Þjóðviljinn - 18.02.1989, Page 9
Niðurgreitt
sjónvarps-
efni
Ágúst Guðmundsson
kvikmyndagerðarmaður tekinn tali
Við úthlutun Kvikmyndasjóðs
á styrkjum i ár voru Ágústi
Cuðmundssyni veittar 10 miljón
Rœkjusjómenn við Djúp
Ne'rta að
skipta við
Bjartmar hf
Sjómenn vilja tryggingu fyrir
greiðslum. Fáistþærekki
geturfyrirtœkið misst
vinnsluleyfið.
Rækjusjómenn við ísafjarðar-
djúp neita að landa afla upp hjá
Bjartmari hf. á ísafírði nema fyr-
irtækið útvegi haldbærar trygg-
ingar fyrir greiðslum. Svo getur
farið að fyrirtækið verði svipt
vinnsluleyfi geti það ekki útvegað
viðunandi tryggingar.
Að sögn Kristins H. Gunnars-
sonar starfsmanns rækjusjó-
manna var þessi ákvörðun sjó-
mannanna samþykkt á fjöl-
mennum fundi þeirra fyrir
skömmu. Þá hefur Bjartmar hf.
ekki enn gert upp við 2 báta frá
síðustu hörpudisksvertíð og
nema skuldir fyrirtækisins við
annan bátinn vel á aðra miljón
króna.
Rækjukvóti fyrirtækisins er
150 tonn af þeim 1000 tonnum
sem leyfilegt er að veiða á yfir-
standandi vertíð og ef fyrirtækið
verður svipt vinnsluleyfi er búist
við að kvótanum verði skipt á
milli rækjustöðva á ísafirði. Um 7
rækjuvinnslustöðvar eru við ís-
afjarðardjúp og vinna afla af 32
bátum.
Á vertíðinni hefur uppistaðan í
rækjuaflanum verið 1. árs rækja
og af þeim sökum eru sjómenn
svartsýnir á að aukið verði við
kvótann. Verði það ekki gert bú-
ast menn við að vertíðinni ljúki
um miðjan mars.
______________________-grh
Fóstrur
Enginn ótti
Eins og sagt var í blaðinu í gær
eru áætlanir í gangi um að sam-
eina Fósturskóla fslands og
Kennaraháskólann. Þar var haft
eftir Gyðu Jóhannsdóttur skóla-
stjóra Fósturskólans, að hún ótt-
aðist sameininguna. Það er ekki
rétt hermt, og vill Gyða taka fram
í þess stað að hún legi ríka áherslu
á að menn velti því fyrir sér
gaumgæfilega hvort samruni sé
æskilegur og hvaða skilyrðum
verði að fullnægja í því sambandi.
Hún vill benda mönnum á nauð-
syn þess að velta fyrir sér öðrum
möguleikum til að efla fóstrunám
á íslandi sem sjálfstæða stofnun á
háskólastigi og kynnti á fundin-
um hugmyndir sínar í því efni.
__________________ eb
krónur til gerðar sögualdamynd-
ar. Ovíst er hins vegar hvort af
gerð myndarinnar geti orðið þar
sem heildarkostnaður er alls um
50 miljónir og óljóst hvernig að
fjármögnun verður staðið.
Af hverju söguöld?
„Frá því að ég gerði „Út-
lagann“ hefur mig langað til þess
að gera aðra sögualdarmynd. Ég
hef skrifað þrjú handrit, þó ekki
með ákveðna fornsögu í huga en
tekið mið af þeim almennt. Eftir
að hafa skrifað þessi þrjú handrit,
sem ég er sjálfur býsna ánægður
með er ég farinn að efast um að
þetta hafi verið rétt stefna hjá
mér, vegna þess hve erfitt reynist
að fjármagna svo viðamikil verk-
efni.“
Nú voru þér úthlutaðar tíu
miljónir frá Kvikmyndasjóði,
hvaða áhrif hefur það?
„Ég hafði ástæðu til þess að
ætla að ég fengi ekki minna að
raungildi en það sem ég fékk í
fyrra. Það fylgdi umsókn minni
sundurliðuð fjárhagsáætlun þar
sem lokatölur hljómuðu upp á
tæplega 50 miljónir, og jafnframt
lét ég þess getið að myndin yrði
því aðeins gerð að erlent fjár-
magn fengist í hana.“
Erlent segirðu, hvað fínnst þér
um afstöðu sjóðsins til crlendrar
samvinnu?
„Ja, mér finnst rétt hjá Kvik-
myndasjóði að taka mjög á-
kveðna afstöðu til þess að hve
miklu leyti tiltekið verkefni er
unnið af eða í samvinnu við er-
lenda aðila. Hitt er svo annað mál
að þegar maður fær úthlutað þá
fylgir styrknum skjal með
ákveðnum skilyrðum, og fari
menn eftir þeim útí æsar verður
samstarf við erlenda aðila vægast
sagt ýmsum vandkvæðum bund-
ið.“
Fyrir utan Nonna og Manna,
hvað hefur þú verið að fást við
síðastliðin ár?
„Undanfarin ár hef ég fyrst og
fremst verið að vinna fyrir salti í
grautinn. Það eru fimm ár síðan
ég gerði síðustu bíómyndina
mína og ég er nú orðinn óþreyju-
fullur að gera verulega góða
mynd.“
Er sögualdarmyndin góða
myndin?
„Ég get nú sem minnst um
hana sagt fyrr en ég fæ fullvissu
þess að hún verði barn í brók.“
Hvernig fannst þér staðið að
heildarúthlutuninni í ár?
„Á undanförnum árum hefur
umtalsverðum upphæðum verið
varið til styrktar handritagerðar
og oft á tíðum virðist vanta bein
tengsl milli þessara höfunda og
kvikmyndagerðarmanna og ég
hef enga trú á því að mörg þessa
handrita verði að kvikmyndum.
Á blaðamannafundinum um dag-
inn kom fram augljós óánægja út-
hlutunarnefndar með þau hand-
rit sem bárust í fullri lengd, því
var þar haldið fram að einungis
handrit Lárusar Ýmis og mitt
væru hæf og hlýtur þetta að
merkja að ef til þess kemur að ég
skili mínum styrk þá muni hann
Ágúst Guðmundsson. Kannski kvik-
mynd um kvikmyndunina á Nonna og
Manna? (Mynd: Jim)
alls ekki renna í neina aðra bíó-
mynd. Einnig vil ég benda á það
að þegar styrkir eru ekki greiddir
út sbr. Meffý frá því í fyrra, þá
kemur það fé ekkert öðrum kvik-
myndagerðarmönnum að notum.
Fyrir svo utan þetta þá er það mín
persónulega skoðun að með því
að styrkja heimildamyndir sé ver-
ið að niðurgreiða sjónvarpsefni.
Það væri mun eðlilégra að Menn-
ingarsjóður útvarpsstöðva styrkti
þær myndir, enda hefur slíkt ver-
ið gert.“
Hver er skemmtilegasta bíó-
myndin sem þú hefur séð?
„Tvímælalaust franska myndin
Ameriska nóttin í leikstjórn Fra-
ncois Truffaut, en hún greinir frá
upptöku á kvikmynd og öllum
þeim ævintýrum sem getur gerst
við slíkar aðstæður. Ég hafði
sérstaka ánægju af því að sýna
þessa mynd um borð í MS Orion,
þegar við vorum að vinna að
Nonna og Manna, vegna þess að
flest atvik myndarinnar áttu sér
hliðstæður í því sem var að gerast
hjá okkur, og er þar með talið
fjölbreytt en tilviljanakennt ást-
arlíf. Þegar sjálfsævisaga mín
verður rituð verður löngum kafla
varið í ástarlíf í Nonna og
Manna.“
eb
Laugardagur 18. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Eyleifur Þór Gíslason
F. 5. janúar 1973 — D. 12. febrúar 1989
Ég féll með útbreiddan faðminn
í fang mér jörðina tók,
og nam þegar nánd þeirrar tignar,
sem er nafnlaus í rœðu og bók.
(ljóðaþýð. Magnús Ásgeirsson
höf. óþekktur)
Nú er hann Eyji bekkjarbróðir
okkar horfinn á braut og minning
um góðan dreng lifir um ókomna
tíð.
Eyji var vinsæll á meðal bekkj-
arfélaga sinna sem og annarra.
Strax í barnaskóla setti hann mik-
inn svip á bekkjarheildina og í
skólaferðalaginu var hann ómiss-
andi.
Hann spilaði í nokkur ár í
skólahljómsveit Neskaupstaðar
og var þar góður félagi jafnt á
æfingum sem og ferðalögum.
Hann varð virkur í félagslífi
eftir að í Verkmenntaskólann
kom og er sárt til þess að hugsa að
við fáum ekki framar að njóta
starfskrafta og hugmyndaríki
hans þar. Alltaf þegar gera átti
annál fyrir þorrablót skólans var
leitað til hans og ekki brást hann í
þeim efnum frekar en öðrum.
Hann var orðheppinn, skemmti-
legur og mjög viljafastur. Það var
gaman að vera í návist Eyja því
alltaf var stutt í góða skapið og
glaðlyndið.
Ávallt var gott að koma í heim-
sókn til hans. Þar var manni vel
tekið jafnt af honum sem og fjöl-
skyldu hans.
Eyji var hæfileikaríkur og lýsti
það sér mjög vel í teikningum
hans sem voru áhrifamiklar og
góðar. Hann var ágætur náms-
maður þó að áhuginn hafi verið
misjafn eftir námsgreinum. Eyji
var duglegur til vinnu og eftirsótt-
ur af vinnuveitendum sem eflaust
eiga eftir að sakna hans bæði sem
ágæts drengs og duglegs vinnu-
manns.
Þó að orðin séu svo lítil og van-
máttug viljum við þakka Eyja
samfylgdina í gegnum árin sem
reyndust því miður allt of fá, en
þeirra ánægjulegu kynna sem við
höfðum af honum hefðum við
ekki viljað vera án.
Við vottum foreldrum Eyja og
aðstandendum okkar dýpstu
samúð og vitum að minningin um
góðan dreng mun hjálpa þeim í
þeirra sáru sorg.
Bekkjarfélagar