Þjóðviljinn - 06.04.1989, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 06.04.1989, Qupperneq 1
Fimmtudagur 6. aprfl 1989 66. tölublað 54. órgangur BSRB Vilja öniggar tryggingar Ríkisstjórnin getur ekki boðiðfastgengi néfulikomna verðstöðvun. BSRB fundaði ígœrkvöldi um afstöðu ríkisstjórnarinnar og áframhald samningaviðrœðna. Ögmundurjónasson: Geirnegldar tryggingar. TalVSI efnahagslegt stórslys Við viijum fá tryggingar fyrir að umsaminn kaupmáttur haldi, geirnegldar. Því er hafnað að gengi verði haldið föstu og varðandi verðstöðvum er ríkis- stjórnin reiðubúin að kalla saman fund til að ræða þær kröfur frek- ar. Ríkisstjórnin hefur einnig lýst sig reiðubúna til að ræða aðrar leiðir til að bæta kaupmátt í sam- ræmi við verðlagsþróun. Þessar hugmyndir eru enn óljósar og ómótaðar, en við bíðum eftir að sjá hvað hangir á spýtunni, sagði Ogmundur Jónasson formaður BSRB í gærkvöldi. í gær höfðu samninganefndir BSRB og ríkisins náð samkomu- lagi um öll helstu atriði nýs kjar- asamnings er gildi frá 1. apríl til 15. október - að uppfylltum skil- yrðum um tilskildar tryggingar. Samningsuppkastið felur í sér 2000 króna launahækkun þann 1. apríl, 6500 króna orlofsauka sem kæmi til útborgunar 1. júní og 2500-3000 króna greiðslu í ágúst eða september, auk smávægi- legra tilfærslna í launaflokkum. Þessar hækkanir hafa verið metn- ar upp á 9-10%. Steingrímur Hermannsson, Arnarflug Farseðlar fyrir hlutafé Aðalfundur eftir viku, m.a. „um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsár- inu“ Arnarflugsmenn leggja nótt við dag að afla þess 100 miljarða hlutafjár sem ríkið setti að skil- yrði þvi að félaginu yrði veitt op- inber fyrirgreiðsla. Þjóðviljinn hefur fyrir því heimildir að mönnum hafi verið falboðið 50 þúsund króna hlutabréf með myndarlegum kaupauka: tveim farmiðum til Evrópu í sumar að eigin vali, fram og til baka. Auk þessa fylgdi skattaafsláttur einsog lög gera ráð fyrir: kr. 17 þúsund. Halldór Sigurðsson, blaðafull- trúi Amarflugs, kvað rétt vera að slík hlutabréf væm til sölu en að- eins starfsmönnum flugfélagsins. Þegar honum var bent á að starfs- vettvangur heimildarmanns væri allt annar sagði hann skýringuna ugglaust þá að hann væri annað hvort vinur eða ættingi starfs- manns. Aðaifundur Arnarflugs verður haldinn eftir viku. í fundarboði kemur fram að stjómin hyggst afla sér heimildar til þess að auka hlutaféð um 315 miljónir króna. Fundarmenn eiga jafnframt að ákveða þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda fyrir liðið starfsár og leggja línur um „með- ferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu.“ ks forsætisráðherra sagði eftir fund með forystumönnum BSRB í gærkvöld að verðstöðvun kæmi til greina ef um það næðist breið samstaða. VSÍ hefði hins vegar alfarið hafnað því. VSÍ ætti vissu- lega ekki að hafa síðasta orðið en það yrði að taka tillit til þeirra sem annarra. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra sagði að það lýsti frekar prinsippafstöðu en efnis- ágreiningi þegar ríkisstjórnin hefði ekki getað lofað að gengi yrði haldið stöðugu. „Við erum sammála BSRB í því að halda gengi og verðlagi stöðugu. Við buðum upp á að ræða mjög vand- lega verðlagsþróun á næstunni og hvaða tæki eru best til að hindra verðhækkanir. Ég tel að samn- ingaviðræðurnar síðasta sólar- hring hafi skilað miklum árangri. En málflutningur atvinnurek- enda og árásir þeirra á þessa vinnu er furðulegur og á sér greinilega rætur í pólitískum ráð- hring í Garðastræti og Valhöll. Ég mun gera allt í mínu valdi til að þessir samningar takist," sagði Ólafur Ragnar. Ögmundur Jónasson sagði að sér fyndist óhugnanlegt tal VSÍ- manna um að kröfur BSRB væru „efnahagslegt stórslys“. „Það má frekar segja að afstaða VSÍ sé efnahagslegt stórslys. Það lýsir algjöru ábyrgðarleysi af hálfu VSÍ-manna, sem sjálfir eru á háum launum og stefna að kjara- skerðingu íslenskrar alþýðu að tala svona,“ sagði Ögmundur Jónasson. phh ögmundurJónassoneftirfundmeðformönnumstjórnmálaflokkannaí gærkvöldi: Viljum geimegldar kaupmáttartryggingar. Mynd Jim Smart. BHMR 2000 komnir í verkfall Engin hreyfingfyrren daginnfyrir verkfall. PállHalldórsson: Tíminn runninnfrá okkur Boðað verkfall 11 félaga há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna tók gildi á miðnætti. Nær tvö þúsund ríkisstarfsmenn í ýms- um tækni- og þjónustugreinum eru komnir í verkfall, flestir þeirra eða um 1400 eru félags- menn í Hinu íslenska kennarafé- lagi og eru allt skólastarf í fram- haldsskólum landsins meira og minna í lamasessi. Þrátt fyrir fjölmarga fundi samninganefndar ríkisins og BHMR-félaganna undanfarnar vikur, var það ekki fyrr en í fyrra- kvöld að einhver hreyfing komst á viðræður deiluaðila, að sögn Páls Halldórssonar formanns BHMR. Lítið varð hins vegar úr viðræðum í gær og gærkvöld þar sem aðilar biðu eftir niðurstöðu í viðræðum BSRB við forystu- menn stjórnarflokkanna. Tíminn er runninn frá okkur og verkfall því óumflýjanlegt, sagði Páll. Ljóst er að verkfall háskóla- manna mun hafa töluvert víðtæk áhrif víðar en í skólum. Þannig hefur orðið að rýma sjúkrarúm á ríkisspítölum, verðurfréttir falla niður og öll rannsóknastarfsemi ríkisins lamast. Þá má búast við röskun í grunnskólum landsins í dag þar sem Kennarasamband fs- lands hefur hvatt félagsmenn sína til að gefa sér tíma í dag á vinnu- stöðum til að ræða stöðu kjara- málanna. -Ig. Sjá síðu 2 Vinnuveitendasambandið Öllu er stefnt í voða! VSI: Tilboð ríkisins erefnahagslegtstórslys. Engirpeningartil. ASI: Viljum viðrœður á BSRB grundvellinum Forystumenn VSÍ brugðust í gær ókvæða við tilboði því sem samninganefnd ríkisins hefur gert BSRB. Segir Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ, að gangi sömu hækkanir yfir alla línuna þýði það 15 miljarða í aukin launaútgjöld. Slíkt sé efna- hagslegt stórslys, sem kalli á óða- verðbólgu, hækkun vaxta og at- vinnuleysi. Á samningafundi ASÍ og VSÍ í gær lögðu Alþýðusambands- menn til að viðræður aðila tækju mið af þeim samningsgrundvelli sem náðst hafði í viðræðum BSRB og ríkisins. Sagði Ás- mundur Stefánsson að það væri skýlaus krafa sem atvinnrekend- ur gerðu sér fulla grein fyrir að félagsmenn í Alþýðusambandinu fengju ekki minni kjarabætur en ríkið semdi um við sína starfs- menn. Vinnuveitendasambandið seg- ist ekki tilbúið til viðræðna um BSRB-samkomulagsdrögin og hefur einnig lagst eindregið gegn tillögum verkalýðshreyfingarinn- ar um verðstöðvun og vaxtalækk- un. Samninganefndir ASÍ og VSÍ munu hittast aftur síðdegis í dag.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.