Þjóðviljinn - 16.02.1989, Side 1
Fimmtudagur 16. febrúar 1989 33. tölublað 54. órgangur
Staðgreiðslan
Skilið skattinum strax
Einn og hálfur miljarður ívanskilum vegna staðgreiðslu. Ólafur Ragnar Grímsson: Unum þvíekki aðfyrirtœkin noti
staðgreiðslufé í reksturinn. Rúmlega áttaþúsund hafa ekkigertfull skil á staðgreiðslu fráþvíífyrra. 199fyrirtœki skulda
yfireinamiljón.Dœmium30 miljón kr. skuld. Fá 2 vikur til að gera upp skuldina. annars verður lokað
Það verður ekki við það unað
öilu lengur að launagreiðend-
ur skili ekki þeirri staðgreiðslu
sem hefur þegar verið tekin af
starfsfólki þeirra. Samkvæmt
áætlun fjármálaráðuneytisins
vantar nærri einn og hálfan milj-
arð til þess að um full skil sé að
ræða, segir Ólafur Ragnar
Grímsson Ijármálaráðherra en
hann hefur boðað hertar inn-
heimtuaðgerðir gagnvart þeim
sem ekki hafa gert skil.
Alls eru það 8.308 aðilar sem
eru í vanskilum með staðgreiðsl-
Hornbjarg
Skortur á
ýmsum
nauðsynjum
ÓlafurÞ. Jónsson:
Meðalsnjódýptin
1,30-1,40 m og allt á
kafi ísnjó. Ekki fyrir
sjálfan djöfulinn að
ganga á bjargið
- Það er búin að vera snjó-
koma hér svo til uppá hvern ein-
asta dag síðan í nóvember og mér
reiknast til að meðalsnjódýptin sé
1,30-1,40 m. og að sjálfsögðu er
allt á kafi hér, útihúsin og stiginn
niður í fjöru er horfinn undir
snjó, sagði Ólafur Þ. Jónsson vit-
avörður á Hornbjargsvita.
Til stóð að varðskip kæmi með
vistir fyrir Ólaf og ráðskonu hans
í gær en varð frá að hverfa vegna
hafíss. Þegar er farið að vanta
ýmsar nauðsynjar ss. tóbak og
hörgull er orðinn af mjólk og
kartöflum. Vegna snjóþyngsla er
ekki enn séð hvernig heimilisfólk-
inu í Látravík tekst að koma
varningnum upp úr fjörunni og
inn í hús. Ólafur sagði að það yrði
bara að reyna á það þegar þar að
kæmi.
Ólafur sagði það ekki einu
sinni vera fært fyrir sjálfan djöful-
inn að ganga á bjargið vegna
mikilla snjóalaga til að athuga
með siglingaleiðina fyrir Horn.
Hún var lokuð í fyrradag vegna
hafíss en í gær hafði ísinn í Látra-
víkinni hörfað eftir að hafa verið
landfastur þar eins langt og auga
eygði. Þá var brunagaddur
nyrðra, 9 stiga frost og stinnings-
kaldi að norðan.
-grh
una. Samkvæmt áætlun fjármála-
ráðuneytisins voru vanskil 5.jan-
úar sl. rúmlega einn miljarður
fjögur hundruð sjötíu og sjö milj-
ónir króna fyrir fyrstu 11 mánuði
ársins sem leið. Nærri tvö hundr-
uð fyrirtæki skuldayfir eina milj-
ón kr og að sögn Ólafs Ragnars
eru á vanskilalistanum alls konar
fyrirtæki, bæði stór og smá, þekkt
og óþekkt. Ólafur vildi ekki tí-
unda hverjir skulduðu mest, en
sagði að dæmi væri um að fyrir-
tæki skulduðu allt að 30 miljónir
kr.
Fæst af þeim fyrirtækjum sem
ekki hafa staðið í skilum á stað-
greiðslu hafa skilað stað-
greiðsluskýrslum, þannig að
nokkur óvissa ríkir um skuldir
einstakra fyrirtækja. Ráðuneytis-
menn töldu líklegt að útistand-
andi skuldir myndu lækka
eitthvað þegar skýrslurnar lægju
fyrir. Þeim 199 fyrirtækjum sem
skulda yfir eina miljón verða
gefnar tvær vikur til að ljúka
uppgjöri.
- Við munum loka hjá þeim í
síðasta lagi 15 mars. sem skulda
yfir eina miljón kr. Við ætlum að
taka hart á vanskilum á stað-
greiðslunni. Er hætta á því að til-
trú manna á staðgreiðslufyrir-
komulagið veikist ef innheimta á
henni er ekki í föstum skorðum,
sagði Ólafur Ragnar.
Ef staðgreiðslu er ekki skilað
getur það valdið vandræðum hjá
launafólki. Við álagningu opin-
berra gjalda verða lögð á alla op-
inber gjöld, en staðgreiðslan sem
greidd hefur verið kemur til frá-
dráttar. Hinir sem unnið hafa hjá
vanskilaaðilum verða krafnir um
greiðslu. Því er það forsenda þess
að launþegi þurfi ekki að greiða
gjöldin aftur, að hann geti fram-
vísað launamiðum sem sýna að
staðgreisla hafi verið dregin frá
launum.
- Það er trúnaðarbrot af hálfu
atvinnurekanda gagnvart launa-
fólki að skila ekki stað-
greiðslunni. Okkur sýnist að
þessi vanskil stafi ekki öll af
slæmu ástandi fyrirtækjanna. Það
er ótækt að forráðamenn fyrir-
tækja noti staðgreiðsluna í rekst-
urinn, sagði Ólafur Ragnar. -sg
Samninganefnd ríkisins sem fær það hlutverkaaðsemjaviðopinberra starfsmenn kom saman til síns fyrsta fundar í gær. Mynd Jim Smart
Samninganefnd ríkisins
Konur komnar með völdin
Fjármálaráðherra hefur skipað nýja samninganefnd ríkisins. Konur í
miklum meirihluta. Indriði 11. Þorláksson áfram formaður
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefur skipað
nýja nefnd sem fer með samning-
amál ríkisins. Nefndin er að
mestu leyti ný og athygli vekur að
í henni sitja að þessu sinni níu
konur. í þeirri nefnd sem nú hef-
ur verið lögð niður sat aðeins ein
kona.
Indriði H. Þorláksson verður
áfram formaður, en stjórn nefnd-
arinnar skipa auk hans þau Arn-
dís Steinþórsdóttir, deildarstjóri
hjá sjávarútvegsráðuneytinu,
Birgir Guðjónsson, skrifstofu-
stjóri launaskrifstofu ríkisins,
Guðrún Ásta Sigurðardóttir
deildastjóri í fjármálaráðuneyti,
og Guðríður Þorsteinsdóttir,
starfsmannastjóri Ríkisspítal-
anna.
Auk þeirra sem skipa stjórn
samninganefndarinnar voru í gær
skipuð í hana Arnhildur Ásdís
Kolbeins, deildarstjóri hjálauna-
skrifstofu ríkisins. Ásta Lára Le-
ósdóttir, launaskrárritari hjá
launaskrifstofu ríkisins, Berglind
Ásgeirsdóttir, ráðneytisstjóri fé-
lagsmálaráðuneytisins. Inga Sva-
va Ingólfsdóttir, starfsmanna-
stjóri Pósts og síma, Kristrún ís-
aksdóttir, deildarsérfræðingur
hjá menntamálaráðuneytinu,
Sigrún Ásgeirsdóttir, deildar-
stjóri hjá launaskrifstofu ríkisins,
og Þorsteinn Geirsson, ráðu-
neytisstjóri
dómsmálaráðuneytisins.
Með samninganefndinni munu
starfa þær Maríanna Jónsdóttir,
viðskiptafræðingur hjá fjármála-
ráðuneytinu, og aðstoðamaður
fjármálaráðherra, Svanfríður
Jónasdóttir.
-sg