Þjóðviljinn - 21.01.1989, Page 1
Laugardagur 21. janúar 1989 15. tölublað 54. árgangur
Keflavík
Bankamál
Vextir
Lögreglan í Keflavík tekur úr umferð bifreiðarsem Póstur og sími notaði. Eru ekki til á bifreiðaskrá.
Herinn á bílana. Yfirmaður Pósts og síma í Keflavík: Skráðir sem okkar eign til aðfá tryggingar
ogskoðun. Rannsóknarlögreglan: Mjög svo einkennilegt mál
Lögreglan í Keflavík hefur tekið
í sína vörslu bifreið sem Póstur
og sími hefur haft i þjónustu
sinni. Bifreiðin og önnur til sem
eru af gerðinni AMC-Hornet,
finnast hvergi á bifreiðaskrá. Bif-
reiðarnar sem voru áður á VL
númerum eru nú komnar á J
númer og í nýjum skoðunarvott-
orðum eru þær skráðar eign Póst
og síma í Keflavík. Yfirmaður
Póst og síma á staðnum og yfir-
menn hersins á Keflavíkurflug-
velli hafa hins vegar lýst því yfir
að bifreiðarnar báðar séu eign
hersins.
Það var í fyrradag að lögreglan
í Keflavík tók aðra bifreiðina í
sína vörslu þar sem starfsmenn
Pósts og síma voru á henni fyrir
utan Leifsstöð. Hin bifreiðin er á
verkstæði á Keflavíkurflugvelli.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
í Keflavík er þetta allt hið undar-
legasta mál, en Björgvin Lúthers-
son yfirmaður Pósts og síma í
Keflavík, neitaði í gær að gefa
lögreglu skýringar á málinu.
- Eg er ekki tilbúin að mæta
með engum fyrirvara hjá lögregl-
unni, ég þarf að útvega gögn til að
skýra þetta mál og mun því ræða
við þá á mánudaginn, sagði
Björgvin í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Hann sagði ástæðuna fyrir
þessum bflasamskiptum Pósts og
síma í Keflavík við herinn vera
þá, að yfirmenn hersins hefðu
boðist til að útvega stofnuninni
bifreiðar fyrir þá starfsmenn
Pósts og síma er sjá um viðhald
og viðgerðir á jarðsímastrengjum
á hersvæðunum. Áður hafði
stofnunin notast við bflaleigubif-
reiðar og gert hernum reikning
fyrir þau afnot.
- Við ákváðum að taka þessu
boði en ég vildi að bílarnir yrðu
tryggðir samkvæmt íslenskum
lögum og skoðaðir. Því eru þeir
skráðir á okkar nafn þó herinn
eigi þá. Við erum ekki að brjóta
neitt af okkur og höfum lagt
áherslu á að þessir bflar séu ekki
notaðir utan vallarins. Ég skil
hinsvegar ekki hvers vegar þeir
eru ekki ennþá komnir inn í bif-
reiðaskrána, sagði Björgvin.
Hann sagði að hér væri sjálf-
sagt um hagkvæmnismál að ræða
fyrir herinn, bílaleigukostnaður
hefði verið um 150 - 200 þús. kr. á
mánuði í fyrra. - Við urðum að
gera þetta á þennan hátt til að fá
tryggingar á bílana. Þetta hljóm-
ar undarlega en mér finnst þetta
ekkert aðfinnsluvert, sagði Björ-
gvin, aðspurður hvort eðlilegt
gæti talist að opinber stofnun
gerði út á bílaflota hersins.
Bifreiðarnar sem Póstur og
Reykjavík ýtfr en landsbyggðin hlær. Miklum snjó kyngdi niður á
höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt og í gær og og urðu því margir að taka á
honum stóra sínum til að komast áfram í umferðinni. Veðurstofan spáir
sími hefur haft undir höndum frá
hernum, voru fluttar tollfrjálst
inn til landsins og í þeim er sér-
stakt bensínkort til að versla toll-
frjálst bensín á hervellinum. Þá
hefur herinn annast viðhald bfl-
anna.
Óskar Þórmundsson lögreglu-
fulltrúi í rannsóknarlögreglunni í
Keflavík sagði í gær að bifreiðin
sem lögreglan hefði í vörslu sinni
væri ólögleg þar sem hún væri
ekki til á skrá. Þetta væri afar
einkennilegt og sérstakt mál sem
ekki væri búið að fá botn í ennþá.
-*g-
hvössum norðnorðaustan vindi um helgina með sjókomu og éljagangi
fyrir norðan en þurru fyrir sunnan. Skafrenningur verður víða og því
varasamt að leggja í ferðalög. Frost verður um ailt land frá 2 - 6 stig.
Mynd: Jim Smart.
"T. 4 *'*,*>» * - *
Póstur og sími á herbílum
Utvegsbankinn hf. skorinn í tveimt?
Hugmyndin um að Útvegsbanka hf verði skipt á milli Landsbanka og Búnað-
arbanka endurnýjuð. SteingrímurHermannsson: Brýnt að sameina banka.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hyggst Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra
leggja fram tillögur í ríkisstjórn-
inni eftir helgina þess efnis að Ut-
vegsbankinn hf. verði sameinað-
ur Landsbanka og Búnaðar-
banka. Verði sú tillaga samþykkt
þarf jafnframt að breyta lögum
sem heimili ríkisbönkunum
tvcimur að yfirtaka eða kaupa
Útvegsbankann hf. Steingríinur
Hermannsson neitaði þessu ekki í
gær, en vildi ekki tjá sig um málið
beint.
„Þetta er ein af þeim Iausnum
sem ég er til í að skoða, en Jón
Sigurðsson, viðskiptaráðherra
hefur forræði í þessum málum,“
sagði Steingrímur. Aðspurður
sagðist Steingrímur ekki telja að
þó að þessar hugmyndir yrðu
lagðar fram að þá stöngaðust þær
ekki á við það verk sem Jón væri
að láta vinna í sambandi við sölu
Útvegsbankans. „En ég er á-
kveðinn í því að ræða ekki í fjöl-
miðlum þær hugmyndir sem ég
kann að vera að leggja fyrir ríkis-
stjórnina þessa dagana. Ég vil
ekki tjá mig beint um þessa hug-
mynd, en ég tel orðið afar brýnt
að sameina og fækka bönkum.
Það var okkar tillaga á sínum
tíma að Útvegsbanka yrði skipt
milli Landsbanka og Búnaðar-
banka. Sjálfstæðisflokkurinn
vildi þá fara þá leið að breyta Út-
vegsbanka í hlutafélag og sam-
eina hlutafélagabanka. Það hefur
ekki tekist. Jón er enn að skoða
þessa hlutafélagasameiningu, en
að sjálfsögðu hlýtur henni að
Ijúka einhvern tíma. Hann metur
það sjálfsagt sjálfur," sagði
Steingrímur.
Aðspurður um hvort hann
hygðist leggja þessa tillögu fyrir
ríkisstjórnina strax eftir helgi eða
bíða eftir að nefndir Jóns Sig-
urðssonar sem skoða sölu Út-
vegsbankans lykju störfum, sagð-
ist Steingrímur „ekkert geta sagt
um það á þessu stigi.“
-phh
Vextir hækka
Landsbankinn og Búnaðar-
bankinn hafa hækkað vexti á inn-
og útlánum um 1-2% og hafa þeir
Ólafur Ragnar og Steingrímur
Hermannsson lýst yfir óánægju
sinni með þá hækkun. Telja þeir
að þörf sé á að ríkisstjórnin finni
sér vopn sem bíti til að stýra
vaxtaþróuninni. Ólafur Ragnar
telur að aðför Sjálfstæðisflokks-
ins í bankakerfinu hafi mistekist,
en þar reyni flokkurinn að hefna
þess sem tapaðist á Alþingi. Bún-
aðarbankinn lækkaði raunvexti á
verðtryggðum skuldabréfum og
hafa ráðherrarnir fagnað því sem
skrefi í rétta átt.
Sjá síðu 3