Þjóðviljinn - 16.03.1989, Side 1
Fimmtudagur 16. mars 53. tölublað 54. órgangur
Kjarasamn ingar
Þórarinn V. er ekki
orðinn guð almáttugur
Björn Grétar Sveinsson: Eflangtímasamningar og verðtryggingar-
ákvœði eru ekki lengur inni í myndinni skil ég ekki tilganginn með
allsherjar samfloti verkalýðsfélaga. Hœkkanir á opinberriþjónustu
hnefahögg framan í launamenn og pólitísk afglöp stjórnvalda
Eg tel ekki að guð almáttugur
hafi talað þó svo að Þórarinn
V. Þórarinsson framkvæmda-
stjóri VSÍ og forusta þess hafni
langtímasamningum og verð-
tryggingarákvæðum í þeim
samningaviðræðum sem fram
hafa farið á milli Alþýðusamb-
andsins og Vinnuveitendasam-
bandsins. Ef þessi afstaða VSÍ
verður lokaniðurstaðan skil ég
ekki tilganginn með allsherjar
samfloti verkalýðsfélaganna,
segir Björn Grétar Sveinsson for-
maður verkalýðsfélagsins Jökuls
á Höfn í Hornafirði.
Innan verkalýöshreyfingarinn-
ar eru nú uppi hugmyndir um að
ganga sem allra fyrst frá
skammtímasamningum við vinn-
uveitendur sem giltu fram á næsta
haust. Telja ýmsir mögulegt að
ná slíkum samningum jafnvel
fyrir páska, og myndu þeir ein-
göngu innihalda tvær
grunnkaupshækkanir á samn-
ingstímabilinu uppá 8-10%.
Björn Grétar bendir á að
Verkamannasamband íslands
hafi samþykkt ályktun þar sem
áhersla er lögð á að semja til
langs tíma og ná ennfremur fram
verðtryggingarákvæðum og hið
sama hafi verið samþykkt af hálfu
miðstjórnar Alþýðusambands-
ins. Björn sagði að það væri til
lítils að leggja af stað með fyrir-
fram ákveðna áætlun seiií hrynur
strax eins og spilaborg og tala á
samningafundum á öðrum nótum
en lagt var af stað með.
- Það er lágmarkskrafa að
menn standi við það sem sam-
þykkt hefur verið í þessum efn-
um. Ef ekki þá er ekkert sem úti-
lokar aðra möguleika í stöðunni,
sagði Björn Grétar.
Eftir helgina verður formanna-
fundur hjá Alþýðusambandi
Austurlands ef veður og færð
leyfa þar sem staðan í samninga-
viðræðum ASÍ og VSÍ verður
ma. rædd.
Þá hefur fiskvinnslufólk hjá
KASK á Hornafirði sent for-
manni Verkamannasambandsins
skeyti þar sem það mótmælir því
harðlega að samningafundir við
Vinnuveitendasambandið skuli
fara fram í húsakynnum þess.
Varðandi nýafstaðnar verð-
hækkanir á opinberri þjónustu
sagði Björn Grétar það vera
hnefahögg framan í launamenn
og pólitísk afglöp af hálfu
stjórnvalda. Afleiðingin væri að
heimilin tækju á sig enn eina kjar-
askerðinguna þegar atvinna væri
minni í fiskvinnslunni vegna
minni kvóta nú en áður. Þá væri
það illskiljanlegt afhverju orku-
fyrirtækin gætu komist upp með
að fá samþykktar hækkanir á sín-
um gjaldskrám á sama tíma.
-grh
Verða engin egg til sölu í verslunum eftir páska? Neytendamsamtökin hafa á í hótunum viö framleiðendur
lækki þeir ekki verðið á eggjum og kjúklingum.
Alþingi
Vaxtastefna
í sjálfheldu
Lög um Seðlabanka sitja ríg-
föst í fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar alþingis sökum þess
að ríkisstjórnin hyggst flytja
ákvæði um bindiskyldu og
lausafjárstöðu úr vaxtalögum og í
seðlabankalögin. Fyrir vikið er
enn margt óljóst um verkan
hvorra tveggju laganna og af
þeim sökum varð vaxtalagafrum-
varpið ekki að lögum í gær.
Vegna þessa hefur svigrúm ríkis-
valdsins til þess að hafa áhrif á
vaxtaþróun hérlendis ekki aukist
svo sköpum skipti.
Eitt nýmælanna í lögum á að
verða helsta vopn ríkisvaldsins í
baráttunni fyrir lækkun vaxta, til
að mynda í viðræðum við lífeyris-
sjóðina um kaup þeirra á
skuldabréfum ríkissjóðs með 5%
raunvöxtum. Því það er eitt af
markmiðum frumvarpsins að
„...skerpa heimildir stjórnvalda
til að tryggja hóflegar vaxtaá-
kvarðanir.“ ks
Neytendasamtökin
Eggjastríði
hótað
Neytendasamtökin hafa skorað
á framleiðendur kjúklinga og
eggja að lækka nú þegar verð á
vörum sínum og hverfa frá einok-
un og verðstýringu. Segja for-
ráðamenn samtakanna að þeir
neyðist til að grípa til aðgerða
strax eftir páska-
- Þetta eru síðustu viðvörunar-
skotin, áður en fastar verður
skotið, segir Jón Magnússon
stjórnarmaður í Neytendasam-
tökunum. Hann segir að samtök-
in muni m.a. reyna að þrýsta á
söluaðila að hætta sölu á kjúk-
lingum og eggjum komi ekki til
verðlækkunar.
Neytendasamtökin segja að á
síðustu 20 mánuðum hafi egg
hækkað um 121% og kjúklingar
um 95% en svínakjöt sem ekki sé
undir framleiðslustýringu og ein-
okun hafi aðeins hækkað um
40% á þessum sama tíma.
-Ig-
r EFTA
Islendingar hrósa sigri
Eftirjapl ogjaml ogfuðurféllustleiðtogarEftaríkjaáfríverslun með
fisk. Viðskiptaráðherra: Mjög mikilvœgur áfangi
Háskólinn
Vökusigur
Met þátttaka var í kosningum
til stúdenta- og háskólaráðs í
Háskóla íslands í gær. Um 56%
stúdenta greiddu atkvæði en tæp-
lega 10% skiluðu auðu eða ógildu
í kosningunum.
í kosningum til stúdentaráðs
hlaut Vaka 1253 atkvæði eða
50,8% og 7 mennkjörna en
Röskva hlaut 986 atkvæði 39,9%
og 6 menn kjörna. Athygli vekur
að 9,3% skiluðu auðu eða ógildu.
í síðustu kosningum hlaut Vaka 7
fulltrúa og Röskva 6.
í kosningum til háskólaráðs
hlaut Vaka 1311 atkvæði og 1
fulltrúa og Röskva 978 atkvæði
og 1 fulltrúa. Vaka hefur nú
meirihluta í stúdentaráði með
samtals 16 fulltrúa en Röskva
hefur 14 fulltrúa. Á síðasta kjör-
tímabili hafði hvor fylking 15 full-
trúa.
Islendingar voru að vonum
ánægðir með frammistöðu
leiðtoga sinna í gær eftir að þeir
höiðu á elleftu stundu knúið í
gegn ákvæði um frívcrslun með
fisk í EFTA í lokaályktun
leiðtogafundar samtakanna. Á al-
þingi gekk maður undir manns
hönd að hæla þeim Steingrími og
Jóni Baldvin á hvert reipi enda
væri ákvæðið „mikil vægur áfangi
að fríverslun með fisk í gjörvallri
Evrópu“ svo gripið sé til orðfæris
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra.
En það gekk ekki þrautalaust
að fá Finna til þess að fallast á
fríverslun með fisk í EFTA. Þeir
þykjast eiga umtalsverðra hags-
muna að gæta með því að
tollvernda Eystrasaltssíld og lax á
heimamarkaði sínum.
Stóð í stappi uns Ingvar Carls-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar,
hjó á hnútinn með því að hóta því
að gera tvíríkjasamning við ís-
lendinga um fríverslun með sjáv-
arfang. Þá gafst upp finnskur kol-
lega hans, Harrí Holkerí að
nafni, en þó ekki án skilyrða.
Niðurstaðan varð sú að milli-
ríkjaverslun með fiskmeti verður
frjáls í EFTA frá og með 1. júlí
1990. Með þeirri undantekningu
þó að Finnar fá að halda upp-
teknum hætti og setja innflutn-
ingstolla á síld og lax úr Eystra-
salti allt fram í árslok 1992.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði við Þjóðviljann í gær
að ákvæðið um fríverslunina væri
ekki svo efnislega mikilvægt fyrir
íslenska hagsmuni í bráð en þeim
mun mikilvægara sem áfangi að
því sem höfuðmáli skipti: frí-
verslun með fisk um gjörvalla
Evrópu.
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra kvað árangur
Steingríms og Jóns með miklum
ágætum. Hann vakti athygli á því
að niðurstaða leiðtogafundarins
væri sérlega ánægjuleg fyrir okk-
ur íslendinga vegna þess hve lítið
væri í lokaályktuninni um skuld-
bindingar, en mikil áhersla lögð á
vilja forystumanna EFTA til þess
að standa saman gagnvart þeirri
þróun sem yrði í Vestur-Evrópu
eftir 1992. .