Þjóðviljinn - 14.03.1989, Blaðsíða 7
ERLENDAR FRETTIR
Borgarstjórnakosningar í Frakklandi
Mikill sigur græningja
Traustsyfirlýsing við ríkisstjórn og Sósíalistaflokk. Óvæntirsigrar
óháðra frambjóðenda
Fyrri umferð borgar- og
bæjarstjórnarkosninga í Frakk-
landi fór fram á sunnudag og
komu úrslitin að ýmsu leyti á
óvart. Mikla athygli vekur í því
sambandi góð útkoma vinstri-
flokkanna, er litið er á sem
traustsyfirlýsingu við ríkisstjórn
Sósíalistaflokksins og sérstaklega
Michel Rocard, forsætisráð-
herra.
Kosningabaráttan var óvenju-
leg að því leyti að hún snerist
einkum um sérmálefni borga og
bæja, en hingað til hefur afstaða
til landsmála og ríkisstjórnar
jafnan skipt miklu í kosningum af
þessu tagi í Frakklandi. Aukin
valdadreifing og þar með aukin
völd borgar- og bæjarstjórna
undanfarið munu hafa átt drjúg-
an þátt í þessari breytingu, sem
ásamt með öðru hefur orðið til að
styrkja stöðu stjórnar og
stjórnarflokks. Er talið að ríkis-
stjórnin muni túlka úrslitin sem
skilaboð frá kjósendum þess efn-
is, að hún skuli ekki leita stuðn-
ings fleiri flokka.
Kommúnistar héldu velli
nokkurnveginn, en að vísu er út-
koma þeirra í borgar- og bæjar-
stjórnarkosningum að jafnaði
betri en í þingkosningum. Út-
koma gaulleista var og sæmileg,
en flokkabandalagið UDF, sem
jafnan er talið nær miðju
stjórnmálanna en flokkur gaul-
leista, tapaði verulega. Le Pen-
Kosningar í Austurríki
Hrakfarir
slóni flokkanna
Harðlínuflokkur til hœgri og græningjar
vinna a
Kosningar fóru fram á sunnu-
dag til þinga þriggja fylkja í
Austurríki og vann Frelsisflokkur
svokallaður, sem er harður
hægriflokkur og hefur verið tal-
inn sækja fylgi sitt að verulegu
leyti til eldri og yngri aðdáenda
nasista, stórsigur. Græningjar
unnu og mikið á og komu í fyrsta
sinn mönnum inn á þing fylkj-
anna Salzburg og Týról.
Úrslitin eru þeim mun alvar-
legra áfall fyrir stóru flokkana
tvo, sem mestu hafa ráðið í
stjórnmálum landsins frá lokum
heimsstyrjaldarinnar síðari og
eru nú saman í ríkisstjórn. Peir
eru Sósíalistaflokkurinn og hinn
kaþólsksinnaði og íhaldssami
Pjóðarflokkur. Sá síðarnefndi fór
sérstaklega illa út úr kosningun-
um á sunnudaginn, en þær fóru
fram í Krnten, Salzburg og Týról.
Er nú jafnvel talað um að tveggja
flokka kerfi það, sem flokkar
þessir hafa borið uppi frá stríðs-
lokum, sé í hættu.
f Krnten tapaði Sósíalista-
flokkurinn þremur þingsætum og
missti þingmeirihluta, fékk 17,
Þjóðarflokkurinn tapaði einnig
þremur sætum þar og fékk átta en
Frelsisflokkurinn bætti við sig sex
sætum ogfékkll.í Salzburg fékk
Þjóðarflokkurinn 16 þingsæti,
tapaði þremur, sósíalistar fengu
12 sæti og töpuðu einu en Frelsis-
flokkurinn fékk sex sæti, bætti
við sig tveimur. Græningjar unnu
tvö þingsæti.
flokkurinn á hægri kantinum fór
halloka. Mest kom á óvart sigur
græningja, og er þetta í fyrsta
sinn sem þeir komast á blað í
frönskum stjórnmálum, svo
heitið geti. Þeir fengu víða yfir 10
af hundraði atkvæða og var sigur
þeirra mestur í Elsass, þar sem
íbúar eru þýskrar ættar og í nábýli
við Vestur-Þýskaland. Þar hafa
græningjar um skeið verið tiltölu-
lega sterkir og eru í sókn.
Athygli vekur einnig velgengni
ýmissa frambjóðenda, sem af
einum eða öðrum ástæðum höfðu
komist upp á kant við flokka sína
og buðu sig fram sjálfstætt. í
Marseille, annarri mestu borg
landsins, kom stórlega á óvart að
borgarstjórinn, Robert Vigouro-
ux, fékk liðlega 42 af hundraði
atkvæða, fleiri en nokkur annar
frambjóðandi til embættisins,
enda þótt hann hefði verið rekinn
úr Sósíalistaflokknum. Enn meiri
sigur vann Robert Jarry, sem
lengi hefur verið borgarstjóri í Le
Mans. Hann er nú brottrekinn úr
Kommúnistaflokknum en fékk
hvað sem því leið hvorki meira né
minna en 64 af hundraði at-
kvæða.
Auk annars er lesið úr úrslitun-
um að andstaðan við innri mark-
að Evrópubandalagsins, sem
verður að veruleika í árslok 1992,
sé ekki mikil í Frakklandi. Kjör-
sókn var um 70 af hundraði, eða
minni en nokkru sinni fyrr í slík-
um kosningum frá lokum
heimsstyrjaldarinnar síðari, og
gerir það ásamt með fleiru að
verkum að erfitt er að sumu leyti
að ráða í úrslitin. Síðari umferð
kosninganna fer fram á sunnu-
daginn kemur.
emj/Reuter/dþ.
Rocard - útkoman túlkuð sem verulegur sigur fyrir hann.
Hessen
Nýrsigur
hægriöfgamanna
Mikið áfallfyrir stjórn Kohls. Búistviðsam-
stjórn jafnaðarmanna oggrœningja
í Frankfurt
Nýnasistafiokkur einn, sem
nefnist Þjóðlegi lýðræðisflokkur-
inn, vann mikinn sigur í kosning-
um i vcsturþýska fylkinu Hessen á
sunnudag. Fékk flokkurinn 6.6 af
hundraði atkvæða í Frankfurt
am Main, einni af helstu borgum
landsins sem gjarnan er kölluð
höfuðborg fjármála þess.
Sigur sinn unnu nýnasistar á
kostnað stjórnarflokkanna,
kristilegra demókrata og frjáls-
demókrata. Þeir fyrrnefndu stór-
töpuðu og fengu nú 34.3 af
hundraði atkvæða í fylkinu öllu,
en höfðu um 41 af hundraði.
Frjálsdemókratar duttu út úr
borgarstjórn í Frankfurt. Jafnað-
Franz Vranitzky, leiðtogi austur-
ríska sósíalistaflokksins og nú-
verandi sambandskanslari -
flokkur hans tapaði meirihluta í
Krnten.
í Týról, einu sterkasta vígi
Þjóðarflokksins, tapaði sá flokk-
ur sex þingsætum og fékk nú 19,
sósíalistar stóðu þar í stað og
fengu níu sæti, Frelsisflokkurinn
bætti við sig þremur sætum og
fékk fimm og græningjar fengu
þrjú þingsæti.
Fréttaskýrendur telja að ýmis
hneykslismál, sem orðið hafa
báðum stóru flokkunum til álits-
hnekkis, hafi valdið miklu um
sigur Frelsisflokksins.
Reuter/-dþ.
Sekt fyrir eiginmannsdráp
Maria Krebs, 35 ára gömul suðurafrísk kona, var í gær dæmd af rétti
í Jóhannesarborg til að greiða tæplega 85.000 kr. sekt fyrir skjóta til
bana eiginmann sinn. Dauðarefsing liggur við morði þarlendis, en
rétturinn fann frú Krebs það til málsbóta að maður hennar hafði neytt
hana til að taka þátt í kynmökum, sem hann einnig var með í ásamt
símavændiskonu, er hann hafði kvatt á vettvang í þessum tilgangi.
Reuter/-dþ.
Bann við útflutningi þungavatns
Norska stjórnin hefur bannað útflutning á þungu vatni í framhaldi af
hneykslismálum í sambandi við þann útflutning. Grunur leikur á að á
þessum áratug hafi þungt vatn verið flutt út ólöglega frá Noregi til
Indlands og Rúmeníu. Þungt vatn er sem kunnugt er hægt að nota til
að framleiða kjarnasprengjur.
Reuter/-dþ.
Reykgrímur fyrir flugfarþega
Opinber bresk rannsóknanefnd um flugslys hefur lagt til að flugfélög
sjái farþegum fyrir reykgrímum. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu, að
af 55 manns sem fórust er eldur kom upp í farþegaflugvél á Manchest-
erflugvelli 1985 hafi 48 beðið bana af því að anda að sér reyk og
eitraðri gufu. Einnig leggur nefndin til að flugfélög athugi möguleika á
að koma upp vatnsslökkivikerfum í farþegarýmum flugvéla.
Reuter/-dþ.
armenn unnu lítillega á þar í borg
og fengu liðlega 40 af hundraði
atkvæða. Græningjar unnu tals-
vert á í borginni og fengu 10.1 af
hundraði atkvæða þar. Lýðveld-
isflokkur svokallaður, sem fékk
7.5 af hundraði atkvæða í Vestur-
Berlín á dögunum, fékk talsvert
fylgi sumsstaðar í Hessen.
Örslit þessi eru mjög á sörnu
lund og fyrir sex vikum í Vestur-
Berlín, og talið er að niðurstaðan
í Frankfurt am Main verði sú
sama, það er að segja að jafnað-
armenn og græningjar skipi sér
saman í borgarstjórn.
Fyrir stjórn Helmuts Kohl,
sambandskanslara, eru þetta
geigvænleg tíðindi, því að þetta
er í annað sinn á hálfs annars
mánaðar tímabili sem flokkamir í
stjórn hans fara miklar ófarir í
kosningum. Líkt og viðvíkjandi
Vestur-Berlín er talið að ósigur
kristilegra demókrata og frjáls-
demókrata stafi fyrst og fremst af
víðtækri óánægju út af miklum
fjölda innflytjenda, atvinnuleysi,
skerðingu fjárframlaga til félags-
mála, náttúruspjöllum o.fl.
Reuter/-dþ.
® ©@
Þetta eru tölurnar sem upp komu 11. mars.
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.673.066,-
Englnn var með fimm tölur réttar og bætist þvi fyrsti vinningur sem var kr. 2.151.826,- við
1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 374.216,- sklptist á 8 vinningshafa
og fær hver þeirra kr. 46.777,-
Fjórar tölur réttar, kr. 645.392,- skiptast á 209 vinningshafa, kr. 3.088,- á mann.
Þrjár tölur róttar, kr. 1.501.632,- skiptast á 5.688 vlnningshafa, kr. 264,- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mlnútum fyrlr útdrátt.
[/NOtVC>IPl
kœfískápur
semer
rúmgóöur
ogódýr
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511