Þjóðviljinn - 11.02.1989, Blaðsíða 1
Laugardagur 11. febrúar 1989 30. tölublað 54. órgangur
Hvalveiðar
Grænfriðungar á leiðinni
Helstu talsmenn grœnfriðunga íhvalamálinu á leið til landsins. Vilja viðrœður við stjórnvöld. Mótmœlum hœtt verði
hvalveiðarstöðvaðar nœstuþrjú ár. StórfelldarmótmœlaaðgerðirfyrirhugaðaríBretlandi og Bandaríkjunum
Tveir af forystumönnum græn-
friðunga, sem hafa umsjón
með hvalveiðideilunni við Islend-
inga, eru væntanlegir til landsins í
næstu viku. Þeir hafa hug á því að
eiga viðræður við stjórnvöld, en
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur lýst áhuga
sínum á opnum fundi með for-
ystumönnum grænfriðunga.
Forystumenn Greenpeace líta
svo á að staða þeirra í hvalveiði-
deilunni við íslensk stjórnvöld
hafi styrkst verulega á síðustu
vikum, einkum og sér í lagi í
Þýskalandi þar sem skipuleg her-
ferð gegn hvalveiðum Islendinga
hefur verið í gangi undanfarna
mánuði.
Heimildir Þjóðviljans herma
að grænfriðungar ætli að gera
stjórnvöldum hér það tilboð, að
verði hætt við allar hvalveiðar
næstu þrjú ár hið minnsta muni
þegar verða látið af öllum mót-
mælum gegn íslenskum afurðum
erlendis. Stöðvun vísindaveiða í
sumar nægi ekki ein sér og sam-
tökin vilji fá traustar yfirlýsingar
um stöðvun hvalveiða svo ekki
verði farið á bak við samþykktir
eins og gert hafi verið varðandi
samþykkt Alþingis frá 1983. Þá
samþykkti ’ <umur meirihluti
þingmanna að mótmæla ekki
ákvörðun Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins um algert hvalveiðibann.
Samkvæmt upplýsingum frá
samtökunum er nú verið að
undirbúa mikla herferð á Bret-
landseyjum gegn hvalveiðunum
og í Bandaríkjunum hafa verið
skipulögð mótmæli síðustu vikur
sem lýkur í lok þessa mánaðar
með sérstökum þjóðarbaráttu-
degi fyrir verndun hvala-
stofnanna.
Baráttusamtök gegn hval-
veiðum í Connecticut í Banda-
ríkjunum segja í nýútkomnu
fréttabréfi sínu að þau hafi fengið
staðfest að veitingahúsakeðjan
Long John Silver ætli að hætta
öllum viðskiptum við íslensku
fisksölufyrirtækin verði hval-
veiðum ekki hætt.
-*g-
Utsala
Hálft tonn
á dag
Bœkur á50ogl00
krónurá
Bókavörðumarkaði
Það fór hálft tonn á markaðinn,
sagði Bragi Kristjónsson í Bóka-
vörðunni eftir að lokað var á út-
sölumarkaðnum í Snæbjarnar-
húsinu Hafnarstræti 4 í gær.
Þar er nú útsölumarkaður
þarsem má fá gamlar bækur fyrir
ótrúlegt verð: 100 krónur fyrir
innbundna bók og 50 krónur fyrir
óinnbundna bók, útlenda eða
tímarit. Daglega er bætt bókum á
markaðinn úr kjöllurum og
geymsluherbergjum, og kennir
þar heldur betur margra grasa.
Þegar Þjóðviljamenn litu inn hjá
Braga í Hafnarstrætinu í gær var
mikill handagangur í öskjunni,
bókaunnendur hlóðu upp
kaupstöflum sínum hver um ann-
an þveran, og verður væntanlega
engu fámennara í dag.
Handagangur í öskjunni á mark-
aði Bókavörðunnar í Snæbjarn-
arhúsinu í gær. (Mynd: Jim)
Siglufíörður
Ekki fleiri sjóði
Stjórn Verkalýðsfélagsins
Vöku á Siglufirði lýsir yfir
fullri andstöðu við allar hug-
myndir um endurvakningu sjóða-
kerfisins í sjávarútvegi.
Jafnframt mótmælir stjórnin
harðlega hugmyndum sjávarút-
vegsráðherra um að selja einka-
aðilum Síldarverksmiðjur ríkis-
ins og bendir á slæma reynslu af
sölu ríkisins á lagmetisiðjunni
Sigló-síld.
Skorað er á ráðherra að beita
sér heldur fyrir því að síldar-
verksmiðjum ríkisins verði gert
kleift að eiga og gera út eigin
skip, en sú tilhögun myndi bæta
rekstrarstöðu fyrirtækisins veru-
lega.
-grh
Skíðalyftur
Nýjar öryggisreglur
Vinnueftirlitið œtlarað setja nýjarreglur um öryggi toglyfta fyrir
skíðafólk
Vinnueftirlitið hefur bannað
notkun togbrauta fyrir skíða-
fólk, þar til nánari reglur hafa
verið settar um öryggisbúnað
þeirra. Þetta var ákveðið eftir að
ung stúlka lét lífið er hún festist í
togvír skíðalyftu í Garðabæ á
miðvikudaginn.
Pótitíká .
laugamegi
Björn Grétar Sveinsson og Ögmundur Jónasson eru gestir
spjallfundarins á laugardaginn kl. 11 til 14 á efstu hæd að
Hverfisgötu 105. - Allir vinstrimenn velkomnir.
Þjóðviljinn/Alþýðubandalagið í Reykjavík
Áð sögn Eyjólfs Sœmunds-
sonar forstjóra Vinnueftirlitsins
hafa verið gerðar sömu kröfur til
öryggisútbúnaðar toglyfta hér á
landi og á öðrum Norðurlöndum
og var sá útbúnaður í fullkomnu
lagi í Garðabæ. Eyjólfur sagði að
ekki hefðu verið gerðar kröfur
um að öryggisútbúnaður væri við
neðra hjól toglyftanna. Hann
bjóst við að í nýju reglunum yrði
gerð krafa um slíkan útbúnað í
framhaldi af slysinu í Garðabæ.
Stúlkan sem lést eftir að hafa
aðstoðað unga telpu sem var föst
í togvírnum, hét Ólöf Ágústa
Jónsdóttir til heimilis að Efsta-
sundi 73 í Reykjavík.
-sg