Þjóðviljinn - 14.01.1989, Side 1
Laugardagur 14. janúar 1989 10. tölublað 54. árgangur
Landsbankinn
Bankaráð móti vaxtahækkun
Taliðfullvístað meirihluti bankaráðs Landsbankans hafni öllum hugmyndum um vaxtahœkkun síðar ímánuðinum.
Bankaráðsmenn segja gasprið íSverri ekkert hafa að segja. „Hann stjórnar ekki bankanum((
Meirihluti bankaráðs Lands-
bankans mun ekki sam-
þykkja neina vaxtahækkun á
næsta fundi ráðsins sem haldinn
verður á fimmtudaginn í næstu
viku. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans eru fulltrúar
ríkisstjórnarflokkanna í banka-
ráðinu einhuga um að hafna
öllum hugmyndum um vaxta-
hækkun á þessu stigi. Komi fram
tillaga á fundi bankaráðsins frá
einum eða fleiri bankastjórum
um hækkun vaxta verði hún felld.
Sverrir Hermannsson banka-
stjóri Landsbankans sagði i gær
að hann ætti von á því að banka-
ráðið myndi samþykkja 1,5-2%
vaxtahækkun fyrir næsta vaxta-
tímabil sem tekur gildi 20. janú-
ar. Heimildarmenn Pjóðviljans
segja hins vegar að „gasprið" í
Sverri síðustu daga út af vaxta-
málum hafi ekkert að segja.
„Hann stjórnar ekki bankanum",
sagði einn bankaráðsmanna í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur boðað bankaráðs-
menn ríkisbankanna til fundar
við sig á mánudag þar sem hann
mun leggja áherslu á þann vilja
stjórnvalda að vextir ríkisbank-
anna hækki ekki á næsta vaxta-
tímabili.
Bankaráð Landsbankans á-
kvað í byrjun síðasta mánaðar að
fylgja ekki tillögum bankastjór-
anna og lækka vexti enn meira en
þeir lögðu til. Að sama skapi mun
meirihluti bankaráðsins ekki
vera sammála yfirlýsingum ein-
stakra bankastjóra að hækka beri
vexti nú.
Sverrir Hermannsson sagðist í
gær vera með spádóma um 1,5-
2% vaxtahækkun. „Við flýtum
okkur ekkert að þessu, engar til-
lögur verða lagðar fyrir bankaráð
fyrr en á bankaráðsfundinum
þann 19. Það er að segja ef við
verðum búnir að fá skotheldar
tölur til að fara eftir“, sagði
Sverrir. Slík tillaga mun að öllum
Iíkindum ekki ná fram að ganga á
bankaráðsfundinum.
-lg./-hmp
Bankastjórar og aðstoðarbankastjórar Landsbankans á fundi með með tillögur um 1,5-2% hækkun vaxta. Meirihluti bankaráðs er mót-
fréttamönnum í gær. Sverrir Hermannsson t.v. segir bankastjóra vera fallinn öllum vaxtahækkunum. Mynd-Þóm.
Kvikmyndir
ísland aðili að
Evrópusjóðnum
Svavar Gestsson:
Geysimikiðfé og
margvíslegir möguleikar
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra hefur afráðið að ísland
gerist aðili að Eurimage kvik-
myndasjóðnum sem verður sett-
ur á stofn á næstunni og star-
fræktur af flestum þjóðum sem
eiga aðild að Evrópuráðinu í
Strassborg.
Sjóðnum er ætlað að styrkja
skapandi kvikmyndagerð í að-
ildarlöndunum, einkum með því
að fjármagna samvinnuverkefni
milli þjóða og greiða kostnað við
talsetningu og textun kvik-
mynda. Ráðstöfunarfé sjóðsins
gæti numið allt að hálfum milj-
arði íslenskra króna fyrsta árið.
„Þetta er geysimikið fé og gef-
ur margvíslega möguleika," sagði
Svavar. Sjóðurinn ætti að
auðvelda íslenskum kvikmynda-
gerðarmönnum að fjármagna
verk sín, og auk þess er líklegt að
samvinna af ýmsu tagi fari í vöxt.
Höfuðstöðvar Eurimage verða
í Strassborg. Fulltrúi Mennta-
málaráðuneytisins í sjóðstjórn
verður Guðbrandur Gíslason.
I
Inóvemberlok 1988 hafði At-
vinnuleysistryggingasjóður
greitt í atvinnuleysisbætur um
285 miljón krónur á móti 215
miljónum á sama tíma 1987.
Hækkun á milli ára er því um 70
miljónir króna en hafa ber í huga
að dagpeningagreiðslur hækk-
uðu um 20% 1988 miðað við
1987. Engu að síður hafa atvinnu-
bótagreiðslur aukist umtalsvert á
síðasta ári miðað við árið þar á
undan.
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir
1989 var fellt niður framlag ríkis-
sjóðs til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs en 1988 nam framlagið um
460 miljónum. Engu að síður er
fjárhagur sjóðsins traustur því
eignir hans nema um 1,8 miljarði
króna.
Að sögn Eyjólfs Jónssonar
framkvæmdastjóra sjóðsins
þurfa atvinnuleysingjar ekki að
óttast að fá ekki greiddar at-
vinnuleysisbætur þrátt fyrir það
því ríkissjóður er ábyrgður fyrir
greiðslum fari svo að fjárþurrð
verði hjá
Atvinnuleysistryggingasjóðnum,
komi til umtalsverðs atvinnu-
leysis.
Formcnn Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks, Ólafur Ragnar
Grímsson og Jón Baldvin Hanni-
balsson, hófu fundaferð sína, „A
rauðu ljósi,“ meðjrví að troðfylla
Alþýðuhúsið á Isafirði í gær-
kvöldi. Um 200 manns sóttu fund-
inn, og að sögn tíðindamanns
blaðsins á ísafírði, Vilborgar Da-
víðsdóttur, var áberandi mikið af
ungu fólki meðal fundarmanna.
Ljúka bar fundi kl. ellefu
vegna bíósýningar, en er líða tók
að tímamörkunum og enn margt
órætt var kallað úr salnum:
„Kaupum bara upp bíóið kl. ell-
efu!“ Uppástungan hlaut dúndr-
andi undirtektir fundarmanna að
sögn Vilborgar, og hafði hún það
til marks um stemninguna á fund-
inum.
Formennirnir reifuðu fjóra
málaflokka í stuttum framsögu-
erindum: jafnaðarstefnuna og
flokkakerfið; utanríkismál og
breytta heimsmynd; ríkisstjórn-
arsamstarfið, og framtíðina í
atvinnu- og þjóðfélagsmálum. í
máli þeirra kom fram að til-
gangur fundanna væri að velta
því upp hvort ekki væri orðið
tímabært að læra af mistökum
fortíðarinnar og huga að því
hvort fyrri ágreiningsmál flokk-
anna væru enn tilefni til að standa
í vegi fyrir hugmyndum um sam-
einingu. Að sögn tíðindamanns
sýndu fundarmenn hvorki þess-
um vangaveltum né utanríkis-
málunum ýkja mikinn áhuga, en
vildu fá þeim mun meira að heyra
um hvað bæri að gera hér og nú.
Þarfaþrifill formannanna,
Ámundi umboðsmaður, varð að
sitja heima í gær vegna veðurs
ásamt öðru góssi; púltum og flug-
eldum. Skilti var komið upp við
inngang Alþýðuhússins í gær-
kvöldi og vakti áletrunin óskipta
kátínu fundargesta: Tökum þátt í
kostnaði við fundaferð flokksfor-
mannanna. Frjáls framlög, 200
krónur t.d. Takk fyrir.
HS
Atvinnuleysi
285 miljónir í bótagreiðslur
Framkvœmdastjórinn: 70 miljón króna hœkkun miðað við sama tíma 1987. Ekkertframlag til
sjóðsins íárfrá ríkinu en ríkissjóður er ábyrgur fyrir bótagreiðslum verði sjóðurinn fjárvana
Eyjólfur kvaðst ekki vilja ger-
ast spámaður um hver þróunin
yrði á þessu ári í atvinnumálum
landsmanna en sagði aðeins að stunda svartsýnisraus. Eyjólfur
það virðist vera lenska í dag að sagði að það yrði bara að koma á
mála skrattann á vegginn og daginn hvort þær spár rættust _grh
AA-fund.r rrmMm
Kaupum upp bioio!
Flugelda-,púlt- ogAmundavanaA-flokkaformenn fylltu Alþýðuhúsið áísafirði í
gœrkvöldi. Mikið af ungufólki. Fundarmenn vildu skýrsvör um framvinduna í
nánustu framtíð