Þjóðviljinn - 07.01.1989, Page 1
Laugardagur 7. janúar 1989 5. tölublað 54. órgangur
Bankaráð Landsbankans
Valur Arnþórsson: Stýrir stjórnar-
fundi SÍS á mánudag og fær ekki
bankastjórastöðuna fyrr en um
næstu mánaðamót.
Vikiö frá út mánuðinn
Bankaráðið viðurkennir mistök sín og breytir ráðningu Vals. Aðstoðarbankastjóri
verður aðalbankastjóri til 1. febrúar þegar Valur tekur við. Jón Sigurðssonf
viðskiptaráðherra: „Bankaráðið gekk ekki nœgilega skýrtfrá málinu.
Annaðhvort eru menn bankastjórar eða ekki.í(
Bankaráð Landsbankans hefur
viðurkennt þau mistök sín að
ráða Val Arnþórsson, kaupfé-
lagsstjóra og stjórnarformann
SIS sem bankastjóra frá 1. janúar
sl., enda braut ráðning hans i
bága við bankalög, þar sem Valur
gegnir enn störfum sem kaupfé-
lagsstjóri KEA og situr í ýmsum
ábyrgðarstöðum fyrir samvinnu-
hreyfinguna.
í gær ákvað bankaráðið að
Gunnlaugur Kristjánsson, að-
stoðarbankastjóri verði aðal-
bankastjóri í stað Vals fram til 1.
febrúar n.k. en þá taki Valur við
starfinu, enda hafi hann þá sagt
sig úr öllum störfum óskyldum
Landsbankanum.
„Bankaráðið ræður banka-
stjórann og því ber að sjá til þess
að hann fullnægi hæfisskyldum
laganna. Það er hugsanlega ein-
hver ónákvæmni í embættisfærsl-
unni hjá bankaráðinu og ég hef
rætt við það,“ sagði Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra í samtali
við Þjóðviljann. Sagði Jón að sér
hafi skilist að bankaráðið hafi
ákveðið að Valur tæki ekki við
starfi fyrr en að hann hefði skilað
öðrum störfum af sér.
„Ég ætla að það sem gerðist í
dag hafi verið fullkomin fram-
kvæmd á málinu, en ég hef að
vísu ekki séð hin formlegu skjöl
málsins og spara mér skoðanir á
því. Ég hef hins vegar gengið ríkt
eftir því bæði við bankaráðsfor-
mann, bankaeftirlit og Seðla-
banka sem bankaeftirlitsstofnun
að þarna sé rétt frá öllu gengið,
því menn eru annað hvort banka-
stjórar eða ekki. En það er
auðvitað rétt að það var ekki
nægilega skýrt frá þessum málum
gengið og þetta hefði mátt fara
betur úr hendi,“ sagði Jón Sig-
urðsson, viðskiptamálaráðherra.
-phh
Alþingi
Fjárlög
samþykkt
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar var samþykkt sem lög frá
Alþingi í gær. Markmið Olafs
Ragnars Grímssonar fjármála-
ráðherra um að afgreiða fjárlög
með 1,2 miljarða tekjuafgangi,
varð ekki að veruleika, en fjár-
lögin voru afgreidd með 640 milj-
óna tekjuafgangi.
Ólafur Ragnar segir þessa
lækkun á tekjuafgangi vera vegna
þess að staða ríkissjóðs hefði ver-
ið miklu verri en áætlað var á síð-
asta ári. En þegar frumvarpið var
kynnt fyrst var gert ráð fyrir um
þriggja miljarða halla á ríkissjóði
á árinu 1988. Nú bendi hins vegar
allt til þess að hallinn á síðasta ári
verði um 6 miljarðar króna.
Mjög litlar breytingar urðu á
frumvarpinu í meðförum þings-
ins og hækkuðu útgjaldaliðir þess
aðeins um 0,4%. Venjulega
hækka útgjaldaliðirnir í kring um
3%.
-hmp
Jólahátíðin er úti í þetta sinn og í gær var víða stiginn dans við álfabrennur. Börnin á Hlíðarborg héldu sína brennu, stigu
dans og kvöddu jólin. Mynd - Jim Smart.
Sjávarútvegur
Störf 500 sjómanna í hættu
Þjóðhagsstofnun telurað erfittsé að leysa vanda sjávarútvegsins öðruvísi en aðfcekka fiskiskipum
ogfiskvinnslufyrirtœkjum um 10%. Óskar Vigfússon. Lístekkertáþessartillögur.
Sambandsstjórnarfundur nk. miðvikudag
Mér líst satt best að segja ekk-
ert á þessar tillögur þó það
þyki ekki tiltökumál hjá sumum
þó svo að störfum 500 sjómanna
sé fórnað á altari endurskipu-
lagningar. Við börðumst fyrir því
í áratugi að sjóðakerfi sjávarút-
vegsins var lagt niður 1986 og
með því að endurvekja það að
hluta er verið að koma aftan að
sjómönnum, sagði Óskar Vig-
fússon formaður Sjómannasam-
bands íslands.
Óskar sagði að tillagan um Úr-
eldingarsjóð fiskiskipa væri gam-
alt vín á nýjum belgjum og pers-
óulega væri hann algjörlega
mótfallinn þeirri hugmynd að
úthluta kvóta pólitískt. „Hér er
um að ræða fyrsta vísi að auð-
lindaskatti sem ég er á móti. Það
er ekki okkar að flotinn er of stór
heldur stjórnvalda. Sjálfir höfum
við varað við þessari þróun í
stækkun flotans allt frá 1978,“
sagði formaður Sjómannasam-
bandsins.
Á nk. miðvikudag verður sam-
bandsstjórnarfundur hjá Sjóm-
annasambandinu og þar verður
lagt á ráðin hvernig best verður
staðið gegn þessum tillögum
■stjórnvalda sem miða að atvinnu-
leysi 500 sjómanna á næstunni.
í minnisatriðum Þjóðhags-
stofnunar um endurskipulagn-
ingu sjávarútvegsins segir að
vandséð sé hvernig þeim verði
komið í kring án þess að
stjórnvöld hafi forgöngu um að
kaupa óhagkvæmustu einingarn-
ar, fiskiskip og fiskvinnslu, með
það fyrir augum að hætta noktun
þeirra í sjávarútvegi. Verði þessi
fækkun um 10% þýðir að að tí-
unda hvert fiskiskip hætti og jafn-
framt tíunda hvert fiskvinnslufyr-
irtæki. Það mun hafa í för með sér
að 500 sjómenn muni missa vinri-
una og veruleg fækkun verði
meðal fiskvinnslufólks.
Óskar Vigfússon á sæti í mið-
stjórn ASÍ og aðspurður hvað
honum fyndist um að fiskvinnslu-
fólki yrði verulega fækkað við
endurskipulagninguna sagði
hann að þetta mál væri afskap-
lega viðkvæmt og erfitt og fyrir-
séð að það mundi hafa í för nieð
geysilega röskun á lífi þess. _8r'1
Heiðurslaun
Listahneyksli
á Alþingi
Alþingi hefði ekki getað valið
sér betri leið til að niðurlægja
starfandi rithöfunda, segir Einar
Kárason formaður Rithöfunda-
samhandsins í yfirlýsingu eftir að
Alþingi hafnaði því að láta Thor
Vilhjálmsson fá heiðurslaun.
Menn eru sammála um að þau
Jakobína Sigurðardóttir, Jórunn
Viðar, Kristján Davíðsson og
Þorsteinn Ö. Stephensen séu vel
að heiðrinum komin, en þegar
ljóst varð að hvorki Atli Heimir
Sveinsson né Thor kæmust á blað
var leitað samkomulags um að
fjölga um tvo. Það strandaði á
Kvennalistanum og því fór sem
fór.
Svavar Gestsson lýsti því yfir í
gær að menn hlytu að athuga
hvort úthlutunin væri ekki betur
komin annarsstaðar en hjá Al-
þingi.
Sjá síðu 2 og leiðara