Þjóðviljinn - 18.02.1989, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 18.02.1989, Qupperneq 11
BRIDGE Ólafur Lárusson Úrýmsum áttum... íslandsmót kvenna og yngri spilara í sveitakeppni, undanrásir, verður spilað um þessa helgi í Sigtúni. Spila- mennska hefst kl. 13 í dag og lýkur annað kvöld. Búast má við að um 10 sveitir taki þátt í mótinu, í hvorum flokki. Enn er bið á meistarastigaskrá Bridgesambandsins, en vegna mis- taka í setningu varð að setja skrána upp á nýtt og prenta síðan nýtt upp- lag. Eftir 4 umferðir (4 spilakvöld) í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur er staða efstu sveita þessi: sveit Pólaris 89 stig sveit Braga Haukssonar 76 stig sveit MODERN Icelands 71 stig sveit Samvinnuferða/Landsýnar 71 stig Eftir 15 umferðir í aðaltvímenn- ingskeppni Skagfirðinga er staða ef- stu para þessi: Jón Viðar Jónmundsson-Halldór Árnason 157 Lárus Hermannsson-Óskar Karls- son 141 Jón Stefánsson-Sveinn Sigurgeirs- son 117 Eftirtaldar 4 sveitir spila til úrslita um Vesturlandsmeistaratitilinn í ár: sveit Sjóvá Akranesi sveit Ragnars Haraldssonar Grundarfirði sveita Jóns Ág. Guðmundssonar Borgarnesi sveit Hreins Bjömssonar Akranesi 12 sveitir tóku þátt í undankeppn- inni, sem spiluð var á Akranesi. Nýhafin er dreifing á Standard American á íslensku, sem Guðmund- ur Páll Arnarson hefur unnið upp. Bókin kostar aðeins kr. 1500. Óhætt er að mæla með bókinni, til aflestrar eða gjafa. Eftirtaldir spilarar hafa hlotið flest stig síðustu 5 árin, en einsog kunnugt er, hefur Bridgesambandið ákveðið að færa stigabókhaldið með tvennu lagi í framtíðinni. Samtals stig frá 1976 og áunnin stig, hver 5 ár í einu, héðan í frá. Röðin er þessi: Sigurður Sverrisson 585, Jón Bald- ursson 582, Aðalsteinn Jörgensen 539, Valur Sigurðsson 423, Guð- laugur R. Jóhannsson 410, Þórarinn Sigþórsson 407, Örn Arnþórsson 397, Karl Sigurhjartarson 389, Þorlákur Jónsson 384 Guðmundur Páll Arnar- son 378, Ásmundur Pálsson 378, Símon Símonarson 366, Björn Eysteinsson 337, Hermann Lárusson 298,Guðmundur Pétursson 293, Ás- geir P. Ásbjömsson 290, Guðmundur Sv. Hermannsson 290, Jón Ásbjöms- son 290, Ragnar Magnússon 289, Ólafur Lárusson 284, Hrólfur Hjalta- son 276, Sigtryggur Sigurðsson 274, Hjalti Elíasson 254 og Júlíus Sigur- jónsson 239. Talan hjá Ásmundi er ekki alveg á hreinu, þarsem nafn hans datt út á lista BSI. Samtals hafa 51 spilari hlotið 150 stig eða meir, síðustu 5 árin, allt karl- menn. Þaraf eru 9 spilarar sem em undir 30 ára aldri og aðrir 9 sem eru eldri en 50 ára. Ljóst er að 5 pör fara héðan til þátt- töku í Evrópumótinu í tvímenning, sem spilað verður á ftalíu í næsta mánuði. Þessi pör em: Ásgeir- Hrólfur, Bragi-Sigtryggur, Hermann-Ólafur, Jakob-Magnús og Jón-Guðni. Óvíst er með þátttöku fleiri para, en ísland á rétt á að senda 7 pör til keppni. Þetta er í annað sinn sem þetta mót fer fram, en það er haldið á tveggja ára fresti. Síðast var mótið haldið í París 1987 og þá vom 7 pör héðan. Af ofangrcindum pörum tóku þeir Hermann og Ólafur og Magnús Ólafsson, þátt í Parísarmót- inu. Auk þeirra var Jakob Kristinsson einnig á svæðinu, en sökum tafa í flugi, innanlands og erlendis, náði hann ekki til móts á réttum tíma. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Umræðufundur um EB ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Kópavogi Morgunkaffi Sunnudaginn 19. febrúar í framhaldi af opinni ráðstefnu Alþýðubandalagsins um EB, heldur Alþýðubandalagið umræðufund að Hverfisgötu 105 frá kl. 13-17. laugardaginn 18. feb. kl. 10-12. Valþór Hlöðversson hellir uppá könnuna á skrifstofunni í Þinghóli Stjórnln Stuttar framsögur og umræður. Tora Aasland Houg, þingmaður Sósíalíska vinstriflokksins í Noregi situr fyrir svörum. Félagar fjölmennið. AB Alþýðubandalagið í Kópavogi Bæjarmálaráð Alþýðubandalagið í Kópavogi boðar til fundar mánudaginn 20. febrúar kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11. Áríðandi umræður um fjármál bæjarins. Stjórn ABK ABR Spilakvöld Þriðja spilakvöldið í fjögurra kvölda keppninni verður þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Svavar Gestsson menntamálaráðherrá verður gestur kvöldsins. Mætið vel og stundvislega. Spilanefndin. Svavar NÚ VERÐfl MALLORCA- OG BENIDORMFERÐIRNAR ENNÞÁ ÖDÝRARI! í MAÍ OG JUNÍ! HVERS VEGNA AFSLÁTTUR? Margir forsvarsmenn ferðamála á Spánl sjá nú fram á samdrátt í ferðamannastraumi fyrrl hluta sumars. Umboðsaðllar okkar þar í landi voru fljótlr að taka vlð sér og mæta þessum nýju aðstæðum með því að bjóða okkur afslátt á glstingu í maí og júní. Vlð látum þennan atslátt ganga balnt tll farþaga okkar. HVERJIR FÁ AFSLÁTT? Alllr farþegar okkar sem ætla tll Mallorca eða Benidorm, í maí og júní og bóka og staðfesta ferð sína fyrir 1. apríl. HVAD ER AFSLÁTTURINN MIKILL? k,24ÍUíJ fyrlr 6 manna (jölskyldu. þ.e. 4000 kr á mann í 8]a og 4ra vlkna terðum. 2000 kr. á mann í 2Ja vlkna ferðum. Það munar um mlnnal Það er snjallt að gera varðsamanburð áður en pantað er. OPDASUMWUAGHN KL. 13:00 17:00. Sumarbæklingur kynntur, kynningarmynd, kaffi, sælgætl og sumarstemmning. SKRALLITREJÐUR og EIRÍKUR FJALAR, aldrei betri! Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Sími 91 -69-10-10 • Suðurlandsbraut 18 • Sími 91 -68-91 -91 Hótel Sögu við Hagatorg • Sími 91 -62-22-77 • Skipagötu 14 • Akureyri • Sími 96-2-72-00

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.