Þjóðviljinn - 17.03.1989, Blaðsíða 27
FJOLSKYLDAN
SIGTRYGGUR
JÓNSSON
Sjálfsmynd - Sjálfstraust
- Sjálfsvirðing I
Ágœtu lesendur
Ég hef fallist á að skrifa reglu-
lega pistla í Nýtt Helgarblað um
málefni fjölskyldunnar og það
sem upp getur komið ísambúð og
hjónalífi og valdið erfiðleikum.
Eg er sálfrœðingur í Reykjayík og
hef starfað þar sl. 10 ár. t 3 ár
vann ég við Sálfrœðideildir skóla,
síðan vann ég við göngudeild
Unglingaheimilis ríkisins í5 ár, en
sl. 2 ár hefég eingöngu unnið við
eigin stofu. Ég hef því unnið
mikið með uppeldi barna og ung-
linga, en vinn nú að mestu með
fullorðið fólk og .erfiðleika þess.
Bœði einstaklingsbundna sem
sambúðarerfiðleika. Prátt fyrir
nokkuð víðtœka reynslu, getur
verið erfitt að halda úti föstum
þœtti um svo viðamikið mál, sem
sambúð og barnauppeldi er, og
hitta œtíð í tnark varðandi áhuga
og þarfir lesenda. Ég vil því
gjarnan fá ábendingar og bréffrá
lesendum um efni eða efnisflokka
eða jafnvel beinar spurningar til
að svara.
Öll ölumst við upp í einhvers
konar fjölskyldum, stórum eða
smáum, hjá foreldrum eða
vandalausum og þar lærum við að
vera það sem við erum. Með
þennan lærdóm förum við síðan
inn í sambúð og byggjum upp
okkar eigin fjölskyldu, misjafn-
lega sátt við það sem við þekkjum
úr upprunafjölskyldunni og hvað
við viljum halda í, hverju breyta
og hverju bæta við. Við þetta
bætast síðan áhrif frá umhverfi,
breytingar í þjóðfélaginu og þeir
möguleikar sem síaukin tækni-
væðing býður okkur upp á. Þess-
ar síðast töldu breytingar hafa á
síðustu árum eða áratugum orðið
meir og meir hraðfara og gert
auknar kröfur til okkar um að-
lögun og átt sinn þátt í því að hver
ný kynslóð getur minna og minna
notað frá hinum fyrri hvað varðar
viðbrögð við þörfum og löngun-
um. .
Það er ekki ýkja langt síðan
hver kynslóðin á fætur annarri
gekk til sömu starfa, hver tók við
af annarri og lærði strax í bernsku
að lifa því lífi, sem koma skyldi.
Sjálfsmyndin, sjálfsöryggið og
sjálfsvirðingin voru þannig tengd
þeirri staðreynd að einstaklingur-
inn vissi frá barnsaldri að hverju
hann gekk í lífinu og ólst upp við
að búa sig undir það. Enginn tími
fór í rauninni til spillis. Allt frá
því að einstaklingurinn fór að
geta tekið til hendinni vann hann
að því að læra að leysa erfiðleika
og vandamál tengd því sem koma
skyldi er hann yrði fullorðinn og
því ekki margt, sem komið gat
sjálfsmyndinni úr skorðum. A
þessum tíma voru störf hefð-
bundin og langflestir unnu við
frumframleiðsluna, landbúnað
og fiskveiðar, en aðeins örfáir við
þjónustu, svo sem verslun,
kennslu, hjúkrun, prestsstörf eða
stjórnun. Tæknivæðingin hefur
fyrst og fremst gert það að verk-
um að störfum í þjónustu hefur
fjölgað og fækkað hefur í störfum
við frumframleiðsluna, þótt fra-
mleiðslan hafi aukist. Gert er ráð
fyrir að nú vinni aðeins um 30%
vinnandi manna við frumfram-
leiðsluna, en aðrir vinni við alls
konar milliliði og þjónustu. Störf
ganga ekki lengur í erfðir og
undirbúningur fyrir ævistarfið
getur ekki hafist fyrr en á ung-
lingsárunum, löngu síðar en áður
var. Þá fer þessi undirbúningur
ekki lengur fram á heimilunum
undir leiðsögn foreldra, heldur
gerist í skólum og á vinnustöðum
eða jafnvel alfarið ótengt vinnu-
stöðum. Áður lærðu börn nánast
eingöngu kynhlutverk sitt af for-
eldrum sínum. Bóndasonur varð
bóndi, bóndadóttir varð bónda-
kona, menntamannabörn urðu
menntamenn o.s.frv. Kynhlut-
verk og staðan í lífinu voru miklu
fasttengdari en nú er og tengslin
við kynhlutverk foreldranna
Áður lærðu börn nær eingöngu
kynhlutverk sitt af foreldrum
sínum. (Mynd Kravauskas)
augljósari. Börn læra ekki lengur
nema lítinn hluta kynhlutverks
síns af foreldrum og aðeins þann
hluta sem persónulegur er, ó-
tengt starfi og stöðu einstaklings-
ins. Uppbygging sjálfsmyndar,
sjálfstrausts og sjálfsvirðingar
hefur því breyst nrjög mikið og er
nú meira tengd ópersónulegum
tengslum við fullorðna en áður
var. Hins vegar eru þarfir ein-
staklinganna fyrir þetta þær sömu
og áður og svo er einnig um kröf-
ur þjóðfélagsins. Að vita hver þú
ert, hvað þú vilt fá út úr lífinu, við
hvað þú vilt starfa, að hverju þú
stefnir, að þú getir séð um sjálfan
þig, látir ekki troða á þér og getir
gert kröfur fyrir sjálfan þig í líf-
inu.
Hlutverk
í dag rekst ég sífellt á fleiri og
fleiri einstaklinga, sem reyna að
Það leið ekki langur tími frá því að
skákmót Fjarkans og Skáksambandi
íslands lauk að Margeir Pétursson var
sestur aftur að tafli nú í Lugano í.
Sviss. Þar hefur um margra ára skeið
verið haldið eitt helsta opna mót í
heimi og dregur það jafnan til sín
marga af fremstu stórmeisturum
heims. Það er frábrugðið t.d. New
York-mótinu í því, að teflt er í einum
flokki og getur nánast hvaða skák-
maður sem er skráð sig til leiks án
tillits til stiga. Keppendur skipta því
hundruðum. Að þeim sökum er eins
gott fyrir metnaðarfulla skákmenn að
ná háu vinningshlutfalli vilji þeir bera
sigur úr býtum. Margeir náði glæsi-
legu vinningshlutfalli, 8 vinningum úr
9 skákum og varð í efsta sæti ásamt
Viktor Kortsnoj. Þeir voru lVi vinn-
ingi fyrir ofan næstu menn.
Sovéski stórmeistarinn Lerner tók
að sér hlutverk hérans í þessu móti,
vann fimm fyrstu skákirnar en þá
sprakk hann og er úr sögunni. Mar-
geir og Kortsnoj voru komnir á fleygi-
ferð, unnu hverja skákina af annarri.
Fyrir síðustu umferð voru þeir báðir
með 7 vinninga, og fékk Margeir ít-
alskan andstæðing heldur auðveldari
viðfangs en mótstöðumann Korts-
nojs, a-þýska stórmeistarinn Knaak.
Báðir unnu þeir þó örugglega. Röð
efstu manna varð þessi:
1.-2. Margeir Pétursson og Korts-
noj (Sviss) 8 v. 3.-15. Lautier (Frakk-
land), DeFirmian (Bandaríkin), Ghe-
orghiu (Rúmenía), Miles (Bandarík-
in), Chernin (Sovétríkin), King (Eng-
land), Knaak (A-Þýskaland), Douven
(Holland), Rogers (Ástralíu), Lars Bo
•Hansen (Danmörk), Piket (Holland),
Marinelli (Italíu) og Mascarinas (Fil-
ippseyjum) allir með 6V2 vinning.
Slakt gengi ýmissa heimsþekktra
stórmeistara vakti mikla athygli.
Bent Larsen fékk aðeins 4 vinninga úr
9 skákum. Robert Hubner sem tefldi í
sínu fyrsta opna móti í langan tíma
náði sér aldrei á strik. Og Yasser
Seirawan tapaði eins og barn fyrir al-
gerlega óþckktum andstæðingi í
fyrstu umferð.
Það reið baggamuninn hjá Mar-
geiri að í 4. umferð lagði hann að velli
hinn illræmda stórmeistara Florin
Gheorghiu. Hafði hann á orði að það
Sigurinn yfir Gheorghiu
kom Margeiri á bragöið
Margeir Pétursson efstur ásamt Kortsnoj í Lugano
væri einhver sætasti sigurinn á skák-
ferlinum, ekki aðeins vegna þess að
hann hafði áður tapað tvisvar fyrir
Gheorghiu, heldur vegna þeirra
slæmu kynna sem íslendingar hafa
haft af þessum stórmeistara sem hvað
eftir annað hefur orðið uppvís að
„verslun" með vinninga á skák-
mótum.
Þessi mikilvæga skák fylgir hér.
Gheorghiu velur svokallaðan tékkn-
eskan Benony og kom þar ekki að
tómum kofanum hjá Margeiri sem
gerþekkir þessa byrjun. Hvítur nær
betri stöðu vegna meira rýmis og
heldur uppi miklum þrýstingi á báð-
um vængjum. Það verður Gheorghiu
til falls að hann þolir ekki að bíða í
óvirkri vörn og leggur út í vafasöm
uppíkipti, 30. ,.bxa5. Margeir lætur
sig þá ekki muna um að fórna manni,
31. Rxc5! og peðafleygur hans er í
þann mund að brjótast fram er Ghe-
orghiu reynir að blíðka goðin með því
að gefa manninn til baka, en hróks-
endataflið sem upp kemur heldur
hvorki vatni né vindum. Sannfærandi
sigur.
26. Bxd7-Dxd7
27. b4-b6
28. Hbl-Ra6
29. b5-Rc7
30. Hfl-bxa5
SKÁK
4. umferð:
Margeir Pétursson -
Florin Gheorghiu
Benony-vörn
1. d4-Rf6 11. Bg5-Dd7
2. c4-c5 12. Rh2-Rh5
3. d5-g6 13. Df3-Rc8
4. Rc3-d6 14. Rc2-Bf6
5. é4-Bg7 15. Bxf6-Rhxf6
6. RI3-0-0 16. De3-Dc7
7. h3-e6 17. a5-Kg7
8. Bd3-Ra6 18. Bc2-Rc7
9. 0-0-Rc7 19. f4-exf4
10. a4-e5 í V 20. Rxf4-Rd7 21. Rf3-f6 22. Ba4-Re5 23. Rxe5-fxe5 24. Rd3-Hxfl + 25. Hxfl-Bd7
HELGI
ÓLAFSSON
31. Rxc5!-dxc5 45. Ha6+-Kc5
32. Dxc5-Hd8 46. Hc6+-Kb5
33. Dxa7-Rxb5 47. He6-Hb3+
34. Dxd7+-Hxd7 48. Kc2-Hh3
35. cxb5-Hb7 49. Hxe5-Hxh4
36. Hbl-a4 50. Kd3-Hg4
37. Kf2-a3 51. Kd4-h4
38. Hal-Hxb5 52. He8-Hxg5
39. Hxa3-Kf6 53. Hb8+-Ka6
40. h4-Hb6 54. Hh8-Hh5
41. g4-h5 55. Hxh5-gxh5
42. g5+-Ke7 56. Ke3-h3
43. Ke3-Kd6 57. Kf2
44. Kd3-Hbl
- og Gheorghiu gafst upp.
Ég er ekki viss um að Gheorghiu sé
genetískur skíthæll. Til þess að skilja
þessa persónu þurfa menn að tengja
hana við rúmenskan veruleika. Þar í
landi þrífst einhver stórkostlegasta
spilling sem um getur í víðri veröld.
Mútuþægni er ekkert tiltökumál.
Rúmensku þjóðfélagi hefur hægt og
bítandi miðað í átt til afsiðunar.
Mannréttindi erum fótum troðin og
þorri fólks býr við ótrúlegan skort.
Mótmæli við fyrirætlunum leiðtogans
Ceauseschu, að jafna heilu þorpin við
jörðu og reisa sér höll, sem ásamt
unthverfi sínu og öðrum stjórnar-
byggingum tekur fjórðung höfu-
ðborgarsvæðisins, hafa kostað fjölda
manns lífið. 1 byrjun síðasta árs varð
uppþot vegna matarskorts í nokkrum
bæjum í Rúmeníu. Fangelsaðir skiptu
þúsundum. Til mikils hluta þessa
fólks hefur ekkert spurst og er talið
fullvíst að það hafi verið líflátið.
Auk þess að hafa gist höfuðborgina
Búkarest fyrir tveim árum átti ég þess
kost nýlega að ræða þessi mál við einn
af þegnum landsins og hann var ansi
vondaufur um framtíðina. Mér eru
sérstaklega minnisstæð þau orð sem
hann hafði um andóf fólks við harð-
stjórninni. Á slíkum málum væri
tekið af fullri hörku, með aftökum og
hörðum refsingum. Þetta ásamt
harðvítugum persónunjósnum, sem
óhjákvæmilega leiðir til mikillar tor-
tryggni gerði Rúmeníu ekki fýsilegan
dvalarstað á jörðu eins og nú væri
ástatt. í þessu þjóðfélagi hefur Florin
Gheorghiu dafnað ágætlega og verið
hampað. Hann kann leikreglurnar þó
þær dugi honum ekki í lýðfrjálsari
löndum.
Með í förinni til Lugano var einnig
Karl Þorsteins og hafnaði hann í
miðjum hópi keppenda, en tefldi þó
við marga sterka skákmenn, m.a. en-
ska stórmeistarann John Nunn. Eng-
lendingurinn er sérstaklega hættu-
legur þegar Sikileyjarvörn er annars
vegar og Karl fékk að kynnast því í
skák sem á áreiðanlega eftir að fara
víða:
6. umfcrð:
John Nunn - Karl Þorsteins
Sikileyjarvörn
I .e4-c5 5. Rc3-d6
2. Rf3-e6 6, (,4
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rf6
Keres-árásin svokallaða, eitt
skarpasta vopn hvíts gegn þessu af-
brigði Sikileyjarvarnarinnar.
6- ••Bt7 9. Be3-Rc6
7. g5-Rfd7 10. Bc4
8. h4-0-0
Staðan fær nú svipmót hinnar
nafntoguðu Velimirovic-árásar.
blekkja sjálfa sig, aðra eða hvoru
tveggja, hvað varðar þessa þætti,
í þeim tilgangi að teljast gjald-
gengir í þjóðfélaginu. Þessir ein-
staklingar eiga í erfiðleikum með
að tengjast öðrum tilfinninga-
legum og persónulegum böndum
af ótta við að upp komist um
blekkingarnar og þeir verði því
ekki lengur gjaldgengir. Þeir
reyna því stöðugt að ímynda sér
hvernig þeir eigi að haga sér,
hvað falli inn í hópinn, hvað aðrir
vilji fá frá þeim o.s.frv. Þeir falla
sem sé um sjálfa sig, því í hinni
stöðugu leit að því hvernig þeir
eigi að haga sér, hugsa eða finna,
fjarlægjast þeir stöðugt eigin til-
finningar, langanir og skoðanir
og geta að lokum ekki gert neinn
greinarmun á því, hverjar þeirra
eigin tilfinningar eru eða hvað
það er, sem þeir halda aðeins að
passi inn í. Þeir eru sem sé alltaf
að leika hlutverk. Það hlutverk,
sem þeir halda að umhverfið,
þjóðfélagið, nánustu vinir eða
maki ætlist til af þeim. Þeir eru
stöðugt að reyna að „standa" sig.
Ekki fyrir sjálfa sig, heldur fyrir
aðra. Áð lokum verður svo erfitt
að halda í við hlutverkið að
löngun til uppreisnar brýst fram.
Þá eru eigin tilfinningar oft orðn-
ar svo fjarlægar að erfitt er að átta
sig á þeim. Einstaklingurinn upp-
götvar að hann hefur ekki verið
að lifa sínu eigin lífi, heldur því
lífi, sem hann hélt að hann „ætti“
að lifa. Sjálfsmyndin er légleg,
sjálfstraustið oft sýndarmennska
og sjálfsvirðingin lítil. Meira um
þetta næst.
10. ..Rxd4
11. Dxd4-a6?
Þótt ótrúlegt kunni að virðast þá er
þetta sennilega ónákvæmur leikur
sem gefur sóknartilburðum hvíts á
kóngsvæng byr undir báða vængi.
Best var 11. ,.Re5 12. Be2-Rc6 13.
Dd2-a6 og síðan b7-b5. Svartur hefur
þá allgóða gagnsóknarmöguleika.
12. 0-0-0-b5 is. h5_b4
13. Bb3-Rc5 16. h6!
14. f4-Da5
Þessi leikur felur í sér drottningar-
fórn hvíts. Það er ekki hægt að kom-
ast hjá henni eftir þennan leik.
16. ..e5
17. Rd5!! t
Stórglæsilegur leikur. Drottningin
er of stór biti að kyngja:‘l7...exd419.
Rxe7+-Kh8 19. Bxd4!-Hg8 20.
hxg7+-Hxg7 21. Hxh7+!-Kxh7 22.
Hhl+-Bh3 23. Hxh3 mát!eðal9. ,.f6
20. hxg7+-Kxg7 21. gxf6+-Hxf6 22.
Hdgl+-Kf8 23. Hg8+-Kxe7 24.
Hxh7+-Hf7 25. Hxf7 mát.
17. ..Rxb3+
18. axb3-Bxg5
Örvæntingarfull tilraun. Þiggi Karl
drottninguna núna vcrða afbrigðin
þau sömu og getið var um í síðustu
aths. 18. ..Dal+ 19. Kd2kemurheld-
ur engu áleiðis.
19. fxe5-Bxe3+ 22. Rc7+-KI7
20. Dxe3-g6 23. e6+!
21. Dg5-f6
Laglegur lokahnykkur. Drottning-
in á a5 fellur svo svartur gafst upp.
Kasparov
Heimsmeistarinn í skák, Garrí
Kasparov, batt snarlega endi á
bollaleggingar manna, er hann
gekk að eiga hin 24 ára gömlu
Mösju Arapovu í marsbyrjun.
Athöfnin fór fram í Moskvu en
hveitibrauðsdögunum ætla þau
að eyða í Baku heimaborg Kasp-
arovs. Masja hefur lagt stund á
enska tungu og bókmenntir.
Föstudagur 17. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27