Þjóðviljinn - 19.01.1989, Page 1
Fíkniefni
Hassfíklum
fjölgar
Fimmtudagur 19. janúar 1989 13. tölublað 54. örgangur
Hemaðarframkvæmdir
fyrir 50 miljarða
Einti miljarður dollara í hernaðarframkvœmdir hérá landi á vegum
Bandaríkjahers ogNato á árunum 1984-‘94. Þarafkostar ratsjárkerfið
hálfan miljarð
Bandaríkjaher og Nato munu
verja a.m.k. 50 miljörðum ís-
lenskra króna til þeirrar endur-
nýjunar á vígbúnaði í herstöðinni
á Miðnesheiði sem nú stendur
yfir. Þar vegur þyngst endurnýj-
un ratsjárkerfisins með 4 nýjum
ratsjárstöðvum, tengingum
þeirra á milli og nýrri ratsjármið-
stöð á Keflavíkurflugvelii. Sú
framkvæmd mun kosta um hálf-
an miljarð dollara eða 25 milj-
arða íslenskra króna.
Þessar upplýsingar komu fram
í kynnisferð blaðamanna í her-
stöðina á Miðnesheiði s.l. þriðju-
dag. Inn í þessari tölu eru ekki
áform um lagningu nýrrar hliðar-
brautar meðfram norður-suður
flugbrautinni á Keflavíkurflug-
velli, né heldur þær óskir sem
fram hafa komið frá herstöðinni
um byggingu nýs varaflugvallar í
Aðaldal í N-Þingeyjarsýslu. En
Eric McWadon aðmíráll sagði
blaðamönnum að af þeirra hálfu
væri slík lausn æskilegri en bygg-
ing varaflugvallar á austurströnd
Grænlands.
Áætlað er að þessum fram-
kvæmdum verði lokið 1994, en
þær fela í sér auk nýs ratsjárkerfis
nýja olíuhöfn og olíubirgðastöð í
Helguvík, 15 ný flugskýli fyrir F-
15 sprengjuþotur af „hertri
gerð“, nýja stjórnstöð á Kefla-
víkurflugvelli, sömuleiðis af
„hertri gerð“ og nýja varastjórn-
stöð og vararatsjármiðstöð í
Grindavík auk byggingar um 250
nýrra íbúða fyrir hermenn og
fjölskyldur þeirra á vallarsvæð-
inu. Flugskýlin hafa þegar verið
tekin í gagnið og höfnin í Helgu-
vík er nú tilbúin, en önnur
mannvirki eru á framkvæmda-
stigi. McWadon flotaforingi
sagði að samningar stæðu nú yfir
við Póst og síma um lagningu
ljósleiðara frá ratsjárstöðvunum
til Keflavíkur, en Ólafur Tómas-
son Póst- og símamálastjóri sagði
í viðtali við blaðið að ratsjárkerf-
ið hefði enn ekki raskað fram-
kvæmdaáætlun stofnunarinnar
um lagningu ljósleiðarakerfis
hringinn í kringum landið, sem
myndi m.a. þjóna ratsjárstöðv-
unum. Nánar verður sagt frá
hernaðarframkvæmdum á vegum
hersins og Nato í helgarblaðinu á
föstudag. _á|„
Borgarstjórn
Gæluvericefhin ganga fyrir
KristínÁ. Ólafsdóttir: Fjárhagsáœtlunin berkeim afþví, að kosið
verðureftirrúmtár. 665miljónum veittíbyggingutveggjagœluverkefna
á meðan nánast ekkert fer til viðhalds annarra fasteigna borgarinnar
Það sem einkennir þessa fjár-
hagsáætlun er að það er
naumt skammtað í allan rekstur.
Hann er nánast skorinn inn að
beini. Það sem er gagnrýnisverð-
ast í þeim efnum, er að fé til við-
halds fasteigna borgarinnar,
hvort sem það eru skólar, íþrótt-
amannvirki eða annað húsnæði
er mjög lítið. Ég myndi álíta að
það vantaði hundruð miljóna þar
upp á, ef það ætti að vera viðun-
andi, segir Kristín Á. Ólafsdóttir
borgarfulltrúi um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir yfir-
standi ár, sem Sjálfstæðismenn
hafa lagt fram og verður til fyrstu
umræðu á borgarstjórnarfundi í
kvöld.
- Á sama tíma og peningar til
viðhalds á fasteignum borgarinn-
ar eru skornir við nögl, með þeim
afleiðingum að þær grotna niður,
er engu til sparað með gæluverk-
efnin, sem sést t.d. á því að í ráð-
húsið eiga að fara 365 miljónir kr.
Þar á ekkert að slá af hraða. Ann-
að dæmi um þessa óráðsíu er
bygging veitingarhússins á hita-
veitutönkunum, þar á einnig að
halda fullum dampi þó það kosti
300 miljóna kr. lántökur, segir
Kristín, og bendir á að þetta
stingi í augu í ljósi þess að allur
rekstur verður mjög aðþrengdur
á árinu og settur er hægagangur á
aðrar framkvæmdir sem eru
miklu nauðsynlegri en þessi tvö
gæluverkefni.
Kristín sagði að samkvæmt
fjárhagsáætlun Sjálfstæðismanna
verði dregið úr framlögum borg-
arsjóðs til dagvistarheimila um 8
miljónir miðað við það sem var
áætlað fyrir nýliðið ár.
- Það má lesa út úr þessari fj ár- j
hagsáætlun Sjálfstæðismanna að
það eru kosningar eftir rúmt ár.
Þá á að benda á glæsilegheitin.
Til viðbótar þessum tveimur
glæsibyggingum sem peningum
er ausið í, verða veittar 40 miljón-
ir til að byrja á húsdýragarði í
Laugardalnum. Það er að sjálf-
sögðu gott mál, en ég er þeirrar
skoðunar að þannig skemmtileg-
heit eigi ekki að ráðast í, á sam-
dráttartímum, sagði Kristín.
-sg
473 grunaðirum
fíkniefnaneyslu- ogleða
dreifingu. 299 kœrðir
Hérlendis gerist annað tveggja
að fíkniefnalögreglunni fleygir
fram og hún nær æ betri árangri í
glímunni við fíkniefnavandann
eða að hassneysla eykst frá ári til
árs.
Því miður er hið síðarnefnda
líkast til hið rétta og 1 í fréttatil-
kynningu frá Ávana- og fíkniefn-
adeild lögreglunnar kemur fram
að hún gerði nær 20 kílógrömm af
hassi upptæk á árinu sem leið en
það er fjórum kílógrömmum
meira en í hittiðfyrra. Alls komst
iögreglan yfir meira magn af
kannabísefnum, amfetamíni,
sveppum, LSD óg heróíni á ný-
liðnu ári en 1987 en hafa ber í
huga að af tveim síðastnefndu
tegundunum var um lítið magn
að ræða (6 grömm af LSD og 0,1
gramm af heróíni).
Og ef efnið sem lögreglan
leggur hald á er mælikvarði á
neyslu þá hafa fíklar sagt skilið
við ýms efni í stórum stfl, t. d.
hafa stöðugt færri maríjúana
undir höndum (upptækt: 55,3
grömm í fyrra en 235,9 grömm í
hittiðfyrra) og sömu sögu er að
segja af kókæni sem orðið er
landlæg plága í Vesturheimi
(100,1 gramm í fyrra en 534,1
gramm í hittiðfyrra).
Alls voru 473 einstaklingar
grunaðir um neyslu (388), dreif-
ingu (80), innflutning (53) fíkni-
efna og sprautunotkun (30) á síð-
asta ári. Lanflestir þeirra (178)
sögðust vera og voru skráðir
atvinnulausir og langflestir voru á
aldrinum 22-25 ára eða 150. Af
473 grunsamlegum voru 299 að
endingu kærðir.
-ks.
Davíð Oddsson borgarstjóri slærekki
slöku við gæluhúsin sín. 700 miljónir
þar.
13 ný flugskýli fyrir F-15 orrustuþotur eru í 80 miljarðaáætluninni um síaukna hernaðaruppbyggingu hérlendis.