Þjóðviljinn - 16.03.1989, Qupperneq 9
ERLENDAR FRETTIR
Methneyksli
Haft er eftir japönskum blöðum
að ráðamenn Frjálslynda
lýðræðisflokksins, stjórnarflokks
Japans, hafi ákveðið að Yasuhiro
Nakasone, fyrrum forsætisráð-
herra, skuli vera kvaddur til að
bera vitni í rannsóknum á pólit-
ísku hneyksli, sem fréttamenn
kalla það mesta í sögu landsins.
Benda likur til þess, að mcira en
100 málsmetandi menn hafi þegið
á laun greiðslur frá stórfyrirtækj-
um, og snertir þetta mál næstum
alla forustu stjórnarflokksins.
Þrír ráðherrar hafa þegar sagt
af sér vegna málsins og sam-
kvæmt niðurstöðum skoðana-
kannana hefur það leitt til þess að
núverandi ríkisstjórn, sem lýtur
forustu Noborus Taheshita, er
óvinsælli en nokkur önnur Jap-
ansstjórn eftir heimsstyrjöldina
síðari. 12 menn hafa þegar verið
handteknir vegna hneykslismáls
þessa.
Reuter/-dþ.
Nakasone - nú er horfið hið
forna lánið.
Líbanon
Hætta á harðnandi átökum
Kristnir og múslímar skiptust á
vélbyssugusum í Beirút í gær,
en friðsælt þótti í þeirri marg-
hrjáðu borg miðað við það sem
var í fyrradag, er yfir 40 manns
voru drepnir og um 140 særðir.
Júgóslavía
Ný stjóm
Ný ríkisstjórn var mynduð í
Júgóslavíu í gær með það fyrir
augum að ráða bót á efnahags-
vandræðum, jafna deilur milli
þjóða og fást við vaxandi and-
stöðu við kommúnistaflokk
landsins. Eru í nýju stjórninni 19
ráðherrar í stað 29 í þeirri fráfar-
andi og kallar Reuter hana
blöndu af umbótasinnum um
efnahagsmál og harðlínu-
mönnum. Forsætisráðherra verð-
ur að líkindum Króatinn Ante
Markovic, frjálslyndur sagður,
og Franc Horvat, frjálslyndur
Slóveni, verður ráðherra utan-
ríkisviðskipta. Innanríkisráð-
herra í nýju stjórninni er Petar
Gracanin, Serbíuforseti, sem
kallaður er íhaldssamur.
Reuter/-dþ.
Langflestir þeirra drepnu voru
óbreyttir borgarar, enda stilltu
stríðsaðilar stóru byssurnar ó-
spart á íbúðarhús, sjúkrahús,
skóla og verslanir hvors í annars
borgarhluta.
Michel Aoun, leiðtogi krist-
inna, segist hafa fastákveðið að
reka sýrlenska herinn, sem styð-
ur múslímastjórnina keppinaut
hans, úr landi, en litlar sem engar
líkur eru á því að Sýrlendingar
hafi sig á brott nema tilneyddir.
Óttast því margir að líbanska
borgarastríðið, sem staðið hefur
nærfellt hálfum öðrum áratug,
harðni nú á ný og að fleiri er-
lendir aðilar en Sýrland kunni
jafnvel að dragast inn í það.
Reuter/-dþ.
Hjörtu mætast á ný
Kyrrstaða
við
Jalalabad
Heldur hefur undanfarna tvo
daga dregið úr hörkunni í bar-
dögunum um Jalalabad í Austur-
Afganistan, sem hófust fyrir
hálfri annarri viku. Er nú svo að
heyra að þar gangi hvorki né reki.
Mujahideen náðu snemma í bar-
dögunum rammlega víggirtri út-
varðarstöð austur af borginni, en
síðan tókst Kabúlstjórnar-
mönnum að stöðva þá með jarð-
sprengjum og loftárásum. Bar-
dagarnir þarna eru sagðir hafa
verið meðal þeirra hörðustu í öllu
stríðinu.
Reuter/-dþ.
Hjarta Zitu, síðustu keisara-
drottningar Austurríkis-Ung-
verjalands, sem lést í fyrradag 96
ára að aldri, verður tekið úr líki
hennar og lagt í skrín hjá hjarta
eiginmannshennar, Karls l.,síð-
asta keisara Austurríkis og kon-
ungs Ungverjalands, sem lést
1922. Er þetta í samræmi við hefð
í Habsborgaraætt. Skrínið með
hjörtunum verður fyrst um sinn
varðveitt í klaustri í Muri í Sviss,
sem Habsborgarar stofnuðu árið
1027. Zita hafði skrínið með
hjarta eiginmanns síns hjá sér all-
an þann tíma sem hún bjó í útlegð
sem ekkja, á Madeiru, Spáni, í
Belgíu, Bandaríkjunum og síðast
í Sviss.
Reuter/-dþ.
Fjölmennt á útifundi
Uppundir 100.000 manns mættu í
gær á útifundi í Búdapest, höfuð-
borg Ungverjalands, og hlýddu
ræðum bæði fulltrúa kommún-
istaflokks landsins og stjórnar-
andstöðuflokka, sem stofnaðir
hafa verið eða endurreistir að
undanförnu. Dagurinn er þjóð-
hátíðardagur þarlendis í minn-
ingu uppreisnar Ungverja gegn
Austurríkiskeisara, sem hófst
1848. Austurríkismenn bældu
uppreisnina niður með aðstoð
Rússa. Reuter/-dþ.
Somozaliðar lausir
Þingið í Níkaragva samþykkti í
gær að 1894 liðsmenn þjóðvarð-
arliðs svokallaðs, er þjónaði
stjórn Somozafjölskyldunnar,
skyldu látnir lausir úr fangelsum.
Ráðstöfun þessi er mjög umdeild
í landinu, þar eð Somozaliðar
voru með afbrigðum mikilvirkir
við hrannmorð á óbreyttum
borgurum og föngum og önnur
hryðjuverk. Þeim verður nú
sleppt í samræmi við samkomu-
lag forseta Mið-Ameríkuríkja
nýverið. Reuter/-dþ.
Skuldir Þriðja heims
Bush samþykkir áætlun Bradys
B
ush Bandaríkjaforseti hefur
Ijáð áætlun, sem gerð var að
fyrirlagi fjármálaráðherra hans,
Nicholas Brady, um að lækka er-
lendar skuldir þriðjaheimsríkja,
samþykki sitt. Segja aðstoðar-
menn forsetans að líklega verði
byrjað á framkvæmd áætlunar-
innar á næstu mánuðum.
Byrjað verður á að taka skuldir
Mexíkó og Venesúelu til með-
ferðar samkvæmt áætlun Bradys.
Hugmyndin á bakvið hana er sú,
að létta skuldabagga þriðja-
heimsríkja án sparnaðarráðstaf-
ana, er komi niður á lífskjörum
þegna þeirra, en óeirðirnar fyrir
skömmu í Venesúelu sýndu ljós-
lega, hvað af slíkum ráðstöfunum
getur leitt. Stjórnir rómanskam-
erískra ríkja, sem flest eru stór-
skuldug, hafa flestar fagnað áætl-
un Bradys, þó með fyrirvara og
Perez Venesúeluforseti segir
hana ganga alltof skammt.
Reuter/-dþ.
■ ^TOLLVÖRU
NGEYMSIAN
Aðalfundur Tollvöru-
geymslunnar hf.
AðalfundurTollvörugeymslunnarhf. verðurhald-
inn fimmtudagin 16. mars 1989 að Hótel Holiday
Inn, Sigtúni 38, Reykjavík, og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 3.4.1-6. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og
breyting á 2.1.0 gr. samþykkta því til sam-
ræmis.
3. Breytingar á eftirtöldum greinum samþykkta
félagsins:
2.1.0. Tillaga um breytingu á fjárhæð hluta.
2.7.3. Leiðrétting. Engin efnisbreyting.
3.3.0. Tillaga um breytingu þess efnis að eitt
atkvæði sé fyrir hvern einnar krónu hlut.
3.6.2. Tillaga um að fella brott skyldu til fund-
arboðunar í Lögbirtingablaði og að stytta lág-
marksfrest til fundarboðunar í einnar viku
frest.
3.8.2. Tillaga um að breyta ákvæðum greinar-
innar um atkvæðamagn til breytinga á félags-
samþykktum til samræmis við 76. gr. hlutafé-
lagalaga.
4.1.0. Tillaga um breytingu þess efnis að ekki
sé nauðsynlegt að stjórnarmenn séu hluthaf-
ar og í öðru lagi að fella á brott ákvæði sam-
þykktanna um að viðhafa hlutfallskosningu.
4.3.0. Tillaga um breytingu á ákvæðum
greinarinnar um hverjir megi rita félagið.
Dagskrá og endanlegar JiJlögur munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7
dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Stjórn Tollvörugeymslunnar hf.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við grunnskóla.
Umsóknarfrestur tii 7. apríl
Vesturlandsumdæmi
Staða skólastjóra við Grunnskólann á Hellissandi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana:
Akarnesi, meðal kennslugreina náttúrufræði, sérkennsla og
kennsla á bókasafni, Ólafsvík, Borgarnesi, meðal kennslugreina
heimilisfræði, myndmennt og kennsla á bókasafni, Stykkishólmi,
Hellissandi, meðal kennslugreina handmennt og kennsla yngri
barna, Eyrarsveit, meðal kennslugreina erlend tungumál, hand-
mennt og náttúrufræði, við Heiðarskóla, Laugagerðisskóla, meðal
kennslugreina íþróttir, og við Laugaskóla, meðal kennslugreina
íslenska, erlend mál, hand- og myndmennt, íþróttir.
Norðurlandsumdæmi vestra
Staða skólastjóra við Grunnskólann á Blönduósi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana:
Siglufirði, meðal kennslugreina íþróttir, sérkennsla, náttúrufræði og
samfélagsfræði, Sauðárkróki, meðal kennslugreina sérkennsla,
danska og tónmennt, Staðarbakka, Hvammstanga, Blönduósi,
meðal kennslugreina kennsla yngri barna, tónmennt, mynd- og
handmennt, Skagaströnd, meðal kennslugreina íþróttir og hand-
mennt, Hofsósi, meðal kennslugreina mynd- og handmennt, íþrótt-
ir, danska og enska og við Laugabakkaskóla, meðal kennslugreina
íþróttir, Vesturhópsskóla, Húnavallaskóla, meðal kennslugreina
sérkennsla, Varmahlíðarskóla og við Sólgarðaskóla.
Austurlandsumdæmi
Stöðu skólastjóra við grunnskólana: Bakkafirði, Stöðvarfirði,
Djúpavogi og við Brúarásskóla.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana:
Eskifirði, meðal kennslugreina íþróttir, Bakkafirði, Borgarfirði,
Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalshreppi, Djúpa-
vogi, Höfn, meðal kennslugreina handmennt, tónmennt og heimilis-
fræði, Mýrahreppi, og við Seyðisfjarðarskóla, meðal kennslugreina
enska, mynd- og handmennt, tónmennt, íþróttir og sérkennsla,
Nesskóla, Egilsstaðaskóla, meðal kennslugreina íþróttir, kennsla
yngri barna og sérkennsla, Vopnafjarðarskóla, meðal kennslu-
greina íþróttir, náttúrufræði og erlend tungumál, Brúarásskóla,
Skjöldólfsstaðaskóla og Hrollaugsstaðaskóla.
Menntamálaráðuneytið
Fimmtudagur 16. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9