Þjóðviljinn - 16.03.1989, Page 2
__________________FRÉTTIR__________________
Lífsbjörg á norðurslóðum
Málsóknir yfirvofandi
Magnús Guðmundsson og Magnús Skarphéðinsson tjá sig um myndina
Viðbrögðin hafa verið ótrúieg
því það virðist vera eining
meðai þjóðarinnar allrar um að
þetta hafi verið góð mynd, þó ein-
staka aðilar í umræðuþættinum
hafi verið á annarri skoðun.“
„Mér líst alveg fádæma illa á
þessa mynd og fátt mun verða
þjóðinni til meiri vansa erlendis
en þessi mynd.“ Þetta voru svör
þeirra nafnanna Magnúsar Guð-
mundssonar og Skarphéðins-
sonar þegar þeir voru spurðir um
álit á sjónvarpsmynd Magnúsar
Guðmundssonar, Lífsbjörg á
norðurslóðum. Þessi svör eru lík-
lega nokkuð dæmigerð fyrir álit
margra annarra, þar sem skoð-
anir manna á myndinni, hval-
veiðum og Grænfriðungum virð-
ast skiptast mjög í tvö horn þessa
dagana. Hvor hópurinn er stærri
skal ósagt látið.
Magnús Guðmundsson sagðist
vera mjög ánægður „með árang-
urinn“, en sagði þó að myndin
hefði ekki verið búin til með á-
kveðinn fyrirfram tilgang í huga.
„Við fórum af stað í þeirri trú að
við værum að fjalla um samtök
sem væru allra góðra gjalda verð
en urðum síðan ekki fyrir minna
áfalli en hver annar þegar annað
kom í ljós. Magnús sagði að ýmis-
legt væri í bígerð með sölu á
myndinni erlendis, en vildi ekki
tjá sig nánar um það, m.a. til að
fyrirbyggja að „aðilar yrðu fyrir
hótunum". Um yfirlýsingu þá
sem Greenpeace í Englandi
sendu frá sér og lesin var í sjón-
varpi í gær þar sem Magnúsi voru
ekki vandaðar kveðjurnar, sagði
Magnús að hún sýndi best hvers
konar vinnubrögð Greenpeace
viðhafi.
„Það mun taka áratugi að
hreinsa landið af þeim óþverra
sem mun berast út úr þessari
mynd,“ sagði Magnús Skarphéð-
insson, hvalaverndunarsinni og
taldi að um lygar og óhróður
hefði verið að ræða. Aðspurður
um hverju hann teldi Iogið, sagði
Magnús að hann hefði ekki
minnstu trú á að nokkur Græn-
friðungur hefði sviðsett dýra-
pyntingar og þekkti hann þó
marga Grænfriðunga persónu-
lega. Þá sagði Magnús að hann
hefði hjálpað nafna sínum með
útvegun efnis í myndina því
Magnús og Edda Sverrisdóttir
hefðu logið út efni á fölskum for-
sendum. Sagðist Magnús Skarp-
héðinsson hafa reynslu af því að
Grænfriðungar tækju ekki upp-
lýsingar gildar nema sannanir
væru fyrir hendi. Sagði Magnús
að vissulega hefðu Grænfriðung-
ar dreift sjónvarpsmyndinni um
selveiðar Norðmanna nýlega, en
um leið og þeir fréttu af því að
bætt hefði verið við myndina
gömlum tökum frá Nýfundna-
landi, hefðu þeir neitað allri sam-
Aðeins um helmingur af þeim
32 sýnum af kjötfarsi sem
Neytendasamtökin létu Hollustu-
vernd ríkisins gerlamæla,
reyndust hæf til neyslu. 10 sýni
voru ósöluhæf vegna of mikils
gerlagróðurs og fjórðungur af
kjötfarssýnunum voru ósöluhæf
vegna of mikils fjölda kólígerla og
saurkóligerlar voru í of miklum
mæli i átta sýnum.
- Þetta er allt of léleg útkoma
og greinilegt að ástandið varð-
andi kjötfarsið hefur ekki batnað
síðan við gerðum sambærilega
könnun fyrir nokkrum árum,
segir Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna.
Hann segir að niðurstöður þess-
arar úttektar verði sendar
heilbrigðisyfirvöldum og hugsan-
lega mundi samtökin fylgja þessu
máli enn frekar eftir.
vinnu við framleiðendur.
„Áhrifin af þessari mynd hér
innanlands eru ofsalega hörð í því
að náttúruverndarsinnar séu nán-
ast hryðjuverkafólk og samtök
misindismanna. Það var ekki eitt
orð í myndinni um að náttúru-
verndarsamtök hefðu unnið að
góðum málefnum, gegn eyðingu
skóga o.s.frv.“
Um viðbrögð Greenpeace
sagði Magnús Skarphéðinsson að
vissulega yrði farið í mál út af
myndinni. „Við sátum við að
þýða myndina í nótt og hún var
send út í dag til Londonarskrif-
stofunnar og Danmerkurdeildar-
Matvœli
Sérstaka athygli vekur að í
fjórum verslunum af fimm í
Vestmannaeyjum sem voru með í
úttektinni, reyndist kjörfarsið ó-
söluhæft. í 16 verslunum á höfuð-
borgarsvæðinu var kjötfarsið
gallað í fimm verslunum og ó-
söluhæft í fjórum. Saurkólígerlar
fundust í kjörfarssýnum frá versl-
unum Vogaveri, Melabúðinni og
Miklagarði í Reykjavík, Kaupfé-
laginu og Jónsborg í
Vestmannaeyjum og í KEA Hrís-
arlundi og KEA Höfðahlíð á Ak-
ureyri.
- Það er mjög alvarlegt mál
þegar saurgerlar finnast í mat-
vörum og neytendur eiga kröfu á
því að svona lagað eigi sér ekki
stað, sagði Jóhannes.
Niðurstöður varðandi nauta-
hakk komu mun betur út en þó
reyndust 6 sýni af 32 ósöluhæf.
Kóligerlar voru í nokkrum mæli í
innar. Þar bíða lögfræðingar og
mér skilst að Magnúsi Guðm-
undssyni verði stefnt, Eddu og
Leif Blædal, danska blaðamann-
inum auk íslenska sjónvarpsins.
Mál verði höfðað á mörgum for-
sendum, bæði vegna stuldar á
höfundarrétti á myndum Græn-
friðunga, vegna persónulegra ær-
umeiðinga o.fl. Lögfræðingar úti
segja mér að myndin lendi í máls-
höfðun alls staðar og eigi eftir að
verða Magnúsi og íslenská sjón-
varpinu mjög kostnaðarsöm,"
sagði Magnús Skarphéðinsson.
phh
Neytendur vita oft mest lítið um
hollustu unninna matvara sem
þeir kaupa í matinn.
sumum sýnanna, og reyndust
fjögur þeirra ósöluhæf vegna
þessa.
-•g-
Kjötfarsið ekki mannamatur
ÚttektNeytendasamtakanna á nautahakki og kjötfarsi. Aðeins um
helmingur kjötfarssýna reyndist hæfur til neyslu. Saurkóligerlar í of
miklu mœli í8 sýnum. Mun betri útkoma á nautahakki. Jóhannes
Gunnarsson: Allt of lélegt
Þjóðarflokkurinn
í viðræðum
við Stefáns-
menn
Flokkur mannsins
vill ísland í EB
— Það eru í gangi viðræður á
milli Þjóðarflokksins og Samtaka
um jafnfrétti og félagshyggju um
hugsanlega samvinnu þessara að-
iia í næstu kosningum.
Nefndir eru ma. að vinna að
ýmsum drögum þó svo stefnu-
skrárnar séu ólíkar. Þá hafa enn-
fremur átt sér stað óformlegar
viðræður við Borgaraflokkinn
um hið sama, sagði Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir í Þjóðar-
flokknum.
Jóna sagði ennfremur að
Flokkur mannsins hefði spurst
fyrir um viðræður við Þjóðar-
flokkinn með hugsanlega sam-
vinnu í huga við næstu kosningar
en hún taldi hverfandi líkur vera
á því.
-grh
Alþingi
Húsbréfin
loks á þing
Óvissa um meiri-
hlutastuðning
Ríkisstjórnin hefur lagt fram á
alþingi „frumvarp til laga um
breytingu á lögum um Húsnæðis-
stofnun ríkissins“. Hér er hið
margumrædda og umdeilda hús-
bréfafrumvarp á ferð, málið sem
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráherra stendur og fellur
með.
Óvíst er um fylgi frumvarpsins
á alþingi þar eð ýmsir þingmanna
Alþýðubandalags og Framsókn-
arflokks ala í brjósti efasemdir
um ágæti húsbréfa. Þó er það mál
fjölda manna á löggjafarsam-
komunni að málið sé svo flókið,
viðamikið og óskýrt enn að
ógerningur sé að gera upp hug
sinn til þess á þessari stundu.
ks
21 miljarður
í staðgreiðslu
Staðgreiðslukerfi skatta skilaði
ríkissjóði um 21 miljarði í fyrra
sem var fyrsta ár nýja kerfisins.
Mest kom inn í staðgreiðslunni í
síðasta mánuði ársins og næstskil-
abesti mánuðurinn var júní. Um
60% af staðgreiðslunni fer í gegn-
um Gjaldheimtuna í Reykjavík
en minnsti gjaldheimtuaðilinn er
Gjaldheimtan í Bessastaða-
hreppi sem innheimti um 0,05%
af skiluðu staðgreiðslufé, að því
er fram kemur í nýútkomnu frétt-
abréfi ríkisskattstjóra. Segja inn-
heimtumenn að staðgreiðslukerf-
ið hafi reynst mun virkara inn-
heimtukerfi en margir þorðu að
vona.
Stóraukið
skattaeftirlit
Ríkisskattsstjóri úrskurðaði á sl.
ári í 62 málum fyrirtækja og ein-
staklinga vegna athugunar
rannsóknardeildar skattsins.
Samtals voru skattar á þessum
aðilum hækkaðir um rúmar 243
miljónir. Þar af nam hækkun á
álögðum söluskatti tæpum 220
miljónum. Þetta er mun hærri
aukaálagning en næstu ár á
undan en árið 1987 var úrskurðuð
hækkun á sköttum uppá 123 milj-
ónir. Alls voru um 480 mál tekin
til sérstakrar athugunar hjá
rannsóknardeild ríkisskattsstjóra
og reyndust 85 þeirra gefa tilefni
til hækkunar opinberra gjalda.
Stjórnin átalin
Iðja, félag verksmiðjufólks á Ak-
ureyri hefur harðlega átalið
stjórnvöld fyrir fyrirhyggjuleysi í
veðlagsmálum. Þær verðlags-
hækkanir sem nú dynj a yfir munu
kalla á enn hærri kaupkröfur en
ella hefði orðið, segir í samþykkt
félagsfundar Iðju. Skorar fund-
urinn á ríkisvaldið að grípa þegar
til nauðsynlegra aðgerða til að
auðvelda gerð nýrra kjarasamn-
inga og ná stöðugleika í verð-
Iagsmálum á ný.
Rosa Luxemburg
í kvöld
Kvikmyndaklúbburinn sýnir í
kvöld kl 21 og 23.15 í Regnbog-
anum, vestur þýsku myndina
Rosa Luxemburg eftir Margaret-
he von Trotta. Með aðalhlut-
verkin fara þau Daniel Olbryc-
hski og Barbara Zukowa sem
fékk gullverðlaunin í Cannes
1986 fyrir leik sinn í myndinni,
sem fjallar um ævi og störf hinnar
merku hugsjónakonu í stjórn-
málum í byrjun þessarar aldar.
Jóhanna t.v og Sigríður taka við námsstyrkjunum í gær. Mynd-Þóm.
Tvær söngkonur fá námsstyrk
Söngvarasjóður óperudeildar Fé-
lags íslenskra leikara veitti í gær
tveimur söngkonum styrk til
frekari menntunar í list sinni. Það
voru þær Sigríður Jónsdóttir,
mezzosópran og Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir, alt, sem fengu styrki
að þessu sinni, 100 þús. kr. hvor,
en alls sóttu 9 söngvarar og söng-
nemar um styrkina. Sigríður
Jónsdóttir stundaði nám hjá
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur
við Söngskólann í Reykjavík og
síðan framhaldsnám við há-
skólann í Illinois. Jóhanna V.
Þórhallsdóttir hóf söngnám hjá
John A. Speight við Tónskóla
Sigursveins og fór síðan í fram-
haldsnám til Manchester í Eng-
landi. í stjórn óperusjóðsins eiga
sæti þau: Elísabet Erlingsdóttir,
Júlíus Vífill Ingvarsson og Krist-
inn Hallsson.
Sókn motmælir
hækkunum
Starfsmannafélagið Sókn hefur
krafist þess að allar nýlegar
hækkanir á vöru og þjónustu
verði tafarlaust afturkallaðar og
nýjar ekki leyfðar, enda bitni þær
mest á tekjulægstu hópum þjóð-
félagsins. Þá krefst félagið þess
að kjararýrnun undangenginna
átta mánaða verði þegar bætt.
Jökull
fær málverk
Þorlákur Kristinsson (Tolli) hélt
myndlistarsýningu á Höfn í
Hornafirði á dögunum og afhenti
við það tækifæri Verkalýðsfé-
laginu Jökli málverk að gjöf.
Málverkið ber heitið „Beðið tíð-
inda“ og er óneitanlega táknræt
fyrir stöðu kjaramála um þessar
mundir. Verkalýðsfélagið hyggst
að sögn Björns Grétars Sveins-
sonar formanns þess, koma sér
upp málverkasafni, sérstaklega
með verkum austur-skaftfellskra
málara.
Bankaráð ákveði vexti
Héðan í frá orkar það ekki tví-
mælis að það eru bankaráð en
ekki bankastjórar sem ákveða
vexti og þjónustugjöld banka.
Ennfremur hefur verið girt fyrir
ákveðna hættu á misnotkun
bankafjár með því að leggja sem
næst algjört bann við því að
stjórnendur viðskiptabanka eigi
hlutafé í fyrirtækjum.
Þetta er höfuðinntak breytinga á
lögum um viðskiptabanka sem
öðluðust gildi við lokaafgreiðslu
alþingis í gær. Frumvarpið var
lagt fram af ríkisstjórninni í kjöl-
far yfirlýsingar forsætisráðherra
um efnahagsráðstafanir í önd-
verðum fyrra mánuði. ks
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. mars 1989