Þjóðviljinn - 22.02.1989, Qupperneq 11
LESANDI
VIKUNNAR
I DAG
Elísabet Gunnarsdóttir kennari. Mynd: Jim Smart.
Ein af þeim sem
ferðast ýmist með
Bens eða Volvo
sem ég veit ekkert hver er.
Heima hjá mér drekk ég ýmsar
tegundir, en undanfarið hef ég
verið með kaffi frá Kenýa, ég
byrjaði á því eftir að ég las bókina
hennar Karen Blixen, Jörð í Afr-
íku. Kenýa-kaffi fær maður í Te
og kaffi á Laugaveginum, það er
bragðsterkt en ekki rammt. Svo
drekk ég Capuccino niðri á
Mokka. Kaffihúsakaffi er allt
öðruvísi en annað kaffi af því að
því fylgir kaffihús.“
Hvað borðarðu aldrei?
„Ekkert. Mér er sagt að ég sé
bæði sælkeri og átvagl. Sem er
náttúrlega ekki satt!“
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
„Ég myndi vilja búa við sjó -
það yrðu að vera fjöll - en það má
vera hlýrra en á íslandi, og al-
mennileg borg.“
Hvernig finnst þér þægilegast
að ferðast?
„Það fer eftir fjarlægð. Ef ég
þarf að fara langt vil ég fljúga,
millileiðir vil ég fara í lest, stutt
fer ég í leigubíl eða gangandi. Ég
er ein af þeim sem ýmist ferðast í
BenseðaV olvo - það er að segj a í
leigubíl eða strætó!"
Hvernig sérðu framtíðarlandið
fyrir þér?
Þannig að þar gildi gamla
formúlan: allir leggi fram eftir
getu en fái eftir þörfum. Menn
þar eru ekki eins framkvæmda-
stressaðir og hér á landi núna
þegar allir þurfa alltaf að vera að
gera eitthvað sem er oft á tíðum
ekki neitt nema í mesta lagi vit-
leysa. Fólk verður hrætt ef það
hefur ekki einhver fyrirskipuð
verkefni og fær samviskubit ef
það er ekki eitthvað að puða. Það
sem gefur mest er ekki endilega
að gera eitthvað heldur kannski
að liggja úti í hlöðu í rigningu að
sumar-
lagi ...“ •
Hvaða spurningu langar þig til
að svara að lokum?
„Um hvernig veðurfregnirnar
verði á morgun.“
Hvernig verða veðurfregnirn-
ar á morgun, Elísabet?"
„Þær verða svona: í dag var
vægt frost, logn og sólskin um allt
land. Og veðurspáin fyrir næstu
viku er á þá leið að veður muni
haldast óbreytt!“
Hvað ertu að gera núna, Elísa-
bet?
„Kenna ensku við Ármúla-
skóla og vera bráðabirgðaaðstoð-
arskólastjóri. Titlar gerast ekki
betri og lengri! Og reyna að muna
ekki eftir að ég ætla í próf í vor.“
Hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
„Kenna ensku við Ármúla-
skóla og þýða Kvennaklósettið
eftir Marilyn French. Svo var ég
að skrifa Nýja kvennafræðarann
með þér og fleiri konum.“
Hvað finnst þér gott að gera í
frístundum?
„Sofa, lesa bækur, fara út
undir bert loft - samt vil ég ekki
of mikið erfiði, ekki of há fjöll.
Borða, skoða myndlist. Kannski
er röðin ekki rétt en blandan er
þessi.“
Hvaða bók ertu að lesa núna?
„Ég var að ljúka við Albany-
sögurnar hans Williams Kenne-
dy. Járngresið var ég búin að lesa
á ensku áður en þýðing Guðbergs
kom út og hef ekki skoðað þýð-
inguna. Svo skrifaði Kennedy
aðra sögu sem gerist á sama tíma
og Járngresið en fjallar um son
söguhetjunnar þar. Hún heitir
Billy Phelans's Greatest Game.
Það er gaman að lesa þessar
bækur, hann býr til sérkenni-
legan heim sem er byggður rón-
um, smáglæpamönnum og spila-
sjúklingum og fyrsta bókin var
um leynivínsala og mafíugangst-
era. Þetta er svolítið önnur mynd
af Albany en Henry James gefur,
og þetta eru ekta icarlabækur!
Svo er ég að lesa sögu Kýpur.
Vinur minn fór þangað og sagði
mér ýmislegt þaðan sem vakti
áhuga minn á eynni. Hún hefur
aldrei verið í miðju átaka en mjög
oft rétt fyrir utan. Allir komu
þarna við, allt frá forn-Egyptum
og krossfarariddurum til Breta.
Fyrsta deilan sem ég man eftir í
heimsfréttunum var Kýpurdeilan
og Makaríos erkibiskup.“
Hvað finnst þér best að lesa í
rúminu á kvöldin?
„Bækur af hæfilegri stærð.
Magnús Már Lárusson prófessor,
sem kenndi mér einu sinni, flokk-
aði bækur í tvennt, þær sem væri
hægt að lesa í rúminu og þær sem
ekki væri hægt að lesa í rúminu.“
Hvaða bók myndirðu taka með
þér á eyðiey?
„Má ég ekki taka með mér
harðan disk? Þá kem ég svo
miklu.“
Hver var uppáhaldsbarnabók-
in þín?
„Þjóðsögur Jóns Árnasonar og
Lína langsokkur. Ég hafði alltaf
mikið álit á henni.“
Hvað sástu síðast í leikhúsi?
„Hamlet. í annað sinn á einu
ári. Mig langaði til að prófa að sjá
sýningu tvisvar, tilfellið er að
maður heyrir aðra hluti og kemur
auga á margt nýtt þegar maður
fer aftur á leiksýningu.“
Er eitthvað í leikhúsi núna sem
þú ætlar ekki að missa af?
„Já, Koss kóngulóarkonunnar.
Svo langar mig að sjá Nemenda-
leikhúsið og líka Hver er hræddur
við Virginíu Woolf fyrir norðan
og fara á skíði í leiðinni.“
En í bíó?
„Járngresið."
En í sjónvarpi?
„Matador, auðvitað!“
En í útvarpi?
„Ég hlusta stundum á klassíska
tónlist í útvarpinu, og svo hlusta
ég á morgunútvarp Rásar 2 upp
úr klukkan sjö.“
Hcfurðu alltaf kosið sama
stjónmálaflokkinn?
„Já.“
Hvaða stjórnmálamann langar
þig mest til að skamma?
„Svavar Gestsson - af því að ég
hef von um að það dugi.“
Hvernig myndir þú leysa efna-
hagsvandann?
„Ég myndi hætta að mjatla
peningum út um allt til að hafa
alla góða og gera eitthvað al-
mennilegt í staðinn."
A að lækka kaupið ef fyrirtæki
gengur illa?
„Ekki hjá starfsmönnum, en
eigendur gætu minnkað við sig.“
Hvernig á húsnæðiskerfið að
vera?
„Fólk á ekki að þurfa að eyða
mörgum árum í að eignast
steinsteypu. Það er ágætt að hafa
Búsetakerfið svo fólk geti borgað
íbúðirnar eins og það sé að borga
leigu. Annars er óþarfi að byggja
miklu meira. Við erum að týnast
inn í þessi einbýlishús okkar.“
Hvaða kaflltegund notarðu?
„{ vinnunni drekk ég alltof
mikið af kaffi af einhverri tegund
þJÖOVILJINN
22. FEBRÚAR
miðvikudagur í átjándu viku
vetrar, fjórði dagurgóu,
fimmtugasti og þriðji dagur árs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
8.59 en sestkl. 18.24.Tungl
minnkandi á þriðja kvartili.
VIÐBURÐIR
Pétursmessa. Fæddur Jón Stef-
ánsson listmálari 1881.
FYRIR50 ÁRUM
Vitnaleiðsla fyrir Félagsdómi
um atvinnukúgun Skjaldbyrginga
í Hafnarfirði fer fram í dag. Mála-
færslumaður Skjaldbyrginga
færirenginrökfyrirkröfumsínum
á hendur Hlíf. Guðm. í. Guð-
mundsson afneitar sínum eigin
lögskýringum um gildi taxta.
Franco kominn til Barcelona.
Samningarnir við Frakkaganga
illa.
Vilhjálmur Þór tekur við banka-
stjórn í Landsbankanum.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lytj-
abúöa vikuna
17.-23. febr. erí Lyfjabúðinni löunniog
GarösApófeki.
Fyrrnefnda apófekiö eropið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10frídaga). Síðarnefnda apótekiðer
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LOGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
00
Seltj.nes sími 1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavik sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltj.nes simi 1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sim-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeíld
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalansHátúni 10B. Alladaga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspitali: alia
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alladaga 15-16og 19-19.30.Klepps-
spftalinn:alladaga 15-16og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKI. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf I sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
US-félagið Álandi 13. Opið virkadagafrá
kl. 10-14. Simi 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konursem beittar
hafaverið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Siminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opiö hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga kl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf mag nsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími
21260 alla virka daga kl. 1—5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aöstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja við smitaða og sjúka og
aðstandendurþeirra. Hringið í sima91-
224400 alla virka daga.
GENGIÐ
Gengisskráning 21. febrúar 1989 kl.
9.15.
Sala
Bandarikjadollar....... 51,33000
Sterlingspund............ 90,05600
Kanadadollar............. 43,19800
Dönskkróna................ 7,11930
Norskkróna................ 7,64240
Sænskkróna................ 8,11290
Finnskt mark........... 11,94000
Franskurfranki............ 8,13280
Belgískurfranki........... 1,32070
Svissn.fianki............ 32,54910
Holl. gyllini............ 24,53340
V.-þýsktmark............. 27,69360
ftölsk líra............... 0,03782
Austurr. sch.............. 3,93790
Portúg. escudo............ 0,33770
Spánskurpeseti............ 0,44430
Japansktyen............... 0,40302
Irsktpund................ 73,84100
KROSSGATA
1 2 3 n 4 6 8 7
•
9 ió □ 11
12 13 r: 14
•1 18 18 r"i l J
17 1S L. J 19 ”
Í1 n 22 iá □
24 28 ‘
Lárétt: 1 krass4sía8
boltar 9 bás 11 ugg 12
ær 14 frá 15 kálaði 17
tangar19klampi21
spor 22 nabbi 24 trað-
kaði 25 hár
Lóðrétt: 1 dugleg2
Ijómar 3 snyfsi 4 mikla
5 stefna 6 mála 7 mjólk-
urhlaup10toppar13
hljóða16grýtu 17 tíö-
um 18togaði20ílát23
samstæðir
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 kvef4þrek8
klárinn9ætla11 Etna
12 fjandi 14 il 15 gáfa
17óðast19sói21 arm
22 takk 24rati 25lauk
Lóðrétt: 1 kræf2ekla
3 flangs 4 þreif 5 rit 6
enni 7 knalli 10 tjóðra
13 dátt 16 aska 17 óar
18amt20óku23al
Miðvikudagur 22. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11