Þjóðviljinn - 14.03.1989, Side 12
■"SPURNINGIN™
Á miðvikudaginn verða kosningar
í Háskóla íslands þar sem stúdent-
ar velja fulltrúa sina til Stúdenta-
og Háskólaráðs.
Ætlar þú aö kjósa?
Arnar Guðmundsson,
stúdentaráðsliði, heimspeki-
deild:
Auðvitað kýs ég. Ég hef trú á því
að Röskva vinni skoði stúdentar
það starf sem hefur verið unnið í
hagsmunamálum stúdenta.
Aðalheiður Pálmadóttir
læknisfræði:
Jú jú ég ætla að kjósa, ég þori nú
samt ekki að segja til um úrslit.
Ætli ég kjósi ekki RösRvu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir
félagsvísindi:
Já, ég ætla að kjósa, en ég treysti
mér ekkert til þess að spá fyrir um
úrslitin.
Kristinn Magnússon
sálarfræði:
Ég er fyrsta árs nemi og ekki
kominn mjög mikið inn í pólitíkina
en ætli ég kjósi ekki samt.
Kristján Rúriksson
efnafræði:
Ég hugsa það, ég er þó ekki bú-
inn að ákveða mig.ég þori ekkert
að segja um úrslit.
biómnuiNN
Þrlðjudagur 14. mars 1989 51. tölublað 54. órgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
C04040
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Stúdentarfjölmenna á kaffistofuna íOdda ígær, eins og endranær, en það er spenna í lofti. Mynd: Þóm.
Röskva-Vaka
Kosningar í Háskólanum
Lánamálin í brennidepli. Verðurpattstöðunni í Stúdentaráði breytt?
Miðvikudaginn 15. mars velja
stúdentar fulltrúa sína til
setu í stúdenta- og Háskólaráði.
Hagsmunabarátta stúdenta er í
eðli sínu pólitísk. Pólitísk að því
leyti að hún snýst um að vinna að
bættum kjörum stúdenta og betri
aðstöðu allra til þess að stunda
nám.
Eftir kosningarnar sl. vor kom
upp sú undarlega staða að hvorug
fylkingin fékk meirihluta, og
störfuðu því bæði félögin saman í
stúdentaráði, þ.e. Röskva félag
félagshyggjufólks, og Vaka félag
hægrimanna. Ráðið gerði með
sér eins konar verkaskiptingar-
samning, þannig að Vökumenn
skipa stjórn Stúdentaráðs og fara
með formennsku og fundarstjórn
í ráðinu en Röskvumenn skipa
fulltrúa stúdenta í stjórn Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna og
stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
í þessari þéttu samvinnu sem
margir héldu að auðvelda myndi
hagsmunabaráttu stúdenta, hef-
ur komið glögglega í ljós veiga-
mikill munur Röskvu og Vöku
hvað varðar afstöðu þeirra til
fjölmargra miklvægra hagsmuna-
mála stúdenta.
Ólöf Ýr Atladóttir íslensku-
nemi sem skipar efsta sæti á lista
Röskvu til stúdentaráðs segir að
aðalmálið sé baráttan í lánamál-
unum. „Ég tel að nýja framfærs-
lukönnunin sé mjög mikilvæg.
Þegar henni verður lokið verður
loks hægt að endurskoða fram-
færslugrunninn á raunhæfum
grundvelli. Það sér hver maður
að námslán sem eru um 35.000 á
mánuði hrökkva skammt“, segir
Ólöf Ýr meðal annars í viðtali í
málgagni félagshyggjufólks
innan HÍ.
Röskva: „HÍ fyrir alla!“
Húsnæðismál stúdenta eru í ó-
lestri þar sem leigumarkaður-
inn er sá frumskógur sem hann er
í dag. Röskva leggur ríka áherslu
á að bætt verði úr húsnæðismál-
um stúdenta.
Stúdentar geta haft mikil áhrif
á námsskipan og kennslu í hverri
deild í gegnum námsnefndir.
Röskva vill skýrari ákvæði í
reglugerð til að tryggja þessi
völd.
Á stefnuskrá Röskvu er að
gera námið aðgengilegra og fá
námsráðgjafa með fagþekkingu í
hverja deild. Röskva leggur einn-
ig ríica áherslu á það að fatlaðir
hafi sama aðgang að HÍ og aðrir,
og hefur félagið gert viðamikla
tillögu um bætta aðstöðu fatlaðra
við skólann. Fjórir stúdentar
Ólöf Ýr Atladóttir er efst á lista
Röskvu til Stúdentaráðs.
eru í framboði til Háskólaráðs
hjá hvoru félagi og 26 í framboði
til Stúdentaráðs. Tveir stúdentar
Pétur Már Ólafsson er frambjóð-
andi Röskvu til Háskólaráðs.
eiga sæti í háskólaráði en 30 í Stú-
dentaráði.
Ólöf Ýr Atladóttir íslensku-
nemi skipar efsta sæti fram-
boðslista Röskvu til Stúdentar-
áðs, og Pétur Már Ólafsson er
fremstur í flokki þeirra sem bjóða
sig fram til Háskólaráðs á vegum
Röskvu.
Efstur á framboðslista Vöku til
Háskólaráðs er Sigurjón Þor-
valdur Árnason verkfræðinemi
sem er formaður félags véla-
verkfræðinema, og efsta sæti
framboðslista Vöku til Stúdent-
aráðs skipar Andri Þór Guð-
mundsson sem stundar nám í við-
skiptafræði.
Röskva var stofnað til þess að
breyta staðnaðri stúdentapólitík í
virka hagsmunabaráttu. Innan
raða Röskvu er fólk Ur ýmsum
áttum sem sameiginlega vill
stuðla að frekari uppbyggingu
innan HÍ með félagshyggju að
leiðarljósi. eb