Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 26
1 V? 3 Ý "j* 5 Z 2T V 7 10 V
11 13 v )3 n 2 SP 9 I? 2 V n !(? t
n T iz n n 2 Zd 7 U, V i/ 22 S2 T~
V » w~ (p S? ? H n 13 T V 21 n T 23
13 Zsr n <P 26 zf 21 26 W )Z 26
11 n V ll !8 )S' S? ? )l W~ 23 T H
22 V W ib Y n sr n V l°i )S V 'Ö |W, &
Isf 7 Z8 i JÝ u 21 Q? r II s? 6
7- n Zl f n T~ 5 n 2 V /s ?
IV n n V 2 IS u 22 2*1 T w~
V> i<* Z— 2 s? i 21 2 S? 2. T )f-
V (o IV V 21 z V /s 17 V 3/ (o 2 Zb
l 2 Y is 23 2 U )% u n W u
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunakrossgáta
Lausnararöiö fyrir verðlaunakrossgátu nr. 32 var ÖXNARHÓLL.
Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Jóhanns S. Marteins-
sonar, Hjaltabakka 4, Reykjavík. Hann fær senda skáldsöguna Þar
sem djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason.
31 L 22 J¥ 27 3 2 5
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 35“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 35 er
Egils saga Skalla-Grímssonar,
myndskreytt af Einari Hákonar-
syni. AB gaf út.
MATU
GERARD
EMARQUIS
Kreppumatur
Sparnaður, endurskipulagn-
ing, samdráttur... Þjóðviljinn
byrjar strax í dag með því að
skera niður dálkinn um kynlíf.
Mér finnst þetta fyrsta skref í átt
að betri rekstri andfélagslegt og
óréttlátt. Það bitnar fyrst og
fremst á þeim sem minnst mega
sín kynferðislega í þessu þjóðfé-
lagi en hafa samt gaman af að lesa
um þetta efni í blöðunum. Mat-
arpistillinn er síðasta nautnin í
Þjóðviljanum og maður verður
bara að sætta sig við það.
Kreppu-fíflasalat:
litlir fíflar (blöðin stærst 5 sm)
olía
sítróna
franskbrauð
hvítlaukur
beikon
Austfirðingar, hef ég heyrt,
voru steinhissa að sjá franska sjó-
menn tína nýsprottna fífla. Fífla-
salat er mjög ljúffengt en plönt-
urnar verða að vera nýsprottnar
og heilar. Skerið plönturnar upp
af rótinni. Látið 1 mm af rótinni
fylgja plöntunni til þess að hún
haldist heil. Hreinsið burt
skemmd blöð, skolið og þerrið.
Blandið saman olíu og sítrónu,
bætið við steiktu beikoni í smá-
bitum, ristuðum brauðteningum
sem hafa verið stroknir með hvít-
lauk. Bætið við fíflablöðunum á
síðustu stundu.
Kreppu-hundasúru-
sósa:
hundasúra
smjör
rjómi
Hvernig væri að vera einu sinni
ótrúr Toro, Knorr eða honum
Magga og bera fram hundasúru-
sósu með steikinni?
Hundasúran er undirstaða
Normandí-matreiðslu. Tínið
mikið af hundasúrublöðum, þvo-
ið og þerrið. Hreinsið stilkana í
burtu og notið aðeins blaðið.
Bræðið smjör á pönnu og látið
hundasúruna bráðna í því.
Hundasúran minnkar gífurlega í
rúmmáli þegar hún bráðnar.
Bætið rjóma útí til að minnka sýr-
una.
Góðærisuppskriftin er næstum
eins að því viðbættu að kjötið
sem er borið fram með er flamb-
erað í Calvados (eplabrennivíni).
Lesendur blaðsins hafa haft
samband vegna uppskriftarinnar
að Bouillabaisse súpunni sem
birtist í síðasta Helgarblaði og
viljað vita hvernig átti að neyta
sósunnar með súpunni. Þrjár
leiðir eru til. í fyrsta lagi að setja
sósuna út í súpuna en varast að
hræra hana saman við. í öðru lagi
að hafa sósuna sér á diski og dífa
brauðinu í sósuna og síðan ofan í
súpuna. í þriðja lagi er hægt að
hafa sósuna á botni súpuskálar-
innar og taka smávegis af henni í
hverja skeið.
TAROT
Hilmar Öm
Hilmarsson
Af hagsýni og hugsjónum
Nú er komið að því að fara út í
túlkanir á Diskum og Sverðum. f
síðustu viku fór ég lítillega inná
kynjaskiptinguna í spilunum,
þ.e. að Vendir teljast vera
karlkyns og bikarar kvenkyns og
nú eykst kynjamisréttið enn frek-
ar. Sverð teljast vera karlkyns og ■
tengjast hugsun, skipulagningu
og tjáskiptum. Diskar eru kven-
kyns og tengjast hagsýni, pening-
um og þægindum ýmiskonar.
En það er kannski best að
sleppa öllum hugleiðingum um
þetta atriði og vinda sér beint út í
upptalninguna.
, Byrjum á Diskum:
As: Gróði, velgengni, allt gengur
upp.
2. : Samræmi, breyting til hins
betra. Nýtt líf.
3. : Uppbygging, viðskipti.
4. : Vald, eignir, nautnir.
5. : Áhyggjur sem yfirleitt eru
fjárhagslegar, tap sem verður út-
frá óraunsæi.
6. : Velgengni í fjármálum, fyrir-
greiðsla, gjafir.
7. : Mistök, tafir, eitthvað sem
fólk treystir á gengur ekki upp.
8. : Hagsýni. Útsjónarsemi og
góður undirbúningur hefur gróða
og uppbyggingu í för með sér.
9. : Gróði, - jafnt tilfinningalegur
sem efnahagslegur.
10. : Auðæfi, allt gengur upp í
jarðnesku og praktísku málun-
um.
Skjaldsveinn/prinsessa: Gjafmild
manneskja, hugrekki, skilaboð.
Riddari: Nýtni, þjónusta, þolin-
mæði. Ljúfmenni sem verður
óendanlega leiðinlegt þegar til
lengdar lætur.
Drottning: Gæska, rólegheit, ör-
yggi-
Konungur/prins: Orka, hagsýni.
Staðfesta sem á það til að
breytast í þrjósku.
Og þá tökum við Sverðin fyrir:
Ás: Viljakraftur, sigrar, fólk nær
því að framkvæma það sem það
vill.
2. : Friður, kemst á að nýju, vin-
átta. Utanaðkomandi hjálp.
3. : Sorg, óhamingja, ójafnvægi.
4. : Vopnahlé, hvíld, tími til að
taka mál til endurskoðunar.
5. : Uppgjöf, eyðilegging, ómark-
viss barátta.
6. : Viska, skilaboð. Tími til þess
að vinna úr upplýsingum.
7. : Hégómi og prjál. Fyrirfram
uppgjöf og vonleysi.
8. : Truflun, utanaðkomandi öfl
skemma fyrir. Leiðinlegt fólk.
9. : Grimmt, vont fólk, þjáning og
sárindi.
10. : Hrun, grátur og gnístran
tanna. Afbrýðisemi.
Skjaldsveinn/prinsessa: Ófram-
færni, njósnir, laumuspil og bak-
tjaldamakk.
Riddari: Lymska, herkænska,
hugrekki. Maður sem aldrei
hugsar hlutina til enda.
Drottning: Sveigjanleiki, gott
innsæi, einstaklingshyggja.
Konungur/prins: Greind, rök-
hugsun. Maður sem á það til að
vera of dómharður.
Jæja, þá eruð þið komin með
öli lykilorðin fyrir spilin og fortíð
jafnt sem framtíð ættu að verða
sem opin bók. í næstu viku fer ég
síðan inn á lögn sem hjálpar ykk-
ur að nota þessa nýfengnu vit-
neskju til hins ítrasta.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. mars 1989