Þjóðviljinn - 04.02.1989, Page 12

Þjóðviljinn - 04.02.1989, Page 12
—SPURNINGIN— Hvernig líst þér á inn- göngu Borgaraflokksins ' í væntanlega ríkisstjórn? Magnús Bjarnfreðsson framkvæmdastjóri: Jú, mér líst bara vel á það, ef það styrkir stjórnina og samkomu- lagið verður betra en verið hefur. Agnes Kr. Ólafsdóttir húsmóðir: Ég hef svo lítið vit á pólitík. Ann- ars líst mér bara vel á Borgara- flokkinn. En hvernig er það, er Albert ekki að fara til Frakklands? Guðjóna Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur: Mér líst illa á það. Það eru nógu margir flokkar fyrir. Lilja Hjartardóttir gjaldkeri: Ekki vel. Það er allt nógu flókið, með þeirra þátttöku held ég að það verði bara flóknara. Gunnar Þór Elfarsson verslunarstjóri: Ég efa að það breyti nokkru, en þó líst mér ekki illa á Borgara- flokkinn. þióoviui I ni mnrHnm ir A fAhrúnr 1OAO Laugardagur 4. febrúar 1989 25. tölublað 54. órgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Einbeitnin skein úr augum þessara sex ára barna sem gerðu sér ferð úr Æfingadeild Kennaraháskólans í Norræna húsið í gær. Ljósm. ólg. Norrœna húsið Það þarf að mála mynd Straumur barna á dagskrá Barnabókaráðs. Ráðstefna um barnamenningu í dag. Bókmenntir, leiklist og myndsköpun á dagskrá í nœstu viku Það var mikið um að vera í sarnkomusal Norræna hússins í gær. Stöðugur straumur barna kom og hlustaði á upplestur og spreytti sig í myndsköpun. Um leið höfðu börnin tækifæri til þess að skoða sýninguna sem nú er í anddyri Norræna hússins á myndskreytingum úr norrænum barnabókmenntum. Það er Barnabókaráð sem á veg og vanda af þessu framtaki og þær Ólína Gestsdóttir mynd- menntakennari, Ragnheiður Gestsdóttir myndlistarmaður og Guðríður Þórhallsdóttir stóðu fyrir myndlistarverkstæðinu í Norræna húsinu í gær. Þá var Marteinn Sigurgeirsson einnig með leiðbeiningu í kvikmynda- gerð. Á ráðstefnunni um barnam- enningu, sem hefst í Norræna húsinuídagkl. 13.00 verðurfjall- að um nær allar greinar lista og bókmennta í þágu barna, og eru umræðuefnin sem hér segir: Harpa Hreinsdóttir fjallar um bókmenntir, Ásdís Skúladóttir um leiklist, Þórunn Björnsdóttir um tónlist, Ingibjörg Björnsdótt- ir um dans, Marteinn Sigurgeirs- son um kvikmyndir, Kristín Hild- ur Ólafsdóttir um myndlist, Vil- borg Dagbjartsdóttir um sagna- hefð og Þorbjörn Broddason um fjölmiðla. Einnig verða fyrir- spurnir og umræður. Eftir helgina mun dagskrá fyrir börn halda áfram í Norræna hús- inu. Sögustundir með upplestri verða á mánudag og þriðjudag kl. 13-15 og sunnudaginn 12. febrúar verður mikið um að vera, því þá verður bæði leiðbeint í leikrænni tjáningu og myndsköpun auk þess sem þau Herdís Egilsdóttir og Jónas Kristjánsson handrita- fræðingur munu standa fyrir sögustund. Eins og áður er getið er það barnabókaráð sem hefur veg og vanda af þessu starfi, en formað- ur þess er Ragnheiður Gestdóttir myndlistarmaður. 'úlg- Tilkynning frá Fiárfestingarfélagi íslands hf. 23. janúar sl. gaf viðskiptaráðherra út „reglugerð um lánskjaravísitölu til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár". Samkvæmt þessari reglugerð er grundvelli lánskjaravísitölu breytt á þann veg að framfærsluvísitala, byggingarvísitala og svonefnd launavísitala gildi að þriðjungi hver í grundvelli hinnar nýju lánskjaravísitölu. Þessi nýja lánskjaravísitala á skv. ákvæðum reglugerðar að koma að fullu og öllu í stað þeirrar lánskjaravísitölu sem reiknuð hefur verið skv. lögum nr. 13/1979 og grundvallast að % á framfærsluvísitölu og að Vís á byggingarvísitölu. Skal hin nýja vísitala samkvæmt reglugerðum taka gildi 1. febrúar 1989. Fjárfestingarfélag íslands hf. vill fyrir hönd Verðbréfasjóðsins hf., Tekjusjóðsins hf., Marksjóðsins hf., Fjölþjóðasjóðsins hf., Frjálsa lífeyrissjóðsins og annarra umbjóðenda sinna taka fram, að félagið telur vafa leika á lögmæti þess að láta hina nýju vísitölu taka gildi um fjárskuldbindingar sem stofnað var til fyrir 1. febrúar 1989. Með vísan til þess gerir Fjárfestingarfélagið fyrir hönd umbjóðenda sinna, fyrirvara gagnvart öllum skuldurum þeirra, sem nú greiða af fjárskuldbindingum sínum samkvæmt hinni nýju vísitölu og áskilur sér rétt til að krefja þá um þann mismun sem leiðir af því að hinni nýju vísitölu er beitt í stað hinnar eldri. <22? FJARFESriNGARFELAGIÐ Hafnarstræti 7 S (91) 28566, Kringlunni S (91) 689700, Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri S (96) 25000 1 upp í 10 vikur Lissabon Algarve Madeira Golfferðir Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERÐIR, RATVÍS OG FERÐAVAL bjóðaykkuruppá4,6,8og 10 vikna ferðirtil Portúgal ívetur. Hægt er að velja um gistingu á Madeira, í Algarve eða á Lissabon- ströndinni. Verð frá kr. 53.200.- Einnig standa ykkur til boða styttri ferðir (3-30 dagar) með gist- ingu í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hótelum víðsvegar um Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Lissabon og London í einni ferð, spókað ykkur á strönd ALGARVE eða leikið golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu. Þeim sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi býðst úrval af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madeira. Golfhótel við 7 úrvais golfvelli í Algarve. Vallargjöld á sérstaklega lágu verði. SUMARBÆKLIN GURINN ER KOMINN evrópuferðir (rams KLAPPARSTíG 25-27 -- ^—^ThnJtsl 101 REYKJAVÍK, SÍMI 628181. Trave! HAMRABORG1-3,200 KÓPAVOGUR SÍMI641522 FERÐAtm/ALHF TRAVEL AGENCyXSIí/ HAFNAR5TRÆTI 18, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.