Þjóðviljinn - 14.03.1989, Blaðsíða 5
VIÐHORF
Röskva
Á morgun, miðvikudaginn 15.
mars, eanga stúdentar við Há-
skóla íslands að kjörborðinu og
kjósa til Stúdenta- og Háskóla-
ráðs. Allir skráðir stúdentar hafa
atkvæðisrétt. Tvær fylkingar
bjóða fram: Röskva, samtök fé-
lagshyggjufólks í H.Í., og Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta.
Kosningabaráttan hefur verið
óvenjuhörð og átök milli fylking-
anna óvægin.
Stúdentaráð:
Starfið í vetur
í Stúdentaráði sitja 30 fulltrúar
og eru 15 kjörnir á hverju ári til
tveggja ára í senn. Síðastliðið ár
kom upp sú staða að hvor fylking
hafði 15 fulltrúa og því var enginn
meirihluti fyrir hendi. Vegna
þessa skiptu fylkingarnar með sér
störfum. Vaka tók að sér rekstur
skrifstofu Stúdentaráðs og stjórn
þess en Röskva sá um lánamál og
fór með stjórn Félagsstofnunar
stúdenta. I upphafi gekk sam-
starfið vel, en þegar á leið kom
upp ágreiningur milli fylking-
anna. Vaka þverbraut samstarfs-
samning þann sem í gildi var og
reyndi að spilla fyrir samkomu-
lagi Röskvu og hinna náms-
mannahreyfinganna, Sambandi
ísl. námsmanna erlendis, Banda-
, samfylking félagshyggjufolks
Runólfur Ágústsson skrifar
lagi sérskólanema og iðnnema,
við stjórnvöld um hækkun náms-
lána. Vegna þessa sá Röskva sig
knúna til þess að segja upp þess-
hins vegar ungir hægrimenn og
hefur félagið gegnum árin verið
uppeldisstöð fyrir unga Sjálf-
stæðismenn. Þannig er nær öll
nú er nýgert samkomulag náms-
manna við stjórnvöld um hækkun
námslána í þremur áföngum. Þar
setja Vökumenn sig upp á móti
„Vegnaþeirrar tvísýnu stöðu sem nú erí
Stúdentaráði getur hvert atkvœði skipt
sköpum. Þvíer mikilvœgt að allt
félagshyggjufólk mæti á kjörstað og hrindi
þeirri sókn sem hœgrimenn innan Háskólans
hafa verið ísíðastliðin tvö ár. “
um starfssamningi og lagði jafn-
framt fram vantraust á stjórn og
formann SHÍ.
Röskva eða Vaka?
En fyrir hvað standa þær fylk-
ingar sem bjóða fram? Röskva er
breiðfylking félagshyggjufólks.
Að félaginu standa óflokks-
bundnir vinstrimenn ásamt fólki
úr þeim flokkum sem kenna sig
við jafnaðar-, jafnréttis- og sam-
vinnustefnu. Að Vöku standa
núverandi forysta Sjálfstæðis-
flokksins úr Vöku að formanni
flokksins meðtöldum.
Við í Röskvu höfnum hins veg-
ar beinum flokkspólitískum
áhrifum á starfsemi Stúdenta-
ráðs, en tökum afstöðu til mála á
grundvelli þeirrar lífsskoðunar
sem félagshyggjan er.
Um hvað er kostið?
Helsta ágreiningsmál milli
fylkinganna fyrir kosningarnar
svokölluðu tekjutilliti. Tekjutil-
litið gerir það að verkum að þeir
sem við verst kjör búa fá mesta
hækkun, en því hærri sem tekjur
námsmanns eru, því lægri verður
hækkun lánanna íkrónutölu. All-
ur þorri námsmanna fær verulega
kjarabót, en þeir fáu sem hafa
mjög háar tekjur (yfír 500.000 á
sumri) fá lægra lán en áður, enda
þurfa þeir ekki á félagsiegum
framfærslulánum að halda í sama
mæli og hinir. Þetta er sá hópur
sem Vaka er að verja, en í vetur
lagði Vaka til flata bráðabirgða-
hækkun til ákveðinna hópa án til-
lits til tekna eða félagslegra að-
stæðna. Einstaklingur með
800.000 í árstekjur hefði sam-
kvæmt þessu fengið sömu hækk-
un og tveggja barna einstætt for-
eldri með 150.000 krónur í
sumartekjur!
Af öðrum málum sem deilt er
um má nefna garðabyggingar, út-
gáfumál, hlutverk Stúdentaráðs
og að sjálfsögðu menntamál al-
mennt.
Stúdentar,
mætum á kjörstað!
Vegna þeirrar tvísýnu stöðu
sem nú er í Stúdentaráði getur
hvert atkvæði skipt sköpum. Því
er mikilvægt að allt félagshyggju-
fólk mæti á kjörstað og hrindi
þeirri sókn sem hægrimenn innan
Háskólans hafa verið í síðastliðin
tvö ár. Sá sem situr heima greiðir
Vöku atkvæði sitt. í annað sinn
býður félagshyggjufólk fram
sameiginlega undir merki
Röskvu. Stúdentar, tryggjum
Röskvusigur í kosningunum á
morgun og greiðum V-Iistanum
atkvæði.
Runólfur er laganemi í HI og hefur
setið í Stúdentaráði fyrir Röskvu.
Herbrestur hjá heiiúsum
Bjarni Hannesson skrifar
Ekki getur hjá því farið en manni
ofbjóði ósvífni núverandi utanríkis-
ráðherra J. B. Hannibalssonar í svo-
kölluðu „varaherflugvallarmáli" þeg-
ar hann reynir trekk í trekk að blek-
kja íslendinga og telja þeim trú um að
margnefndur flugvöllur sé ekki hern-
aðarmannvirki, ef USA + NATO
greiða eitthvað í forkönnun eða hugs-
anlegri (óhugsanlegri) byggingu.
Maður hélt að kratar og þar með
J.B.H. myndu breyta sinni fyrri her-
lúshyggju sem hefur falist í því að
vera meðmæltir hverskyns vígvæð-
ingu í verki, innanlands og utan, þó
þeir segi einstaka sinnum annað í
orði. Ekki ætti að þurfa að benda á
breytt ástand í alþjóðastjórnmálum
sem er í átt til minni vígvæðingar og
ekki sakar að benda á þær efnahags-
legu ófarir sem USA hefur hlotið af
vígvæðingarstefnu sinni, sem má
kalla.
Stríð gegn
heilbrigðri skynsemi
Hér ætla ég að birta hluta af annál
ófara USA, hina efnahagslegu hlið
þeirra mála sem er að mínu mati eftir-
greindur að hluta.
Viet Nam stríðið varð USA dýrt á
margan hátt m.a. skekkti það og lam-
aði efnahag innanlands og gerði efna-
hagslíf USA vanhæfara til að vera
rekið á sómasamlegan hátt, án þess
að hergagnaiðnaður væri stór þáttur í
þjóðarbúskapnum. (Afnám gulltryg-
gingar dollars var einnig hluti af þessu
dæmi.)
Afleiðingarnar urðu þær að efna-
hagslíf var í lamasessi og þegar R.
Reagan ásamt hergagnamafíunni í
USA þótti færi á að skara eld að sinni
köku þá útnefndu þeir USSR sem
„heimsveldi hins illa“ og hófu það
heimskulegasta og óþarfasta vígbún-
aðarkapphlaup sem nokkru sinni hef-
ur verið háð.
I>eim datt ekki í hug að bíða í fáein
ár eftir að kynslóðaskipti yrðu í æðstu
stjórn USSR og sjá hver yrði stefna
hinnar nýju kynslóðar, heldur önuðu
þessir pólitísku og hernaðarlegu
ævintýramenn út í það fíflslegasta
efnahagsævintýri sem um getur á
þessari öld þ.e. að fara að afgreiða
ríkissjóð með ævintýralegum halla og
slá lán erlendis í stórum stíl til að
framleiða óþörf hergögn.
Endalok stórveldis?
Afleiðingarnar létu ekki á sér
standa og birti ég hér 14 línurit er sýna
og sanna einhver hroðalegustu mis-
tök í hagstjórn sem um getur.
Helstu heimildir eru Economic
Report of the President 1984 og 1987
og Budget of the United States Go-
vernment.Fiscal year 1984 og 1986,
tölur fyrir 1988-89 eru áætlaðar eftir
ýmsum heimildum.
1. Ríkisskuldir USA aukast úr 900 í
um 2460 milljarða á 8 árum þ.e.
um 1500 milljarða $ = um 175
millj. pr. ár.
2. Ríkisskuldir sem % af þjóðar-
framleiðslu GNP aukast úr um
33% í um 53% af GNP.
3. Arlegir vextir af ríkisskuldum
USA hækka úr um 62 milljörðum
á ári í um 170-200 millj. eða ná-
lægt 300%.
4. Erlendar skuldir USA hækka úr
um 129 í um 280 milljarða $ eða
um rúmlega 150% hækkun.
5. Vextir af erlendum skuldum USA
eru orðnir um 26 milljarðar pr. ár
og hafa hækkað um 200% í stjórn-
artíð R. Reagans.
6. Allt þetta fjármagnsflóð hefur
valdið gífurlegri eyðslustefnu inn-
anlands og þjóðarskuldir hafa
hækkað um 6.000 milljarða $ sem
rökstyður fullyrðingu um afar óá-
byrga fjármunameðhöndlun.
7. Reiknuð þjóðarframleiðsla USA
hefur aukist talsvert á þcssu tíma-
bili, (a.m.k. um 3-31/2%) en ók-
osturinn er sá að hagvöxturinn er
nær eingöngu fenginn fram með
gífurlegri skuldaaukningu bæði
innnlands og utan.
8. Viðskiptahalli USA við útlönd
varð og er afar óhagstæður og er
samtals orðinn í stjórnatíð R. Re-
agans um 900 milljarðar $.
9. Þetta línurit sýnir árlega aukningu
þjóðarframleiðslu og árlegan
halla ríkissjóðs í % af þjóðarfram-
leiðslu og sannar að nálega allur
hagvöxtur er fenginn fram með
hallarckstri ríkissjóðs t.d. að hinn
svokallaði „mikli hagvöxtur" 1984
er fenginn fram með u.þ.b. jafn-
háum hallarekstri ríkissjóðs árið
áður.
10. Fjárlagahalli USA er viðvarandi
og gífurlega mikill, samtals í for-
setatíð R. Reagans um 1367
milljarðar $.
11. Verðbólga í USA hefur verið
lækkuð og er f viðunandi horfi
eins og er, cn innbyggt er orðið í
efnahagslífið hagfræðileg tíma-
sprengja sem mun valda, að lík-
um, verulega aukinni verðbólgu
síðar og það gæti verið stutt í þau
tímamörk ef ekki eru gerðar rétt-
ar og viðunandi ráðstafanir.
12. Hlutfallslegt eiganarhald vegna
USA í eigin landi er að minnka,
erlend fjárfesting hefur numið um
700 milljörðum $ í forsetatfð R.
Reagans.
13. Eignarhald útlendinga á hluta-
bréfum í USA hefur aukist gífur-
lega eða um allt að 1.000
milljarða $ á 8 árum.
14. Útgjöld til hermála f USA hafa
verið gífurleg, samtals í forsetatíð
R.R. um 1800 milljarðar $.
Þá hagstjórn sem ég hef hér lýst
kalla ég „stríð gegn heilbrigðri skyn-
semi“ og tel víti til varnaðar og tel
skylt, þegar nýkjörinn utanríkisráð-
herra USA kemur hingað til lands
þeirra erinda að framlengja þessa
styrjöld og flækja ísland inn í áfram-
hald þessa ófarnaðar, að berjast gegn
því með öllum mögulegum og
ómögulegum ráðum.
„íslenski lautinantinn!“
Eftir að utanrfkisráðherra USA
kallaði J. B. Hannibalsson til sín
suður á Kefiavíkurfiugvöll þá finnst
mér þessi „svokallaði" utanríkisráð-
herra vera farinn að líkjast lautinant
einum í USA helst til mikið, sá maður
heitir Oliver North og varð frægur
fyrir að reka nokkurskonar einka-
utanríkisráðuneyti, í beinu eða
óbeinu samráði við R. R. fyrrverandi
forseta USA.
Málflutningur J.B.H. og fleira
bendir til þess að hann leiði hugann
að því að gefa út leyfi í eigin nafni og
að óvilja þjóðarinnar og flestra eða
allra í núverandi ríkisstjórn til að svo-
kölluð „forkönnun" verði gerð er
varðar herflugvöll þennan, sem er ná-
lega það sama og slíkur völlur verði
byggður þegar og ef „herlýsnar"
verða aftur í meirihluta í ríkisstórn
fslands.
Enn verri kost tel ég vera að tengj-
ast hinu „Monroe-fasíska" fyrrver-
andi stórveldi vestanhafs, það er oft
hægt að sjá hvert er hið innsta eðli
stjlornvalda þegar maður sér fram-
komu þeirra gagnvart þeim sem eru
miklu veikari en þeir sjálfir og ef litið
er suður fyrir landamæri USA þá
kemur margt ófagurt í ljós, einka-
utanríkisráðuneyti O. North og R.R.
hefur baktryggt þar dráp á tugum
þúsunda manna og staðið fyrir því að
snapa saman peningja hjá fjölda ríkja
til að hafa efni á að fjarstýra mann-
drápum í mörgum ríkjum Suður- og
Mið-Ameríku og minnugur er ég þess
að íslenskir kratar buðu eitt sinn konu
einni frá E1 Salvador til íslands og
skömmu eftir heimkomu var hún
drepin á hroðalegan hátt.
fslenskir kratar gátu fengið sig til
að vera að fiaðra utan í málstað sem
þeir svíkja nálega alltaf í verki og fá-
orður var J.B.H. í fjölmiðlum um at-
burð þcnnan.
Jón Baldvin Hannibalsson ætti að
minnast Marianellu García Villas
áður en hann grípur pennann til að
skrifa undir leyfi til að byggja hernað-
armannvirki er þjónar ríki því sem
stóð og stendur beint og óbeint á bak
við dráp á tugþúsundum fátækra íbúa
Suður- og Mið-Ameríku.
Ritað 26.2. 1989
GNP - Pjó&arfnunlctSsta
FaraeUÚO
3000 „
<
2000 5
No.7.
Fj&rlagahalli f USA
Panaudð
iNo.10
■ Cmn
{No.11
VerObólga í USA
FaneUllO
t
M D
A
Útgjökl til hermála
FonautfO
„No.14
tm. . . m
Þriðjudagur 14. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5