Þjóðviljinn - 05.01.1989, Side 1
Nýtt álver
Níu mills og viimuflnð
Frakkar hyggjast byggja nýtt200þúsund tonna álver viðDunkirk. Raforkuverð: 9 mills Christian Roth
forstjóri ísal: Sé ekki að erlendir aðilar hafi áhuga á álveri á íslandi sé orkuverðið mikið hœrra en hœgt er
aðfá íEvrópu. Borgum ídag!8,5 mills. Verkföll hér valda einnig áhyggjum
Frakkar hafa nýlega upplýst
um áform um að reisa nýtt 200
þúsund tonna álver við Dunkirk
og mun sú verksmiðja aðeins
þurfa að greiða um 9 mills fyrir
Valur Arnþórsson
Erekki
bankastjórí
Misskilningur hjá
Vali, Pétri, eðaÞórði,
forstöðumanni bank-
aeftirlits um hverer
bankastjóri og hver
ekki?
„Ég hef ekki enn sent inn svör, en
ég reikna með að ég komi til með
að gera það á næstunni, að svo
miklu leyti sem ég hef einhverju
að svara. Staða mín í dag stangast
ekki á við bankalög. Eg hef ekki
enn þá tekið til starfa sem banka-
stjóri í Landsbankanum,“ segir
Valur Arnþórsson.
Haft var eftir Þórði Ólafssyni,
forstöðumanni bankaeftirlitsins í
Þjóðviljanum í gær, að Pétur Sig-
urðsson, formaður bankaráðs
hefði staðfest að Valur hefði
tekið við starfinu. Bankaeftirlitið
sendi Val síðan bréf í fyrradag,
þar sem leitað var staðfestingar
Vals á að hann gegndi ekki lengur
öðrum störfum fyrir aðila
óskylda bankanum, enda er það
óheimilt samkvæmt banka-
lögum.
Valur segir að samkvæmt
samkomulagi við formann bank-
aráðs og Landbankann taki hann
til starfa síðar í janúar eða í síð-
asta lagi þann 1. febrúar. phh
raforkuna. Þetta raforkuverð er
helmingi lægra en það verð sem
Isal greiðir Landsvirkjun í dag og
í ítarlegu viðtali við dr. Christian
Roth sem birtist í Nýju Helgar-
blaði á morgun, kemur fram að
hann telji að þetta geti sett veru-
legt strik í reikninginn varðandi
áhuga þeirra fjögurra álfyrir-
tækja sem nú íhuga að reisa nýtt
álver við Straumsvík, en Alu-
suisse er eitt þeirra.
„Upplýsingar um þetta álver
voru birtar fyrir mánuði í tímarit-
inu Metal Bulletin en þetta er
fyrsta álverið af þessari stærðar-
gráðu sem byggt er í Mið-Evrópu
sl. 15 ár. Álverið er í eigu Pichin-
ey fyrirtækisins en Electricite de
France sem er ríkisfyrirtæki á
hlut í því og sennilega er raforku-
verðið eitthvað niðurgreitt, þó
mér sé ekki kunnugt um það. Þau
aðalatriði sem álfyrirtæki setja
fyrir sig þegar þau íhuga bygg-
ingu nýs álvers hér, er raforku-
verðið og ástandið á vinnumark-
aðnum. Ef hér verða verkföll
einu sinni á ári í þessum iðnaði,
þá mun ég ekki mæla með bygg-
ingu nýrrar verksmiðju hér. Og
ef að erlend álfyrirtæki eiga
möguleika á að fá raforku á verði
í Evrópu sem er nálægt 9 mills
meðan að við borgum í dag t.d.
18,5 mills þá sé ekki af hverju þau
ættu að hafa áhuga á að reisa ál-
ver hér. Þá þarf líka að taka tillit
til flutningskostnaðar sem er mun
meiri hér. Það verður þó að taka
fram að mér er ekki kunnugt um
hvort öðrum fyrirtækjum en
frönskum stendur svona iágt raf-
orkuverð til boða,“ sagði dr.
Roth.
í viðtali við dr. Roth sem birtist
■í Nýju Helgarblaði á morgun lýsir
hann róttækum hugmyndum sín-
um um mengunarvarnir hjá ísal
og umhverfisvernd, en ísal mun í
framtíðinni aðeins nota endur-
unninn pappír og ekki kaupa trjá-
við frá regnskógum, ræðir um
vandamál við stjórnun fyrirtækis-
ins og samskipti við starfsmenn.
-phh
Slökkviliðsmenn reyndu að hefta útbreiðslu eldsins með því að rjúfa þekju hússins án árangurs. Mynd: Jim Smart
Gúmmívinnustofan
Smábál varð að stórimina
Gífurlegt tjón er hús Gúmmívinnustofunnar brann til kaldra kola í gœr.
Aðstandendur fyrirtœkisins óánœgðir með vinnubrögð slökkviliðsins
Stjórnmál
AA-ferðalag
Jón og Ólafur: Okkar
einkafyrirtœki
Stefnubreytingar Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks sem
hafa fært þessa flokka nær hvorn
öðrum, gott samstarf í nýrri ríkis-
stjórn, vilji til frekari samstarfs
og breyttar aðstæður í alþjóða-
málum, er meginástæðan fyrir
þeirri ákvörðun formanna Al-
þýðubandalags að leggja upp í
sameiginlega fundaferð um
landið síðar í þessum mánuði.
Þessi fundaherferð hefur mætt
nokkurri andstöðu í beggja
flokka, en formennimir segja
þetta ekki flokksfundi, heldur
þeirra einkafyrirtæki.
Sjá bls. 2
ð er engu líkara en þeir hjá
slökkviliðinu haldi að hér hafl
verið starfandi sælgætisverks-
miðja en ekki gúmmívinnustofa.
Það leið hálftími þar til þeir byrj-
uðu að sprauta froðu á eldinn,
sagði einn aðstandenda Gúmmí-
vinnustofunnar við Réttarháls
þegar hann horfði á hús fyrirtæk-
isins brenna til kaldra kola í gær.
Það var ekki fyrr en liðið var á
kvöld, að slökkviliðið náði
tökum á eldinum en þá hafði
hann borist um allt húsið og allt
brunnið sem brunnið gat. Talið
er að húsið sé gjörónýtt. Auk
Gúmmívinnustofunnar voru
nokkur önnur fyrirtæki til húsa á
jarðhæð hússins. Ekki voru að-
standendur þeirra tilbúnir í gær
til að meta tjónið en ljóst er að
það er gífurlegt, gæti numið allt
að einum miljarði króna. Mikil
gagnrýni heyrðist þegar á bruna-
stað á störf slökkviliðsins og og
töldu forráðamenn Gúmmívinn-
ustofunnar ljóst að slökkviliðið
hafi ekki tekið þennan bruna
nægilega alvarlega strax, og létu
meira segja sumir þeirra þau orð
falla að ef eitthvað væri, þá hefðu
fyrstu viðbrögð liðsins aðeins
magnað upp eldinn.
Hrólfur Jónsson varaslökkvi-
liðsstjóri sagði í gær að allt hefði
verið gert til að hefta útbreiðslu
eldsins en það væri ljóst að betri
tækjabúnaður hefði komið sér
vel. Hann sagði að það hefði sýnt
sig að húsið hefði ekki verið nægi-
lega hólfað af, og þó að bmna-
veggir úr gipsi og steinull hefðu
verið í húsinu hefðu þeir ekki þol-
að allan þennan eld.
Eldurinn kom upp um þrjú-
leytið í sólningarverksmiðju í
austurenda hússins. Talið er að
neisti hafi hlaupið í bensíntunnu.
Að sögn Andrésar Hreinssonar
sem var við vinnu í húsinu bloss-
aði eldurinn upp skyndilega.
Varð þegar af mikill reykur og
áttu menn fótum sínum fjör að
launa. Ekki urðu nein slys á
mönnum en einn starfsmaður
mun þó hafa hlotið smávægileg
bmnasár.
-sg