Þjóðviljinn - 14.02.1989, Qupperneq 1
Þriðjudagur 14. febrúar 1989 31. tölublað 54. árgangur
Varaflugvöllur NATO
er hemaðaimannvirki
Steingrímur Hermannsson forsœtisráðherra: Engin hernaðarmannvirki á íslandi
ítíðþessarar stjórnar. Hef skriflega staðfestingu Wörners um að engar
hernaðarkvaðir hvíli á vellinum á friðartímum, segir Jón Baldvin
Það er staðfest í stjórnarsátt-
málanum að ekki verði ráðist
í neinar nýjar hernaðarfram-
kvæmdir á Islandi í tíð þessarar
ríkisstjórnar. Ég held að það sé
afar erfitt að túlka varaflugvöll
kostaðan af mannvirkjasjóði
Nato öðruvísi en hernaðarmann-
virki.
Þetta sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra á
fundi með ungum framsóknar-
mönnum í Reykjavík í gær.
„James Baker orðaði þetta
nokkuð klókindalega, hann sagði
að það yrðu engar „specific“ eða
sérstakar kröfur frá hernum. En
mér þykir satt að segja alveg
hreint ótrúlegt ef þeir eru tilbúnir
í að leggja 11 miljarða í varaflug-
völl án þess að hafa nokkuð
strangar kröfur um eftirlit með
honum. En málið snýst í raun
ekki um það. Við verðum að líta
á ákvæði stjórnarsáttmálans sem
bindandi, hvort sem okkur líkar
það ver eða ekki. Og Alþýðu-
bandalagið hefur neitunarvald í
þessu máli,“ sagði Steingrímur
Hermannsson. Fram kom í
máli Bakers utanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna í Leifsstöð
um helgina að æskilegt væri að
flugvöllurinn yrði staðsettur á ís-
landi.
Steingrímur Hermannsson
sagði á fundinum í gær að athug-
un samgöngumálaráðherra benti
til þess að við íslendingar gætum
fullnægt þörf okkar flugvéla fyrir
varaflugvöll á mun ódýrari hátt,
og það á fleiri en einum stað. Er
þar talað um framkvæmdir fyrir
Rafmagnsleysið
Víða
ansi kalt
- Það eina sem hægt var að
gera var að skríða undir feld og
reyna þannig að halda á sér hita.
Hér var aftaka veður á sunnudag-
inn og bætti það ekki úr skák,
sagði Sveinn Guðjónsson í Hnífs-
dal, en þar var rafmagnslaust ali-
an sunnudaginn og einnig í gær.
Sveinn sagði að mörg hús í
Hnífsdal væru hituð með raf-
magni og þar hefði óneitanlega
verið ansi kalt er líða tók á dag-
inn.
Hann sagði þegar Þjóðviljinn
ræddi við hann um miðjan dag í
gær að enn væri rafmagnslaust
hjá þeim vegna mikillar sjávar-
seltu sem væri á rafmagnslínunni
til Hnífsdals, en hann vonaðist til
að rafmagnið kæmist á fljótlega,
þannig að Hnífsdælingar þyrftu
ekki að yfirgefa hús sín vegna
kulda. -sg
um 200-300 miljónir króna.
Þegar Jón Baldvin Hannibals-
son var að því spurður hvers
vegna varaflugvöllur sá sem
NATO hefði í huga ætti að vera
svo miklu dýrari sagði hann að
Nato reiknaði með að varaflu-
gvöllurinn þjónaði alþjóðaflugi
og væri búinn fullkomnum flug-
turni er gæti séð um flugum-
ferðarstjórn á íslenska flugstjórn-
arsvæðinu og að þar yrðu
fullkomin hlöð og aðstaða fyrir
allar gerðir flugvéla. Jón Baldvin
sagðist hafa fengið bréflega stað-
festingu frá Wörner, fram-
kvæmdastjóra Nato, þar sem
fram kæmi að engar hernaðar-
legar kvaðir yrðu á flugvellinum
umfram það að hann yrði til reiðu
á stríðstímum.
Aðspurður um hvort hann væri
því hlynntur að Nato sæi um
þessa framkvæmd sagði utan-
ríkisráðherra að svo væri.
Mannvirki þetta gæti orðið lyfti-
stöng flugsamgöngum hér á landi
og viðkomandi byggðarlögum
um leið. Að mínu áliti útilokar
stjórnarsáttmálinn ekki þessa
framkvæmd, þar sem hér er ekki
um hernaðarmannvirki að ræða,
sagði Jón Baldvin. -phh/ólg.
Systurnar Kristín og Iðunn taka við verðlaunum sínum úr hendi Hallmars Sigurðssonar leikhússtjóra Iðnó.
Leikrit
Systumar
verðlaunaðar
Leikritið Töfrasprotinn eftir
Benedikt Ægisson hlaut í gær
fyrstu verðlaun fyrir barnaleik- ■
ritið Töfrasprotann, en systurnar
Iðunn og Kristín Steinsdætur
hlutu önnur og þriðju verðlaun
fyrir barnaleikritin Mánablóm og
Randaflugur. Leikritasamkepp-
nin var í tilefni af vígslu Borgar -
leikhússins í haust.
Leikritið „Ég er hættur og far-
inn“ eftir Guðrúnu Kristínu
Magnúsdóttur hlaut fyrstu verð-
laun í keppninni um leikrit fyrir
fullorðna, en öðrum verðlaunum
skiptu með sér þeir Guðmundur
Ólafsson og Bjarni Jónsson.
Leikrit Guðmundar nefnist
„1932“ og fjallar um verkalýðs-
hreyfingu og þjóðfélagsbreyting-
ar á fjórða áratugnum, en leikrit
Bjarna „Cirkus Grotesk", um líf
íslenskrar alþýðu í sjávarþorpi.
Alls bárust 50 leikrit í keppn-
ina.
- eb
BSRB
Vextir verða keyrðir niður
Samtök launamanna rœði sameiginlega við ríkisvaldið um eflingu velferðarkerfisins. Ögmundur
Jónasson: Lœkkun vaxta og húsnœðiskostnaðar. Steingrímur Hermannsson:
Viðrœðurgeta hafist mjögfljótlega. Ólafur Ragnar: Ályktun BSRB mjög athyglisverð
Formannaráðstefna BSRB var
haldin í gær og var þar sam-
þykkt að sækja fram til aukins
kaupmáttar sem tryggður yrði
með kaupmáttartryggingu. Þá
lagði formannaráðstefnan
áherslu á að samtök launamanna
efndu til sameiginlegra viðræðna
við ríkisvaldið um hvernig bæta
mætti lífskjör almennings með
því að efla velferðarríkið. I sam-
þykkt BSRB er talað um að bæta
þurfi lífskjörin með því að koma í
veg fyrir vaxtaokur, taka þurfi á
húsnæðismálum, dagvistunar-
málum og tilkostnaði heimilanna
svo dæmi séu tekin.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB sagði að nú væri kom-
inn tími til að efla íslenska vel-
ferðarkerfið til hagsbóta fyrir al-
mennt launafólk. Það væri
augljóst kjaramál að lækka vexti
og fjármagnskostnað heimil-
anna, sem mörg hver þyrftu að
eyða allt að helmingi tekna sinna
í húsnæðiskostnað.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra sagði í samtali
við Þjóðviljann að hann teldi
margt gott í hugmyndum BSRB
og hann sæi því ekkert til fyrir-
stöðu að viðræður um þessi mál
gætu hafist innnan skamms.
Hann sagðist andvígur öllum
hugmyndum um vísitölubindingu
launa, en einhver mörk þurfi að
setja sem verndi kaupmátt lægstu
launataxtana. Hann telji hins
vegar ekki svigrúm vera til al-
mennra launahækkana upp allan
launaskalann.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra sagði það merkileg
tíðindi að bæði BSRB og Verka-
mannasambandið hafi komist að
þeirri niðurstöðu að lækkun
vaxta væri lykilatriði í komandi
samningagerð, það væri í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. „Mér finnst ályktun BSRB
mjög athyglisverð og tel að ríkis-
stjórnin hljóti að taka henni vel.
Ég mun styðja það í ríkisstjórn-
ínni að hún taki vel í að ræða við
samtök launafólks um þessar
hugmyndir. Einnig er eðlilegt að
samhliða því sé rætt um samræm-
ingu á launakerfi eins og þeir
leggja til og við einstök félög um
þeirra sérmál.“
Sagði Ólafur að samninga-
nefnd ríkisins í viðræðum við op-
inbera starfsmenn hafi verið
endurskipulögð og ný samninga-
nefnd yrði kynnt á næstu dögum.
-phh
Sjá síður 2 og 9