Þjóðviljinn - 25.01.1989, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Loðnuveiðar
Hrogn og lifur á borðum landsmanna. Hróðugur hampar
Magnús Sigurðsson hjá Hafrúnu fati með þessu holimeti og
góðgæti. Hann kvað innmat þenna seljast einsog heitar lumm-
ur ár hvert frá janúarbyrjun til marsloka. Kíló af hrognum kostar
300 kr. en lifrin er sáraódýr, kostar 100 kr. kílóið. Mynd: Jim
Smart.
Norðmenn loks tilbúnirað semja. Heildarveiðistjórn á loðnu í
Norðurhöfum. Grœnlendingar fá jafnmikið og Norðmenn
Þríhliða samkomulag íslend-
inga, Grænlendinga og Norð-
manna um veiðar úr loðnustofn-
inum í Norðurhöfum, var undir-
ritað í Osló um síðustu helgi.
Margar árangurslausar tilraunir
hafa verið gerðar til samninga á
undanförnum árum og er megin-
forsenda samkomulagsins nú sú,
að Norðmenn voru tilbúnir að
gefa eftir af loðnukvóta sínum til
Grænlendinga.
Loðnan gengur inn í fiskveiði-
lögsögu Grænlands og hafa
Grænlendingar því gert tilkall til
hlutdeildar í veiðum úr stofnin-
Herframkvæmdir
Varastjómstöðin þjónar ratsjárkerfinu
Porsteinn Ingólfsson hjá varnarmálanefnd: Stjórnstöðin fyrir ofan Grindavík
verður búin sömu tœkjum og ratsjármiðstöðin á Vellinum
ar var greint í skýrslu utanríkis-
Það er ekki rétt að um eiginlega
varastjórnstöð sé að ræða,
sagði Þorsteinn Ingólfsson í varn-
armálanefnd, þegar Þjóðviljinn
spurði frekar um „varastjórn-
stöð“ þá, sem greint var frá á
fundi með fréttamönnum á Kefla-
víkurflugvelli í síðustu viku.
Bygging sú sem um er að ræða
verður reist á varnarsvæðinu hjá
háu möstrunum næst Grindavík,
og hún verður fyrst og fremst
hugbúnaðarmiðstöð fyrir rat-
sjárkerflð. Til þess að þjóna því
hlutverki þarf þessi miðstöð að
vera búin sama tölvubúnaði og
ratsjármiðstöðin, og hún mun því
jafnframt geta þjónað hlutverki
sem vararatsjármiðstöð. Frá
byggingu þessarar eftirlitsstöðv-
ráðherra til Alþingis í febrúar á
síðasta ári. Þá sagði utanríkisráð-
herra, að fyrirhugað væri að við
stöðina ynnu 30 íslenskir kerfís-
fræðingar.
Þorsteinn Ingólfsson sagði að
ekki væri búið að ákveða bygg-
ingarframkvæmdir á þessari eftir-
litsstöð, því ekki væri búið að
hanna sjálfan hugbúnaðinn, sem
nú væri í útboði. Það fer eftir
endanlegri gerð hugbúnaðarins
hversu margir íslenskir kerfis-
fræðingar fá þarna vinnu, en það
getur orðið á bilinu 25-40. Fyrstu
tveir kerfisfræðingarnir munu að
sögn Þorsteins hefja starfsþjálfun
í sumar, og mun hún fara fram
hjá því fyrirtæki sem tekur að sér
hönnun hugbúnaðarins. Áætlað
er að þessum starfsmönnum
muni fjölga upp í 15 á þremur
árum. Reiknað er með að tækni-
búnaðurinn verði settur upp á ár-
inu 1994, en þá á ratsjárkerfið að
vera kornið í fullt gagn.‘
-ólg
um, en árið 1980 gerðu ísland og
Noregur með sér samning um
skiptingu loðnustofnsins, þannig
að í hlut íslands komu 85% en
Norðmenn fengu 15%.
f nýja samningnum er hlut-
deild Islands 78% og Norðmenn
og Grænlendingar fá 11% loðnu-
kvótans hvor þjóð. Þá er í samn-
ingnum kveðið á um að ef ekki
næst samkomulag milli þjóðanna
þriggja um heildarveiði á loðnu á
hverri vertíð, geti ísland einhliða
ákveðið hver heildarveiðin verð-
ur. Þá fá norsku og grænlensku
skipin rétt til að veiða sinn hluta
kvótans innan íslenskrar fisk-
veiðilögsögu fyrir 15. febrúar
norðan 64 30‘N. Þetta er hliðstæð
heimild og Norðmenn hafa haft
undanfarnar þrjár vertíðar. Hún
gildir hins vegar ekki sjálfkrafa
fyrir þá aðila sem fá aflaheimildir
framseldar frá Grænlendingum.
Þá fá norsk og grænlensk loðnu-
veiðiskip heimild til að nota ís-
lenskar hafnir og landa afla sín-
um hér.
í íslensku samninganefndinni
áttu sæti þeir: Helgi Ágústsson
skrifstofustjóri, Jón B. Jónasson
skrifstofustjóri, Guðmundur
Eiríksson þjóðréttarfræðingur,
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknarstofnunar, Þorsteinn
Gíslason fiskimálastjóri, Kristján
Ragnarsson, form. LÍÚ, og Ósk-
ar Vigfússon, form. Sjómanna-
sambandsins.
->g-
Arnarflug
Peningana eða lífið
SteingrímurJ. Sigfússon: Arnarflugsmenn hafa nokkurra dagafrest. Valkostur að ríkið og
Flugleiðir eigi Arnarflugsem verði rekið áfram sem „sjálfstœtt“ flugfélag
Þeir Arnarflugsmenn eru með
síðustu sólarhringana í hönd-
unum til að sýna fram á að þeir
geti komið með nóg fé inn í fyrir-
tækið til að halda megi rekstrin-
um áfram undir þeirra forystu.
Ef það tekst ekki þá er það búið,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon
samgönguráðherra í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Ef Arnarflugsmönnum mis-
tekst að safna tilskildum fjár-
munum er ætlunin að ríkið hefji
viðræður við Flugleiðir. En það
breytir væntanlega litlu um
slæma fjárhagsstöðu Flugleiða?
„Það er út af fyrir sig rétt, en þá
ber að athuga að það kunna að
vera meiri verðmæti í Arnarflugi
fyrir Flugleiðir en aðra aðila og
Flugleiðamenn hafa lýst sig
reiðubúna að yfirtaka Arnarflug
eða ræða við ríkið hvernig mögu-
lega megi bjarga félaginu frá
gjaldþroti. Það má segja að það
sé þá eina leiðin utan þess að
setja þetta í gjaldþrot. Ríkið er
að sjálfsögðu reiðubúið til við-
ræðna um hvað það er tilbúið að
leggja mikla peninga af mörkum
til að hugsanlegt samstarf við
Flugleiðir geti orðið raunveru-
leiki,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur sagðist ekki geta
sagt til um það hvort „sameining"
flugfélaganna kæmi til með að
kosta ríkið minna fé heldur en ef
ríkið reyndi að viðhalda Arnar-
flugi. „Það er ekki nein ákveðin
tala til í því efni. Hitt er ljóst að
það er ekki vilji fyrir því að menn
sæki allt fé sem til þarf í ríkis-
sjóð.“
Aðspurður sagðist Steingrímur
ekki vilja fortaka fyrir það að hér
verði aðeins eitt flugfélag innan
skamms. „Hins vegar bendi ég
líka á þann möguleika að Arnar-
flug verði rekið áfram sem sjálf-
stæður aðiii, þótt það yrði í eigu
Flugleiða og ríkisins. Með því
næðist væntanlega hagræðing í
rekstri flugfélaganna og er leið
sem ekki ber að útiloka."
Ef af þessu verður vaknar
spurningin um meinta samkeppni
flugfélaganna. „Ég held nú að
þar þurfi ekki að verða svo mikil
breyting frá því sem verið hefur,
því það er spuming hversu mikil
sú samkeppni hefur verið í raun, “
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
phh
BHMR
Sverrir Hermannsson
Ræði ekki við
fjölmiðla
Svar Sverris til skoð-
unar
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, lét flytja
þau skilaboð til blaðamanns
Þjóðviljans í gær að hann ræddi
ekki við fjölmiðla. Ætlunin var
að fá að heyra svör Sverris við
þeirri frétt Þjóðviljans frá því í
gær að Sverrir sæti enn sem
stjórnarformaður Ögurvíkur hf.
og væri þar með brotlegur við 13.
grein bankalaganna.
Þórður Ólafsson, forstöðu-
maður Bankaeftirlits Seðlabank-
ans, sagði í gær að þeim hefði
borist svar Sverris við fyrirspurn
Bankaeftirlitsins þar sem Sverrir
var spurður hvort hann gegndi
einhverjum þeim störfum utan
Landsbankans sem ekki sam-
rýmdust bankalögum. „Við höf-
um fengið svar frá Sverri. Það er
til skoðunar hjá okkur og fyrr en
þeirri athugun er lokið vil ég ekki
tjá mig um málið," sagði Þórður.
phh
Furðulegur misskilningur
Fjármálaráðherra: Ekki œtlunin að skera laun niður um 3 miljarða
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra segir ályktun
BHMR, vegna ummæla hans um
að draga úr launakostnaði ríkis-
ins um 3 miljarða, vera byggða á
furðulegum misskilningi. Hann
hefði haldið að öllum væri kunn-
ugt að þessi þriggja miljarða nið-
urskurður væri niðurskurður frá
upphaflegum áætlunum, sem
lágu fyrir í fjármálaráðuncytinu,
og þar með talinn niðurskurður á
útgjöldum til skrifstofuhúsnæðis.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Ólafur að á bakvið þennan niður-
skurð væri líka sparnaður á ferða-
kostnaði til útlanda, risnu, funda-
höldum, vegamálum og fjöl-
mörgum öðrum framkvæmdalið-
um. „Ég hélt að vinir mínir hjá
BHMR fylgdust betur með um-
ræðunni í landinu og umræðunni
um fjárlögin en svo að þeir færu
að rjúka upp til handa og fóta og
tengja þetta við niðurskurð á
launakostnaði. Það hefur ekki
nokkur maður sagt að þetta væri
niðurskurður á launakostnaði,
heldur heildarniðurskurðurinn
frá upphaflegum áætlunum á öllu
saman,“ sagði Ólafur.
Hins vegar sagði Ólafur að tal-
að hefði verið um 4-5% niður-
skurð á launaútgjöldum ríkisins,
þetta stæði í fjárlögum og væri
ekkert nýtt. Þessi niðurskurður
yrði talinn í hundruðum miljóna
frekar en þúsundum. Fjármála-
ráðherrann væri hvorki að hóta
einu né neinu, heldur væri hann
að lýsa staðreyndum sem legið
hefðu fyrir frá því í desember og
jafnvel fyrr.
-hmp
Samkomulag um skiptingu
Miðvikudagur 25. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3