Þjóðviljinn - 25.02.1989, Blaðsíða 1
Laugardagur 25. febrúar 1989 40. tölublað 54. árgangur
Vinnumarkaður
Konur hafa 60%
af tekjum karla
Konur á aldrinum 35-50 ára ná að meðaltali aðeins 45 % af
meðaltekjum karla á sama aldri. Minnstur launamunur í kennarastétt.
Mesturhjá bankastarfsmönnum, á sjúkrahúsum og elli- og
barnaheimilum. Kvenkynsforstjóraraðeins hálfdrœttingar á við
karlana
Lítið hefur dregið saman með
tekjum karla og kvenna á
vinnumarkaði á síðustu árum en
Listahátíð
Krakka-
vika á
Siglu-
firði
Hátíð og skemmtun
fyrirbörnin íheila viku
Listahátíð barnanna á Siglu-
firði, sem nefnd hefur verið
„Krakkavika“, hefst formlega á
morgun sunnudag með tónleikum
og sýningu í ráðhúsinu á mynd-
verkum eftir börn á barnaheimili
bæjarins.
Að sögn Jóhönnu Kristjáns-
dóttur forstöðumanns barna-
heimilisins verður mikið um að
vera í bænum á „Krakkavik-
unni“. Á þriðjudag og fimmtu-
dag sýnir leikhópur starfsfólks á
barnaheimilinu og annarra
bæjarbúa atriði úr Kardimomu-
bænum í Nýja bíói. Á miðviku-
dag verða barnatónleikar í ráð-
húsinu og „Krakkavikunni" lýk-
ur með sögustund næsta laugar-
dag.
- Þessi vika verður fyrir börnin
hér á Siglufirði og það eru allir
áhugasamir, jafnt börn sem full-
orðnir, að gera þessa hátíð sem
veglegasta og skemmtilegasta,
sagði Jóhanna Kristjánsdóttir.
á sama tíma hefur konum og eink-
um giftum konum á vinnumark-
aði stórfjölgað. Að meðaltali hafa
konur um 60% af tekjum karla.
Þar sem launamunurinn milli
kynja er mestur á aldursbilinu 35-
50 ára, hafa konur að meðaltali
aðeins 45% af tekjum karla. Þess-
ar niðurstöður koma fram í nýút-
komnu sérriti Þjóðhagsstofnunar
um tekjur karla og kvenna á ís-
lenskum vinnumarkaði.
Þessi úttekt á tekjuskiptingu
kynjanna er unnin að ósk forsæt-
isráðuneytisins og voru fyrstu
drög að henni lögð árið 1984. Sá
hluti niðurstöðu athugananna
sem nú er birtur er unninn upp úr
skattframtölum frá árunum 1980
til 1986. Þá var einnig gerð sér-
stök könnun þar sem leitað var
beint til launafólks og er hún nú í
vinnslu á vegum Framkvæmdan-
efndar um launamál kvenna.
Lengri vinnutími karla en
kvenna er ein skýringin á
launamuninum sem könnun
Þjóðhagsstofnunar sýnir framá,
en samkvæmt úrtakskönnun
kjararannsóknanefndar var vinn-
utími verkakvenna um 80% af
vinnutíma verkakarla árið 1986.
Launamun milli kynja í verslun-
arstétt er ekki hægt að skýra á
sama hátt þar sem vinntímu
kvenna í þeirri stétt var um 95%
af vinnutíma karla.
Minnstur er munur á meðal-
tekjum á meðal kennara og
skólastjóra og ófaglærðs verka-
fólks. Mest hallar hins vegar á
konurnar í „hinum hefðbundnu“
kvennastörfum, í bönkum, á
sjúkrahúsum, elli- og barna-
heimilum og eru þó læknar og
sérfræðingar undanskildir. Þá
eru fullvinnandi forstýrur aðeins
hálfdrættingar á við karla í for-
stjórastólum.
Meðaltekjur voru almennt
iægstar í áðurnefndum „hefð-
bundnum kvennastörfum‘% en
hæstu meðaltekjurnar höfðu hins
vegar sjómenn, læknar og
tannlæknar og ýmsir yfirmenn,
forstjórar og sérfræðingar en
karlar eru í miklum meirihluta í
öllum þessum stéttum.
-íg-
Fjögur högg á fimmtu braut, en þess skal getið að hún er sérstaklega
erfið. Ólafur Ragnar Grímsson er þaulvanur minigolf-leikari og lét ekki
á sér standa við opnun minigolf-leikjasalar í Ármúla í gær. Þetta er
mjög góð fjölskylduskemmtun og ég mun áreiðanlega koma hingað
aftur, sagði Ólafur og brunaði brosandi með kylfuna milli brauta. Mynd
Jim Smart.
Arnarflug
Samningar ganga treglega
Lítil von tilaðsaman gangimeðríkinu ogFlugleiðum. Steingrímur J. Sigfússon: Stendur mikið
ímönnum að leysa dœmið. ASÍ íhugar samning til þriggja ára við Arnarflug. Gœti liðkaðfyrirþátttöku
nýs hluthafa. Gengur hvorki nérekurhjáArnarflugsmönnum að safna auknufé
Samningaviðræður ríkisins og
Flugleiða stóðu yfír í allan
gærdag og eftir kvöldmat mættu
forsætisráðherra, fjármálaráð-
herra og viðskiptaráðherra auk
samgönguráðherra í viðræðurn-
ar. Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði í viðtali við
Þjóðviljann í gærkvöldi að samn-
ingaviðræðurnar gengju treglega
og það stæði mjög í mönnum að
leysa þetta dæmi. Það yrði hins
vegar reynt til þrautar.
Ljóst er að Arnarflug er talið
verðleggja sig of hátt, sérstaklega
þegar tekið er mið af 500 miljón
króna skuld félagsins. Flugleiðir
telja sig ekki vera í aðstöðu til
mikilla fjárútláta enda standa
þeir í miklum fjárfestingum
vegna flugvélakaupa og spurn-
ingarmerki er sett við hversu
miklar fjárhæðir ríkið er fúst til
að leggja í viðskiptin. Margar
leiðir hafa verið ræddar, þeirra á
meðal að ríkið noti sitt framlag til
Arnarflugs sem hlutafjáreign í
Flugleiðum og nái þar með manni
eða mönnum í stjórn félagsins.
Hins vegar er enn sá möguleiki
opinn að Arnarflug fari hreinlega
í gjaldþrot.
Miðstjórnarfundur ASÍ ákvað
í gær að beina því til aðildarfélaga
sinna hvort þau væru tilbúin að
taka þátt í samningi til þriggja ára
um orlofsferðir við Arnarflug. Er
talið að sumir aðilar innan
Samvinnuferða-Landsýnar og
.Pólitík.á .
laugamegi
Pólitískt hádegisspjall á
Hverfisgötu 105,4. hæðkl. 11-14
í dag.
skólakerfið
menningin
kjaramálin
varaflugvöllurinn
ríkisstjórnin
Þjóðviljinn/Alþýðubandalagið I Reykjavik framtíðin
Svavar Gestsson menntamálaráðherra
Allirvinstrimenn velkomnir
miðstjórnar ASÍ geri sér vonir
um að ef takist að semja um nægi-
legan fjölda sæta til þriggja ára
með þessum hætti, megi glæða
áhuga fjársterkra aðila til að ger-
ast hluthafar í Arnarflugi og losa
félagið þar með úr þeirri úlfa-
kreppu sem það er í. phh
Kaupum ekki
góðan vinnu-
anda aftur
Michael Prendergast breskur
barnalæknir og barnageðlæknir í
fróðlegu viðtali þar sem hann
gagnrýnir harðlega árásir Mar-
grétar Thatcher á breska
heilbrigðiskerfið.
Sjá síðu 9