Þjóðviljinn - 03.03.1989, Blaðsíða 16
I
‘
Föstudagur 3. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17
Bardagavélin Mike Tyson varði heimsmeistaratitil sinn sl. sunnudag. Hann lærði að slást á götum Brooklyn.
í hans augum er boxið barátta upp á líf og dauða
sinnum. Bruno sló 170 högg og
hitti 37 sinnum.
„Ég hef alltaf sagt að ég sé er
besti boxari heimsins. Hvernig
voga þeir sér að skora mig á hólm
með jafn frumstæða kunnáttu og
þeir hafa? Allir sem gera það
hafa skrifað undir eigin dauða-
dóm,“ stundi Tyson að leik lokn-
um.
Og það er hætt við að bið verði
á því að áskorandi fáist. Fyrir
leikinn gegn Bruno hafði Tyson
ekki mætt í hringnum síðan í júní
í fyrra og nú í augnablikinu er
enginn boxari sjáanlegur sem
kemur til greina sem áskorandi.
Úr Brooklyn
á toppinn
Saga Tysons hefst í Brooklyn í
New York. Par slóst hann til þess
að geta haldið ránsfeng sínum.
Þegar hann vár ekki í ránsleið-
angri hugsaði hann um dúfurnar
sínar en ekki leið á löngu áður en
tekið var eftir honum. Hann
hafði lent á upptökuheimili fyrir
unga afbrotamenn og starfsmað-
ur þar kom honum í samband við
heimsþekktan þjálfara Cus D‘A-
motos. Amotos gekk honum í
föðurstað. Hann sá strax hæfi-
leikana sem bjuggu í unga mann-
inum og byrjaði strax að þjálfa
hann í það hlutverk sem hann
gegnir nú, heimsmeistarahlu-
tverkið.
Saga boxins er heista áhugamál
Tysons. Á veggjum heimilis hans
er fjöldi mynda af þekktum
viðureignum í hringnum. Ein
myndin er 79 ára gömul og hún
sýnir boxarann Battling Nelson
með hendur á mjöðmum og ann-
an fótinn á andstæðingnum Joe
Gans, sem liggur í gólfinu. Tyson
endurtók þessa stellingu fyrir
rúmu ári, þegar hann lagði Larry
Holmes að velli.
-Ny Tid/ Dagbladet/Sáf
Sl. sunnudag mættust þeir í
hringnum Mike Tyson og
Frank Bruno. Strax á fyrstu
sekúndum viðureignarinnar
var séð að þetta var leikur
kattarins aðmúsinni.
Leiknum lauk þó ekki fyrr en í
fimmtu lotu þegardómarinn
gekk á milli þar sem Tyson
barði Bruno sundur og saman
og úrskurðaði viðureigninni
lokið með sigri Tysons.
f augum Tyson er boxið annað
og meira en íþrótt. Boxið er bar-
átta upp á líf og dauða, spegil-
mynd lífsbaráttunnar. Og jafn
hrottafengið og sú barátta getur
orðið, jafn tillitslaust og grimmt.
Sá sterkasti lifir af. Það er frum-
skógarlögmálið sem gildir. Án
boxíþróttarinnar væri Mike Ty-
son líkast til atvinnulaus því box-
ið er ein leið fyrir hina fátæku
burt úr fátækrahverfunum einsog
fótboltinn í Englandi.
Frumstætt,
hættulegt...
En hversvegna fá áhorfendur
svona mikið út úr því að horfa
upp á fullorðna menn slást upp á
líf og dauða í hringnum? Senni-
lega það að mjög auðvelt er fyrir
áhorfendur að skilja þessa íþrótt.
í hringnum eru tveir menn sem
slást hvor við annan og sá sterkari
og fimari stendur uppi sem sigur-
vegari. Þetta hefur mannkynið
horft upp á öldum saman. Þetta
er frumstætt og hættulegt, einfalt
en jafnframt býr mikil kunnátta
að baki hjá þeim sem skara fram
úr, kunnátta sem gerir boxíþrótt-
ina að listgrein að mati áhang-
enda íþróttarinnar.
Góður boxari dansar í hringn-
um. Það skiptir miklu máli að
hafa fullt vald á líkamanum, að
hreyfingarnar séu taktfastar og
léttar. Boxarinn þarf helst að
hafa sama vald á líkamanum og
ballettdansari. Snögg viðbrögð
og jafnvægistilfinning skipta ekki
minna máli en það að hafa kraft í
höggunum. Sé jafnvægistilfinn-
ingin ekki í lagi verða höggin
vindhögg. Það sem skilur helst á
milli boxara og ballettdansara er
að boxarinn misþyrmir andstæð-
ingi sínum en dansarinn eigin lík-
ama.
En það sem skiptir mestu máli
er þó eðlisávísunin. Sé hún fyrir
hendi breytist boxarinn í bar-
dagavél og þá kemur rétta högg-
ið, sjálft rothöggið, ætíð á réttum
tíma.
Þungavikt
Það er keppt í mörgum þyngd-
arflokkum í boxi en áhugi manna
beinist þó einkum að þungavikt-
inni. Þangað leita peningarnir og
fjölmiðlarnir. Allir stóru box-
meistararnir hafa verið í þunga-
vikt. Sullivan var fyrstur í röð
margra. Jack Dempsey og Joe
Louis eru nöfn sem flestir kann-
ast við þótt þeir séu kannski ekki
mikið fyrir þessa íþróttagrein.
Áhugi sænsku þjóðarinnar á afr-.
ekum Ingimar Johannsen var
meiri en áhugi íslendinga á hand-
boltalandsliðinu. Og sá stærsti af
þeim öllum, sjálfur Muhammed
Ali, prýddi oftar forsíður heim-
spressunnar en kóngar og fyrir-
fólk. Á milli koma svo lægðir þar
sem stóri meistarinn er hvergi
sjáanlegur. Þó líður sjaldan á
löngu áður en hann birtist á sjón-
inn parkinsonsveiki og er högg-
unum kennt um.
Tyson er hinsvegar ekki bros-
andi þegar hann mætir í hringinn.
Úr andliti hans má lesa hrotta-
skap, biturleika, grimmd og mi-
skunnarleysi. Þrátt fyrir það er
hann mjög afslappaður fyrir
leikinn að eigin sögn. „Mér líður
best í búningsherberginu nokkr-
um mínútum fyrir leikinn. Þá er
erfiðu starfi lokið og ég get slapp-
að af. Hvorki fyrir né eftir leikinn
ber ég virðingu fyrir einum né
neinum. Það skiptir engu hver
andstæðingurinn er og ég velti því
aldrei fyrir mér hvað ég eigi að
gera eða hvað ég hefði getað gert
betur. Innst inni er einhver sem
veit hvað þarf að gera. Ég mæti í
hringinn, berst, vinn og fer
heim.“
Titillinn varinn
Sl. sunnudag var röðin komin
að Bretanum Frank Bruno. í
fyrsta skipti í sögunni eygðu Bret-
ar möguleika á að eignast
heimsmeistara í þungavikt. Fæst-
um datt þó í hug að Bruno bæri
sigurorð af Tyson. Þrátt fyrir það
tók það Tyson lengri tíma en bú-
ist var við að standa uppi sem
sigurvegari og meistarinn hrósaði
meira að segja andstæðingnum
að leik loknum. „Ég fann fyrir
höggum hans, þau voru harðari
en hjá Tony Tucker. En ég var
aldrei í nokkrum vafa um að ég
myndi sigra hann. Hann brotnaði
saman í þriðju lotu. í fimmtu lotu
yar þetta bara spurning um
hversu lengi leikurinn héldi
áfrarn."
Tyson fékk um 400 miljónir
króna fyrir leikinn en andstæð-
ingurinn fékk enga smáaura held-
ur fyrir að láta berja sig í klessu,
190 miljónir króna.
í bardaganum sló Tyson 202
högg og hitti andstæðinginn 89
arsviðinu. Nú er Mike Tyson
konungur boxins og enginn
sjáanlegur sem getur ógnað titli
hans.
Það er mikill munur á Muham-
med Ali og Mike Tyson. Hreyf-
ingum Alis í hringnum hefur ver-
ið Ííkt við sígarettureyk. And-
stæðingurinn vissi aldrei hvar
hann yrði staddur næst. Og þegar
Ali birtist sjálfumglaður og bros-
andi lá við að áhorfendur vor-
kenndu honum en þegar slagur-
inn byrjaði og boxarinn þaut um
hringinn einsog ballerína var ljóst
að þessi maður þurfti ekki á vor-
kunn að halda. En kannski mað-
ur vorkenni honum núna þegar
hann er hálf ruglaður, heila-
skaddaður segja sumir, og hald-
GóÖ
töká
málunum
Til þess að ná góðum tökum á líkamsþyngd
og ummáli er ein leið best: Að tileinka sér rétt
mataræði og losna við ómæld óþægindi og
jafnvel heilsubrestaf völdum megrunarkúra.
Mjólkog mjólkurvörur eru mikilvægur hlekkur í
fæðuhringnum. Konur ættu að gæta þess
sérstaklega, að það er erfitt að fullnægja
kalkþörfinni án mjólkur eða mjólkurmatar, auk
þess sem þar er á ferð einn fjölhæfasti
bætiefnagjafi sem völ er á. Auðvelt er að velja
mjólk og mjólkurvörur með mismunandi
fitumagni og fá þannig bæði hollustuna og
hitaeiningasnautt fæði.
MJOLKURDAGSNEFND
Fráviðureignþeirra
MikeTyson og
FrankBruno.
100 gr. af léttmjólk innihalda
aðeins 46 hitaeiningar. Og það eru
verðmætarhitaeiningar, þvíaðþeim
fylgja mörg mikilvægustu
næringarefnin. Efþú viltgrennast, þá
erbetra að draga úrþýðingarminni
hitaeiningum.
Mjólkgeturdregið úr
tannskemmdum við eðlilegar
aðstæður. Hið háa hlutfall
kalks, fosfórs og magníum
veitirtönnum vemd. Eftirneyslu
sætinda eða sykurríkrar
máltíðarertd. gottað skola
munninn með miólk.
Beinin þroskast og styrkjast fram
að fertugsaldriog þess vegna er
mikilvægt að þau fái nægjanlegt kalk
allanþann tímatilþessaðstanda vel
að vígi þegar úrkölkun hefst um
miðjanaldur.
Eftir fertugsaldurinn er nægjanlegt
kalk úr fæðunni nauðsynlegt til þess
að hamla gegn beingisnun. Tvöglös
afmjólkádag ergóð regla.
Þeir sem hreyfa sig mikið virðast
nýta kalkið úrfæðunni beturog hafa
því meiri beinmassa á efri árum en
þeirsem hreyfa sig lítið.
MjólkerauðugafB
vítamínum sem eru mikilvæg til
þessað t.d. húð, hár, neglur,
taugakerfi og sjón séu í góðu lagi.