Þjóðviljinn - 22.02.1989, Síða 2
FRETTIR
Lífeyrissjóðirnir
Obreytt vaxtastefna
Benedikt Davíðsson: Fylgjum áfram meðalvöxtum bankanna. Pétur Blöndal: Við munumekki
beita okkurfyrirþvíað sjóðirnir lækkisína vexti. Porgeir Eyjólfsson: Lœkkuðum vextina til að
létta á greiðslubyrði sjóðfélaga
Við munum áfram fylgja þeirri
reglu að láta vexti af lífeyris-
sjóðslánum til sjóðfélaga fylgja
meðalvöxtum bankanna eins og
verið hefur frá því vextir voru
gefnir frjálsir, sagði Benedikt
Davíðsson formaður stjórnar
Sambands almennra lífeyrissjóða
þegar hann var spurður hvort
þeir myndu lækka vexti af lánum
sínum í kjölfar vaxtalækkunar
hjá Lífeyrissjóði verslunar-
manna.
Allt frá því vextir voru gefnir
frjálsir í nóvember 1986 tóku
stjórnir lífeyrissjóðasamband-
anna þá ákvörðun að vextir af
lánum til sjóðfélaga réðust af
þeim meðalvöxtum sem Seðla-
bankinn reiknaði út og byggir á
þeim vöxtum sem bankarnir
bjóða sínum viðskiptavinum. í
dag eru meðalvextir 8,1%, en
hæst hafa þeir farið í 9,5%.
- Við ákváðum að lækka vext-
ina úr 8% í 7%. Á þann hátt vilj-
um við koma til móts við félags-
menn okkar og létta á þeim
greiðslubyrðum sem háum vöxt-
um fylgja. Einnig viljum við
leggja okkar af mörkum til að
lækka vexti almennt, sagði Þor-
geir Eyjólfsson forstjóri Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna. Hann
sagði jafnframt að sjóðurinn
hefði nokkra sérstöðu í vaxtamál-
um og benti á í því sambandi að
sjóðstjórnin hefði ákveðið, þegar
vextir stefndu upp fyrir 8%, að
setja markið þar. En á sama tíma
hefðu aðrir sjóðir tekið allt að
9,5% raunvexti af sínum lánum.
- Það er hlutverk okkar sem
sitjum í stjórnum þessara sjóða
að ávaxta þá eftir bestu getu,
sagði Benedikt aðspurður um
hvers vegna sjóðirnir héldu uppi
svona háum raunvöxtum. Hann
sagði að þessi okurvaxtastefna
myndi að vísu ekki leysa allan
þann vanda sem lífeyrissjóðirnir
standa frammi fyrir. „Ef ríkis-
valdið er tilbúið að tryggja okkar
sjóðfélögum sömu lífeyrisréttindi
og td. opinberir starfsmenn hafa,
gætum við lækkað vextina
allverulega," sagði Benedikt.
Aðspurður um hvort stjórn
Landssambands lífeyrissjóða ætl-
aði að beita sér fyrir að sjóðirnir
innan þess lækkuðu vextina sagði
Pétur Blöndal formaður sam-
bandsins að það væri alfarið á
valdi stjórnar hvers sjóðs að gera
það. Hann vildi ekkert um það
segja hvort aðrir sjóðir myndu
fylgja fordæmi verslunarmanna.
-sg
Lánsfjárlög
Ríkið fai
36,5
miljaiða
að láni
Ríkið hyggst fá 36,570 miljarða
að láni í ár, þar af 20,820 milj-
arða erlendis en 15,750 miljarða
hérlendis.
Þetta kom fram í máli Ólafs
Ragnars Grímssonar fjármála-
ráðherra á alþingi í gær. Hann
kvað upphæðina hafa hækkað um
7,940 miljarða í meðförum þings-
ins frá því frumvarpið var fyrst
lagt fram í nóvember, þar af væru
5,7 miljarðar vegna halla á ríkis-
sjóði á árinu sem leið. 1.750 milj-
ónir væru vegna heimilda opin-
berra fjárfestingasjóða en 450
miljónir vegna nýrra verkefna og
gengisbreytinga.
Fjármálaráðherra gat þess að
þjóðhagsspá fyrir 1989 gerði ráð
fyrir að halli af viðskiptum við
útlönd yrði 3,3% af áætlaðri
landsframleiðslu. Þetta væri spá
um betri útkomu en reiknað
hefði verið með, til samanburðar
mætti geta þess að útkoman fyrir
1988 hefði verið 4,1% halli. ks_
Tálknafjörður
10 ára biö
á enda
Sveitarstjórinn: Nýtt íþróttahús tekið ínotkun
aðhluta. Kostar 100 miljónirfullbúið. Ekkert
atvinnuleysi
Félagarnir Helgi og Jón L. skildu
jafnir í gær.
Skák
Samtök
fiskvinnslustöðva
Mótmæla
óstofnuðum
■ /
SJOOI
Taka þarfaföll tvímæli
um endurgreiðslu 800
miljóna króna láns
Vérðjöfnunarsjóðs
Stjórn Samtaka fiskvinnslu-
stöðva mótmælir harðlega stofn-
un Hlutabréfasjóðs Byggðastofn-
unar og að ekki skuli vera breytt
texta bráðabirgðalaganna þess
efnis að ríkissjóður taki á sig 800
miljóna króna lán Verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins.
Samtök fiskvinnslustöðva telja
að stofnun Hlutabréfasjóðs geti
leitt til mismununar fyrirtækja og
byggðarlaga og virðist einungis
eiga að tryggja kröfur skuldar-
eigenda í fyrirtækjum sem eru
komin í þrot.
Þá telja Samtökin engar líkur á
að Verðjöfnunarsjóður eða fisk-
vinnslan muni geta greitt þetta
lán af tekjum sínum. Stjórnin tel-
ur að þrátt fyrir að í umfjöllun
ráðamanna, ma. sjávarútvegs-
ráðherra, hafi komið fram sú
skoðun að lánið muni falla á ríkis-
sjóð þurfi að taka af öll tvímæli
þar um í texta bráðabirgðalag-
anna.
-grh
Jafnaðarstefnan
í algleymingi
Sjöunda umferð Fjarkamóts
Skáksambands íslands var tefld á
Hótel Loftleiðum í gær. Fátt
óvæntra úrslita leit dagsins Ijós,
sovésku stórmeistararnir skiptu
sínum vinningi bróðurlega á milli
sín og það gerðu einnig íslenskir
kollegar þeirra, Helgi og Jón L.,
sem og Bretarnir Watson og
Hodgson.
Mótið er nú hálfnað (13 um-
ferðir alls) og hefur enginn kepp-
enda enn tekið leiftursprett og
stungið félaga sína af. Að sönnu
er sovéski stórmeistarinn Júrí
Balasjof efstur með 5 v. en aðeins
hálfum vinningi neðar eru þeir
landi hans Eingorn og „okkar“
maður, Helgi Olafsson. Margeir
Pétursson kemur svo á hæla þeim
og hefur hreppt 4 vinninga.
Úrslit 7. umferðar:
Karl-Sævar: 1 -0
Sigurður Daði-Björgvin: 1-0
Eingorn-Balasjov: jafnt
Watson-Hodgson: jafnt
Helgi-Jón L.: jafnt
Hannes Hlífar-Margeir: jafnt
Tisdall-Þröstur: óvíst
ks.
Fyrir skömmu var tekimm í
notkun á Tálknafirði hluti af
nýju íþróttahúsi sem verið hefur í
byggingu í 10 ár. Þar á meðal er
25 m löng sundlaug, búningsað-
staða og hiuti af íþróttasal sem
jafnframt er vísir að félagsheimil-
isaðstöðu.
Að sögn Arnars Pálssonar
sveitarstjóra á Tálknafirði mun
taka 4-5 ár að fullgera íþróttahús-
ið sem verður 1460 fermetrar að
stærð og áætlað er að það muni
kosta fullbúið um 100 miljónir
króna. Nýja íþróttahúsið gjör-
breytir allri íþróttaiðkun heima-
manna sem og allri leikfimi-
kennslu skólabarna, en um 380
manns búa á Tálknafirði.
Mjög gott atvinnuástand hefur
verið þar vestra og ekkert
atvinnuleysi. Burðarásar at-
vinnulífsins eru Hraðfrystihús
Tálknafjarðar hf. sem gerir út to-
garann Tálknfirðing og
saltfiskverkunarstöðin Þórsberg
hf. með 2 netabáta. Arnar sagði
að fyrirtækin hefðu staðið
skynsamlega að fjárfestingum í
nýliðnu góðæri og því væri staða
þeirra mun skárri en margra ann-
arra sjávarútvegsfyrirtækja um
þessar mundir. Þó kemur 10%
kvótaskerðingin sér afar illa fyrir
togarann og er búist við að hann
þurfi að vera bundinn við bryggju
í 3-4 mánuði af þeim sökum.
Auk þess er gerður út fjöldi
smábáta þaðan vor og sumar og
til að bæta hafnaraðstöðu þeirra
er í bígerð smíði flotbryggju í ár.
Þá eru starfrækt 3 fiskeldisfyrir-
tæki í firðinum sem njóta góðs af
heitu vatni sem þar er að finna.
Það eru fyrirtækin Sveinseyrarlax
hf., Þórslax hf. og Lax hf. og hafa
10 manns atvinnu hjá þeim.
Tvær kaupleiguíbúðir eru í
smíðum á vegum sveitarsjóðs en
á Tálknafirði sem og víðar er
mikill skortur á leiguhúsnæði
fyrir þá fjölmörgu sem vilja vinna
þar en eru ekki tilbúnir að fjárf-
esta í eigin húsnæði til að byrja
með. -grh
Eining á Akureyri
Snúum vöm í sókn
I komandi samningum verður að endurheimta kaupmátt lægstu launa
sem náðist í aprílsamningunum í fyrra
| þeim samningum sem fram-
undan eru verður að stöðva þá
þróun að kjörin verði sífellt lak-
ari með hverjum mánuðinum
sem líður og það ber að snúa vörn
í sókn og leitast við að endur-
heimta þann kaupmátt lægstu
launa sem náðist við samninga-
gerðina í apríl í fyrra, segir i
ályktun sem nýlega.var samþykkt
á fundi trúnaðarmannaráðs
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri.
Fundurinn tekur mjög ein-
dregið undir þá ályktun Verka-
mannasambandsins að í komandi
kjarasamningum verði aðal-
'áherslan lögð á að tryggja fulla
atvinnu, jöfnun lífskjara og að
verðbólgu verði haldið í skefjum.
Trúnaðarmannaráðið telur að
eina vonin til að ná árangri í kom-
andi samningum sé að verkalýðs-
hreyfingin komi fram sem sam-
stæð heild og skorað er á öll
verkalýðsfélög að vinna ötullega
að sem víðtækastri samstöðu.
Þá bendir fundurinn á að óðum
styttist í að núgildandi samningar
renni út og því tímabært að ljúka
innbyrðis undirbúningi samn-
ingagerðar og hefja alvöru við-
ræður bæði við vinnuveitendur
og fulltrúa ríkisvaldsins. f álykt-
un fundarins er lögð rík áhersla á
að afxeggja verði þann ósið að ný-
ir samningar séu ekki gerðir fyrr
en löngu eftir að eldri samningar
eru fallnir úr gildi. -grh
Verðlagslög
Búin undir
umþóttun
Verðlagslög eru nú búin undir
þær breytingar er verða um mán-
aðamótin þegar verðstöðvun fell-
ur úr gildi en í garð gengur um-
þóttunartími strangs aðhalds í
verðlagsmálum.
Vegna þessa mælti viðskipta-
ráðherra fyrir þríþættri breytingu
á verðlagslögum á alþingi í gær.
Nýmælin ganga útá það að auka
virkni verðlagsráða með því að
rýmka ákvæði um setu vara-
manna, aukna upplýsingaskyldu
fyrirtækja gagnvart verðlags-
stofnun og að orkusölufyrirtæki
ríkisins falli undir ákvæði verð-
lagslaga tímabundið eða þá 6
mánuði sem umþóttunin varir.
ks.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. febrúar 1989