Þjóðviljinn - 18.03.1989, Page 1
Laugardagur 18. mars 55. tölublað 54. órgangur
Sérfrœðingar
530 þúsund heimsóknir
Tölurbendatilþess aðíslendingar hafifarið530.000 sinnumtil sérfrœðings vegna krankleika á síðasta ári
Islendingar fóru 530 þúsund
sinnum til sérfræðings í fyrra ef
Hvalamyndin
Magnúsi boðið
í kappræður
Danska sjónvarpsstöðin TV 2
hefur ákveðið að efna til kapp-
ræðna milli fulltrúa Grænfrið-
unga og framleiðenda myndar-
innar „Lífsbjörg í norður-
höfum“, sem sýnd vcrður í sjón-
varpsstöðinni á þriðjudagskvöld.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur verið ákveðið að
bjóða Magnúsi Guðmundssyni
að taka þátt í þessum kapp-
ræðum. Magnús sagði í gær að
hann hefði ekki heyrt af slíku
boði. - Ef ég fæ slíkt boð þá
myndi ég gjarnan vilja taka þátt í
slíkum umræðum, en það yrði
erfitt að koma því við vegna tíma-
skorts, sagði Magnús. - Að öðr-
um kosti myndi ég þá benda á
danska blaðamanninn Leif Blæs-
dal sem minn fulltrúa, enda er
hann kunnari starfsháttum
Grænfriðunga en ég sjálfur.
Grænfriðungar hafa sem kunn-
ugt er ákveðið að stefna íslenska
ríkissjónvarpinu fyrir sýningu á
mynd Magnúsar og Magnúsi
sjálfum fyrir fals og lygar um
samtökin. Fulltrúi samtakanna
sagði í gær að í umræðuþættinum
á þriðjudag myndu verða kynnt
ýmis göng sem staðfestu yfirlýs-
ingar þeirra um rangfærslur í
mynd Magnúsar.
Eimskip
180 miljónir
í önnur
fyrirtæki
Heildaifjárfesting Eimskips á
sl. áritœpirl.4 miljarðar.
Hagnaður afrekstri 9 miljónir.
Óviðunandi segja forráðamenn
félagsins
Hagnaður af rekstri Eimskipa-
félagsins á sl. ári var um 9 miljón-
ir en árið á undan var rekstrar-
hagnaður 272 miljónir. Halldór
H. Jónsson stjórnarformaður fé-
lagsins sagði á aðalfundi félagsins
í fyrradag að staða Eimskips væri
sterk en afkoman á síðasta ári
væri óviðunandi.
Heildareignir félagsins um sl.
áramót voru uppá rúma 5,7 milj-
araða en skuldir uppá 3,6 milj-
arða. Eigið fé var því rúmar 2.1
miljarður og eiginfjárhlutfall
37%.
Athygli vekur að á síðasta ári
fjárfesti Eimskip í öðrum fyrir-
tækjum fyrir 180 miljónir. Fé-
lagið jók við hlutafjáreign sína í
Flugleiðum, Fjárfestingafé-
laginu, Olíufélaginu Skeljungi,
Iðnaðarbankanum og Verslunar-
bankanum.
treysta má tölum í nýrri greinar-
gerð lækna um kjör sín. Það þýð-
ir að að meðaltali hafí hver Is-
lendingur farið tvisvar sinnum á
árinu með krankleika sem heimil-
islæknir getur ekki leyst úr.
Samkvæmt upplýsingum
Tryggingastofnunarinnar námu
greiðslur sjúkratrygginga fyrir
sérfræðiþjónustu lækna á síðasta
ári um 900 miljónum króna. í
greinargerð Læknafélagsins um
kjör sjúkrahúslækna, sem Þjóð-
viljanum hefur borist, segir að
hver heimsókn sjúklings til sér-
fræðings hafi kostað tryggingarn-
Starfsmenn Arnarflugs skál-
uðu í gær í kampavíni á skrif-
stofum félagsins í tilefni þess að á
ríkisstjórnarfundi voru teknar
ákvarðanir sem gætu bjargað fé-
laginu frá gjaldþroti. Aðgerðir
ríkisins eru þær að það mun láta
söluandvirði þotunnar sem nem-
ur um 400 miljónum ganga upp í
skuldir Arnarflugs við ríkið. Þá
mun Arnarflugi verða gefin eftir
150 miljóna skuld við ríkið, en sú
upphæð er töpuð fyrir ríkið hvort
sem er, hefði Arnarflug orðið
gjaldþrota. Þá krefst ríkið þess að
eigi það að veita Arnarflugi lána-
fyrirgreiðslur mcð ríkisábyrgð-
um, komi á móti fullkomin og að-
gengileg veð. Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra
ar að meðaltali 1700 krónur.
Þessar tölur gefa það til kynna að
íslendingar hafa þurft að sækja til
sérfræðings um 530 þúsund sinn-
um á síðasta ári, og gefur tala
þessi væntanlega læknum og heil-
brigðisyfirvöldum ærið tilefni til
þess að hafa áhyggjur af heilsu-
fari íslendinga.
í greinargerð Læknafélagsins
segir að hver heimsókn til sér-
fræðings á síðasta ári hafi að með-
altali kostað 2000 krónur, en
hlutur sjúkratrygginga þar af hafi
verið 1700 krónur. Sjúklingar
greiða nú úr eigin vasa 550 kr.
sagði að ríkið væri ekki að
„bjarga“ Arnarflugi með þessum
aðgerðum, því það rynni ekki ein
ný króna frá ríkinu til félagsins
með þessu móti.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans þurfa Arnarflugsmenn að
finna eignir að verðmæti allt að
200 miljónum króna að auki þeim
eignum sem þeir hafa lagt fram
sem andvirði hlutafjár, en sam-
tals nema þessar upphæðir um
360 miljónum. Takist Arnar-
flugsmönnum að safna þessu fé
kann fyrst að sjá fyrir endann á
óvissunni um framtíð félagsins.
Rökstuðningur ríkisstjórnar-
innar fyrir þessari ákvörðun er
m.a. sá að ef Arnarflug hefði orð-
ið gjaldþrota hefði það kostað
fyrir slíka heimsókn, nema ellilíf-
eyrisþegar, sem greiða 185 krón-
ur.
Árið 1985 greiddu sjúkratrygg-
ingarnar 337 miljónir fyrir sérf-
ræðiþjónustu. Arið 1986 var
þessi upphæð 520 miljónir, 1987
752 miljónir og áætluð upphæð
fyrir síðasta ár er eins og áður er
getið 900 miljónir.
í heilbrigðisumfjöllun í Helg-
arblaði Þjóðviljans var missögn
sem beðist er afsökunar á. Þar
sagði að samningar sjúkrahús-
lækna gæfu þeim heimild til þess
að vinna utan sjúkrahússins að
ríkissjóð um 100 miljónir króna.
Lengi hefur staðið í þrefi með
lausn á þessu máli, enda voru
uppi andstæðar skoðanir innan
ríkisstjórnarinnar á því hver
heppilegasta lausnin kynni að
vera. Talið er að framganga Flug-
leiðamanna í þeim viðræðum sem
þeir áttu við ríkisstjórnina um
framtíð Arnarflugs hafi stuðlað
að þessari lausn mála, þótt hún sé
ekki sú niðurstaða sem æski-
legust var talin á þeim bæ. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
stilltu Flugleiðamenn málinu upp
þannig að þeir yrðu að taka
flugfélag með neikvæða eigin-
fjárstöðu yfir 500 miljón króna.
Til að fást til þess vildu Flugleiða-
menn fá vilyrði ríkisstjórnarinnar
sérfræðiþjónustu í 9 klst. á viku á
fullum launum. Rétt er aðsjúkra-
húslæknar í fullu starfi hafa heim-
ild til þess að vinna utan sjúkra-
húsanna í 9 klst. á viku utan síns
reglulega vinnutíma og eru þá
ekki á launum frá sjúkrahúsinu.
Læknar sem eru í hlutastarfi á
sjúkrahúsum geta unnið eins
mikið ogþeir vilja utan vinnutím-
ans þar. Ieinstaica tilfellum vinna
sjúkrahúslæknar að sérfræði-
þjónustu sinni inni á sjúkrahús-
unum, og þá rennur 25-40% tax-
tagjalds fyrir þjónustuna til
sjúkrahússins. _ólg
fyrir einokun á millilandaflugi
næstu 3-5 árin, þeir fengju niður-
fellingu skulda upp á 150 miljónir
króna og ríkið veitti þeim lán
fyrir eftirstandandi skuldum
Árnarflugs til 10 ára. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans urðu þeir
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra og Jón Sigurðsson,
viðskiptaráðherra til að stöðva
þessar viðræður þar sem þeim
þótti skilyrði Flugleiðamanna
óaðgengileg. Hefði ríkisstjórnin
tekið sínar ákvarðanir um Arn-
arflug í gær er augljóst að Flug-
leiðamenn kæmu aftur til við-
ræðna og þá í enn sterkari stöðu
en áður.
-phh
Arnarflugsfólk fagnar áfangasigri með blómum og kampavíni í gærdag. (Mynd: Jim)
Arnarflug
Blómvendir og kampavín
Ríkisstjórnin ákvað að gefa eftir 150 miljóna skuldfélagsins og 400 miljón króna söluhagnað af
þotu ríkissjóðs renna tilgreiðslu skulda Arnarflugs. Tap ríkissjóðs viðgjaldþrot hefði numið
rúmumlOO miljónum. FramtíðArnarflugsfer eftir aðgerðum eigenda. Flugleiðir vildu einokun