna. Við höfum á síðustu misserum séð gleðilega vakningu hjá íslenskri þjóð. Það hefur tekist að opna augu hennar fyrir því hve alvarleg gróðureyðing hefur átt sér stað í landinu um aldir og breiða út skilning á því með hvaða ráðum er skynsamlegast að mæta þessum vanda. En til þess er nýr fróðleikur og ný sannfæring æviníega fallin að hvetja til umhugsunar og lærdóma: þegar við höfum lært að glíma við einn vandann ættum við þessvegna ávallt að spyrja okkur, hvort þær aðferðir sem þar dugi kunni ekki að eiga við á öðrum sviðum einnig. Og þar með vísa ég beint til uppblást- urs í þeim hluta þjóðernis okkar sem tungan er og er mörgum áhyggjuefni. Fyrir nokkru sendi ágætur samtíðarmaður okkar, sem hefur meðal annars fengist við að finna orð til að hægt sé að tala um verkmenningu á íslensku, mér lista þar sem hann ber fram ýmsar áleitnar spurningar. Nokkrar þeirra vil ég nefna hér okkur öllum til umhugsunar: Ef tungunni hrakar ár frá ári, eins og margir vilja halda fram, vita stjórnvöld af því? Ber þeim einhver stjórnarfarsleg Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands. skylda til að bregðast við? Hvernig metum við það hvort tungunni hrakar? Hver getur helst metið breyting- una? Hvort er mikilvægara í því efni, mál hinna eldri eða yngri? Getur tungunni hrakað svo mjög að hún glatist? Þýðir hnignun tungunnar að sjálfstæði þjóðarinnar sé í hættu og þarf þá að gera sérstakar ráðstafan- ir? Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar á síðastliðnu ári? Eru ráðstafanir í undirbúningi á þessu ári sem nú fer í hönd? Svo mætti áfram halda. Ég ætla mér ekki þá dul að svara þessum spumingum. Hitt er okkur ljóst að hér er um alvarlegt mál að ræða. Við vitum að það þarf meira til en að slá á slettur eins og hæ hæ og bæ bæ, sem unglingar, liðsmenn mínir, eru nú að reyna að kenna ungvið- inu, grænjöxlum, að er hlægileg kveðja á íslensku. Unglingar em áreiðanlegt fólk sem vert og hyggi- legt er að treysta. Það er þar á ofan ekki nóg að leggja sig fram við að varðveita gömul orðatiltæki og réttar beygingar orða - þannig að píta sé ekki seld með egg og fisk heldur eggi og fiski á skyndibita- stöðum. Umfram sjálfa varðveislu hins talaða og ritaða máls þarf að smíða ný orð af glöggskyggni, svo íslendingar geti talað saman um sín eigin mál á öllum sviðum á sinni eigin tungu. Hér er þörf stórra átaka sem kosta vinnu og fé. Sú er samábyrgð okkar. Einkaábyrgð hvers og eins er að hafa löngun og vilja til að taka til í málfari sínu, vanda orðfæri sitt og auðga, rétt eins og menn vilja ganga vel um hús sín og fara góðum höndum um eignir sínar. Héðan frá Bessastöðum sendi ég íslendingum öllum hlýjar kveðjur og góðar nýársóskir. Það hefur verið rætt um það und- anfarið að illa sé komið fyrir þessu sögufræga húsi. Og það er satt og rétt, þótt það blasi ekki við augum gesta og gangandi, því allir þeir sem setið hafa þennan stað fyrir hönd þjóðarinnar, síðan lýðveldið var stofnað, hafa haft metnað til að hér sé komið að vistlegu þjóðarheimili sem sómi sé að. Á síðasta ári var lokið við miklar og löngu brýnar viðgerðir á neðri hæð Bessastaða- stofu og fylgdi þeim umfangsmikill uppgröftur fornleifa. Bessastaða- stofa er gamalt hús, 225 ára, og hún er meðal þjóðargersema okkar. Nú skal tekið til við að hlú að efri hæð hússins og þaki, því lofti sem skóla- sveinar á Bessastöðum höfðu að vistarverum fyrir hálfri annarri öld, þar sem margt hefur verið skrafað um sjálfstæði íslands og sjálfsvirð- ingu. Aldimar hafa ekki skilað okkur miklum auði í mannvirkjum og því ber okkur að sýna öllum fornum gersemum virðingu og alúð. Gleðilegt nýtt ár. Megi farsæld og guðsblessun fylgja íslandi og þjóðinni allri á ár- inu sem nú fer í hönd og um alla framtíð. Þriðjudagur 3. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.