Þjóðviljinn - 11.03.1989, Qupperneq 1
Laugardagur 11. mars 1989 50. tölublað 54. árgangur
Heilbrigðiskerfið
Vil að þeir skoði
niðurskurðinn á ný
Borgarspítali lokar skurðstofu og sjúkradeild. Hœtta á að sérfrœðingar kaupi með engum heildar-
sparnaði? KristínÁ. Ólafsdóttir: Tel að stjórn og alþingi verði að endurskoða niðurskurðinn
Afundi í stjórn Borgarspítalans
í gær var ákveðið að loka
skurðstofu og sjúkradeild á
Eiríksgötu frá 15. aprfl. Með
þessu á að spara um 30 miljónir
auk þeirra aðhaldsaðgerða sem
stjórnin greip til fyrir hálfum
mánuði. Meirihluti stjórnar,
tveir Sjálfstæðismenn og einn
starfsmaður, tóku þessa ákvörð-
un, en annar starfsmaður og
Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins greiddu
atkvæði á móti.
Kristín sagði við Þjóðviljann
að hún teldi, og hefði látið bóka
það á stjómarfundinum, að frek-
ari niðurskurður hjá Borgarspít-
alanum en ákveðinn var í febrúar
gæti ekki leitt til annars en sam-
dráttar í nauðsynlegri heilbrigðis-
þjónustu.
„Ég vildi þessvegna vísa því til
ríkisstjórnarinnar og þingsins að
endurskoða ákvörðun sína um
jafnan niðurskurð yfir alla hjá
ríkinu, og skora á stjórn og þing
að gera það. Það má vera að hægt
sé að koma þessu við einhver-
staðar, og sumstaðar jafnvel í enn
meiri mæli, en á Borgarspítalan-
um er það ekki hægt án þess að
það komi niðrá nauðsynlegri
þjónustu“ segir Kristín. „Sá nið-
urskurður sem við samþykktum í
febrúar þýddi mjög mikið aðhald
að yfirvinnu, ekki síst lækna, og
þeim aðgerðum mun fylgja tals-
verð lokun rúma. Lengra er ekki
hægt að ganga að sinni.“
A skurðstofunni undir fæðing-
arheimilinu á Eiríksgötunni hafa
farið fram minniháttar aðgerðir,
meðal annars vegna kvensjúk-
dóma, um þúsund á ári, Þjóðvilj-
anum hafa borist spurnir af því að
sérfræðingar hugsi gott til glóðar-
innar að kaupa þessa aðstöðu ef
Borgarspítali vill láta.
Kristín sagðist ekki geta stað-
fest slíkar fréttir. Hinsvegar væri
ljóst að ef af slíku yrði þyrfti ríkið
að borga einkafyrirtæki sérfræð-
inganna fyrir aðgerðimar í stað
þess að borga þær gegnum spíta-
lann. Sparnaðurinn yrði enginn
og raunar fullvíst að heildar-
kostnaður ríkisins yrði mun
meiri.
-m
Launamenn
Þolinmæðin
á þrotum
Þolinmæði launamanna er á
þrotum. Núna vilja þeir fá til
baka og nokk betur þá kjararýrn-
un sem þeir hafa orðið fyrir á
liðnum misserum. Á meðan
samningar voru bannaðir með
lögum og launin fryst sýndu þeir
mikið langlundargeð en svo virð-
ist sem nýlegar verðhækkanir
hafi virkað sem olía á eldinn og
fyrir vikið eru margir þeirra mun
herskárri en oft áður og segja að
núna þýði ekkert annað en að
munda verkfallsvopnið.
í Þjóðviljanum í dag eru stutt
viðtöl við fólk í hinum ýmsu
greinum atvinnulífsins þar sem
það talar tæpitungulaust um kjör
sín og hvers það væntir í komandi
samningum.
Sjá síður 8 og 9
Þjóðviljinn
Uppsagnir
og endur-
skipulagning
Ritstjórum og
framkvœmdastjóra
falið að leggja fram
tillögur um
hagrœðingu og
sparnað á nœstunni.
Fundir eftir helgi í
blaðstjórn og hjá
Alþýðubandalaginu
Framkvæmdastjóri Þjóðvilj-
ans sendi starfsmönnum blaðsins
í gær bréf þar sem þeim er tii-
kynnt um uppsögn frá 1. aprfl
með venjulegum þriggja mánaða
uppsagnarfresti „vegna mjög erf-
iðrar fjárhagsstöðu Þjóðviljans
og endurskipulagningar á allri út-
gáfu hans“.
í bréfinu er lýst þeirri von að
eftir að endurskipulagningunni
lýkur megi endurráða sem flesta
af starfsmönnum blaðsins. Á
fundi starfsmanna með fulltrúum
frá blaðstjórn fyrir skömmu var
skýrt frá því að til uppsagna kynni
að koma miðað við næstu mán-
aðamót.
Á fundi Þjóðviljastjórnar á
miðvikudagskvöld var ákveðið
að fela ritstjórum blaðsins og
framkvæmdastjóra að leita leiða
til aukinnar hagræðingar og
sparnaðar á næstunni. Það starf
er í fullum gangi og koma ýmsar
leiðir til greina við að koma blað-
inu á réttan kjöl. Ljóst er þó að
Þjóðviljinn getur ekki bjargað
sér úr núverandi fjárhagskreppu
með rekstrarhagnaði einum sam-
an.
Útgáfustjórnarfundur hefur
verið boðaður á þriðjudags-
kvöld, og málefni Þjóðviljans eru
einnig á dagskrá framkvæmda-
stjórnarfundar Alþýðubanda-
lagsins á mánudag.
Pétur B. Lúthersson situr á Mocca-stól við Mocca-borð. (Mynd: þóm)
Hönnun
Mocca-stóll fyrir dymar
Islenskir hönnuðir setja erlendri samkeppniMocca-stólinn fyrirdyrnar.
Pétur B. Lúthersson heiðraður
Mocca-stóllinn heitir stolt Pét-
urs B. Lútherssonar þessa
daga, en hann fékk viðurkenn-
ingu hönnunardagsins á fimmtu-
dagskvöld fyrir hönnun á stóin-
um, sem Stálhúsgagnagerðin
Steinar hf. hefur framleitt.
Verðlaunastóllinn er hannaður
með fjölbreytilegt notagildi í
huga og er kjörinn sem eldhús-
stóll, í mötuneyti, veitingahús og
samkomustaði. Stóllinn er gerð-
ur úr krómuðu eða nælonhúðuðu
rúnröri með formbeygðum
beykiþynnum í baki, sem ýmist
eru litaðar eða ólitaðar og síðan
lakkaðar með glæru lakki. Setan
er 12 mm krossviður með álímd-
um 25 mm svampi, sem klæddur
er áklæði, leðurlíki eða leðri.
Hægt er að stafla stólunum fjór-
um saman, og þeim má einnig
hvolfa ofan á borð.
Þetta er í annað skiptið sem
viðurkenning hönnunardagsins
er veitt í þeim tilgangi að efla ís-
lenska hönnun og framleiðslu.
Það var Jón Sigurðsson iðnðar-
ráðherra sem afhenti Pétri viður-
kenninguna
-ólg